Tíminn - 01.08.1965, Síða 14
SUNNUDAGUR 1. ágúst 1965
14 TÍMINN
F.i.B.
Frá vegaþjónustu F.Í.B.
Vegaþjónusta FÍB er viðtækari
nú um verzlunarmannahelgina en
noikkru sinni fyrr. Á vegum félags
ins verða alls 17 bifreiðir úti á veg
unum. Vegaþjónustubifreiðirnar
verða 14 talsins, auk sjúkrabifreiðar
og tveggja bifreiða, sem ætlaðar
eru til minni háttar aðstoðar og
upplýsinga fyrir vegfarendur. Auk
þess sem vegaþjónusta verður á
öllum þjóðvegum hér Suð-vestan-
lands, þá verða vegaþjónustubifreið
ir starfræktar frá Akureyri, Húsa
vík, Norðfirði og Seyðisfirði. Þá
verður og vegaþjónustubifreið á
Vestfjörðum og Snæfellsnesi.
Þar sem búast má við að mikið
verði að gera hjá starfsmönnum
vegaþjónustunnar eru ökumenn vin
samlegast beðnir um að kalla ekki
á vegaþjónustubifreið nema að'bif
reið þeirra sé óökufær.
Bezta leiðin til þess að koma skila
boðum til vegaþjónustubifreiðanna
er að stöðva einhverja hinna fjöl
mörgu talstöðvabifreiða sem eru
úti á vegunum eða hafa samband
við Gufunes Radio (sími 22384), eða
Akureyrar Radio. F.Í.B. óskar öll
um góðrar ferðar og skorar jafn-1
framt á alia vegfarendur að stefna j
að slysalausri verzlunarmannahelgi.
Kallmerki. Svæði-staðsetning.
FÍB 1 Hvalfjörður að Borgarf.
FÍB 2 Kambabrún, Ölfus — Gríms
nes.
FÍB 3 Borgarfjörí'-ir — Dalir
FÍB 4 Vestfirðir (Vatnsdalur).
FÍB 5 Sjúkrabifreið, staðsett
„Stóru-Mörk".
FÍB 6 Rangárvallasýsla
FÍB 7 Þingvellir og nágrenni
FÍB 8 Upplýsingar, Vestfirðir.
FÍB 9 Laugarvatn og nágrénni
FÍB 10 Út frá Akureyri
FÍB 11 Út frá Húsavík
FÍB 12 Út frá Norðfirði
FÍB 13 Út frá Seyðisfirði og Fljóts
dalshéraði
FlB 14 Snæfellsnesi
FÍB 15 Upplýsingar. Bjarkaiundur
— Þorskafjarðarheiði
FÍB 16 Rvík — Markarfljót.
FÍB 17 Hjólbarðaviðgerðar-
bifreið, Þingvöllum
íþróttir
Framhald af 12. síðu
Konur.
Nanna Ólafsd. Gretti 18 stig.
Kristb. Magnúsd. Gretti 12. stig.
Margrét Bjarnad. Gretti 11 stig.
Kolbrún Guðjd. Gretti ý stig.
Eyrún Ingimarsd. Gretti 4 stig.
Um kvöldið var dansleikur að
Klúku og skemmti æskan sér á
heilbrigðan og skynsaman hátt,
án áfengra drykkja.
DAFFÝ frá Hólmavik lék fyrir
dansi.
DRUKKNUN
Framhald af bls. 1
og bændur á þessum slóðum, og
var þegar hafin leit. Leitað var
langt fram á nótt, en án árangurs.
f dag verður leitað mjög nákvæm
lega niður með allri á, að sögn
Ásgeirs Péturssonar sýslumanns,
og m. a. verður fengin flugvél til
að fljúga yfir fjörðinn við árósinn
og upp eftir Hvítá. Þá verður og
ieitað af bátum og áin slædd.
Gunnar heitinn var tæknifræð
ingur, sem nýlega kom heirn eftir
iangt nám í Danmörku. Ilann var
27 ára að aldri, og lætur eftir sig
konu og tvö börn. Gunnar Leós
son var kunnur knattspyrnumaður,
lék um árabil meistaraflokki
Fram og einnig með ísl. lands
liðinu.
