Morgunblaðið - 02.02.1983, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 02.02.1983, Qupperneq 6
38 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983 Sovétríkin eftir fráfall Brezhnevs Versnandi efnahagsástand krefst skjótrar útlausnar, sem flokks- ræðið hefur ekki á takteinum Med því að gera Yuri Andropov, fyrrverandi yfirmann leynilögregl- unnar, að cftirmanni Leonid Brezhnevs, aðeins þremur dögum eftir fráfall þess síðarnefnda, voru valdamennirnir í Kreml að reyna að eyða öllum getgátum um, að langvinn valdabarátta eigi sér stað í Sovétríkjunum, er haft gæti lam- andi áhrif á starfshætti stjórnvalda þar. Andropov var tilnefndur af helzta keppinaut sínum, Kon- stantin Chernenko, og það var auð- vitað gert til þess að sýna sam- heldni út á við, nú þegar sovézk stjórnvöld taka til við að búa sig undir að fást við-þau feiknalegu vandamál, sem Brezhnev skildi eftir. Enn hefur ekki verið úr því skorið, hve mikil völd Andropov á að hafa í framtíðinni og hvernig öðrum stöðum, sem Brezhnev hafði með höndum, verður ráðstaf- að, en þar á meðal eru stöður eins og forseti æðsta ráðsins, æðsti hershöfðingi Sovétríkjanna og for- seti herráðsins. Búast má við, að hinn nýi leið- togi kommúnistaflokks Sovét- ríkjanna verði í fyrstu að minnsta kosti leiðtogi samvirkr- ar forystu og að Chernenko fái í sinn hluta forsetaembættið, sem er fyrst og fremst virðingar- staða. Ef saga síðustu 65 ára á eftir að endurtaka sig, þá verður Andropov annaðhvort velt úr sessi bráðlega eða hann á eftir að gnæfa hátt í valdakerfi Sov- étríkjanna, alveg eins og átti sér stað hjá Josef Stalin, Nikita Krúsjoff og Brezhnev. En þau vandamál, sem steðja að Sovétríkjunum, bíða ekki, heldur krefjast úrlausnar. Það skiptir að sjálfsögðu miklu máli gagnvart Vesturlöndum, hvaða stefnu Andropov og aðrir í hinni samvirku forystu eiga eftir að taka, er þeir fara að fást við þessi vandamál: • Hvernig eiga valdamenn í Kreml að bregðast við stefnu Reagans Bandaríkjaforseta og stjórnar hans? Eiga þeir að auka á vígbúnaðarkapphlaupið, eins og Brezhnev gaf til kynna fáein- um dögum fyrir dauða sinn, eða að breyta um stefnu og gera samkomulag við ráðamenn í Washington um eftirlit með vígbúnaði og koma í einlægni á friðsamlegri sambúð. • Á að reyna að finna leið til þess að komast frá Afganistan án þess að verða fyrir álits- hnekki, þar sem styrjöldin þar virðist endalaus, eða á að senda enn stærri sovézkan her inn í þetta land, sem Rússum tekst ekki að yfirbuga? • Hvers konar tilslakanir ætti að leyfa herstjórninni í Póllandi og láta verkamönnum í té svo og rómversk-kaþólsku kirkjunni þar í því skyni að koma aftur á röð og reglu í því landi? • Og loks, sem skiptir þó mestu máli: Hvað á að gera í því skyni að ráða bót á versnandi efna- hagsástandi? Á að halda áfram að káka við kerfið eða á að taka til við róttækar en áhættusamar endurbætur, sem vestrænir sér- fræðingar segja að sé eina hald- bæra leiðin út úr ógöngunum? Gamlir menn Flestir fréttamenn í Moskvu spá ekki neinum róttækum breytingum á þeirri stefnu, sem Brezhnev fylgdi. í fyrsta lagi er sovézka kerfið ekki fallið til snöggra breytinga og allra sízt á tímabili samvirkrar forystu, þar sem baráttan um völd fer fram að tjaldabaki. Eftirlifandi með- limir stjórnmálaráðsins bera einnig ábyrgð á stefnu Brezhn- evs, hvort heldur er um að ræða slökunarstefnu gagnvart Vestur- löndum, innrásina í Afganistan eða þá