Morgunblaðið - 17.09.1982, Side 23

Morgunblaðið - 17.09.1982, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1982 55 TEK AKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MANUDEGI fcÍ3 TIL FÖSTUDAGS fugla, en við minkinn ræður hún ekki. Gegn honum verða verndar- ar hinna friðuðu svæða að vera vel á verði, því að einn minkur getur hæglega gjöreytt heilu varpi á einni nóttu. Munu minkur og refur koma fyrir ær og kýr? Segja má að margt sé skrýtið í kýrhausnum hjá búnaðarmála- og náttúruverndarforystu hér. Nú skal drepa ær og kýr í svo miklum mæli að um munar, en í stað þess stofnsetja sem flest og stærst minka- og refabú, helst í öllum sveitum landsins. Þetta hefði nú einhvern tíma verið talin saga til næsta bæjar! Ljótur leikur við Tjörnina I Morgunblaðinu 3. júlí var lýst ljótu ungadrápi við Tjörnina í Reykjavík. Höfundur greinarinn- ar var þar á gangi góðviðrisdag einn og hafði mikla ánægju af að sjá þar önd með 20 unga. Mann- inn langaði til að fylgjast með þessari óvenju stóru fjölskyldu, svo að hann brá sér þangað næsta dag, en þá kom í ljós, að nær allir ungarnir voru horfnir í svart- bakskjaft. Maðurinn ýjaði eitthv- að að því í greininni, að eftirlit við Tjörnina væri í lágmarki. Hinn 9. júlí birtist svar eftir- litsmannsins. Hann virðist taka heldur óstinnt upp að gagnrýnd skuli hafa verið náttúruvernd- arstörf hans. Hann segir að „eitthvað" hafi verið skotið af mávi, en árangur hafi orðið lítill. Auðvitað er gagnslaust að skjóta einhvern smáhluta af máva- gerinu. Þarna þarf vopnaður vörður að vera til staðar bæði nótt og dag, þar til ungarnir eru það vaxnir að þeir eru úr hættu vegna vargfugla. Fuglaverndari Tjarnarinnar kvartar undan því að fólk hendi mat í Tjörnina þann tíma á sumr- in þegar kappnóg fæða sé í ríki náttúrunnar. En því þá ekki að koma í veg fyrir það með auglýs- ingum í fjölmiðlum og á Tjarnar- bakkanum? Það er alveg augljóst að enginn alvörufuglavernd verður fram- kvæmd á landi hér, ef bæði yfir- völd þessara mála og eftirlits- menn lýsa því skorinort yfir að ekkert sé hægt að gera til vernd- ar bæði nytjafugli (æðavarp) og fjölmörgum tegundum sem hafa fyllt umhverfið gullnu skarti og dásamlegri hljómkviðu, sem eng- in tónsmíði kemst í hálfkvisti við. Og engu líkara er en „mottó" yfir- valda sé að gera ekki neitt, bara skipa mergð nefnda, ráð og nátt- úruvarða, nokkurs konar svefn- gengla á verðinum. Það er áreiðanlega auðvelt að stórfækka vargfugli, ef nokkur vilji er til þess. Hvernig væri að setja fuglaskotherinn í gang í nokkra daga? Svæfing, eggjataka, algert bann og sektir við því að ala svartbakinn á fisk eða slátur- úrgangi. Færi þetta allt í gang, er ég viss um að vargfugli fækkaði verulega. Það er óhugnanlegt að heyra sífellt mávagarg yfir borginni. Væri ekki ráð að fækka þessum ófögnuði á höfuðborgarsvæðinu? Væri ekki ráð fyrir borgaryfir- völd að feta í fótspor hjónanna og náttúruverndarfólksins í Ystabæ í Hrísey og skapa paradís gróðurs og fuglalífs í eyjunum út frá Reykjavík? Ég hefi margsinnis bent bæði borgaryfirvöldum og æskulýðsleiðtogum á að í Viðey iliegi bæði hafa skógrækt og æðarvarp. Dúnn hefur verið í geypiháu verði á heimsmarkaði. Dúntekjan gæti ekki aðeins greitt kostnaðinn, heldur líka orðið arðbært fyrirtæki, bæði efnalega og uppeldislega fyrir æskulýðinn sem þarna fengi áhugavert sköp- unarstarf. Það væri áreiðanlega hollara en margt af hinni vægast sagt vafasömu unglingavinnu sem haldið er uppi í borginni á hverju sumri." Þessir hringdu . . . Enginn friöur í heitu pottunum Kristin Ellertsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég er daglegur gestur i Sundhöll Reykjavíkur eins og fleiri. Kem ég þangað ekki síst til að njóta góðs af heitu pottunum og vatnsnu- ddinu þar. En nú er friðurinn úti. Ég er venjulega um sama leyti þarna, síðdegis, og þá má segja að fullorðnu fólki sé ekki vært í pott- unum fyrir bægslagangi í krökk- um, slettum og slagsmálum, sparki og sporðakasti. Þetta var farið að ganga svo yfir okkur sem erum þarna okkur til heilsubótar, að við