Tíminn - 22.07.1965, Page 11

Tíminn - 22.07.1965, Page 11
FIMMTUDAGUR 22. jiilí 1965 TÍMiNN n 26 húsnæði. En til var útskýring, sem réttlætti það, að áæltun- inni var skyndilega breytt: fyrsta kvikmyndasýningarvélin hafði rétt í þessu komið til landsins, og þessi nýi skáli var sá eini, sem til var, þar sem hægt var að sýna kvik- myndir. Þar við bættist, að hann lá mjög vel við, svo menn úr fjölmörgum búðum gátu komið og séð myndirnar með hægu móti. Þar af leiðandi átti að nota skálann til bráða- birgða sem kvikmyndahús, eða þangað til hægt yrði að byggja annan skála í þessum tilgangi. En í hernum gat orðið „bráðabirgða" þýtt mánuði eða það gat jafnvel þýtt um alla eilífð. Aðeins var um eitt að ræða: við áttum að fá að hafa skálann fyrir okkur einn dag í viku, og hafa þar þá ein- hvers konar skemmtisýningar. Sjúkraliðarnir voru jafnæstir í að hafa einhverja skemmtisýningu þarna eins og þeir voru í að fá að halda dansleik, og ég hélt að minnsta kosti, að svo lítið væri hægt að gera fyrir þá. Allmargir menn bjuggu yfir ýmiss konar hæfileikum, og það var skoðun okkar, að með aðstoð þeirra mætti koma upp allgóðri skemmtun. Skemmtiþættina varð að velja í samræmi við hæfileika hvers og eins, og lána varð skemmtikröftunum bæði hljóðfæri og nótur, áður en þeir gætu byrjað að æfa sig. Þá risu upp vandræði: mennirnir gátu hvergi æft sig sjálfir, og þegar tími var til kominn að hafa sameigin- lega æfingu var enginn staður til þess að halda hana. Kvik- myndahúsið var í notkun frá því klukkan eitt á daginn fram til klukkan ellefu á kvöldin, alla daga vikunnar nema einn — og því miður var ekki hægt að hafa æfinguna að morgni dag, því þá þurftu mennirnir að vera á vakt á sjúkr'ádeildunum, á verði eða í eldhúsinu. Þégar skemmti- kraftarnir komust að raun um, að þeir myndu ekki losna alveg við skyldustörf sín, neyddumst við til þess að fresta sýningunni í annan mánuð. Allt benti til þess, að ég ætti eftir að eyða þessu ári í eintóman eltingaleik, í staðinn fyrir að vinna að því að skipuleggja tómstundir mannanna. Betsy Lane Quinlan, sem hafði svipuðum störfum að gegna og ég við sjúkrahús, sem var alllangt í burtu, átti líka við erfiðleika að etja. Þrátt fyrir það, að við ættum báðar að vera að vinna svipuð störf, og þörfin væri nokk- urn veginn sú sama á báðum stöðunum, þá voru vandræðin við að leysa úr þörfinni engan vegirin þau sömu hjá okkur. Vegna staðsetningar voru erfiðleikar hennar aðallega efnis- legir — þar þurfti að komast af án leikbúninga farða og hljóðfæra. Þegar tímar liðu fram kom þetta þó allt saman, og með fyrirmyndaraðstoð hjúkrunarsveitanna tókst Betsy að setja á svið ágæta skemmtun. Hún vann einnig í sjúkra- húsinu frá því klukkan 8.30 til klukkan fimm á daginn, og á kvöldin bauð hún sig fram til þess að starfa í her- búðunum. Doris Thain og Ethel Rea höfðu fengið að vinna í skála herprestsins í fiskiþorpi skammt frá. Þetta var ekki í alla staði sem bezt fyrirkomulag, því skálinn tilheyrði ekk'i Rauða krossinum, og það sem við vildum fá, voru tóm- stundaheimili fyrir okkur, þar sem við gátum sett á svið hvers konar dagskrár, sem við töldum heppilegastar. Þá voru þær einnig í vandræðum með að komast til og frá þorpinu og urðu að neyðast til þess að ferðast á puttanum í allflest skiptin. Þetta, og einnig sú staðreynd, að mikill skortur var á starfsliði, sem haldið gat uppi félagslífi í búðunum, varð til þess, að þær voru látnar ferðast á milli búðanna og skipuleggja þessa starfsemi. Bæði Mary Dolliver og Betty Clark urðu að