Morgunblaðið - 02.02.1983, Side 2

Morgunblaðið - 02.02.1983, Side 2
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983 Fóðurstöð. Uppistaðan í fóðrinu er fi.skúrgangur eða um 70%, annað er sláturinnmatur, Skinnin þarf að verka eins og kaupandinn vill fá þau. Hér er Reynir Barðdal bústjóri innlent mjöl og 5—6% er innflutt kolvetnafóður. Loðskinns að kemba refaskinn. loðdýraræktarsvæði, þannig að bændurnir geti fengið fóðrið til sín á viðráðanlegu verði. Þetta fyrirkomulag telja menn að sé grundvöllur þess að íslenskur loðdýrabúskapur geti staðist hina hörðu samkeppni sem er á mark- aðnum. Fóðrið er frekar ódýrt frá fóðurstöð, en ef það þarf að flytja langar leiðir og að frysta þarf stóran hluta af því, þá er glansinn farinn af verðinu. Nokkrir loðdýrabændur sem farið hafa af stað einangraðir og fjarri sjó hafa margir lent í hinu mesta basli við að hafa fóður fyrir refina. Það er alveg ljóst að hluti þeirra, sem farið hafa af stað, kemur til með að heltast úr lestinni og verða það líklegast þeir sem hafa um langan veg að fara til fóðuröflunar. Skinnaverkunin er einnig mikil- vægur þáttur þessa búskapar. Þau mál hafa bændurnir ýmist séð um Andrew fcr ekki að kvænast Koo — segir Sun. Dagblaðið Sun: Andrew fær ekki að kvæn- ast Koo l.undúnum, 31. janúar. Al’. ELÍSABET Bretadrottning hefur tjáð næstelsta syni sínum, And- rew, að hann geti ekki kvænst bandarísku ieikkonunni Koo Stark, segir í breska dagblaðinu Sun í dag. í grein á forsíðu blaðsins seg- ir að drottningin hafi sjálf komið í veg fyrir að Koo gisti í höll fjölskyldunnar í Norfolk nú um helgina ásamt Andrew og kvað hafa sagt syni sínum að gleyma öllum hugsanlegum giftingaráformum sínum með þessari stúlku. Talsmaður Buckingham- hallar tilkynnti síðan í kvöld að fregnir sem þessar væru ekki svara verðar. sjálfir eða með aðstoð stóru bú- anna sem hafa byggt upp aðstöðu til þess. Skynsamlegast virðist að hafa svipað héraðafyrirkomulag á því og í fóðurmálunum. Fram hefur komið í fréttum að vel hefur gengið hjá íslenskum bændum að fást við þessa nýju búgrein. Þeim hefur tekist að framleiða stór og falleg skinn sem hafa selst vel, a.m.k. í fyrra, og dýrin hjá þeim eru frjósöm. Þá virðist bændum líka vel að fást við þetta þrátt fyrir að loðdýraræktin sé bindandi starf, því að í vetur hefur loðdýrabændum fjölgað margfalt og er talið að í dag séu 100 bændur komnir af stað og þeir sem fyrir voru hafa flestir stækk- að við sig. Þetta virðist því falla vel að því sem bændurnir hafa fyrir. Þessi áhugi virðist einnig styðja þá skoðun að refaræktin sé arðvænleg atvinna þrátt fyrir verðfallið á skinnunum í vetur. Skv. upplýsingum sem Mbl. hef- ur aflað sér þarf 120 kg af fóðri til að framleiða hvert refaskinn. Kílóið af fóðrinu kostar 2 kr. og er fóðurkostnaðurinn því 240 krónur við að framleiða hvert refaskinn. Fyrir refaskinnið fást hinsvegar 750—800 krónur að meðaltali á uppboðum vetrarins og heldur bóndinn því eftir 510 til 650 krón- um fyrir framleiðslu á hverju refaskinni til greiðslu alls annars kostnaðar, uppbyggingar og launa fyrir sjálfan sig. Miðað er við að hirðing á ca. 130 refalæðum sé hæfilegt ársverk fyrir einn mann. Eftir hverja læðu koma ca. 7 hvolpar að meðaltali á ári sem gerir 910 skinn á ári hjá einum manni. Hann gæti því haft 460 þúsund til 510 þúsund krónur eftir að búið er að greiða fóðurkostnað- inn. Dæmið í minkaræktinni er mun betra og ef ekki kæmi til slæmur sjúkdómur í minkastofninum væri vöxturinn líklega meiri í þeirri grein en í refaræktinni. Til að framleiða eitt minkaskinn, sem selst á ca. 400 krónur, þarf 50 kg af fóðri sem kostar 2 kr. kílóið. Fóðrið kostar því 100 krónur á hvert skinn. Bóndinn, sem á auð- veldlega að geta hirt einn 700 minkalæður sem hver gefur af sér 4 skinn á ári, fengi því í sinn hlut og til að greiða allan annan kostn- að