leituðum ásjár laugarvarð- anna, þegar umkvartanir okkar við börnin báru ekki árangur. En þessi viðleitni okkar hefur engu breytt. Ekkert má hrófla við krökkunum og darraðardansinn heldur áfram, líklega þangað til fullorðna fólkið gefst upp á að nota sér þessa heilsulind. Það væri ömurlegt ef svo þyrfti að fara og óskiljanlegt að ekkert skuli vera hægt að gera til að vernda gesti Sundhallarinnar fyrir áreitni sem þessari. Heilbrigðiseftir- litiö svari Kristni 3287-9128 hringdi og hafði eftir- farandi að segja: — Vegna fyrir- spurnar Kristins í dálkum þínum 12. sept. þar sem hann spyr mig hvar fólk eigi að losa sig við slím og annan óhroða innan úr sér, ef ekki í rennurnar við laugarbakk- ana, þá finnst mér það standa Heilbrigðiseftirlitinu næst að svara því, eða þá forráðamönnum sundlauganna. Hvers vegna hleypur SIS ekki undir baggann? „Ein á mölinni" hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Nú hafa öll blöðin keppst við að vegsama bændur fyrir það göfuglyndi þeirra að fást til að skera niður af fjárstofni sínum. Þó eigum við að borga þeim stórfé fyrir og höfum undanfarin u.þ.b. 30 ár borgað niður fyrir þá útflutningsafurð- irnar. Við, sem á mölinni búum, megum bara fara á hausinn, ef enginn vill kaupa okkar vörur. Bankinn tekur af okkur íbúðina og við stöndum eftir allslaus. Þetta þykir bara sjálfsagður hlutur. Hvers vegna gildir ekki það sama um alla? Og hvers vegna hleypur ekki stofnun bændasamtakanna, SÍS, undir bagga með þeim, eina fyrirtækið í landinu sem á nóga peninga og fjárfestir endalaust í fasteignum? Við á mölinni höfum ekki lengur áhuga á að standa undir þessu. Hvaðan kemur eigin- lega allur gróði SÍS nema einmitt frá bændum? „Var þeirra tímamóta (hálfrar aldar afmælis útvarpsins — innskot Vel- vakanda) minnst á viðeigandi hátt! Minnist ég þess, að af því tilefni flutti hæstvirtur menntamálaráð- herra virðulega ræðu og tilkynnti, að nú væri Ríkisútvarpinu heimilað að reisa hús yfir starfsemi sína (fyrir fé úr eigin sjóði). Ennfremur sagði ráðherra, að sér væri Ijúft að færa útvarpinu þessa afmælisgjöf frá menntamálaráðuneytinu, að mér skildist. Vilhjálmur frá Brekku (fyrrverandi menntamálaráðherra) var reyndar áður búinn að taka fyrstu skólfustunguna að nefndri byggingu með gullrekinni skóflu." hálfrar aldar afmæli. Var þeirra tímamóta minnst á viðeigandi hátt. Minnist ég þess, að af því tilefni flutti hæstv. mennta- málaráðherra virðulega ræðu og tilkynnti, að nú væri Ríkisút- varpinu heimilað að reisa hús yfir starfsemi sína (fyrir fé úr eigin sjóði). Ennfremur sagði ráðherra, að sér væri ljúft að færa útvarpinu þessa afmæl- isgjöf frá menntamálaráðuneyt- inu, að mér skildist. Vilhjálmur frá Brekku (fyrrv. menntamála- ráðherra) var reyndar áður bú- inn að taka fyrstu skóflustung- una að nefndri byggingu, með gullrekinni skóflu. — Nóg um það. Þar sem ég hefi alltaf haft miklar mætur á Ríkisútvarpinu (hljóðvarpinu) og vil veg þess sem mestan, þá vil ég endurtaka þá tillögu, sem áður hefir komið fram í dagblöðum, oftar en einu sinni, nefnilega að afnotagjald Ríkisútvarpsins verði innheimt sem nefskattur. Fyrir þessari tillögu hafa verið færð rök, sem ég tel ekki þörf á að endurtaka hér. Mín skoðun er, að fjárhag útvarpsins yrði betur borgið með þessu fyrirkomulagi." GÆTUM TUNGUNNAR Heyrst hefur: Mest af þeim bókum, sem seldar voru fyrir jólin, voru íslenskar. Rétt væri: Mest af þeim bókum, sem seldar voru fyrir jólin, var íslenskt. (Ath.: Mest... var íslenskt.) VORUMARKADURINN ÁRMÚLAIA Nautahakk í 10 kg Nautahakk í 5 kg Nautahakk vigtaö Reyktur búöingur Kjötbúöingur Hádegispylsa Kindakæfa Lambaskinka Kindabjúgu Dilkaslög Okkar verö pr. kg. kr. 79,00 kr. 85,00 kr. 99,50 kr. 60,50 kr. 60,90 kr. 55,30 kr. 66,00 kr. 208,00 kr. 51,00 kr. 10,00 Leyft verð 133,00 133,00 133,00 66,50 66.55 59.55 74,90 231,00 56,60 19,20 Strásykur kr 9,65 pr. kg. Dilkaskrokkar 3. verð- flokkur kr. 34,95 pr. kg. (10% afsláttur). Opið til kl. 20 í dag Ipið 9—12 laugardag G L MJ Jm ARMULATA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.