Morgunblaðið - 19.09.1982, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 19.09.1982, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982 Einn af kunnari knattspyrnu- mönnum okkar um þessar mundir er Atli Eðvaldsson. Atli hélt ungur út í vikingu og gerðist atvinnumaður hjá hinu þekkta knattspyrnufélagi Borussia Dortmund og fetaði í fót- spor eldri bróður síns, Jóhannesar Eðvaldssonar. Þar lék Atli í eitt og hálft keppnistímabil. Hann var seld- ur til Fortuna Diisseldorf. Atli og eiginkona hans fluttu sig því um set og fóru frá Dortmund og búa nú í Mettman, mjög fallegum b* rétt utan við Diisseldorf. Atli er um það bil hálftíma að koma sér frá Mett- man á æfingavöll félags síns. Þegar keppnistímabilið var að hefjast I V-Þýskalandi voru Atli og kona hans, Steinunn, sótt heim og eftir að hafa setið að miklu veisluborði hjá þeim hjónum var Atli tekinn tali og hann inntur eftir því hvort keppnis- tímabilið legðist vel í hann. Félagi Atla, Fortuna Diisseldorf, hefur ver- ið spáð neðsta sæti í 1. deild og það er síður en svo spennandi að falla niður i 2. deild. — Ég er bjartsýnn á keppnistíma- bilið sem nú er hafið, sagði Atli. Maður verður að vera bjartsýnn, okkur er reyndar spáð neðsta sæti í deildinni en ég hef ekki neina trú á þvi að við föllum. Vonandi tekst okkur að verða um miðja deild. Það hafa orðið miklar breytingar á liðinu frá því í fyrra. Sér í lagi munar mikið um að við höfum nú fengið hörku- góðan markmann. Sá sem við vorum með í fyrra var slakur. Hann var svo slakur, að sú saga var oft sögð um hann, að ef honum yrði hent út á mikla umferðargötu, myndi hann ekki verða fyrir bilunum heldur myndu þeir fara i gegnum klofið á honum. Nú hefur orðið breyting á. Að vísu höfum við fengið á okkur nokkuð af mörkum, en ég hef trú á því að Jiað lagist. — Arið í fyrra var erfitt hér. Nú hefur þetta lagast maður er farinn að þekkja betur inn á hlutina og hefur kynnst þessu öllu betur. Hvað sjálfan mig varðar er ég í mjög góðri æfingu. En er samt ragur í leikjum. Ég veit ekki af hverju. Mér finnst að ég eigi að geta fengið meira út úr sjálfum mér hjá liðinu. Ertu öruggur með sæti þitt í liðinu? — Já ég á að vera alveg öruggur með sæti mitt í liðinu. Ég hef leik- ið alla leiki með liðinu til þessa og vona að það breytist ekki. Þetta fer eiginlega allt eftir því hvort maður skorar eða ekki. Ég leik stöðu miðherja og ég verð að skora. I fyrra skoraði ég sjö mörk á keppnistímabilinu. Nú hef ég sett mér það takmark að skora 10 mörk eða meira. Maður þarf að vera fullur af sjálfstrausti og vera öruggur með sig til að standa sig vel í þessum bransa. Mér finnst þetta vera um fjörutíu prósent geta en restin er uppi í kollinum. Halda höfði og vera klókur. Vera ekki að stressa sig. Sálræna hliðin spilar mikið inn í þetta. En eftir bráðum þrjú ár hér úti er maður bæði reynslunni ríkari og þrosk- aðri. Hvernig líður nú venju- leg vinnuvika hér úti hjá þér? — Við skulum byrja á sunnu- deginum. Þá er æft létt um morg- uninn og leikmenn fá nudd og gert er að meiðslum þeirra, ef þau eru þá einhver, eftir kappleik laugar- dagsins. Á mánudögum er alveg frí. Á þriðjudögum er æft tvisvar. Kl. 9 til 11 og 2 til 4. Oftast er æft tvisvar á miðvikudögum. Ein æf- ing um eftirmiðdag á fimmtudegi og á föstudögum er létt æfing og farið er yfir leikkerfi. Nú á hverj- um laugardegi er kappleikur. Aðra hverja viku leikum við á útivelli og þá koma oft til löng ferðalög. Ymist förum við í þægilegum langferðabíl eða fljúgum, það fer eftir vegalengdinni. Hefur þú alltaf sama brcnnandi áhugann á knattspyrnunni, eða er þetta orðið eins og hver önnur vinna? — Ég hef alltaf sama brenn- andi áhugann á knattspyrnunni. framlínuleikmennina. Því leik ég alltaf með öklasokk, öklapúða og þykkar legghlífar. Þegar þú lítur til baka hvað fínnst þér einna helst ábótavant við þá þjálfun sem þú fékkst heima á ís- landi sem drengur. Og hvað ráðleggur þú ungum knattspyrnumönnum varð- andi