Morgunblaðið - 19.09.1982, Side 42

Morgunblaðið - 19.09.1982, Side 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982 LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS Rætt vid Dr. Finnboga Gudmundsson landsbókavörd um safnið og starfsemi þess „Gamlar bækur eru auðvitað misvel á sig komnar, eftir þeirri medferð, sem þær hafa sætt um dagana. Hér eru til mjög gamlar bækur, nær allt frá upphafi íslenzkrar prentlistar á 16. öld, sumar í ágætu standi, og þær íslenzkar bækur, sem eru ekki til í safninu eða hérlendis, höfum við dregið að á filmum og í Ijósritum vegna samningar allsherjarskrár um íslenzkar bækur, sem verið hefur í smíðum í safninu um langt árabil,“ segir Finnbogi Guðmundsson landsbókavörður, en ég er staddur á tali við hann í Safnahúsinu við Hverfisgötu, sem byggt var á árunum 1906—1908. Landsbókasafnið var sem kunnugt er stofnað 1818. Landsbókasafnið hefur m.a. það hlutverk að safna og varðveita allar bækur, sem út hafa komið á Islandi eða annars staðar eftir íslenzka menn. Ég byrja á því að spyrja Finnboga, hvort unnt sé að koma einhverri tölu á íslenzkar bækur frá upphafi. Úr aðallestrarsal. MorKunblaðíð/Guðjón Birgisaon. „Það er ýmsum vandkvæðum hundið að koma sér niður á ná- kvæma tölu íslenzkra rita, sem hér eru saman komin og prentuð hafa verið bæði innan lands og ut- an,“ sagði Finnbogi. „Þá er það auðvitað alltaf álitamál, hvað skal telja bók. Helzt er hægt að gefa nokkra hugmynd um bókafjölda á einstökum tímabilum. Halldór Hermannsson samdi á sínum tíma merka ritgerð um ís- lenzkar bækur á 16. öld, og birtist hún í 9. bindi Islandica 1916. Um útgáfu á 16. öld segir hann, að þá sé vitað um útkomu 49 bóka, og hafi allar þeirra nema sjö verið prentaðar á íslandi. Þá gerir hann grein fyrir 18 öðrum útgáfum, sem hafi verið nefndar, en telur, að að- eins sé hægt að fullyrða um út- komu fjögurra þeirra. Halldór gerir grein fyrir útgáfu á 17. öld á svipaðan hátt í ritgerð, sem birtist í 14. bindi Islandica 1922. Er tala útgefinna bóka á öldinni 255, flest- ar prentaðar á Hólum, eða 134, en af þeim eru 27 glataðar og alls óvíst, hvort 7 þeirra komu nokk- urn tíma út. í Skálholti komu út 62 bækur, og er ein þeirra glötuð. Er hér að sjálfsögðu mest um að ræða guðsorðabækur, því að bisk- uparnir réðu allri bókaútgáfu á þessum árum. Ekki hefur mér vitanlega verið kastað tölu á þær bækur, sem út komu á 18. og 19. öld. I ritgerð Ólafs F. Hjartar, „íslenzk bóka- útgáfa 1887—1966“, birtri í Árbók Landsbókasafns 1967, er gerð ýt- arleg grein fyrir bókaútgáfu á þessu tímabili, og kemst Ólafur að þeirri niðurstöðu, að þá hafi kom- ið út 19.919 bækur og um 1.400 tímarit og blöð. Þess ber að geta, að í samantekt hans eru rit sem eru 16 blaðsíður og þar yfir talin til bóka. Athyglisvert er, hvernig bæk- urnar skiptast eftir efni. 6.907 flokkast sem bókmenntir, eða um 35% af öllum útgefnum bókum. Frumsamdar ljóðabækur eru 1.257 á móti 1.128 frumsömdum skáld- ritum. Þýdd skáldrit eru aðalgrein bókmennta á tímabilinu, og voru alls gefnar út 4.029 bækur. Bókaútgáfa hefur farið mjög vaxandi hér á landi frá því er þessari samantekt lauk, og má segja, að hún hafi nær tvöfaldazt á síðasta áratug." Hver er elzta íslenzka bókin i eigu Landsbókasafns? „Það er „Nýja testamentið“ í þýðingu Odds Gottskálkssonar, sem út var gefið í Hróarskeldu í Danmörku árið 1540. Fyrsta bókin á íslenzku, út gefin hér á landi, var prentuð að Breiðabólsstað í Vest- urhópi árið 1559. Titill hennar er; „Passio, Þat er píning vors herra Jesu Christi", og er hún eftir Ant- onius Corvinus. Er eitt eintak af henni varðveitt í Háskólabóka- safninu í Kaupmannahöfn. Til eru tvö blöð úr enn eldra riti, sem hér var prentað — það er á latínu, „Breviarium Holense", talið prent- að á Hólum árið 1534. Eru blöðin varðveitt í Konungsbókhlöðu í Stokkhólmi, en þetta er fyrsta bók prentuð á íslandi, svo að vitað sé.