Tíminn - 01.08.1965, Blaðsíða 16

Tíminn - 01.08.1965, Blaðsíða 16
fbl. — Sunnudagur 1. ágúst 1965 — 49. árg. Sigvaldi Hjálmarsson Sigvaldi Hjálm- Míkíl óvissa í Grikkiandi Með vínið í ávaxta- dósum! JHM-Reykjavík, laugardag. Þrátt fyrir leiðinda veður og kulda munu þúsundir borgar búa, sérstaklega þó yngra fólk ið, fara í skemmtiferðir um helgina. Nokkur hundruð manns fóru úr Reykjavík í gærkvöldi, föstudag, en flestir fara í dag. Lögreglan hefur í þessu sambandi haft mjög strangt eftirlit á leiðunum út úr borginni, bæði til að fylgj ast með ástandi bifreiðanna, og reyna að koma í veg fyrir, að unglingar fari með vín með sér. Til aðstoðar lögreglunni hafa verið menn frá Bifreiða- eftirlitinu, og eins fulltrúar frá Sérleyfiseftirlitinu. f gærkvöldi og nótt tók lögregl an eitthvert magn af víni frá táningum. Einn lögregluþjónn sagði að unga fólkið reyndi ýmis brögð til að komast úr bænum með áfenga drykki, svo sem að hafa brennivínið á ávaxtadósum, og í sprautuflösk um, sem notaðar eru til að hreinsa bílglugga. Lögreglan hélt áfram eftir- litinu í allan dag, laugardag, og þessi mynd var tekin á öðr- um tímanum skamrnt ofan við bæinn. TÍMAMYNND GE. Sökk á tutt- ugu mínútum MB-Reykjavík, laugardag. Vélbáturinn Björn Jónsson, RE 22, sökk á sfldarmiðunum við Hrollaugseyjar aðfaranótt föstu- dagsins á aðems tuttugu mínútum. Mannbjörg varð og komu skip- brotsmenn til Seyðisfjarðar / gær. Skipverjar voru nýbúnir að háfa úr nótinni, og munu hafa hlaðið bát sinn eins og þeir töldu skynsamlegt, en slepptu nokkru magni úr nótinni. Er þeir ætluðu að leggja af stað til lands urðu þeir varir við að báturinn fór að síga og sáu þá að mikill leki var kominn að honum. Reyndu þeir fyrst að ryðja síld útbyrðis, en þegar það bar ekki árangur og séð varð að báturinn myndi sökkva á örskammri stund fóru þeir yfir í björgunarbátinn og í bátinn Eldingu, sem var þama rétt hjá. Fimmtán til tuttugu mín útum eftir að skipverjar urðu lekans varir sökk báturinn Vélbáturinn Faxi flutti skipverja síðan til Seyðisfjarðar, og komu þeir þangað um miðjan dag í gær. Björn Jónsson var 105 tonna eik arbátur, smíðaður 1947. Skip stjóri á honum var Björn Jónsson úr Reykjavík, en áhöfnin var alls 10 manns. Báturinn var í slipp, áður en farið var á síld veiðarnar eystra. arsson, ritstjóri Ganglera Tímaritið Gangleri er fyrir nokkru komlð út, og hafa verið gerðar nokkrar breytingar á útgáfu þess. Grétar Fells, sem verið hef- ur ritstjóri tímaritsins um 30 ára skeið, hefur nú lát- ið af störfum, en hinm nýi ritstjóri er Sigvaldi Hjálm- arsson. Fram til þessa hefur rit- ið komið út aðeins tvisvar á ári, en á þessu ári mun það koma fjórum sinnum út. Eins stækkar árgangur- inn töluvert, og þó að hvert hefti sé aðeins færri síður en áður, er leitazt við að vega upp á móti því með því að hafa greinar yfirleitt styttri og þjappa efninu meira saman, svo að hvert hefti er eins fjölbreytt og áður var. í fyrsta hefti þessa árs eru m.a. greinar eftir Grét ar Fells, Helga P. Briem og N Srí Ram. Þá flytur heftið greinar um áhrif hins dularfulla LSD-lyfs á vit- undarlífið, um svokallaða röntgen- og radarskyggni, og um þörfina á því að efla rannsóknir á óskýrðum fyr irbrigðum. í lok heftsins er nýr fastur þáttur, Við arin- inn, en þar er fyrirhugað að birta frásagnir af svo- kölluðum dularfullum fyrir Framhald á bls. 14 NTB-Aþenu, 31. júlí. Gríska stjómin undir forsæti Athanassiades Novas neitaði seint í gærkvöld að beygia sig fyrir þeirri ákvörðun forseta þingsins á þingfundi, að stjómin skyldi fara frá. Ríkir því enn meiri óvissa en áður um stjórnmálaástandið í landinu og morgun sátu sérfræð ingar í stjórnskipunarrétti á rök stólum til þess að reyna að greiða úr þeirri lögfræðilegu flækju, sem