Morgunblaðið - 21.03.1982, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. MARZ 1982
79
AFORNUM
VEGI
Samantekt
J.F.Á.
Gunnar, knattspyrnudcildarformaður, flytur tölu sína í teitinni og þakk-
ar félögum sínum góða frammistöðu. Heiðursgestirnir, starfsstúlkur
Getrauna, sitja til vinstri og hlýða á formanninn.
Morgunblaftið/(«uAm. Jóh.
í tipparateiti
hjá KR-ingum
Veturinn er oft daufur tími hjá knattspyrnumönnum hérlendis.
Leiktímabilið er stutt og æfingar liggja víðast niðri frá því í miðj-
um september til áramóta. Við þetta langa hlé kemur, eins og gefur
að skilja, oftlega deyfð í félagsstarfið. Athygli stuðningsmanna og
margra leikmanna beinist að öðrum íþróttagreinum og þau gefast
fá tækifærin til að halda hópinn. En hin seinni ár hafa getraunir
orðið mörgum félögum sú lyftistöng sem vantaði í félagslífinu, auk
þess að verða íþróttahreyfingunni drjúg tekjulind. Það íþróttafélag
sem hefur haft afgerandi forustu í getraunastarfinu er Knatt-
spyrnufélag Reykjavíkur. Knattspyrnudeild KR hefur um árabil
verið stærsti söluaðiii Islenskra getrauna — og leggja þar jafnt
leikmenn sem stuðningsmenn félagsins hönd á plóginn.
A hverjum vetri koma KR-ingar jafnan saman í svonefndum
„Tippara-partýum" og gera sér glaðan dag þegar efni standa til.
Eitt slíkt var haldið í fyrri viku. Voru þá starfsmenn Getrauna
heiðursgestir. Gunnar Guðmundsson, formaður knattspyrnudeild-
ar sagði aðaltilefni þessarar teiti að fagna því langþráða takmarki
félagsins, að selja fleiri en milljón getraunaraðir á einum vetri. Er
það í fyrsta sinn sem nokkur selur svo margar raðir hérlendis á
einu keppnistímabili. En annað og ekki síðra tilefni var að heiðra
þá tvo menn, sem að öðrum ólöstuðum, hafa stuðlað mest að þess-
um góða árangri þeirra KR-inga. Þessir menn heita Birgir Guð-
jónsson og Þorsteinn Kristjánsson. Báðir hafa selt getraunaseðla
frá því Getraunir voru endurreistar og til marks um elju þeirra
nefndi Gunnar í tölu sinni, að ef þeir kappar tækju sig til og
mynduðu félag saman, þá yrðu þeir tvímenningar fjórði stærsti
söluaðilinn hjá Getraunum. Þeir Birgir og Þorsteinn hafa nefnilega
selt hvorki meira né minna en 220 þúsund getraunaraðir frá því í
haust og röðin er seld á 1 krónu, svo söluverðmætið er 22 milljónir
gamlar. Af því fær KR 25% í sölulaun, svo þeir tveir hafa fært
félaginu 5,5 milljónir gamlar frá því í haust. Og munar um minna.
En teiti þeirra KR-inga var hin fjörlegasta og að sjálfsögðu
töluðu allir um knattspyrnu. Voru flestir mjög spenntir vegna
hinnar beinu útsendingar frá Wembley af úrslitaleik deildarbikars-
ins milli Liverpool og Tottenham Hotspur, sem átti að verða daginn
eftir. Þá mátti vart sjá hvort vekti meiri hrifningu með mönnum
nýi KR-búningurinn með „ofurkraftinum", eða hinn fríði kvenpen-
ingur, sem starfar hjá Getraunum — en þær konur voru sem fyrr
segir heiðursgestir í teitinni ...
Tipparatröllin, ' Þor-
steinn „klaki" Krist-
jánsson og Birgir
Guójónsson. Þeir voru
heiðraóir fyrir frábær
störf fyrir KK — en frá
því í haust hafa þeir selt
220 þúsund getrauna-
raóir fyrir félagió aó
söluvcrðmæti 22 millj-
ónir gamlar.
Siguróur Indrióason,
meistaraflokksmaóur
KR, kynnir nýja
KR-svipinn, en
KR-ingar hafa nú tckió
upp auglýsingar á bún-
ingum sínum fyrir
Varta-rafhlöóur og raf-
geyma. Egill rakari
brosir útundir eyru.
