Tíminn - 01.08.1965, Blaðsíða 5

Tíminn - 01.08.1965, Blaðsíða 5
SUNNUDAGUR 1. ágúst 1965 Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Aug- lýsingastj.: Steingrímur Gíslason. Ritstj.skrifstofur i Eddu- húsinu, sfmar 18300—18305. Skrifstofur, Bankastræti 7. Af- greiðslusimi 12323. Auglýsingasími 19523. Aðrar skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 90.00 á mán. innanlands. — í lausasölu kr. 5.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. Verzlunin Undanfarin ár hefur íslenzka þjóðin verið svo lánsöm, að hún hefur búið við hagstæð aflabrögð og síhækkandi verðlag á útflutnigsvörum. Þetta hefur ekki aðeins gert það mögulegt, heldur sjálfsagt, að dregið hefur verið úr ýmsum innflutningshöftum, sem áður höfðu verið ó- hjákvæmilegt. Það er broslegt, þegar verið er að þakka núverandi stjórn, að dregið hafi verið úr þessum höftum. Sérhver stjórn, sem hefði búið við umræddar aðstæður, hefði gert hið sama. Því miður hefur þetta þó ekki orðið til þess að gera verzlunina öllu frjálsari en hún var. í stað innflutnings- haftanna hafa komið ný höft, lánsfjárhöft, sem mjög hafa þrengt að verzluninni, en þó misjafnt. Sparifjár- frysting Seðlabankans hefur orðið til þess, að viðs'kipta- bankarnir hafa orðið að takmarka verulega útlán til verzlunarinnar eins og annarra atvinnuvega. Slík láns- fjárskömmtun vill hins vegar ganga misjafnt yfir. Sum fyrirtæki njóta sérstakrar fyrirgreiðslu, en önnur ekki. Lánsfjárskortur veldur að sjálfsögðu oft miklum töfum og erfiðleikum. Lánsfjárhöftin hafa áreiðanlega átt drjúgan þátt í því, að verzlunarkjör þau, sem almenningur hefur búið við seinustu árin, hafa orðið óhagstæðari en ella og dýrtíð í ýmsum tilfellum meiri en ella myndi. Hvarvetna í nágrannalöndum okkar ríkir sá skilning- ur, að frjáls samkeppni samvinnufélaga og kaupmanna tryggi almenningi bezt viðskiptakjör. Vegna vöruskorts á stríðsárunum og fyrstu árunum eftir stríðið, voru víða allströng verðlagshöft- Úr þeim var hins vegar dregið jafnóðum og framboð á vörum jókst. Þau hafa nú víð- ast verið afnumin. Hins vegar fylgjast opinberir aðilar vel með verðlaginu og telja eðlilegt að gripa inn í, ef óeðlileg verðmyndun á sér stað, t.d., ef einstakir hring- ir eða samtök halda uppi of háu verðlagi. Vegna sögulegra ástæðna hefur löngum ríkt hér tor- tryggni í garð verzlunarinnar. íslendingar eiga ófagrar endurminningar frá þeim tíma, þegar verzlunin var í höndum útlendinga. Það er einn merkasti þáttur ís- lenzkrar sjálfstæðissögu, að verzlunin var gerð innlend. Þjóðin stendur í mikilli þakkarskuld við samvinnufélögin og kaupmennina, sem ruddu þar brautina. Móti því verð- ur ekki mælt, að íslenzk verzlunarstétt veitir nú á marg- an hátt góða þjónustu, þótt aðstæður séu á ýmsan hátt erfiðari hér en í hinum fjölmennari löndum. Oft var verzluninni áður kennt um dýrtíðina. Hin hraðvaxandi dýrtíð seinustu ára á sér hins vegar að langmestu leyti aðrar rætur. Álagning mun hér t.d. sízt hærri heldur en í nágrannalöndunum. Það er mikilvægt, að gagnkvæmur skilningur geti ríkt milli þeirra, sem annast verzlunina, og hinna, sem njóta þjónustu hennar Neytendur þurfa að skilja, að það er ekki hagur þeirra, að svo sé þrengt að verzluninni, að hún geti ekki notið sín sæmilega. Jafnframt þurfa þeir, sem verzlunina annast að gera sér ljóst, að það er mik- ill hagur þeirra, að fylgt sé þeirri stefnu í launamálum, að almenn kaupgeta sé sem mest- Þá ósk vill Tíminn bera fram á hátíðisdegi verzlunar- manna, að þeim auðnist að veita þjóðinm síbatnandi þjón ustu og jafnframt aukist skilningur á hinu mikilvæga hlutverki þeirra. Það er ekki ofsagt, að góð verzlun sé ein meginundirstaða vaxandi velmegunar og framfara. TÍMiWW---------------------- s f ............. ■■■■■■ ■1 n ............. ■■■ Walter Lippmann ritar um alþjóðamál: Bandaríkjamenn mega ekki álíta sig lögreglulið mannkynsins Bandaríkin aðhafast það í Vietnam, er Kínverjum kemur bezt. Hér ero stjórnarhermenn í SuSur-Vietnam aS þvinga Viet-Cong-liða til frásagnar. VIÐ erum í þann veginn að tefla Bandaríkjamönnum fram gegn Asíubúum á meginlandi Asíu sjálfrar. Við njótum ekki stuðnings neinnar Asíuþjóðar á borði, — þó nokkur kunni að vera í orði, — þegar frá er talinn hinn minnkandi og cnolnandi her Suður-Víetnama. Við hlið okkar standa engar hinna máttugri þjóða í Asíu, svo sem Japanir, Indverjar eða