ferðast langar leiðir á degi hverjum. Búðir þeirra voru allmarga kílómetra frá sjúkrahúsinu og þegar vegurinn var ekki eitt rykhaf og allur í holum var hann eitt forarsvað og erfiður yfirferðar. Stundum stöðv- ist öll umferð vegna stormspár og tafði það mjög fyrir þeim. Samt held ég, að þær hafi verið öfundsverðar af starfi sínu. Þeim hafði verið fenginn í hendur skáli til eigin afnota, og þar máttu þær gera hvað sem þær vildu helzt. Það eina var, að þetta var ekki beinlínis skáli. Þetta var fer- hyrnd bygging, fremur léleg, og gekk venjulegast undir nafninu „Missourisvínastían." ; Mary og Betty neyddust til að .vinna baki brotnu til þess að lagfáera þennan skála, því hann hafði áður og fyrr yerið geymsluhúsnæði. Skrúbba varð gólfin, veggir og loft voru máluð og lagfæra þurfti þakið. Svo varð að útvega gluga- tjöld (sem ekki reyndist auðvelt), mæla efnið, klippa niður og sauma, og við þetta unnu þær löngu eftir að allir áttu að vera komnir í rúmið. Einhvern veginn varð líka að útvega húsgögn. Það var gert. Margir stólanna voru gerðir úr köss- um, sem síðar voru sviðnir með gaslampa, til þess að þeir litu betur út. Á sama hátt voru útbúnar blaðagrindur og bókahillur. Spil, bækur og blöð handa þeim tæmdu næst- um birgðaskemmu okkar, en það var þess virði. Einhvers Resl best koddar Endurnýjum gömlu sængurnar. E'igum dún- og fiðurheld ver, æðardúns- og gæsadúnssængur og kodda af ýmsum stærðum. — PÓSTSENDUM — Dún- og fiðurhreinsun Vatnsstig 3 — Sími 18740 (Örfá skref frá Laugavegi) þig, elskan mín, sagði hann. Hún hló létt og glaðlega, en augun voru orðin dökk af kvíða. Á næsta augnabliki hafði hún kippt að sér hendinni og var kom- in hálfa leið út á dansgólfið. Píanistinn í hljómsveitinni brosti til hennar af því að hann kann- aðist við hana. Hún hafði vanið komur sínar þangað með Monty. Hún stanzaði og talaði nokkur orð við hann til þess að tefja tím- ann eins og hægt væri. . . — Við söknum yðar og dans- herrans yðar, sagði hann. — Það var alltaf gaman að spila, þegar þið voruð á dansgólfinu. — Nú hef ég eignazt annan mann, sagði hún hlæjandi. — Eins góðan og þann fyrri? Hún svaraði ekki strax. Svo kom hörkusvipur á andlitið og hún sagði: — Þessi nýi er ráð- inn ævilangt. Hún þrýsti á hnappinn við lyft- una og fór tvær hæðir upp. Að brúðhjónaíbúðinni. Tvö svefnher- bergi, bað og dagstofa. Hún kveikti sér í vindlingi, þeg- ar hún var komin upp. Svo fór hún út á svalirnar, en þaðan sást vel yfir Boston. En þetta var ein- hvernveginn allt önnur Boston en sú, sem hún hafði kynnzt með Monty. Þá hafði þetta verið borg áhyggjuleysis og glaðværðar. ITú var hún borg ábyrgðar og skyldu. Það fór hrollur um hana þarna úti í kvöldsvalanum, en samt fór hún ekki inn. Enn var fólk á göt- unum. Hún hafði gaman af að horfa á það. Það sefaði taugarn- ar hennar. Hún beygði sig fram á hand- riðið og horfði niður. Henni fannst hún vera eins og fangi, sem mændi til þeirra sem frelsisins nutu. Að fá að ganga um þarna niðri . . . kannski vera að fara á stefnumót! . . . ESa vera að laumast heim eftir langa kvöldstund með elsk- huganum . . . En nú var öllum leynifundum lokið hvað hana snerti. Nú var hún gift. Tveimur hæðum fyrir neðan hana sat maður, sem hún átti að kalla sinn. Og samt fannst henni hann vera ókunnugur. Jafn ókunnugur og lyftudrengur- inn. Og nú gat hann komið upp til hennar þá og þegar . .. Hún skalf, þegar hún kom inn aftur og lokaði dyrunum eftir sér Það var drepið varlega á dyrnar — Kom inn! sagði hún lágt og með titrandi rödd. Það var