Morgunblaðið - 17.09.1982, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 17.09.1982, Blaðsíða 22
54 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1982 1882 Unlvtrm Pr»» Syndlc»t> \Jcxrcií>u jp'iq ck 'yessom þuöer'é' ruðory\ar cxS \ nruAm/elré^.,' ... aö skipta um blað eftir að hafa ■ notað rakvélina hans. TM Rag U.S Pat Off —all rights reserved • 1962 Los Angetes Times Syndicate Við komumst ekki með þetta heim? Með morgunkaffinu Hann sté á glerbrot um daginn! HÖGNI HREKKVÍSI Kraftaverkið í Hrísey Ingjaldur Tómasson skrifar: „í Morgunblaðinu 18. júlí er í máli og myndum greint frá stór- merkri náttúruvernd er hjónin Sæmundur Stefánsson og Úlla Stefánsson hafa staðið fyrir af miklum stórhug og myndarskap frá árinu 1959, er þau keyptu jörðina Ystabæ í Hrísey og hófu þar friðun og ræktun bæði jurta og fugla. Að mestu orðrétt úr greininni: „„Hér í eyjunni er þéttasta rjúpnavarp í heimi," segir Sæmundur, „og rjúpurnar eru gæfar, enda er þeim aidrei gert mein. Svo er kríuvarpið eitt hið mesta sem kunnugt er um ... Þrátt fyrir þetta óhemju kríu- varp höfum við aldrei lagt okkur til munns eitt einsta kríuegg ... Krían kemur alltaf um miðjan maí og hvert par vitjar áreiðan- lega sama hreiðursins ár eftir ár ... Hún er bráðskemmtilegur fugl, fallegur, duglegur og feiki- lega ratvís.““ Það kemur einnig fram í grein- inni, að þarna eru um 30 fugla- tegundir. Sumar komu þegar skógarplönturnar fóru að vaxa. „„Býsnamargar andartegundir verpa hér, og sumar eru klókar að fela hreiðrin sín undir trjánum, þar sem greniskógurinn er þétt- astur,“ segir Sæmundur. „Það er skemmtilegt að fylgjast með blessuðum fuglunum. Þeir eru allir vinir okkar, nema auðvitað vargfuglarnir, þeim segjum við stríð á hendur.““ „„Hefurðu séð veiðibjöllu sporðrenna æðarungum," spyr Sæmundur viðmælanda sinn og heldur svo áfram: „Það er ljót sjón, get ég sagt þér. Sigurgeir vinur minn Júlíusson rauk einu sinni að mér, þegar ég var stadd- ur suður í þorpinu og spurði, hvort ég hefði byssu í bílnum. Honum var heitt í hamsi, og hann sagðist ætla að skjóta helviska barnamorðingjana þarna úti á höfninni, þó að annars væri bannað að skjóta þar. Hann hafði orðið vitni að því, að tvær veiði- bjöllur gleyptu á svipstundu 16 unga af 18, sem syntu á legunni með mæðrum sínum, algerlega varnarlausir.““ Margir einstaklingar víða um land hafa reynt að verja varp- lönd, bæði fyrir vargfugli og mink, en varla hefir þó náðst jafnglæstur árangur og hjá Ysta- bæjarhjónunum í Hrísey. Vitað er að þar sem kríuvarp er varið, leita aðrir fuglar að. Það er engu líkara en þeir skynji öryggi frið- aðra svæða. Og krían er hörku- dugleg við að flæma burt varg- Þá vitum við það Ökumaður skrifar: I ríkisútvarpinu eru þættir um umferðarmál og má mikið vera ef þeir heita ekki því furðulega nafni „Á kantinum". Það hefur víst margt borið þar á góma enda veitir ekki af umferð- arfræðslunni. Sumt af því gengur mönnum vel að tileinka sér en annað miður eins og t.d. það sem hér fer á eftir þó það sé örlítið lagfært: Það er talið að það sé mun betra að vera bundinn við bílinn ef hann fer fram af bryggju og í sjóinn eða annað djúpt vatn og sekkur. Ijós bílanna (og þá einnig á spegla og rúður þó það væri ekki tekið fram). Talið var að þessi óhrein- indi þyrfti að þvo af eftir u.þ.b. 10 km akstur. Þá vitum við það. Þetta er vafalaust til bóta. Það ætti ekki að taka röskan mann meira en fimm mínútur í hvert sinn að gera þetta og á leiðinni milli Reykjavíkur og Akureyrar þarf ekki að stöðva nema um það bil 45 sinnum til þess arna og hreinsunin tæki samanlagt varla meira en tæpar fjórar klst. E.t.v. væri hægt að fá þingmennina okkar til að lögbjóða svona akst- ursmáta strax á næsta þingi, því Undarlegir atburðir og afnotagjald útvarpsins Ásgeir Þ. Ólafsson skrifar: „Velvakandi! Ýmsir atburðir undarlegir hafa gerst á þessum síðustu misserum, og eru enn að gerast. Meðal annars er það, að Efna- hagsbandalag Evrópu hefir náð- arsamlegast leyft Grænlending- um rækjuveiðar í þeirra (Græn- lendinga) eigin landhelgi. Og það nýjasta, að sama bandalag hefir veitt Vestur-Þjóðverjum þorskveiðikvóta við Vestur- Grænland, upp á 2 þúsund tonn. Danir hafa hagnað af því að eiga aðild að Efnahagsbandalagi Evrópu (eru þar nú í forsæti). Nú er ekki lengur hægt að versla með landhelgi íslendinga (3 míl- ur 1901) í skiptum fyrir mark- aðsréttindi í Stóra-Bretlandi, á fleski, smjöri og eggjum. Af sú tíð. Nú hafa Grænlendingar feng- ið „heimastjórn" og ættu því að hafa ráðstöfunarrétt á sinni eig- in landhelgislögsögu, fiskimið- um og fiskveiðum. Snúum okkur nú að öðru efni. — Það er ekki ýkja langt síðan (1980), að sú merka menning- arstofnun, Ríkisútvarpið, átti Önnur lexía var á þessa leið: bleytuogi bleytu og roki setjast óhreinindi á þarfara að snúast. I varla hafa þeir blessaðir í nutJ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.