Pakistanar. Engir bandamanna okkar í Evrópu leggja annað fram okkur til stuðnings en vinsamleg orð á víð og dreif. Við njótum ekki við neins um- boðs Sameinuðu þjóðanna, eins og var í Kóreustyrjöldinni, né heldur umboðs Atlantshafs- bandalagsins eða yfirleitt nokkurs tilstyrks þjóða á vest- urhveli jarðar. Aðstaðan, sem við erum í, á sér engin fordæmi. Ríkisstjóm okkar hefur orðið það bezt ágengt í öflun stuðnings og fylgis eigin þjóðar, að hún hef ur hlotið þegjandi samþykki, og með semingi þó. Enda hef- ur aldrei verið sannað, og ekki einu sinni í raun og veru reynt að sanna, að öryggi Bandaríkjanna sé í alvarlegri hættu í þessu stríði, eins og Þa3.;til dæmis var begar her- taka brezka flotans blasti við Hitler og sigur yfir Bretlandi, eða þegar hinn mikli floti Jap- ana ógnaði valdi yfir ölllu Kyrrahafi, þar á meðal Hawaii og strönd Kaliforníu. Þjóðir berjast af dug og afli, þegar þær eru í sjálfsvörn, eða þegar þær hafa brýna og bráða hagsmuni að verja. Og skýring- una á ríkjandi deyfð og áhyggj um er einvörðungu að finna í skorti á brýnum og bráðum hagsmunum Bandaríkjamanna. Af þessum sökum hafa tíu ára afskipti okkar í Suð-austur Asíu verið jafn varfærin, skamm dræg og ónóg og raun ber vitni. TIL ÞESS liggja í raun og veru tvær ástæður, að við verð- um æ fastari og fastari í flækj unni f Vietnam. Hin fyrri ástæðan er langtum ríkari, en hún er sú, að við neitum af stærilæti að viðurkenna mistök okkar, játa í hreinskilni, að okkur hafi mistekizt tilraunir til að gera S-Vietnam að vina ríki Bandaríkjanna og andstæð ingi Kínverja, en þá tilraun hófum við fyrir tíu árum. Við erum því framar öllu öðru að berjast fyrir því að komast hjá að viðurkenna mistök, eða með öðrum orðum, til þess að forð- ast beina hneisu. Síðasta ástæðan er þung á metunum í augum margra sam vizkusamra manna. Og hún er allra virðingar verð. í blað- inu New York Herald Tribune var komizt þannig að orði um hana fyrir skömmu: „Við erum í Vietnam vegna beinnar beiðni stjórnarinnar þar í landi og til þess að berj- ast þar fyrir Vietnama, en jafnframt erum við að berjast fyrir millj. manna öðrum ná- lægum löndum, er ógnin vofir yfir mannmergðina, sem ekki megnar sjálf að reisa rönd við kínverska bákninu og verður því að treysta á styrka arma löggæzlunnar, og við einir höf um þann styrk, sem til þarf.“ ÉG ER sjálfur þeirrar skoð- unar, að ekki sé annað en hættuleg sjálfsblekking af okkar hálfu að líta á okkur sem hið eina, sanna lögreglu- lið mannkynsins. Bandaríkin eru alls ófær um að gæta laga og réttar hvarvetna á jörðunni og því er hættulegt að segjast vera löggæzlumenn heimsins eða látast vera það. Eða hvað getum við Bandaríkjamenn til dæmis gætt laga og réttar í mörgum dóminikönskum lýð- veldum í viðbót hér í þessari álfu? Og hvað geta Bandaríkja menn varið mörg Viet-Nöm í Asíu? Þeir, sem trúa á löggæzlu- hlutverk Bandaríkjamanna í heiminum, fara í kring- um þessi augljósu framkvæmda vandkvæði með því einu að gera ráð fyrir, að framvindan í Vietnam ráði öllu um, hvað gerizt annars staðar í Asíu, og atburðirnir í Dóminikanska lýð veldinu ráði allri viðburðarás- inni hvar vetna í Mið- og Suð- ur-Ameríku. Þessi ályktun um endanleg áhrif niðurstöðunnar á einum stað er bein villa. í Kóreustríð inu tókst okkur að verja Suð- ur-Kóreu, en það réði ekki úr- slitum um útkomuna í Indo- kína. Aðgerðir okkar í Domini kanska lýðveldin vernda ekk- ert annað mið- eða suður- Ameríkuríki gegn byltingar- ógnunum. BYLTINGARSTRÍÐ eru sannarlega erfið viðfangs og torvelt að segja fyrir um, hversu að skuli farið. Við get um þó verið vissir um, að bylt ingastríð eru ærið nálæg hvar vetna í hinum vanþróuðu hlut um heimsins, og gegn því fyrir bæri nægi ekki að beita banda- rískum hernaðarafskiptum þeg ar lögmæt stjórn riðar loks til falls í átökunum við óöldina. Nær er sönnu að málinu sé þveröfugt farið. Ef við gerum Vietnam að prófsteini á vernd ar mátt okkar í Asíu er langt- um sennilegra að árangurinn verði sá einn, að sjá byltingar öflunum í Kína fyrir því, sem þau einmitt þarfnast hvað mest til þess að magna al- mennt hatur og einbeita því gegn okkur, forríku stórveldi auðvaldssinnaðra, hvítra manna. Við tækjumst með öðr- um orðum á hendur að leika hlutverk óvinar hinna vesölu og vansælu mergðar þjóðanna, sem eru að brjótast fram úr myrkrinu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.