Morgunblaðið - 19.09.1982, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982
íslenzku hárgreiöslumeistararnir
sjö, sem eru aðilar að hártízku-
samtökunum frönsku Haute Coif-
fure, eru komnir heim frá því að
sækja vetrarlínuna í París og
voru eitt kvöldið í vikunni að bera
sig saman um það sem þau höfðu
séð, móta það fyrir íslenzkar að-
stæður og klippa og leggja kolla
með nýju línunni. Voru öll stödd á
stofunni hjá Dúdda með 10 ís-
lenzk módel, klipptu, lituðu og
lögðu. Og ljósmyndari blaðsins
Kristján Örn kom í lokin og
smellti þessum myndum af
árangrinum. Vonandi verða menn
fróðari um það sem koma skal á
þessum vetri í hártízkunni. En
hvernig er þá tízkulínan, sem
Haute Coiffure lagði á sýningu
sinni í Armonville-veitingahús-
inu í Bois de Boulogne 5. og 6.
september, og á í vetur eftir að
breiðast út um hárgreiðslumark-
aðinn, ef fer sem ávallt áður?
Mikil breyting! Alger bylting frá
því sem við sjáum nú í blöðunum!
Allmikið frábrugðið þeirri línu
sem hefur verið að þróast undan-
farin ár, sögðu hárgreiðslumeist-
ararnir. Heitið á línu vetrartísk-
unnar í hárgreiðslu „Volume 82“,
gefur ágæta hugmynd um línuna
í ár. Toppar fram á ennið skipta
þar miklu máli, en nú er í þeim
mikil fylling og þeir lyftast.
Permanent er notað til hjálpar og
mikið lakk, það er að segja ekki
þetta þunga lakk heldur léttara
og „misturkenndara". Perma-
nentið er látið í allt stutta hárið,
en í síða hárið mismikið og aðeins
á blettum, þannig að byggist upp
í hárið fylling. Strípur eru mikið
notað ar, einkum í toppana. Lit-
irnir í strípunum ljósir, þannig að
fáist góðar andstæður, og gjarnan
bara lýstir upp endarnir á hárinu,
stundum svo að þar verður eins
og léttur hjúpur yfir höfðinu. Með
þessari greiðslu kunna þeir, sem
voru í fyrri stíl, að þurfa að láta
hárið vaxa við eyrun, þar sem það
á nú að vera þar síðara. Stutta
hárið er oft klippt í spíss að aftan.
Og þess má geta í því sambandi,
að nú um helgina er hér á landi
bandarísk hárgreiðslukona, sem
annar hópur hárgreiðslukvenna
— og sumar þær sömu — hafa
fengið til að kenna sér að klippa
með nýjum klippum, sem sér-
staklega munu hentugar til að
klippa stutt hár. Og á það að geta
sparað tíma og fyrirhöfn. —
Þetta er ógurlega glæsileg hár-
greiðsla, sagði einn hár-
greiðslumeistarinn og hinir tóku
undir. Fersk lína! Dömuleg! Mað-
ur verður á kvöldin „fínn um hár-
ið“ eins og í gamla daga. Enda
komu sýningarstúlkurnar með
kvöldgreiðsluna fram mikið
skreyttar. Og sýningarstúlkur
skörtuðu gjarnan með „kisugler-
augu“, með hárgreiðslunni. Víðu
kjólarnir voru síðir og púffaðir og
pífur eins og áður fyrr. Hér á
myndunum er fyrsta kynning á
nýju línunni. En í október er
hugmyndin að efna til hártízku-
sýningar á Hótel Sögu.