HÉRADSMÓT
V-Skaftafellssvsla
Framsóknarmenn i V-Skafta-
:el]s. halda héraðsmót sitt að
Kirkjubæjarklaustri iaugard. 7.
ki. 21. Ræðu
maður verður
|| Björn Fi. Bjöms
j son, alþm. Ást-
hildur Emils-
j dóttir og Björg
(ngad. skemmta
með aðstoð Jóns
! Sigurðss Tóna
I bræður leika fyr
„... ír dansi
Bjorn
Snæfellsnes
Héraðsmót Framsóknarmanna
á Snæfellsnesi verður haldið að
Breiðabliki, Miklaholtshreppi
laugardaginn 7. ágúst og hefst
kl. 21. Ræðumenn verða: Pró
fessor Ólafur Jóhannesson,
varaformaður Framsóknar-
flokksins. og Ásgeir Bjarnason,
albingismaður. Jón Gunnlaugs
son, skemmtir, óperusöngvarinn
Erlingur Vigfússon syngur ein-
söng. Júnó og Eyþór leika fyr
ir dansi.
Strandasýsla
Héraðsmót Framsóknarmanna
í Strandasýslu' verður haldíð í
félagsheimilinu Sævangi, laug
ardaginn 7. ágúst og hefst kl.
21. Ávarp Eytur Hermann Jón
asson, fyrrverandi forsætisráð-
herra og Einar Ágústsson, al-
þingismaður, flytur ræðu. Sav
annatríóið skemmtir. Hljóm-
sveitin Röðlar leíkur fyrir
dansi.
Ólafur
Ásgeir
Herrnann
Einar
Maðurlnn minn og faðlr okkar
Kristinn Ingvarsson
organleikarl
verður jarðsunginn mlðvikudaginn 4. ágúst. frá Laugarnesskirkju.
Athöfnin hefst kl. 1,30.
Guðrún SigurðardóHlr og dætur.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð, við andlát og jarðar.
för sonar okkar og bróður,
Viktors Gunnlaugssonar
Sigrfður Dóra Jónsdóttlr, Gunnlaugur Þorláksson
systkini.
Alúðarþakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð við
andlát og jarðarför dóttur, eiginkonu og móður okkar,
Fríðu Björnsdóttur
frá Ólafsvík.
Sérstakar þakkir færum við hr. Ólafi ÓlafssVni vfirlækni og
hjúkrunar- og starfsliði á sjúkrahúsinu Sólvangi, Hafnarfirði.
Kristín Bjarnadóttlr Kristján Jensson oo börn.
Þessi mynd var tekin fyrir
skömmu, þegar hópur unglinga,
sem dvalizt hafði í Bandaríkjun-
um í nemendaskiptum á vegum
American Field Service, kom
heim eftir árs dvöl vestra með
Loftleiðaflugvél. Nemendaskipti
færast æ meira í vöxt milli þjóða
og cru hin gagnlegustu, því þá
fær æskufólk tækifæri til þess
að kynnast lífsvenjum og sjón
armiðum annarra þjóða.
KÍSILGÚR
Framhald af bls. 1
öflugustu gufuholur, sem til eru
hérlendis, en nákvæm mæling á
krafti þeirra og hita getur ekki
farið fram, fyrr en þær hafa
nokkuð jafnað sig eftir fyrsta
„sprettinn". I I
Gufan úr þessum stóru.^borhÁlj
um verður svo notuð til þess að
purrka kísilleirinn og brenna hann
Þá er einnig ráðgerð mikil veg
argerð í sambandi við verksmiðj-
una, og verður vegur lagður norð-
ur yfir Hólssand, þannig að hin-
ir miklu flutningar sem frá
verksmiðjunni verða, þurfi ekki
að fara eftir gamla veginum til
Húsavíkur, en þar verður útskip
unarhöfn verksmiðjunnar.
SIGVALDI
Framhald af 16. síðu.
bærum og atburðum, sem
örðugt reynist að skýra.
Annar nýr þáttúr, Spurn-
ingabálkur, hefst í þessu
hefti, en lesendum er leyfi-
legt að senda fyrirspurnir
og verður þeim þá svarað
í þeim þætti.