æfingar? Atli og Steinunn með frumburðinn Egil Atlason. Atli Eðvaldsson: „Þetta er í raun stórkostlegt ævintýri“ Grein og myndir Þórarinn Ragnarsson Hún er æðislega skemmtileg, og ég nýt hverrar mínútu sem fer í það að leika hana. Hvenær rennur samn- ingur þinn út hjá félaginu? — Hann rennur út í vor. Og því er mjög mikilvægt fyrir mig að standa mig vel á keppnistímabil- inu. Standi maður sig vel fær maður nýjan samning. En fram- tíðin ein sker úr um það, hvort það verður hér eða hjá öðru félagi. Hvaða lið eru sterkust í V-Þýskalandi um þessar mundir að þínum dómi? — Það eru fimm lið sem skera sig nokkuð úr. Bayern, Hamborg, Köln, Dortmund, og Stuttgart. Þessi lið eru með einhverja bestu knattspyrnumenn í heiminum í dag. En hvaða leikmenn eru sterkastir? — Það eru margir góðir hér og erfitt að gera upp á milli þeirra. Hvað mig varðar þá er Karl Heinz Förster erfiðasti varnarmaðurinn sem ég hef leikið gegn. Hann er frábær leikmaður. Hann var kjör- inn knattspyrnumaður deildarinn- ar fyrir síðasta keppnistímabil. Og er eins og allir vita fastur leik- maður með landshðinu. Nú Manfred Burgsmúller, fyrrum fé- lagi minn hjá Borussia Dortmund, er skemmtilegur leikmaður og að mínum dómi einn sá besti. Hann getur unnið leik upp á eigin spýt- ur. Hann hefur gífurlega góða knattmeðferð og er óhemju fljót- ur. Þá skorar hann mikið af mörk- um. Það er furðulegt að hann skuli ekki hafa verið valinn í lands- liðshópinn hjá Derwall. Hvað þarft þú að bæta sjálfur til að verða betri knattspyrnumaður? — Maður þarf að bæta allt. Það er sífellt hægt að bæta sig með því að æfa vel. Eg þarf að bæta skalla- tækni mína. Skottækni mína get ég bætt og jafnframt knattmeð- ferð. Mér finnst ég hafa breyst sem knattspyrnumaður. Vonandi hefur mér farið fram. Ég hef sem betur fer sloppið líka við alvarleg meiðsli. Hér er boltinn harður og alltaf hætta á að menn meiðist illa. Það er mikið sparkað í okkur — Það sem þarf fyrst og fremst að ieggja áherslu á heima við þjálfun ungra drengja er knatt- meðferð. Boltatækni er svo stórt atriði í knattspyrnunni. Það sem mér finnst ábótavant heima er einna helst það að of fljótt er lögð áhersla að fara að keppa og reyna að vinna. Ungir drengir eiga að leggja höfuðáhersluna á að æfa knatttækni, það þarf að kenna öll- um að sparka rétt. Þá er áríðandi að leggja meiri áherslu á skot- tækni. Henni er mjög ábótavant heima. Hér úti æfa atvinnuknatt- spyrnumenn alveg lygilega mikið og vel. Enda er mikið í húfi að standa sig vel. Þá eru líka gerðar gífurlega miklar kröfur til leik- manna um að þeir skili góðri frammistöðu. Við fáum jú greitt fyrir það. Er eftirsóknarvert að vera atvinnumaður í knattspyrnuO — Já, tvímælalaust. Maður sækir í þetta reynslu og þroska. Þetta er í raun stórkostlegt ævin- týri. En maður verður að fara í þetta með réttu hugarfari. Þetta er ekki alltaf dans á rósum. Það gengur upp og niður í þessu eins og svo mörgu öðru og þegar illa gengur má maður ekki láta hug- fallast heldur verður að sækja á brattann. Nú, fyrir mig sem íþróttakennara þá er þetta líka mikill lærdómur sem ég á eftir að geta notast við þó síðar verði. Maður fær jú mikla kennslu í knattspyrnuþjálfun, með því að standa í þessu. Nú, svo má það ekki gleymast að í þessari atvinnu hefur maður mjög góðar tekjur. Hvað gerir þú í tóm- stundum þínum hér í Mettman? — Þeim frítíma, sem ég hef, eyði ég með fjölskyldu minni. Hér við húsið er tennisvöllur og ég hef gaman að því að grípa í tennis- spaðann af og til. Það er nauðsyn- legt að hafa eitthvað til að dreifa huganum frá knattspyrnunni. Við Pétur félagi minn í Fortuna höfum mikið samband okkar á milli. Oft er farið í kvikmyndahús, eða þá út að borða. Það er gott að hafa landa sinn með í hópnum, við veitum hvor öðrum stuðning þegar á þarf að halda, sagði Atli. — ÞR. Félagarnir Atli og Pétur Ormslev leika báðir með Furtuna Diisseldorf, og styðja bvor annan í baráttunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.