Druce. Þó að hún hefði átt von á hon- um, starði hún á hann undrandi Henni fannst hann fylla út alla stofuna Hann var svo stór, svo f y rirf er ð armikill — Þú ert ekki búin, sé ég — Jú, undireins Ég fékk mér bara sígarettu fyrstu fyrst Við — við höfum nógan tíma Hann hló, en svaraði ekki Þau höfðu nóttina fyrir sér hugsaði Ray með sér Þau höfðu ! allt lífið fyrir sér Loftið var magn ! að eins og óveður væri í asigi Druce hió aftur framan i hana Gráu augun voru dimm af þrá Augnaráðið var svo sterkt, að henni fannst það snerta sig eins og broddur Það læsti sig um hana, hélt henni fastri, ætlaði að kyrkja hana En hann er svo nær- gætinn, hugsaði hún með sér upp- væg Hvað sem fyrir kann að koma má ég ekki valda honum von- brigðum það væri svik. Hann gekk að henni Hendur hans teygðu sig fram og lögðust á axlir hennar. Hún titraði, hörfaði aði ósjálfrátt undan. Hann var svo stór, svo ókunnur, svo hræðilegur. En hún kvaldi sjg til að hjúfra sig að honum. Hann kyssti hana ákaft og hún tók hlýðin við öll- um kossum hans. Hún sneri fölu. óttaslegnu andlitinu að hon- um. Það skein á rauðan munn hennar á fölu andlitinu. Allt í einu hætti hann að kyssa hana. Hún opnaði augun og sá furðu og sársauka skína úr aug- um hans. Hún varð hrædd og hop- aði frá honum. — Þú hefur ekki kysst mjg sjálfviljug í eitt einasta skipti, svo að ég muni, sagði hann dræmt. — Ég vona að ástin sé ekki ein- göngu mín megin, Ray. Það er gott og blessað að vera fíngerð og vel siðuð, en of mikið af öllu má þó gera . . . Kysstu mig eins og þú þráir mig jafn mikið og ég þrái þig! Ray reyndi. Hún steig eitt skref áfram. En ;svo nam hún staðar og horfði á hánn. Hún fann, að hún gat þetta ekki. Hann krafðist meira en hún gat gefið. — Jæja? Drættirnir kringum munn hans urðu skelfandi alvar- legir. — Ég get það ekki, Druce, hvíslaði hún í öngum sínum. — Skilurðu það ekki? Ég get það ekld! Þögnin færðist yfir þau, þung og kæfandi. Ray átti erfitt með að anda. — Bara, að hann vildi segja eitthvað, hugsaði hún með sér, angistarfull. Druce horfði á hana. Hann hafði hnyklað augnabrúnirnar. Hún fann hvasst áugnaráð hans frem- ur en að hún sæi það. Það smaug gegnum hana og gerði hana óvíga. Mig grunaði þetta, sagði hann og röddin var undarlega róleg. — Mér fannst hún vera einkennileg brúður, hún unnusta mín. En það stafar kannski af uppeldinu, sem' hún hefur fengið. Eða það er kannski fínt að látast vera ósnort- inn og kaldur sjálfa hveitibrauðs- dagana, hvað veit ég? Þú hefur hagað þér eins og það, að halda upp á brúðkaup væri eitthvað ámóta við að borða miðdegisverð. Og nú fer ég að skilja hversvegna , . . Hann baðaði út stórum og sterklegum höndunum. — Þú elskar mig ekki! — Ég . . . mér þykir vænt um þig, stamaði hún. — Og ég ber virðingu fyrir þér, Druce . . . En hann tók fram í fyrir henni og reyndi að leyna tilfinningum sínum með því að gera röddina sem grófasta. — Ég finn, að þú getur ekki einu sinni verið ærleg gagnvart sjálfri þér. Hún kipptist við og leit upp. Það var helzt að sjá, að hún ætl- aði að reyna að verja sig. En í staðinn sagði hún: — Nei, ég elska þig ekki . . . og þegar hún hafði komið upp þessum orðum varð henni allt í einu léttara. Það var eins og létt væri af henni fargi er hún gat hætt að hræsna. — Þetta er betra, sagði hann. — Ég mun ekki þurfa að spyrja þig um hversvegna þú giftist mér. Finnst þér það eiginlega hafa ver- ið rétt gert af þér? — Ég hélt, að þú skildir það, sagði hún. — Þú vissir, að ég

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.