Morgunblaðið - 07.05.1982, Síða 6
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAÍ1982
Bláhvítt lónið
Það hafa margir heyrt getiö lónsins við
Hitaveitu Suðurnesja á Svartsengi, fyrir
þær sakir að þar baða sig psoriasis-
sjúklingar aö staðaldri og telja þeir
sumir hverjir sig geta haldið sjúkdómn-
um niðri meö því að nudda kísilútfell-
ingu, sem finnst á botni lónsins á psori-
asis-blettina, sem eru á líkama þeirra
auk þess sem þeir stunda Ijósaböö.
Psoriasis-sjúkdómurinn lýsir sér þannig
að sjúklingarnir fá útbrot á líkamann,
sem getur orðið aö sárum, sem valda
sársauka, einnig fylgir sjúkdómnum
mikill kláði. Um þennan sjúkdóm er
lítiö sem ekkert vitað, það er aö segja
hvorki er vitað um orsakir hans né
hvernig er hægt aö vinna bug á hon-
um. í höfuðatriöum fá flestir sömu
meðferð en hún felst f því að borinn er
tjöruáburður á útbrotin og líkaminn er
baöaöur í útfjólubláum Ijósum. Á seinni
árum er farið að nota sterin-áburð, en
hann hefur aukaverkanir. Bæöi þynnir
hann húðina auk þess sem hann veld-
ur æðasliti í húöinni og er hann því
slæmur, einkum fyrir börn. En þess má
geta að engar aukaverkanir hafa fylgt
því aö fara f lónið.
allt
Morgunblaöiö/ Kristján Einarsson
SAGT FRÁ LÓNINU VIÐ HITAVEITU SUDURNESJA AD SVARTSENGI ÞAR SEM PSORIASiS-SJÚKL-
INGAR BAÐA SIG REGLULEGA. NÚ FER FRAM RANNSÓKN Á LÆKNINGAMÆTTI VATNSINS í LÓNINU
Aðstaöan við lónið er ekki upp á marga fiska.
Grípa hvert
hálmstrá
Sökum eðlis sjúkdómsins þá
er engin furöa þó að psori-
asis-sjúklingar grípi hvert
hálmstrá sem gefur von um betri
liöan og eru þeir því mjög leitandi
aö öllu því sem verða má til þess
aö hægt sé aö halda sjúkdómnum
niöri eöa vinna bug á honum.
Því var þaö aö félagar í Samtök-
um psoriasis- og exem-sjúklinga
hafa tekiö sig saman um aö gang-
ast fyrir rannsókn á því hvaöa
gagn þaö getur gert aö baöa sig í
lóninu aö staöaldri. Rannsóknin
sem hófst skömmu eftlr áramót
felst í því að psoriasis-sjúklingarnir
fara fyrst til læknis í skoöun. Hann
athugar viökomandi og skrifar
niöur lýsingu á útbrotunum og tek-
ur myndir af þeim bæöi áöur og
eftir aö fólkið hefur stundaö böö í
lóninu. Gert er ráö fyrir aö þaö sé
ákveöinn fjöldi sjúklinga, sem
þannig gengur undir athugun meö-
an á rannsókninni stendur, svo
hægt sé aö draga marktækar
niðurstööur af athuguninni. Til-
gangurinn er sá aö finna út hvaöa
þættir þaö eru einkum, sem hafa
þessi góöu áhrif. Er þaö kísillinn í
lóninu, sem þarna er aö verki eöa
er hér um samverkandi áhrif kísils-
ins, útfjólubláu geislanna frá Ijósa-
lömpunum eöa fleiri þátta aö
ræöa.
Læknirinn, sem fenginn hefur
veriö til aö athuga psoriasis-sjúkl-
ingana meðan á rannsókninni
stendur er Sæmundur Kjartansson
húösjúkdómalæknir.
Þaö eru félagar í Samtökum
psoriasis- og exem-sjúklinga eöa
SPOEX, eins og skammstöfunin er
á félaginu, sem sjálfir veröa aö
hafa frumkvæöi aö þessum athug-
unum og standa straum af kostn-
aöinum viö þær. Búast má viö aö
athugunum Ijúki í sumar og verða
niöurstööur hennar væntanlega
isettar fyrir nefnd, sem myndi meta
I árangur þeirra.