orðin er eftir hinn sögulega þing- fund. Þegar umræður áttu að hefj- ast í þinginu í gær um stefnuskrá stjórnar Novasar kom í ijós, að minna en einn þriðji hluti þing manna var mættur og var þingið þess vegna ekki ályktunarhæft. Lýsti þá forsetinn yfir, að þar sem stjóminni hefði ekki tekizt að ná saman ályktunarhæfu þingi yrði að skoða hana fallna og sleit hann sðan fundinum. Birti þá stjórnin seint í gær kvöldi yfirlýsingu, þar sem því var m. a. haldið fram, að for- seti þingsins hefði framið pólitíska valdníðslu með því að lýsa stjórn ina fallna. Blöð Aþenu fullyrtu í morg un, að Novas hefði farið fram á að þingið yrði leyst upp og nýjar kosningar færu fram, en Novas hefur borið þær fréttir til baka. Papandreou, fyrrverandi for- sætisráðherra átti viðtal við Kon stantín konung í morgun og hefur beðið um áheyrn aftur í kvöld. Ríkir nú mikil óvissa um, hvað næst verður í stjórnmálum Grikk lands, en ástæða er til að ætla, að Novas biðji um áheyrn hjá konungi hið allra fyrsta og sömu leiðis, að þingforseti gangi á hans fund. Þingfundurinn í gær stóð að- eins í nokkrar mínútur og á með an héldu þúsundir stúdentar úti fund til styrktar Papandreou. Hrópaði mannfjöldinn ókvæðis orð um Novas og stjórn hans. Á miðnætti var allt með kyrrum kjörum á götum Aþenu og ekki hafa borizt neinar fréttir af á- tökum, en þó er loft mjög lævi blandað. Sennilega skýrast línur í stjórnmálum Grikklands upp úr helgi, en fréttamenn segja, að fundurinn í gær hafi verið mikill sigur fyrir Papandreou. 39 skip með 45 þús und mál og tunnur MB-Reykjavík, laugardag. Ágæt sfldveiði var við Hrollaugs eyjar og Tvísker síðasta sólarhring. Frá klukkan sjö í gærmorgun til klukkan sjö í morgun, laugar- dag, fengu 39 skip samtals 44. 750 ,mál og tunnur. Þar eð tals- j verð bræla er út af Austfjörðum, einkum út af Norðfjarðarhorni, Pressufíðið irufíð íþróttafréttaritarar hafa valið lið það, sem mæta á úrvalsliði landsliðsnefndar á þriðjudaginn. Liðið er þannig skipað: Helgi Daníelsson, Akranesi, Sigurvin Ó1 afsson, Keflavík, Þorsteinn Frið þjófsson, Val, Guðni Jónsson, Ak- ureyri, Anton Bjarnason, Fram, Jón Leósson, Akranesi, Reynir Jónasson, Val, Skúli Ágústsson, Akureyri, Ingvar Elísson, Val, Kári Árnason, Akureyri og Val- steinn Jónsson, Akureyri. ~ Ekki er víst að' Jón Leósson geti leikið — en stöðu hans tekur þá Björn Helgason, ísafirði. reyna bátarnir yfirleitt að leggja upp á Austfjörðunum. í laugardagsblaði Tímans var skýrt frá afla þeirra níu báta, sem tilkynnt höfðu afla sinn frá því klukkan sjö á föstudagsmorgni til klukkan sjö um kvöldið. Þau skip sem fengu síld frá klukkan sjö á föstudagskvöldi til sjö í forgun voru þessi: Guðrún Jónsdóttir ÍS 1100, Guð bjartur Kristján ÍS 1400, Hafþór RE 700, Framnes ÍS 900, Björg NK 1000, Baldur EA 800, Guð- mundur Péturs ÍS 1600, Áskell ÞH 800, Gullfaxi NNK 1300, Akra borg EA 550, Hannes - Hafstein EA 1200, Akurey SF 850, Kefl- víkingur KE 2200 tn. Elliði GK 1600, Kristbjörg VE 1500, Grótta RE 1300 mál, Anna SI 1000, Guð björg OF 500, Fróðaklettur GK 1600, Reykjaborg RE 700, Óskar Halldórsson RE 1200, Engey RE 1250, Guðbjörg ÍS 750, Huginn VE 1400, Eldborg GK 1300, Ingi ber Ólafsson II 1600, Skírnir AK 1100, Gunnar SU 1200. Talsverð bræla er út af Aust- fjörðum, einkum Norðfjarðar- horni, og veigra menn sér því við að sigla hinum hlöðnu skipum til norðurfjarðanna og kjósa held- ur nokkra löndunarbið á syðri fjörðunum. Mörg skip voru að veiðum um hádegið í dag, þegar blaðið hafði samband við síldar leitina á Daltanga, en höfðu ekki tilkynnt um afla sinnn. Nokk ur skip, sem voru á Hjaltlandsmið um voru þegar komin á veiðisvæð ið, en hin síðustu voru að koma, eða áttu stutt eftir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.