Morgunblaðið - 02.02.1983, Page 9

Morgunblaðið - 02.02.1983, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983 41 hvorki stelast burt né þvælast flatur fyrir fótum annarra. Ekki svo að skilja að Ísland fari að taka við kjarnavopnum eða greiða kostnað við uppsetning eldflauga. En með landsafnotum Natós hér tekur það ábyrgð á þætti í varnar- búnaði tveggja álfna og þyrfti að eiga meiri aðild en hingað til að hernaðarþekkingu og þá einnig að sumum herfræðilegum ráðstefn- um. Og fyrir kemur að einmitt veikleiki smáríkis auðveldar því milligöngu er hópar hinna deila. Blaðafulltrúi ríkisstjórnar, Magnús Torfi Ólafsson, reifaði 12.6. þetta efni á ráðstefnu Lífs og lands í Rvík (Öryggisgæsla og við- búnaður forsenda sjálfstæðis ís- lands) og talsvert nánar aftur í haust á fundi Samtaka um vest- ræna samvinnu og Varðbergs, 20. nóv. (Mbl. 16.6. og 1.12. 1982). Tek ég undir öll þau sjónarmið hans, sem skoðanir geta skipst um til muna, enda lét svipað í ljós í Mbl. öðru hverju áratuginn sem leið. Ræði ég meir Atlantsbandalag, fyrst hann komst eigi í nóv. yfir þá hlið mála. Hann benti á matsmun þar og ósætti. Hins vegar þori ég ekki, meðan stjórnarskrársáttagerð er við- kvæmt mál, að velta með honum upp ókönnuðum fleti öryggismála (forsetaafskipta?) í ríkisstjórn vorri þó við viljum fá „í þessum efnum fyrirkomulag, sem getur staðist pólitíska sviptivinda". En hvernig væri að spyrja Mauno Koivisto, forseta vinaþjóðar, út úr nokkrum lexíum, sem hann kann? „Franskur forseti" kynni að reyn- ast Pólverjum bót en gæti hér ekki stefnt í annað en að breyta ein- bákni í tvíbákn, sbr. líka amerísk- ari tvíbáknsdrauma, sem eiga að eyða valdi í stjórnskipunartillög- um óstofnaða „flokksins móti flokksskiptingu". Alþingi má held- ur aldrei kljúfa svo mjög 3 stjórn- greinar að ekki viti hægri hönd þess fyrr en eftir dúk og disk hvað hin vinstri (þ.e. miðstýrðari) framkvæmir, eða kannski aldrei. Það stór yki líkur á sjálfheldu og hræðslu. Ótti við innlenda mið- stýring, stundum réttur og rökvís, og ótti við að standa í miðstýrðu bandalagi, þegar hvert annað lag á hlutum væri þjóðríki og sam- gangnaörygginu margfaldur háski, má aldrei leiða til flaust- ursákvarðana, ekki fá okkur til að hlaupast úr ábyrgð. Eg hét að ergja ekki lesendur með söguskýringum en það úrræði Frakka 1954 að losa herstjórn lands síns, fá hana alla í eigin hendur, frá kjarnavopnamiðstýr- ingu USA-forsetans, er nær skapi þjóðleiðtoga í báðum álfum en var áður en nýja vígbúnaðarkapp- hlaupið harðnaði. Hjálp frá Amer- íku þurfa þeir, sem aldrei líklegt að þaðan skuli skotið MX-skeytum, sem skakki leik „takmarkaðs" stríðs samkvæmt forskriftinni MAÐ, sem nú þykir vitlegra að kalla „mad“. Hér er ekki rúm til að ræða að- lögun að herfræðilegum möguleik- um, sem hlýtur að takmarka og tempra herbeiting Natós, þegar friður rofnar á svæði þess eða á svæði, sem ranglega telst koma því við, svo sem Falklandseyjar eða íran. Réttmæli er hins vegar að innrás í Afganistan ógni sam- tímis fleirum, er eigi mæri sín að Varsjárbandalagslöndum, og hún þykir spor í átt til Indlandshafs- sóknar stigið af heimsdrottnun- arvilja Moskvu. En hve langt nær og hversu æst til viðbragðs skal Natósamábyrgðin vera? Raunhæf svör skortir. MX-flaugar hljóta að hækka kjarnorkuþröskuld Ameríku sem stödd væri í sjálfsvörn. Umdeilt verður hvort þær séu ekki einka- mál USA. Þær tákna brýning um að hækka kjarnorkuþröskuld EC- ríkja með öðrum vigbúnaði. Sé það sannspá mótar um leið fyrir stigmagnandi feiknstöfum „tak- markaðra stríða" á regional- grundvelli, sbr. Miðausturlönd, Suðaustur-Asíu, hluta Mið- Ameríku. Rótarskot frá fleiri Atl- antsstrandaóeirðum geta, eins og M.T.