um 840 þúsund krónur. En engan veginn er víst að allir nái þeim árangri sem þessar tölur sýna og framleiðsla góðrar vöru fyrir duttlungafullan erlendan markað er enginn leikur. Til dæm- is má geta þess að lita- og stærð- arafbrigði eru svo óþrjótandi að engin tvö refaskinn eru nákvæm- lega eins. Þessi vísir að loðdýrarækt, sem nú er kominn hér á landi, skilar orðið verulegum fjármunum í þjóðarbúið. Á markað í vetur fara um 7 þúsund refaskinn og 22 þús- und minkaskinn og líklegt er að söluverð þeirra verði um 15 millj- ónir ísienskra króna sem koma í erlendum gjaldeyri. Samt er þetta aðeins að byrja. HBj. Ljósmyndir Mbl. /HBj. Myndirnar úr fóðurstöðinni og skinnaverkuninni eru teknar hjá Loð- skinn sf., Sauðárkróki, en myndin af refnuin (shadow-refalæða) er tekin á Syðra-Skörðugili í Seyluhreppi í Skagafirði. í plastheimi raunveruleikans? Leiklist Jóhanna Kristjónsdóttir Herranótt Menntaskólans Reykjavík 1983. Halldór Laxness: Prjónastofan Sólin. Leikstjóri: Andrés Sigurvinsson. Aðstoðarleikstjóri: Soffía Karls- dóttir. Leikmynd og búningar: Karl Aspelund. Mikil og vendileg úttekt er jafnan gerð árlega á leiklistar- áhuga og dugnaði þeirra mennt- skælinga að halda í heiðri þeirri gömlu hefð að koma upp leik- sýningu ár hvert, enda hlýtur að þurfa afar mikinn og brenn- andi áhuga til að leggja á sig allt þetta erfiði og vafstur. Sennilega hittir Hafliði Helga- son naglann á höfúðið í grein í leikskrá: „En til hvers er verið að leggja á sig alla þá vinnu, sem sýning sem þessi krefst? Því er auðsvarað. Að baki hverjum þreytubaug býr gleði og ánægja yfir skapandi starfi, sem hvorki verður metið til fjár né einkunna." Halldór Laxness kallar sjálf- ur verkið gamanleikrit, þar sem þjóðfélagið er tekið fyrir og raunveruleikanum þjappað saman í prjónastofunni og held- ur kaldranaleg mynd upp dreg- in. Þó fer því fjarri, að mér finnist Prjónastofan Sólin vera fyndið stykki, sönnu nær að segja að mér hefði fundizt það langtum skemmtilegra en ég hafði af einhverjum ástæðum búist við. Ég held að rétt sé með farið að leikritið hafi svona allt að því fallið, þegar það var sýnt í Þjóðleikhúsinu fyrir æði mörgum árum, en ekki get ég minnst þess hvernig um þá sýn- ingu var skrifað. I Prjónastofunni leiðir höf- undurinn fram andstæðurnar í — gott og saklaust (Sólborg) og spillinguna og ljótleikann (feg- urðarstjórinn og jafnvel Sine Manibus, sem reynist eftir allt saman rotinn og spilltur). Ibsen Ljósdal er einnig persóna, sem oft kemur fram í verkum Lax- ness, spekingur með barns- hjarta, sem hörfar af vettvangi, þegar Sólborg verður að leggja hús sitt fyrir undirbúning feg- urðarsamkeppninnar. Edda Arnljótsdóttir fer með hlutverk Sólborgar, fas og framganga með hinum mestu ágætum, einfeldnisháttur og einlægni skilaði sér einkum framan af, en einhverja dýpt vantaði í þessa manneskju: sársauka og vonbrigði tókst henni ekki að koma alls kostar til skila. Stefán Jónsson fór létt með fegurðarstjórann og hjálp- aðist þar allt að, gott gervi, frábærlega vel unnar hreyf- ingar og fyrirtaks framsögn. Einar Sigurðsson var skýr- mæltur sem Sine Manibus, Ari Matthíasson brá upp smellinni mynd af líkkistusmiðnum. ótaldar eru hinar aðskiljanlegu fegurðardrottningar, þrír pípu- hattar o.fl. Allt þetta unga fólk skilaði sínu meira og minna prýðilega. Hlutur leikstjórans Andrésar Sigurvinssonar er mikill, ívið meiri þegar um óreynda áhugamenn er að ræða en ella. Hann hefur unnið ágæt- is verk, stílíseruð prjónastofa — stílíseraður raunveruleiki — plastlífið, þetta kemst mætavel til skila. Hugmynd Karls Aspe- lund varðandi leikmynd og bún- inga undirstrikar síðan platið og plastið. Sem sagt ágæta vel unnin sýning og á skilið aðsókn fleiri en skólanemenda einna og að- standenda þeirra. Leikhópur Prjónastofunnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.