Morgunblaðið - 21.03.1982, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 21.03.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. MARZ 1982 77 Snæfellsnes: Hér búa olnbogabörn fjárveitingavaldsins Olafsvík, 19. marz. NÚ ER búizt við breytingu á veð- ri hér á Vesturlandi og þá má reikna með að upp taki snjóinn, sem valdið hefur samgönguerfið- leikum hérna. Að vísu er nú búið að opna Fróðárheiði og hreinsa vegi hér í kring, en um síðustu helgi og fram um vikuna var ein- ungis fært um norðanvert nesið. Sérleyfisbílar Helga P. hafa þó haldið áætlun upp á hvern dag af miklum dugnaði. Vegagerð ríkis- ins tilkynnti á þriðjudag, að Fróð- árheiði yrði ekki rudd þann dag vegna skafrennings, en við vitum líka hér, að orsökin var alveg eins tækjaleysi til snjómoksturs, því bæði er að tækin eru fá og léleg, hila æði oft. Starfsmenn vegagerðarinnar á Snæfellsnesi hafa árum sam- an mátt glíma við snjóalög svona illa í stakk búnir og með naumar fjárveitingar í þokka- bót. Sem dæmi má nefna að freistazt var til að stinga í gegn eins og sagt er, svo hægt væri að komast að nýju skíðalyft- unni, sem er á háheiðinni og verið var að vígja. Þetta mun hafa verið illa séð hjá yfir- mönnum vegagerðarinnar syðra. Þó var ekki rutt nema suður á miðja heiði og þeir eig- enda lyftunnar sem búa sunnan heiðar gátu ekki mætt til að vera viðstaddir vígsluna. Það eru ár og dagar síðan mönnum varð nóg boðið í þessum efnum. Gildir það jafnt um allan árs- ins hring. Nú fer senn í hönd aurtíminn, sem getur staðið í tvo mánuði með tilheyrandi slarki, ófærum og alls konar hindrunum og takmörkunum. Svo kemur blessað sumarið, en jafnvel þá er erfitt að hugsa hlýlega til Vegagerðar ríkisins og fjárveitingavaldsins. Til þess eru holurnar nokkrum milljónum of margar, stak- grjótið, lausamölin og rykið allt of magnað og minnir of ræki- lega á að hér búa olnbogabörn þeirra, sem þessum málum ráða. Helgi Akranes: Frambodslisti Framsóknar birtur FRAMBOÐSLISTI Framsóknar flokksins viö bæjarstjórnarkosn- ingar á Akranesi, sem fram fara vor- ió 1982, hefur verið ákveðinn og er hann þannig skipaður: 1. Jón Sveinsson, lögfræðingur, Brekkubraut 10. 2. Ingibjörg Pálmadóttir, hjúkr- unarfræðingur, Vesturgötu 32. 3. Steinunn Sigurðardóttir, hjúkrunarforstjóri, Vestur- götu 67. 4. Andrés Ólafsson, skrifstofu- stjóri, Vogabraut 56. 5. Þórarinn Helgason, formaður verkamannadeildar VLFA, Suðurgötu 45. 6. Stefán Lárus Páisson, stýri- maður, Deildartúni 10. 7. Þorsteinn Ragnarsson, verk- smiðjustarfsmaður, Garða- braut 19. 8. Guðrún Jóhannsdóttir, skrifstofumaður, Bjarkar- grund 45. 9. Björn Kjartansson, húsa- smíðameistari, Jaðarsbraut 7. 10. Sigurður Þorsteinsson, verk- stjóri, Jaðarsbraut 17. 11. Þórunn Jóhannesdóttir, hús- móðir, Vallarbraut 15. 12. Sigurbjörn Jónsson, hús- gagnasmiður, Skagabraut 35. 13. Þorbjörg Kristvinsdóttir, hús- móðir, Furugrund 7. 14. Gissur Þór Agústsson, pípu- lagningamaður, Einigrund 4. 15. Margrét Magnúsdóttir, hús- móðir, Vesturgötu 127. 16. Bent Jónsson, skrifstofustjóri, Vogabraut 16. 17. Ólafur Guðbrandsson, vél- virki, Merkurteig 1. 18. Daníel Ágústínusson, aðalbók- ari, Háholti 7. fimnVdagar í fimmtudagur tíl þriðjudagskvölds Við seldum póskaíerðimar allar upp á augabragði og vegna fjölda dskorana eínum við nú til aukafeiðar til Dublin írá fimmludegi til þriðjudags. Á írlandi eru páskamir með líflegasta móti, verslanir og veiíingahús taka sér lágmarkshvfld frá störíum golívellimir eru opnir og dansinn dunar íram eftir nóttu á eldíjörugum skemmtistöðum. Verð aðeins kr. 3.960 midað við flug og gengi 18. jan. 1982. Innifalið: Flug, akstur tilog frá ílugvellierlendis. gisting m/morgunverði á hinu stórgóða Hotel Burlington og íslensk íararstjóm. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar Selfoss Almennur fundur veröur haldinn i Sjalfstasö- isfélaginu Óöni sunnudaginn 21. mars hl. 15.00. Gestur fundarins veröur Friörik Soph- usson, alþingism. og ræöir hann um stjórn- málaviðhorfin. Allir sjálfstasöismenn hvattir til aö mæta. Stjornm Félag sjálfstæðismanna í Austurbæ, Nordurmýri Miövikudaginn 24. marz nk. veröur haldinn fundur meö umdæma- fulltruum félagsins. Fundurinn veröur í Valhöll, Háaleitisbraut 1 oo hefst kl. 20.30. Gestir fundarins veröa Ragnar Júliusson og Júlíus Hafstein. Umdæmafulltrúar hvattir til aö fjölmenna. Stjórnin. Fella- og Hólahverfi — Bakka- og Stekkjahverfi — Skóga- og Seljahverfi Rabbfundur Félög sjálfstæöismanna i Breiöholti halda fund um borgarmál fimmtu- daginn 25. marz kl. 20.30 aö Seljabraut 54, (hús Kjöts og fisks). Frambjóöendurnir Sigurjón Fjeldsted og Július Hafstein koma og spjalla viö fundarmenn. Mætum og höfum áhrif. Stjórnirnar Félag Sjálfstæðismanna í vesturbæ — miöbæ Fimmtudaginn 25. marz veröur haldinn fundur meö umdæmafulltrúm félagsins. Fundurinn veröur i Valhöll, Háaleitisbraut 1 og hefst kl 20.30. Gestir fundarins veröa Markús Örn Antonsson og Vilhjálmur Þ VII- hjálmsson. Umdæmafulltrúar hvattir til aö fjölmenna. Stjórnin. Spilakvöld Sjálfstæöisfélag Arbæjar- og Selásshverfis heldur spilakvöld. þriöju- daginn 23. mars kl. 20.30 i húsi félagsins, Hraunbæ 102. viö hliöina á Skalla. Aögangur ókeypis

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.