Ó. segir, skotið allsstaðar upp kolli (meir eftir 1990) og ísland reynst berskjaldað. Njósnir leyni- kafbáta i sænskri og norskri land- helgi eru síður undirbúningur undir risaveldastríð en „regionalt" stríð, sem gæti snert fjarlægar syðri álfur, jafnsnemma og sam- göngur okkar. Núverandi aðstæður geta ekki breyst til sams konar slökunar og Willy Brandt náði og enn síður til sama kreppufriðar og ríkti fyrir uppgjöfina í Múnchen-samningi 1938. En þrátt fyrir réttmæt háðs- yrði, sem menn velja svonefndri friðlýsingu ákveðinna lands- og hags-„regiona“, fara sumir af- markaðir landahópar að taka nýtt mark á griðaboðum gegn róttækri afvopnun þar og mati á háska jafns tjóns beggja af friðrofi. Á næsta kjörtímabili forseta í USA mun rísa þar þrýstingur, gegn haukum, til þess að Ameríka liðsinni af- vopnuninni ýmislega og hræðist ekki breytinguna. Major-General Nasir al-Din Nasir Minister of the Interior Syrian Arab Republic. ZAMBIA — Nkaka Chisanga Puta N.C. Puta er 30 ára lögfræð- ingur, og hefur hann verið í haldi frá því í júlí 1981, án þess að hann hafi hlotið nokkurn dóm. Þann 2. júlí 1981 var hann handtekinn af leynilögreglu Zambíu, og settur í 28 daga gæsluvarðhald. Eftir að hafa verið í haldi í 2 vikur, þá var gæsluvarðhaldsúrskurðinum breytt skv. skjali undirrituðu af Kaunda, forseta iandsins, („order under Section 33 (i) of the Preservation of Public Sec- urity Regulations, signed by President Kaunda"). Þessi nýi gæsluvarðhaldsúr- skurður gildir til eins árs í senn, en hann má sífellt endurnýja, og réttur fangans er lítill sem eng- inn. N.C. Puta hefur enga form- lega ákæru hlotið. En yfirvöld Zambíu segja hann vera í haldi vegna þátttöku í samsæri til að hjálpa nokkrum föngum að flýja úr fangelsi. Fangar þessir voru í haldi vegna gruns um tilraun t.þ.a. steypa stjórn landsins af stóli. AI telur aftur á móti að Puta sé í haldi vegna tengsla hans við einn aðalsakborninginn í máli sem kom fyrir rétt í nóv. ’80, þ.e. frænda hans Valentine Musak- anya fyrrverandi ráðherra. Mál þetta fjallar um landráð. N.C. Puta var lögfræðingur frænda síns í máli þessu, og tókst að fá hann lausan úr haldi með hjálp „habeas corpus" (þetta eru sér- stök ákvæði er varða fanga án dóms, og kveða svo á um að mál þeirra fái meðhöndlun fyrir við- urkenndum rétti). En yfirvöld gáfu strax út nýja varðhalds- skipun á hendur honum. Talið er víst að það hafi komið yfirvöld- um Zambíu í opna skjöldu hve árangursríkt „habeas corpus" getur verið, og hve ákveðinn og öruggur N.C. Puta var í að beita lögunum skjólstæðing sínum í hag. Vitað er að Nkaka Chisanga Puta var barinn illa er hann var handtekinn. Þann 4. desember 1981 var „habeas corpus" áfrýj- un fyrir hans hönd hafnað af dómstólum, þó svo að dómarinn teldi hann hafa hlotið ómannúð- lega meðferð, og bæri að fá skaðabætur. N.C. Puta er í haldi í Mpima fangelsi, Kabwe. Vinsamlegast sendið kurteis- lega orðað bréf og biðjið um að Nkaka Chisanga Puta verði lát- inn laus. Skrifið til: His Excellency President Kenneth Kaunda State House Lusaka Zambia. „Komnir á yztu nöf í þróun skiptaverðs til sjómanna“ „FORMENN sjómannafélaganna töldu að ekki væri rétt að grípa til þeirra ráða að draga sinn fulltrúa út úr Verðlagsráði sjávarútvegsins að svo komnu máli, þar sem við erum ekki með annað launakerfí á reið- um höndum sem tryggir rétt okkar umbjóðenda, en hins vegar tel ég að við séum komnir út á yztu nöf í þróun skiptaverðs sjúmanna," sagði Óskar Vigfússon, forseti Sjómanna- sambands íslands í tilefni af fundi formanna Sjómannasambandsins í Keykjavík sl. sunnudag, en hér fer á eftir fréttatilkynning frá fundinum. Formannafundur Sjómanna- sambands íslands haldinn að Borgartúni 18, Reykjavík, sunnu- daginn 30. janúar 1983, leggur áherslu á eftirfarandi atriði: Að undirstaða framfara og góðra lífskjara sjómanna sem annarra launþega á hverjum tíma er öflugt athafnalíf í sjávarúvegi, sem mótast af þeim skilyrðum sem honum eru búin á hverjum tíma. Fundurinn minnir á að sjómenn Formannafundur Sjómannasambands- ins