Morgunblaðið - 02.02.1983, Side 1

Morgunblaðið - 02.02.1983, Side 1
Miðvikudagur 2. febrúar - Bls. 33 -64. ... er nú búið til verðmæti; refafóður ... Úr fisk- og sláturúrgangi sem áður var hent ... Miklir framtíðarmöguleik- ar verði skynsamlega staðið að uppbyggingunni en hver refalæða gefur af sér 7 skinn á ári Loö- dýra- rækt Loðdýrarækt er ung en ört vaxandi atvinnugrein her a landi og henni hefur verið ætlað stórt hlutverk í íslenskum land- búnaði. Mikil uppbygging hefur átt sér stað hjá bændum í húsum, búruni og fleiru, en fleira þarf til. Fyrir hendi þarf að vera kunnátta og aðstaöa til skinnaverkunar og fóðurgerðar fyrir refabúin svo og sölukerfi. Það er e.t.v. ekki síður mikil- vægt að vel takist til með þessa þætti en umhirðu sjálfra refanna Sala loðskinna fer fram á upp- boðum, ýmist hjá Hudson Bay í London eða á uppboðum á Norður- löndunum á vegum norrænu loð- dýraræktarsamtakanna. Á upp- boðunum ræðst verðið af fram- boði, eftirspurn og gæðum vör- unnar en hún selst hæstbjóðanda. íslensk loðskinn eru aðeins brota- brot af skinnafjöldanum á heims- markaðnum og hefur því enga möguleika á að hafa áhrif á verð- ið. Eitt er athyglisvert við sölumál- in í loðskinnaframleiðslunni, það er sá litli milliliðakostnaður sem þar er og stingur hann mjög í stúf við aðra þætti íslensks landbúnað- ar að því leyti, bóndinn fær það verð sem fæst fyrir skinnið hans á uppboði. Umboðsmenn uppboðs- búunum. fyrirtækjanna hér á landi taka við skinnunum og sjá um að koma þeim á uppboð. Það eru bændurnir sjálfir, hver fyrir sig, sem ákveða til hvors uppboðsfyrirtækisins framleiðsla þeirra fer og á hvaða tíma. Ákveðin samkeppni er á milli uppboðsfyrirtækjanna og mismunandi verð er á milli upp- boða og það er bóndinn sjálfur sem tekur ákvörðunina í sölumál- um sínum og tekur afleiðingum hennar. Fóðurmálin eru undirstöðuat- riði varðandi það hvort loðdýra- ræktin kemst í gegnum þær lægð- ir sem ailtaf koma annað slagið í sölu skinnanna. Fram hefur komið að það verð, sem nú fæst fyrir refaskinnin, og er talsvert miklu lægra en fékkst í fyrra, telja menn að sé viðunandi og ekki sé hægt að líta á það sem neitt lágmarksverð, heldur frekar eðlilegt verð og að ekki sé hægt að reikna með því uppsprengda verði sem fékkst í fyrra. Forsvarsmenn loðdýra- ræktenda telja einnig að íslenskir loðdýraræktendur ættu að geta rekið búskap sinn upp á þetta verð, þ.e. ef skynsamlega er að uppbyggingunni staðið. Stofnun loðdýrabúa er háð leyfi frá land- búnaðarráðuneytinu en að mati kunnugra manna hefur mikið skort á að aðstæður hafi verið látnar ráða við úthlutun leyfa. Skynsamlegast hafa þessir menn talið vera að byggja upp 3 stórar fóðurstöðvar, í Þorlákshöfn, á Dalvík og á Sauðárkróki, þar sem stærstu loðdýraræktarsvæðin eru, en kosta mun 3—4 milljónir að byggja hverja fóðurstöð upp. Síð- an þyrfti að byggja 12—14 minni fóðurstöðvar á hentugum stöðum miðað við fóðuröflun víðsvegar um landið og er kostnaður við þær tal- inn nema a.m.k. 500 þúsund krón- um. Búin ættu síðan að þróast út frá þessum stöðvum áður en farið væri út í að byggja upp ný ... sem flutt eru út. t hvorum kassa eru refaskinn að verðmæti um 100 þúsund krónur í erlendum gjaldeyri. Minkabúin mun arðvænlegri en refabúin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.