Morgunblaðið - 17.09.1982, Page 1

Morgunblaðið - 17.09.1982, Page 1
Föstudagur 17. september - Bls. 33-56 með tónlist Því hefur lengi veriö haldið fram, aö meö því aö hlusta á tónlist megi kyrra úfið skap og menn slaki á. Þessu heldur Richard Larenz fram, en hann er sölu- stjóri hjá Singer-verksmiðjunum f Bandaríkjunum. Þaö er ekki óal- geng sjón hjá Singer-fyrirtækinu að sjá starfsmenn fyrirtækisins loka sig inni á skrifstofum sfnum á miðjum vinnudegi meö heyrn- artæki á höföinu. Þannig sitja þeir og stara út í loftið meöan þeir hlusta á Chopin og Bach, meöan þeir slaka á og láta hug- ann reika. s vo langt sem sögur ná aft- ur hafa menn borið skart ýmiss konar. Manninum virðist hafa verið í blóð borin þörf fyrir að skreyta sig, hvort sem það var skart úr skeljum, fjöðrum, beini úr dýrum eða ððru því sem mátti finna í umhverfinu eða gulli og silfri eins og við ber- um nú. Við ræðum hér við Hjördísi Gissurardóttur gull- smið, um gullsmíðar en hún rek- ur verkstæði og verslun í Reykjavfk, sem hún kallar Silf- urskin. Hjördís er af yngri kyn- slóð starfandi gullsmiða hér Það hefur Iftið verið fjallað um tannvernd hér á landi og aðferöir og skipulag fyrirbyggjandi tann- lækninga eru ekki fyrir hendi, svo neinu nemi. En ýmsar aðferðir til varnar tannátu, sem er höfuðóvin- urinn eru þekktar en þeim hefur lítt verið beitt hér. Tannáta hefur fariö minnkandi í nágrannalöndum okk- ar og í Bandaríkjunum og erum við orðin mikiö á eftir í þróun þessara mála. Um þetta og ýmislegt fleira í sambandi við varnir viö tann- skemmdum ræöir Sigurjón Bene- diktsson tannlæknir, sem nýlega kom frá námi í fyrirbyggjandi tannlækningum í Bandari'kjunum. ■HHHHBHHnHHHHHHBHMHHHHHHI HHI Daglegt líf 34 Ferðalög 36 Alþýðuvísindi 42 Hvað er að gerast? 43 Sjónvarp næstu viku 44/45 Útvarp næstu viku 46 Myndasögur og Fólk 48/49 Bíó og dans 50/53 Velvakandi 54/55

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.