“ Nú er hér í Landsbókasafni hand- ritasafn geysimikið aö vöxtum. Hversu mikið magn handrita er hér um að ræða? „í handritasafninu eru nú 13.405 skráð handritanúmer, en í mörg- um númeranna geta svo verið nokkur handrit. Handritasafnið er ótæmandi fjársjóður, og þrátt fyrir útgáfur fjölmargra handrita sér varla högg á borði í þessum gnægtabrunni. Grundvöllur hand- ritasafnsins er handritasafn Steingríms biskups Jónssonar, keypt 1846, en stofninn í því safni var kominn frá Skálholti. Innan handritasafnsins eru sérsöfn, sem bera sérstaka stafi í handrita- skránni. Það er safn Jóns Sigurðs- sonar forseta, og ber það upp- hafsstafi hans, JS. Það kom í Landsbókasafn eftir fráfall Jóns 1879. Þá voru handritasöfn Hins íslenzka bókmenntafélags keypt árið 1901, og eru í þeim um 2.000 handrit. Handrit þeirra bera staf- ina ÍB og ÍBR. Ýtarleg handritaskrá hefur verið gefin út um handritasafnið á veg- um Landsbókasafnsins — fyrst í þrem stórum bindum, en síðan hafa verið gefin út þrjú aukabindi. Páll Eggert Ólason, höfundur fjögurra fyrstu bindanna, brauzt á sínum tíma gegnum allt handrita- safnið og skráði það. Vann hann þar geysimikið og merkilegt starf, sem margir hafa notið góðs af síð- an. I handritasafninu kennir margra grasa, og eru þar handrit um efni um allt milli himins og jarðar. Of langt mál væri að telja handritasöfn einstakra manna, sem til eru í Landsbókasafni, og verður að vísa um þau í hinar prentuðu skrár. Safninu berst á hverju ári fjöldi handrita, lang- flest að gjöf, og birtast bráða- birgðaskýrslur um þau í Árbók Landsbókasafns." Ég bið Finnboga að gera í stuttu máli grein fyrir starfsemi safnsins og nokkrum þeirra rita, er það gefur út. „Hlutverk Landsbókasafns er ákveðið í lögum og skiptist í fimm aðalþætti. I fyrsta lagi að annast söfnun og varðveizlu íslenzkra rita og rita, er varða ísland og íslenzk efni, fornra og nýrra, prentaðra og óprentaðra. í öðru lagi að afla er- lendra rita í öllum greinum vís- inda, bókmennta, lista, tækni og samtíðarmálefna. I þriðja lagi að annast rannsóknir í íslenzkri bókfræði. í fjórða lagi að vinna að kynningu íslenzkra bókmennta og íslenzkrar menningar innan lands og utan. Og í fimmta lagi að leið- beina þeim, er til safnsins leita, og örva til bóklestrar og fræðaiðk- ana. Samkvæmt lögum skulu íslenzk- ar prentsmiðjur, fjölritunarstofur og aðrir aðilar, sem fjölfalda texta eða myndefni, skila fjórum eintök- um til Landsbókasafns. Eitt þess- ara eintaka tökum við til varð- veizlu hér í safninu og höfum ann- að til afnota fyrir gesti þess. Dr. Finnbogi Guðmundsson landsbókavöröur Þriðja eintakið er varðveitt í Háskólabókasafni, en hið fjórða fer í vörzlu Amtsbókasafnsins á Akureyri. Þótt eitt af hlutverkum Lands- bókasafns sé að afla erlendra rita í sem flestum greinum, höfum við ekki vegna fjárskorts getað gegnt því nægilega vel. Önnur söfn gegna jafnframt þessu hlutverki og þá einkum Háskólabókasafn. Hefur verið samstarf milli Há- skólabókasafns og Landsbóka- safns um öflun erlendra bóka, og hefur Landsbókasafn takmarkað bókakaup sín nær eingöngu við hugvísindi. Því miður verður það að segjast eins og er, að við höfum ekki getað keypt nema lítinn hluta þeirra er- lendu bóka, sem æskilegt væri að draga að. Hafa fjárráð okkar verið svo lítil, að við höfum ekki einu sinni getað haldið í horfinu hvað þetta varðar, og erlend bókakaup þannig farið heldur minnkandi á síðustu árum. í iögum segir, að Landsbókasafn skuli halda uppi rannsóknum í bókfræði og gefa út skrár ís- lenzkra bóka og handrita og önnur rit, sem íslenzka bókfræði varða. Um handritaskrárnar hefur þegar verið rætt. Landsbókasafnið gefur árlega út „Islenzka bókaskrá", sem í eru allar bækur og bækl- ingar, sem borizt hafa safninu frá viðkomandi ári. Þá hefur verið gefin út frá árinu 1979 „íslenzk hljóðritaskrá", sem nær yfir allar hljómplötur og snældur, er gefnar eru út hér á landi. Gefnar hafa raunar verið út bókaskrár allt frá fyrstu árum safnsins. Frá árinu 1888 gaf Landsbókasafnið út rit- aukaskrá um það, sem bættist í safnið á hverju ári, og kom hún út til ársins 1944. Þá var sú breyting gerð, að skrá um íslenzka ritauk- ann var birt í Árbók Landsbóka- safnsins, þar sem jafnframt birt- ust greinar um bókasafnsmál og bókmenntir, og kom Árbókin út með því lagi 1945 til 1974. Frá og með árinu 1975 hefur hins vegar „Islenzk bókaskrá" verið gefin út sérstaklega, en Árbókin heldur áfram að koma út með ýmsum fróðleiksgreinum og skýrslu landsbókavarðar um starfsemi safnsins á liðnu ári. Unnið hefur verið með hvildum að skrá um rit íslenzkra manna, hvar sem þau eru prentuð, allt frá upphafi. Hef- ur þessi skrá tekið til rita á tíma- bilinu 1534—1844. Þetta verk hef- ur hins vegar tafizt vegna liðs- skorts, því að meginhluti orkunn- ar fer í að koma út hinum árlegu bókaskrám, sem hlotið hafa að ganga fyrir. A sama hátt hefur verið unnið að allsherjarskrá um íslenzk tíma-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.