Morgunblaðið - 19.09.1982, Page 1

Morgunblaðið - 19.09.1982, Page 1
207. tbl. 69. árg. SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins Ljósmynd Mbl. Ragnar Axelsson. Guðmundur Ámundason bóndi í Ásum söng með mikilli innlifun ásamt öðrum bændum í Reykja- rétt á föstudag þegar Skeiða- og Flóabændur smöluðu fé sínu, en þótt Morgunblaðið sé ekki ennþá með tali og tónum liggur við að það megi heyra Gumma í Ásum syngja: „Á engum stað ég uni, eins vel og þessum hér. Iskaldur Eiríksjökull veit allt sem talað er hér ..." Sjá bls. 26. • • Oryggisráð SÞ: Grace Kelly jarðsungin Monte (’arlo, Mónakó, 18. september. AP. KÓRALAR eftir Bach og gregoríanskur söngur fylltu hvelfingar dómkirkj- unnar í Monte Carlo í dag þegar hundruð syrgjenda víðs vegar að úr heiminum kvöddu Grace prinsessu hinsta sinni. Kista hennar var sveipuð konunglegum fána Grimaldi-ættarinnar og stóð frammi fyrir altarinu þar sem Grace og Rainer voru gefin saman fyrir 26 árum. Rainer prins, sem sat næstur altarinu ásamt tveimur barna sinna, grét meðan á athöfninni stóð en dóttir hans, Karólína, þrýsti hendur hans. Sonur hans, Albert, erfingi furstadæmisins, huldi andlitið í höndum sér en Stefanía, þriðja barn þeirra hjóna, er enn á sjúkrahúsi vegna meiðsla, sem hún hlaut í slysinu. Fjöldi fyrirfólks var viðstaddur jarðarförina, Nancy Reagan, eig- inkona Ronald Reagans Banda- ríkjaforseta, Diana, prinsessa af Wales, Danielle Mitterrand, eig- inkona Frakklandsforseta, og einnig nokkrir fyrrum starfsbræð- ur Grace Kelly úr kvikmynda- heiminum eins og t.d. Cary Grant. Að athöfninni lokinni var kistan flutt til hallar furstahjónanna og þar mun hún standa uppi þar til síðar í dag til að þegnar fursta- dæmisins geti vottað hinni látnu furstaynju virðingu sína. Að því búnu verður Grace lögð til hvíldar undir gólfi dómkirkjunnar þar sem forfeður Rainers í þrjá ættliði eru grafnir. Skotárás í Brussel BrusNel, 18. september. AP. MAÐUR vopnaður hríðskotabyssu skaut i morgun aö fólki, sem stóð fyrir utan samkunduhús Gyðinga í Brussel. Eftir síðustu fréttum að dæma hafði enginn látist en fjórir særst, sumir alvarlega. Öryggisverðir og lögreglumenn svöruðu strax skothríðinni og lagði þá maðurinn á flótta og komst undan. Þetta er fyrsta árás- in á Gyðinga í Belgíu á þessu ári en 1980 var handsprengju varpað að Gyðingabörnum í Antwerpen. Skæruliðar halda 200 gíslum í Hondúras Bandaríkin fordæma töku Vestur-Beirut Sameinuóu þjóóunum, 18. sept. AP. FULLTRÚI Bandaríkjanna í örygg- isráði SÞ var i gær á einu máli með Gleymdi til- litsseminni New York, 18. neptember. AP HÖFUNDI bókarinnar „Hvernig njóta skal ásta með konu“, lög- fræðingnum Michael Morgen- stem, hefur verið gert að mæta fyrir dómstólum í næstu viku fyrir að hafa slegið vinstúlku sína í andlitið er hann kom að henni með öðrum manni. Ekki er þess getið hvort sá hafði lesið umrædda bók. Lögfræðingur hans er þó borubrattur og segir hann munu mæta til réttarhaldanna þar sem hann sé saklaus. Verði hann sekur fundinn um lík- amsárás á hann allt að árs fangelsi yfir höfði sér. Bók Morgenstern er þessa dagana í 12. sæti á lista New York Times yfir mest seldu bækurnar. í bókinni eru karl- menn m.a. hvattir til að „sýna frumkvæðið" í samskiptum sínum við konur og ennfremur að sýna þeim tillitssemi. fulltrúum annarra rikja i ráðinu um ályktun þar sem innrás ísraela í Vestur-Beirút var fordæmd harð- lega. Sendiherra fsraela hjá SÞ hef- ur gefið i skyn, að ísraelsstjórn muni virða samþykktina að vettugi. Þetta er i annað sinn á þessum vettvangi, sem Bandaríkjastjórn fordæmir aðgerðir ísraela, en hið fyrra sinn var þegar ísraelar réð- ust úr