bendir á stór- fellda kjararýrn- un sjómanna hafa orðið fyrir stórfelldri kjara- rýrnun á síðasta ári vegna minnk- andi afla. Fundurinn harmar að hinar margendurteknu yfirlýs- ingar sjávarútvegsráðherra um að fella niður olíugjaldið um síð- ustu áramót urðu ekki að veru- leika. Krefst fundurinn þess enn að það verði fellt niður. Þá mót- mælir fundurinn því að nú skuli stjórnvöld ætla að endurvekja hið illræmda sjóðakerfi með því að afla tekna til niðurgreiðslu á olíu með útflutningsgjaldi, sem kemur til með að rýra kjör sjómanna fljótlega. Telur fundurinn þessar fyrirætlanir beina íhlutun í um- samin hlutaskipti sjómanna og útvegsmanna. Fundurinn tekur undir bókun Óskars Vigfússonar, formanns sambandsins, er hann gjörði athugasemd við íhlutun hins opinbera við fiskverðs- ákvörðun og vísaði til sjómanna- samtakanna um setu fulltrúa sjó- manna í verðlagsráði. Fundurinn telur að á meðan sjómenn eru á því launakerfi sem nú gildir, með samningum við út- vegsmenn, eigi fulltrúi þeirra að sitja í verðlagsráði enn um sinn. Fundurinn samþykkir að kjósa nefnd manna er falið sé að kanna möguleika á launakerfi, sem tryggir hlut sjómanna betur en nú er. Fundurinn vekur á því sérstaka athygli, að vegna of stórs fiski- flota, minnkandi afla og ásælni ríkisvaldsins, á sjómannastéttin í vök að verjast. Telur fundurinn ljóst að fljótlega hlýtur að koma að því að sjómenn sæki sinn rétt og hvetur eindregið til órofa- samstöðu í þeim átökum sem þá kunna að verða. Sjö „smá"atriói sem stundum deymast viðwf á nýrri þvottavél IÞvottavél sem á að nægja venju- legu heimili, þarf að taka a.m.k. 5 kfló af burrum bvotti. því það ér ótrúlega fljótt að koma í hvert kíló af handklæðum, rúmfötum og bux- um. Það er líka nauðsynlegt að hafa sérstakt þvottakerfi fyrir lítið magn af taui, s.s. þegar þarf að þvo við- kvæman þvott. 2Það er ekki nóg að hægt sé að troða 5 kílóum af þvotti inní vélina. Þvottavélin þarf að hafa mjög stóran þvottabelg og þvo í miklu vatni, til þess að þvotturinn verði skfnandi hreinn. Stærstu heimilis- vélar hafa 45 lítra bvottahelo 3Vinduhraði er mjög mikilvægur. Sumar vélar vinda aðeins með 400-500 snúninga hraða á mínútu, aðrar með allt að 800 snúninga hraða. Góð þeytivinda þýðir ekki aðeins að þvotturinn sé fljótur að þorna á snúrunni (sum efni er reynd- ar hægt að strauja beint úr vélinni), heldur sparar hún mikla orku ef notaður er þurrkari. 4Qrkusparnaður er mikilvægur. Auk verulegs sparnaðar af góðri þeytivindu, minnkar raforkunotkun- in við þvottinn um ca. 45% ef þvottavélin tekur inn á sig bæði heitt og kalt vatn. 5Verðið hefur sitt að segja. Það má aldrei gleymast að það er verðmætið sem skiptir öllu. Auð- vitað er lítil þvottavél sem þvær lítinn þvott í litlum þvottabelg, tekur aðeins inn á sig kalt vatn og þeyti- vindur illa, ódýrari en stór vél sem er afkastamikil, þvær og vindur vel og sparar orku. A móti kemur að sú litla er miklu dýrari og óhentugri í rekstri og viðhaldsfrekari. Þjónustan er atriði sem enginn má gleyma. Sennilega þurfa eng- in heimilistæki að þola jafn mikið álag og þvottavélar og auðvitað bregðast þær helst þegar mest reynir á þær. Þær bestu geta líka brugðist. Þess vegna er traust og fljótvirk viðhaldsþjónusta og vel birgur vara- hlutalager algjör forsenda þegar ný þvottavél er valin. 7Philco er samt aðalatriðið. Ef þú sérð Philco merkið framan á þvottavélinni geturðu hætt að hugsa um hin „smáatriðin" sem reyndar eru ekki svo lítil þegar allt kemur til alls. Framleiðendur Philco og þjónustudeild Heimilistækja hafa séð fyrir þeim öllum: 5 kíló af þurrþvotti, 45 lítra belgur, 800 snúningar á mínútu, heitt og kalt vatn, sanngjarnt verð og örugg þjónusta. Við erum sveigjanlegir í samningum! „Veríu oruesur velduFniico heimilistæki hf. HAFNARSTRÆTI3 - 20455 - SÆTÚNI8 -15655

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.