Morgunblaðið - 19.09.1982, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982
27
halda margir því fram að áhrif
þessara háskólamanna séu orðin
alltof mikil í flokknum og að mál
sé komið til að draga úr áhrifum
þessa hóps.
Vinstri flokkurinn fékk slæma
útreið í þingkosningunum sem
fóru fram í desember 1981 og
margir sögðu að skýringin á
óförum flokksins þá hefði verið
sú að háskólamennirnir í þing-
flokki flokksins töluðu tungu-
mál, sem venjulegir kjósendur
skildu ekki. Uffe Ellermann-
Jensen var einn þeirra manna,
sem menn höfðu í huga, þegar
um þetta var rætt, og hann fór
ekki varhluta af þeirri gagnrýni,
sem flokkurinn sætti, þótt það
kæmi ekki í veg fyrir aukinn
frama hans í flokknum.
Henning Christophersen, leið-
togi Vinstri flokksins, er sjálfur
háskólamaður og hagfræðingur
eins og nýi utanríkisráðherrann.
Ellermann-Jensen hefur reynzt
Christophersen traust hjálpar-
hella í stjórnmálabaráttunni og
verið einn af helztu skipuleggj-
endum baráttuaðferða flokksins.
Það er talin ein helzta skýringin
á því að hann var valinn utan-
ríkisráðherra.
Utanríkisráðherrann er sonur
gamallar þingkempu Vinstri
flokksins, Jens Peter Jensens,
aðalritstjóra frá Fjóni. Að loknu
háskólanámi fetaði Uffe Ell-
ermann-Jensen í fótspor föður
síns og lagði fyrir sig blaða-
mennsku. Hann varð einnig
þekktur fyrir frétta- og hag-
fræðiskýringar í sjónvarpinu og
það hefur trúlega komið honum
að liði í stjórnmálabaráttunni.
Hann starfaði við sjónvarpið um
fimm ára skeið.
Árið 1975 varð Ellermann-
Jensen aðalritstjóri viðskipta-
dagblaðsins Börsen, en gegndi
því starfi aðeins um eins árs
skeið. Ástæðan var sögð sú að
bæði blaðamönnunum og blað-
stjórninni hafi gengið erfiðlega
að lynda við hann og ekki getað
sætt sig við framkomu hans. Það
er því ekki að ástæðulausu að
hann hefur verið talinn hroka-
fullur.
En þótt starfsmenn Börsen
segðu um Ellermann-Jensen að
hann væri harðúðugur, ráðríkur
og ómögulegur ritstjóri hefur
reynzt unnt að nota hann í
stjórnmálunum. Og þótt stutt sé
um liðið síðan hann tók við hinu
nýja starfi sínu hefur hann náð
árangri í nýja embættinu. Fund-
ur hans og hins vestur-þýzka
embættisbróður hans, Hans-
Dietrich Genschers, hefur haft í
för með sér sættir í deilunni við
Vestur-Þjóðverja um þorskveið-
ar þeirra við Grænland.
Frammistaða hans í því máli
þykir lofa góðu. Frami hans hef-
ur verið skjótur. Ferill hans er
rétt hafinn.
Nú er tækifæriö 28. september
MALLORCA
LONDON
2 vikur á Magalufströndinni kr. 9.800.-
3 vikur á Magalufströndinni kr. 11.000.-
Möguleiki á dvöl í London
. . . og auövitaö ÚRVALS-kjör
Sími 26900 URVALHÍyjr
NÖRDKA
kuldaskór á alla
fjölskylduna
Stœröir 27—36
Verö kr. 285.-
Skólaskór
Stæröir 37—46
Verö kr. 598.-
Skólaskór
Stæröir 37—46
Verö kr. 655,-
Dömu
2 litir
Verö kr. 560.-
%
Dömu m/loökanti
2 litir
Verð kr. 540,-
Dömukuldastígvél
Dökkblá og Ijós
Verö kr. 575.-
Dömu
2 litir
Verö kr. 525.-
Beigelitur
Verö kr. 610.-
V
i\
-f 4 ÚTILÍF
Glæsibæ,
simi 82922I