Mikill áhugi
fyrir rannsókninni
Aöstaðan viö lóniö á Svartsengi
er ekki upp á marga fiska. Þar hef-
ur veriö settur upp skúr, sem ístak
hf. hefur lánaö félögunum. Þetta er
fyrrverandi vinnuskúr, bæöi
þröngur og kaldur, en þarna geta
félagarnir klætt sig úr og í og farið
i steypibaö og Ijósaböð. Félagarnir
í SPOEX hafa í hyggju aö reyna aö
bæta aöstööuna meöal annars
vegna rannsóknarinnar, sem nú
fer fram. Hafa þeir fariö fram á þaö
viö heilbrigðisyfirvöld aö þeir fái til
afnota 65 fm húsnæöi sem er í
eigu þeirra og staösett er í Keflavík
og hafa þeir í hyggju aö flytja húsiö
á Svartsengi og staösetja þaö viö
vesturenda lónsins. Einnig hafa
þeir áhuga á aö útbúa sólbaös-
aöstööu þar. En þessi mál eru í
athugun hjá yfirvöldum.
SPOEX hefur einnig fariö fram á
þaö viö ríkið, aö þaö veiti félögun-
um styrk til aö standa straum af
kostnaöi viö aö senda bíl með hóp
fólks, sem vill fara í lónið reglu-
lega. En þaö er mjög dýrt fyrir ein-
staklinginn sjálfan aö standa
straum af kostnaöi slíkra feröa.
Sem dæmi um kostnaö má nefna
aö ef ekið er einu sinni á dag í einn
mánuö frá Reykjavík aö Svartsengi
þá má gera ráö fyrir að bensin-
kostnaðurinn einn sé um 3.000
krónur.
Aö sögn formanns Samtaka
psoriasis- og exem-sjúklinga,
Valdimars Ólafssonar, þá hafa yfir-
völd sýnt þessu málefni töluverðan
áhuga. Fyrir Alþingi hefur legiö til-
laga þess efnis aö lækningamáttur
lónsins verði kannaöur og hefur
hún nú verið samþykkt. Þaö er ein-
mitt þaö sem félagarnir eru nú aö
gera upp á eigin spýtur.
Kvaö Valdimar fólk almennt
mjög spennt fyrir þessum rann-
sóknum og heföu borist margar
fyrirspurnir til skrifstofu SPOEX,
bæöi héöan innanlands og utan-
lands frá. Sagöi hann aö margt
fólk utan af landi heföi sýnt áhuga
á aö koma suður og eyða sumar-
leyfinu sinu í aö kanna lækninga-
mátt vatnsins í lóninu, einkum ætti
þetta viö um fólk, sem ætti börn
meö psoriasis-sjúkdóma á háu
stigi.
Heldur sjúkdómnum
niðri með reglulegum
böðum í lóninu
Sú rannsókn, sem nú er í gangi,
á sér sinn aödraganda. Þaö var
síöastliöiö sumar, sem fariö var aö
ræöa af alvöru um ágæti lónsins.
Þá haföi einn félagi í SPOEX, sem
lengi haföi þjáöst af psoriasis, Val-
ur Margeirsson, reynt lóniö með
góöum árangri. Hann haföi fyrr um
sumariö fariö til Spánar og stund-
aö þar sjó- og sólböö sem höföu
mjög góö áhrif á útbrotin. Einum
og hálfum mánuöi eftir aö hann
kom heim blossaði sjúkdómurinn
upp aö nýju. í þrjár vikur fór Valur
í Ijósaböö og bar á sig smyrslin en
ekkert dugöi. Svo þaö lá beint viö
aö þaö þyrfti að leggja hann inn á
sjúkrahús. Um þetta leyti birtist
viötal viö verkfræöing Hitaveitu
Suöurnesja þar sem hann sló því
meöal annars fram, aö verið gæti
aö vatniö í lóninu viö orkuveriö
gæti gert psoriasis-sjúklingum
gott, en einhver meö þennan
sjúkdóm haföi prófað aö fara i lón-
ið og þóttist finna þar bót. Valur
vildi reyna allt, sem oröið gæti
honum til heilsubótar, svo hann fór
að stunda böö í lóninu. Eftir aö
hafa farið í lóniö í þrjá daga, hvarf
allur kláöi og pirringur sem mynd-
ast þegar hrúöriö kemur á psori-
asis-blettina. Viku seinna fór hann
til húösjúkdómalæknis, sem sá aö
honum var aö batna og hvatti
læknirinn hann til aö halda áfram
og taldi í lagi aö hann færi tvisvar á
dag sem hann og gerði. Með því
aö stunda bööin í lóninu svona oft
fann hann dagamun á sér. Eftir
þrjár vikur var hann svo til alveg
laus viö útbrotin.