Þar hittust tveir seigir
Ólafur Jóhannesson hefur staðið í ströngu síðustu dægur — en það er eins og máltækið segir: Það þarf meira
en mann úr Hallormsstaðaskógi til að stöðva Fljótabónda! Ólafur gaf sér tíma í önnum síðustu viku að rabba
stuttlega við tíðindamann Mbl. í tilefni af mynd sem blaðinu hafði borist frá Lundúnum. Myndin sú sýnir Ólaf
heilsa uppá Carrington lávarð, utanríkisráðherra í Bretaveldi, — en þeir hittust að máli í Englandsheimsókn
forseta vors fyrr í mánuðinum.
Hvað fór ykkur Carrington á milli, Ólafur?
Fundur okkar stóð nú stutt, aðeins í hálfa klukkustund, en við töluðum almennt um heimsmálin, einkanlega
um Pólland og Madríd-ráðstefnuna en einnig komum við inná svokallaðan Rockall-klett og afmarkað land-
grunn milli íslands og Bretlands. Carrington var alúðlegur mjög í allri samræðu og virtist hinn vænsti maður,
enda er hann virtur um allan heim
fyrir framgöngu sína í utanrík-
ismálum.
Þér hittuð einnig járnfrúna?
Já, og hún kom mér nú ekki
fyrir sjónir sem „járnfrú“! Mjög
aðlaðandi kona, frú Thatcher,
fluggáfuð og skemmtileg. En ég
hitti hana aðeins í einum löns. Jú,
forsetaheimsóknir eru hinar gagn-
legustu og ágæt kynning fyrir
land og þjóð, sagði Ólafur Jóhann-
esson.
Pétur
vekur
athygli
Pétur Jónasson, gítarleikarinn
ungi, er nú á ferð um Norðurlönd
og leikur á gítar sinn í hinum
ýmsu borgum á vegum Menning-
armálasjóðs Norðurlanda. Hann
hefur meðal annars komið við í
Lundi í Sviþjóð og af sænskum
blöðum að dæma fékk hann þar
hinar vinsamlegustu viðtökur.
Tónlistargagnrýnir einn,
Bengt Edlund að nafni, skrifaði
stutta umsögn um tónleika Pét-
urs í I.undi, undir fyrirsögninni
„Hög klass pá gitarrspel av ung
islánning". Þar segir meðal ann-
ars: „Leikur Jónassons vakti
hrifningu áheyrenda og ekki að
ástæðulausu. Tækni hans er
mikil og jafnvægi og nákvæmni
einkennir leik hans, sem er mjög
lifandi og í alla staði hinn fágað-
asti. Best naut hann sín í tón-
verkum Eyþórs Þorlákssonar og
William Walton — en í
spænsk/ latnesku verkunum
fannst mér hálft í hvoru sem
hann hefði mátt vera eilítið
frjálsari í leik sínum og meira
tælandi."
Þórður í
Svörtu pönnunni
Á HORNI Tryggvagötu og Póst-
hússtrætis er „Svarta pannan".
Það er veitingastaður og þar ræð-
ur Þórður Sigurðsson ríkjum.
Þórður er vel þekktur í veitinga-
bransanum; hann var yfirmat-
reiðslumaður á Aski í ellefu ár. Og
nú hefur hann opnað eigin veit-
ingastofu.
— Ég hef lengi gengið með það
í maganum að opna veitingastað,
segir Þórður, en farið hægt í sak-
irnar. Það skal vanda sem lengi á
að standa, eins og málshátturinn
segir.
En af hverju „Svarta pannan"?
Ja, það er langt síðan ég ákvað
það með sjálfum mér, að ef mér
auðnaðist einhvern tímann að
opna veitingastað, þá skyldi hann
heita „Svarta pannan". Ég á nefni-
lega fyrirmyndar pönnu og hún er
svört. Ég hef átt hana lengi og hún
hefur þjónað mér svo vel að mér
er farið að þykja vænt um þessa
svörtu pönnu. Én svo við víkjum
nú aftur að veitingastaðnum, þá
er ætlunin að bjóða þar uppá af-
bragðs góðan mat á skaplegu
verði, veita fljóta afgreiðslu og í
alla staði góða þjónustu. Ef ég má
nefna til dæmis, þá seljum við
fiskrétti á 35 krónur og kjúkl-
ingarétt á 50 krónur. Mér finnst
upplagt fyrir húsmæður að koma
hér við og taka með sér mat heim.
Það sparar tíma, fyrirhöfn og
jafnvel peninga. Þá munum við
leggja áherslu á heimsendingar-
þjónustu, segir Þórður Sigurðsson
í „Svörtu pönnunni".
si,\T7r\\ f
SVAKIA
pannan