stefnuna í landbúnaðin- um, sem hvað eftir annað hefur brugðizt. Þá skiptir það máli, að þarna er á ferðinni hópur manna, sem flestir eru orðnir gamlir. Jafnvel eftir fráfall Brezhnevs, sem var 75 ára gamall, er meðalaldur þeirra 12 meðlima stjórnmála- ráðsins sem eftir eru nær 70 ár. Það er því ekki líklegt, að þeir freistist til þess að taka nokkra áhættu eða vera með tilrauna- starfsemi. Valdhafarnir í Kreml hafa lagt mikla áherzlu á samfellda stefnu sem leiðarvísi hinnar nýju forystu. Andropov ítrekaði í sinni fyrstu opinberu ræðu eft- ir dauða Brezhnevs þá hörðu stefnu, sem sá síðarnefndi hafði haldið fram í síðustu ræðu sinni hinn 7. nóvember sl. við hersýn- ingu á Rauða torginu í tilefni 65 ára afmælis byltingarinnar. Andropov sagði þar m.a.: — Við vitum það nógu vel, að það er gagnslaust að biðja heimsvalda- sinna um frið. Frið er aðeins unnt að tryggja með því að reiða sig á ósigrandi kraft sovézka hersins. Þrátt fyrir hörkuna í orðum Andropovs eru flestir stjórn- málafréttaritarar þeirrar skoð- unar, að sovézku leiðtogarnir eigi á næstunni eftir að fylgja varfærinni stefnu á alþjóða- vettvangi og muni forðast ögran- ir. Satt að segja sáust þess merki á síðustu dögum Brezhnevs, að stjórnvöld í Kreml væru að reyna að draga úr spennunni á alþjóðavettvangi. Leiðtogar her- stjórnarinnar í Póllandi til- kynntu, að foringi Samstöðu, Lech Walesa, yrði látinn laus og skyldi þetta gert til þess að sýna sáttfýsi gagnvart verkamönnum og kaþólsku kirkjunni. Og sá orðrómur hefur verið á kreiki, að stjórnvöld í Moskvu hafi verið að leita að málamiðlunarleið til þess að binda endi á stríðið í Afganistan. Af hálfu Sovétríkjanna voru hafnar nýjar samningaviðræður við stjórnvöld í Peking til þess að setja niður deilurnar við Kínverja og til þess að fækka í rússneska hernum við kínversku landamærin. Jafnframt hafa þær getspár verið á kreiki, að sovézk stjórn- völd muni á næsta ári hefja frið- arsókn í því skyni að koma í veg fyrir uppsetningu á nýjum bandarískum eldflaugum í Vestur-Evrópu. Hörmulegt efnahags- ástand Gert er ráð fyrir, að Sovétrík- in muni beina viðleitni sinni út á við að Vestur-Þýzkalandi, þar sem almennar þingkosningar eiga að fara fram í marz í von um að veikja tengslin milli stjórnanna í Bonn og Washing- ton. Þeir, sem fylgzt hafa með atburðum í Kreml og þá um leið með ferli Andropovs, halda því fram, að hann muni beina kröft- um Sovétríkjanna inn á við til þess að bæta úr hörmulegu efna- hagsástandi þeirra. Hann hefur lagt áherzlu á stuðning sinn við slökunarstefnuna í ræðum sín- um. Þannig fullyrti hann snemma á þessu ári: — Reynslan sýnir okkur, að það er enginn annar aðgengilegur kostur til en friðsamleg sambúð, og kalda stríðið og vígbúnaðarkapphlaup- ið eiga ekki eftir að leiða til neins. Enginn getur sigrað í heitu stríði. Sumir stjórnmálafréttaritarar eru með getspár um, að Andro- pov eigi eftir að reynast umbóta- sinni og þá fús til þess að inn- leiða nýjar hugmyndir og að- ferðir í sovézkum landbúnaði og efnahagslífinu yfirleitt, samtím- is því sem áfram yrði tekið föst- um tökum á pólitískum andófs- mönnum í Sovétríkjunum og Austur-Evrópu. Hvað varðar samkeppnina við Bandaríkin í hernaðarlegu tilliti, þá er víst, að hann á eftir að styðja sovézka herinn af alefli. Satt að segja eru margir stjórn- málafréttaritarar þeirrar skoð- unar, að Andropov eigi upphefð Tvær skáldsögur um Alþýðubandalagið Að lokinni