Síðan þetta var hefur Valur
haldiö sjúkdómnum niöri meö því
aö baöa sig í lóninu.
Fleiri en Valur hafa fariö reglu-
lega í lónið og aö sögn þeirra Vals
og Valdimars, þá hafa 50 manns
prófaö lóniö en um 30 manns hafa
stundaö þaö aö staöaldri siöan um
áramót. Sumir hafa fengið bót en
aörir hafa fengiö minni eða ef til vill
enga lækningu meina sinna. En til
þess aö hægt sé aö fá skorið úr
um gagnsemi þess aö baöa sig í
lóninu reglulega, þá kváöu þeir
Valur og Valdimar mikilvægt aö
psoriasis-sjúklingarnir færu fyrst til
húðsjúkdómalæknis áöur en þeir
byrjuöu aö stunda böö í lóninu,
svo hægt væri aö fylgjast meö
árangrinum.
Það er stundum
kallað bláa lónið
Eins og áöur segir er ekki vitaö
hvaöa efni þaö eru í lóninu, sem
hafa þessi góöu áhrif á psoriasis-
sjúkdóminn eöa hvort hér er um
aö ræöa samverkandi áhrif fleiri
þátta.
Vatnið í lóninu kemur úr borhol-
um, sem gerðar voru á sínum tíma
af Hitaveitu Suöurnesja. Vatniö er
mjög salt og hefur þaö 64% af
seltu sjávar en mun meiri kísill er í
vatninu en í sjó. Vatniö rennur i
gegnum orkuveriö, viö þaö kólnar
þaö niöur í 70° en viö kælinguna
fellur út kísill, eins og gerist á flest-
um öðrum hverasvæöum og má
því gera ráö fyrir aö botnfallið í
lóninu sé aö mestu leyti kísilútfell-
ing auk þess sem gera má ráö fyrir
ýmsum snefilefnum í vatninu, aö
sögn Jóns Arnar Bjarnasonar hjá
Orkustofnun.
Lóniö á Svartsengi hefur á sór
bláhvítan lit og er því stundum
nefnt bláa lóniö en aörir vilja kalla
þaö jarösjóinn á Svartsengi. En
hvaö sem því líöur, þá er bláhvíti
liturinn talinn stafa af kisilfjölliö-
ungum, sem myndast í vatninu.
Þarna í lóninu svamlar svo fólk-
iö. Þaö tekur öðru hvoru upp
handfylli af kisli úr botninum og
nuddar honum á útbrotin, hvort
sem þau eru á handleggjum, hönd-
um, fótum, í hársrót eöa annars
staðar á líkamanum. Sumir fara í
sturtubað strax á eftir en aö sögn
Vals, þá finnst honum ágætt aö
leyfa kíslinum aö liggja á líkaman-
um í nokkrar klukkustundir. Þegar
kísillinn þornar veröur hann eins
og hvítt duft og minnir þá einna
helst á púöur.
Þaö er sérkennilegt að líta yfir
lóniö og nágrenni þess. Viö austur-
enda þess ris orkuveriö meö sínar
mikilúölegu byggingar og strompa
sem spúa gufu yfir þetta bláhvíta
lón. Á hinar hliöar lónsins er svo
hraunið, dökkt og úfiö. Þarna