lofti á íraskan kjarnakljúf í júní 1981. Eftir atkvæðagreiðsl- una lét sendiherra ísraela hjá SÞ að því liggja, að stjórn hans myndi ekki fara eftir ályktuninni og í fyrrakvöld kváðust ísraelar ekki mundu fara með her sinn frá Vestur-Beirút fyrr en Líbanons- her gæti sjálfur haldið þar uppi lögum og reglu. I ræðu, sem Reagan Bandaríkja- forseti flutti á pólitískum útifundi í gær, kvaðst hann vongóður um „traustan frið" í Miðausturlönd- um, að ísraelar hyrfu á braut úr landinu og að Líbanon yrði aftur frjálst og fullvalda ríki í raun. Haft er eftir heimildum frá Kairó, að PLO-samtökin hafi beðið Eg- yptalandsstjórn að hlutast til um að palestínskt æskufólk verði ekki flutt nauðugt viljugt frá Vestur- Beirút en samkvæmt fyrra sam- komulagi mátti það vera um kyrrt ef það hafði ekki tekið þátt í starf- semi PLO. Israelar halda því hins vegar fram, að þúsundir skæruliða hafi orðið eftir í borginni. San Pedro Sula, 18. september. AP. HÓPUR vinstri sinnaðra uppreisnarmanna réðst inn í höfuðstöðvar Verzlunarráðs Hondúras og tók í gíslingu tvo ráðherra, bankastjóra seðlabanka Hondúras og um 200 kaupsýslumenn, sem þar voru á fundi. í framhaldi af árásinni voru yf- irmenn hersins hvattir saman til fundar um hugsanlega tilraun til að brjóta uppreisnarmennina á bak aftur, en þeir hafa hótað að lífláta gíslana einn af öðrum ef kröfum þeirra verður ekki full- nægt fyrir kl. 18.30 í dag. Óljóst er hverjar kröfur hópsins eru. I áhlaupinu særðust tveir kaup- sýslumenn lífshættulega, en upp- reisnarmennirnir féllust á að láta þá lausa. Uppreisnarmennirnir kalla samtök sín „Cinchonero Commando" eftir bændaleiðtoga frá síðustu öld. Þingkosningar í Svíþjóð í dag: Allt bendir til að stjórn borgaraflokkanna falli Stokkhólmi, 18. september, frí frétUriUra Mbl., CuAfinnu Rngnarsdótlur. ALLT BENDIR NÚ til þess að saga sænsku borgaraflokkastjórnarinnar sé öll að þcssu sinni, ef marka má fímm skoðanakannanir byggðar á mismun- andi aðferðum. Þær sýna allar að jafnaðarmenn munu fá 45—46% atkvæða og fá þannig meirihluta á sænska þinginu, ásamt kommúnistum, sem samkvæmt könnunum, eiga að fá meira en 4%. Jafnaðarmenn munu einnig fá fleiri atkvæði en borgaraflokk- arnir þrír til samans. Allar skoð- anakannanir benda einnig til þess að Þjóðarflokkurinn missi mikið fylgi, en að Hægriflokkurinn stækki um 20% og verði stærri en bæði Þjóðarflokkurinn og Mið- flokkurinn til samans. En baráttan um atkvæðin er samt hörð allt fram á síðustu stundu. Á föstudagskvöldið fylgd- ust þrjár milljónir áhorfenda með þegar formenn allra flokka mætt- ust í sjónvarpsumræðum og háðu mikla orrustu um kjósendur. Lokaorrustan fer þó fram á sjálfan kosningadaginn, sunnu- daginn 19. september, þegar smal- að verður af fullum krafti í hverju húsi. Til mikils er að vinna og mjótt getur orðið á munum. Thorbjörn Fálldin, forsætisráð- herra og formaður Miðflokksins, og Olof Palme, formaður jafnað- armanna, lentu í mikilli rimmu í sjónvarpsumræðunum um kjör ellilífeyrisþega. Palme sakaði rík- isstjórnina um að hafa skert kjör þeirra um eitt þúsund krónur sænskar á ári. „Það sama er að segja um barnafjölskyldurnar," sagði Palme. „Nú grætur þú yfir ellilífeyris- þegunum, Olof Palme," sagði Fálldin. „En þér var ekki svona annt um þá þegar þú neitaðir að styðja tillögur okkar um bætt kjör þeirra á þingi." Launþegasjóðir og skattamál urðu þó aðalefni umræðnanna, eins og við var að búast. Borgara- flokkarnir beindu spjótum sínum markvisst að Launþegasjóðs- tillögu jafnaðarmanna, en Olof Palme bauð öllum viðstöddum til viðræðna um launþegasjóðina eft- ir kosningar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.