bókavertíð — Hannes H. Gissurarson skrifar Hvað á sá maður að gera, sem ætlar að koma stjórnmálakenn- ingu á framfæri? Hann getur skrifað stjórnmálagreinar eða jafnvel stjórnmálarit, en sannleik- urinn er sá, að fáir lesa það aðrir en áhugamenn. Hann getur því, ef hann ætlar að ná til fleiri manna, skrifað skáldsögu. Á okkar litla markaði seljast góð stjórnmálarit ekki nema í 500—1.000 eintökum, en góðar skáldsögur í 1.500—3.000 eintökum, og er á því mikill mun- ur. Þetta er þjóðráð. Og á þetta ráð brugðu þeir George Orwell og Artúr Köstler, svo að tveir kunn- ustu höfundar stjórnmálasagna séu nefndir, en bækur þeirra, Fé- lagi Napóleon, Nítján hundruó átta- tíu og fjögur og Myrkur um miðjan dag, hafa allar verið gefnar út á íslensku. Bandaríski rithöfundur- inn Ayn Rand, sem er nýlátin, gerði þetta einnig með góðum árangri, en í skáldsögum sínum boðaði hún stæka einstaklings- hyggju. Halldór Laxness er sá rithöf- undur íslenskur, sem hefur eink- um fengist við að skrifa stjórn- málasögur. Ein er Atómstöðin, en i henni hellti hann úr skálum reiði sinnar yfir þá stjórnmálamenn, sem reyndu að gæta öryggis landsins með samningum við aðr- ar lýðræðisþjóðir. Önnur er Para- dísarheimt, en í henni lýsti hann tilgangslausri leit að fyrirmynd- arlandi, eftir að honum hafði sjálfum snúist hugur um stjórn- mál. Það má þó segja um þáðar þessar sögur, að menn njóta þeirra þrátt fyrir fremur en vegna stjórnmálakenninganna í þeim, enda er hættan alltaf sú, að list- inni sé fórnað fyrir stjórnmálin í slíkum sögum. Stjórnmálasögur gegn sameignarskipulagi hafa verið færri. Þó má nefna söguna Bessa gamla eftir Jón Trausta frá 1918, en í henni hæðist hann að jöfnunarstefnu samhyggjumanna: „Niður með fjöllin! Upp með dal- ina.“ Og fyrir jólin voru gefnar út tvær skáldsögur, þar sem Alþýðu- bandalaginu e.r lýst. Ég get ekki sagt, að mér finnist þessi rit mikil listaverk, en þau eru þó athyglis- verð, hvort með sínum hætti. Báð- ir höfundarinir geta bersýnilega gert betur, og ég vona, að þeir geri það, þótt síðar verði. Boðið upp í dans Önnur skáldsagan er Boóið upp í dans eftir Ólaf Ormsson, en Al- menna bókafélagið gaf hana út. Sagt er fra Unnari nokkrum Steingrímssyni frá 1949 tii 1975. Hann er sonur stalínsinna, sem var í Kommúnistaflokknum og síðan Sósíalistaflokknum. Stalín- sinninn, faðir hans, er sérlundað- ur og jaðrar við að vera geðveikur. Unnar erfir stjórnmaálskoðun föður síns, gerist öfgafullur sam- eignarsinni og æskulýðsfylkingar- maður, en missir stjórnmálatrú sína á áttunda áratugnum. Enginn vafi er á því, að höfundurinn er öðrum þræði að lýsa eigin þroska, en hann var róttækur sameignar- sinni og er það ekki lengur. Hann er í rauninni að lýsa heilli kynslóð, sem lét blekkjast af samhyggj- unni, en missti trúna eftir innrás Rauða hersins inn í Tékkóslóvakíu árið 1968. Fyrri hluti bókarinnar er betur skrifaður en seinni hlutinn, höf- undurinn hefur þvi miður ekki gefið sér tíma til þess að ljúka henni sæmilega. Sumar kenningar hans um sameignarstefnu eru gamalkunnar, svo sem að hún sé fremur trú en skoðun, sameignar- flokkar séu líkari trúarsöfnuðum en stjórnmálaflokkum. En ég held þó, að hann skyggnist ekki nægi- lega víða um. Hann lætur í raun- inni tveimur spurningum ósvarað. Hvað olli því, að sameignarsinnar höfðu meira fylgi hérlendis en í flestum öðrum löndum? Og hvers vegna skipti söguhetjan um skoð- un? Sú kenning, að samhyggja