Skipuleg fræðsla um hug-
rækt verður -hafin i ritinu
fyrir næstu áramót.
HJÓLBARÐAVIÐGERÐIR
Opið aila daga flíka laug-
ardaga og sunnudaga
frá kl 7 .30 r.il 22.j
GÚMMÍVINNUSTOFAN hf
SkiPholh 35 Revkjavík,
sími 31055 á verkstæði
og 30688 á skrifstofu
SÍLDARMJÖLIÐ
Framhald af bls. 1
nægilega mikið magn af síld til
þess að fyrirframsölusamningum
sé fullnægt.
Fremur lítið magn var selt af
síldarlýsi fyrirfram, svo hækkun
á verði þess kemur okkur fremur
til góða. Hins vegar er hún hlut-
fallslega minni en hækkunin á
síldarmjölinu, mun vera 4—5%.
Sveinn kvað ekki ástæðu til þess
að óttast, að verðið lækkaði .snögg-
lega aftur, hvorki á mjölinu né
lýsinu.
JÓN ÞÓRÐARSON
Framhald af bls. 9
sálma, Jón. Það hafa sagt mér
þeir, sem þekkt hafa þig leng
ur en ég, að þú hafir iðulega
unnið tvö dagsverk áður en
þú fórst að leggja þig. Ertu í
kapphlaupi við tímann, eða
finnurðu svona mikla ánægju
í starfinu?
— Ýmislegt hefur valdið
því, að maður hefur ekki allt
,af getað lagt frá sér verkfær-
in, þegar klukkan sló. Oft býð-
ur önnur skylda manni að bæta
við daginn, er svo ber undir.
Og svo er það ánægjan af
starfinu, jú, hún hefur sem
betur fer, ætíð sprottið upp
af því. Eg hef líka átt ágætar
hollvættir til að setja traust á,
konuna mína og börnin vildi
ég líka mega segja. En nú held
ég að sé kominn tími til að
fara að draga sig í hlé.
Nú er ekki lengur til set-
unnar boðið. Menn skyldu trúa
því mátulega, að Jón sé að
leggja upp laupana hálfátt-
ræður. Hann getur ekki staðið
í því til eilífðarnóns að svara
fóT’wtnum blaðamanni. Einu
sinni kvað hann um viðureign
kollega síns við blaðmenn:
Drýpur kauða dreyra sjóður,
dáta sölna tár.
Grípur blauða geira óður
gráta — fölna brár.
Jón hefur í svo mörgu að
standa. Áður en hann
stóð .síðast upp frá setjaravél-
inni tók hann að sér starf, sem
ýkjulaust má telja fágætt nú
til dags. Hann hefur verið
pöntunarfélagsstjóri starfsfólks
ins í Edduhúsinu. Ekki með ó-
tal undirtyllum, aðstoðarliði
og sendiherrum, því þetta hef-
ur hann allt verið sjálfur. Enn
þann dag í dag er maðurinn
frá árdegi til sólarlags ýmist
á hlaupum út um allan bæ að
útvega vistir handa hálfu
hundraði manns, og vel það.
annast innkaup, afgreiðslu.
bókhald og halda öllu í röð
og reglu. Hvert verzlunarfyrir-
tæki mætti hrósa happi að
hafa slíkan mann, þótt ekki
væri nema til að annast eina
hlið, vinna eins manns verk,
en á þessu sviði vinnur hann
margra manna verk enn þann
dag í dag. Samt gefur hann
sér tima til að sinna áhugamál-
unum, eins og að vinna allt
það gagn, er hann má útgáf
unni á Ættum Austfirðinga
með því að útvega því merka
starfi styrktarfélaga. Og fé-
lagslyndur maður sem Jón er
hefur hann unnið Hinu ís-
lenzka prentarafélagi mikið
gagn, sem félagar hans hafa
launað með því að gera hann
að heiðursfélaga. En fyrir ut-
an fádæma samvizkusemi og
alvöru starfsins, sem ræður
striki hans, væri það efni í sér-
þátt, þegar hann gefur sér tíma
til að tylla sér og snússa sig
og taka upp léttara hjal, því
það er grunnt á húmornum í
karli. G.B.