sé væg geðveiki, einhver öfugsnúin trú, freistar að sjálfsögðu þeirra, sem lesa hin furðulegu rit sam- eignarsinna frá fjórðá áratugnum. En Sósíalistaflokkurinn fékk ekki 20% í kosningum á árunum 1942—1949 af þessari ástæðu. Ég held, að skýringin sé önnur. I sjálfstæðisbaráttu íslendinga varð til öflug þjóðernisstefna, sterk taug, sem Sósíalistaflokkn- um tókst síðan að nota, eftir að hann kastaði af sér „alþjóða- hyggju öreiganna". Þjóðernis- stefnan er systir sameignarstefn- unnar, og báðar eru þær af ætt hóphyggjunnar, samkvæmt báð- um er mannkyninu skipt í tvo hópa, utangarðsmenn og innan- garðsmenn. Reynslan hefur sýnt, að þjóðernisvitund manna er miklu sterkari en stéttarvitund þeirra, Hegel var betri spámaður en Marx, þótt það sé rétt, sem Act- on lávarður sagði, að hvort tveggja sé jafnheimskulegt, enda er þjóðernisstefna ekkert annað en eigingirni eða sjálfsdýrkun hópsins. Og hvers vegna skipta menn um stjórnmálaskoðun? Ég kann ekk- ert eitt svar við því. Ólafur Björnsson sannfærðist um það af rökum þeirra Hayeks og von Mis- ess, að altækur áætlunarbúskapur væri ótækur. Arnór Hannibalsson sannfærðist um það af dvöl sinni fyrir austan járntjald, að sam- eignarstefnan hefði mistekist. Hvað olli því, að þeir skiptu um skoðun, en ekki Jóhannes úr Kötl- um eða Árni Bergmann? Heimska hinna síðarnefndu, óheilindi þeirra eða einhver flókin víxlverk- un manna og umhverfis þeirra? Síðasta skýringin er líklega sú, sem á einkum við. En hag- fræðingar kynnu að segja, að skoðanaskipti réðust af kostnaðin- um við þau. Sá, sem á allt sitt und- ir flokki, skiptir síður um skoðun en sá, sem er óháður honum. Menn eins og Einar Olgeirsson og Brynj- ólfur Bjarnason geta að sjálfsögðu ekki horfst í augu við það, að þeir hafi lifað í blekkingu alla sína ævi, kostnaðurinn er of mikill, ef svo má segja. Ég sakna þeirra hatrömmu átaka, sem hljóta að verða í huga baráttumanns, þegar hann skiptir um skoðun, úr bók Ólafs Ormsson- ar. Skoðanaskipti söguhetjunnar verða án fullnægjandi skýringar. Það hlýtur að hafa kostað Olaf eitthvað sjálfan að skipta um skoðun, en hann hefur enn ekki komið þeirri reynslu til skila. Get- ur þetta ekki verið efni í næstu bók? Bræður munu berjast Hin skáldsagan, sem ég hyggst fara um orðum, er Bræður munu berjast eftir Ronald Símonarson, en Örn og Örlygur gáfu hana út. Hún er ekki uppgjör einstaklings við fortíðina, heldur spá um fram- tíðina, samin af manni sem hefur ekki, svo að ég viti, skipt sér mjög af stjórnmálum. Mér fannst meiri spenna í henni en hinni bókinni, ég lagði hana ekki frá mér, fyrr en ég hafði lokið lestrinum, þótt sá galli sé á henni, að frásögnin er ekki nægilega samfelld. Og hver er spáin? Hún er sú, að Sjálfstæðis- flokkurinn missi mikið fylgi vegna hneykslismáls og Alþýðubanda- lagið sigri í kosningum. Formaður þess myndi stjórn, en í flokki hans séu menn, sem hafi mikið sam- band við Kremlverja og beri enga virðingu fyrir lýðræði. Smám saman komist á einræði, róttæk- ari hópurinn í Alþýðubandalaginu styrkist, en hinn hópurinn veikist. Fangabúðir séu reistar í Grímsey og menn séu fangelsaðir fyrir til- búnar sakir. En við sögulok eru líkur á sigri lýðræðissinna þrátt fyrir allt. Benda má á, að þetta hefur gerst í öðrum löndum. Skemmst er að minnast þess, er sameignar- sinnar hrifsuðu til sin ríkisvaldið í Tékkóslóvakíu og þjóðernissinnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.