Morgunblaðið - 02.02.1983, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 02.02.1983, Qupperneq 12
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983 Hafsteinn og Birgir keppa í Englandi á þessu ári Fyrstir íslendinga hyggjast þeir rallkappar Hafsteinn Hauksson og Birgir Viðar Halldórsson reyna fyrir sér í akstri á erlendri grund með atvinnumennsku í framtíðinni í huga. Keppa þeir félagar í fimm heimsþekktum röllum á Stóra-Bret- landi á þessu ári eins og þegar hefur verið sagt frá í Morgunblaðinu. Blaðamaður Mbl. fór á fund þeirra kappa og spjallaði við þá um framtíð- aráform þeirra, en þeir voru þá við likamsþjálfun í líkamsrækt Apolló, sem er í eigu Birgis, en þar æfa þeir af kappi fyrir keppnistímabilið. Áður en við spjöllum við þá Hafstein og Birgi, er rétt að líta stuttlega yfir samstarf þeirra hingað til. Hafsteinn Hauksson keppti fyrst í rallakstri á Ren- ault-sendiferðabíl árið 1979 og lenti þá í 19. saeti af 21 keppanda. Síðan hefur hann ekið Ford Escort og ætíð verið í fremstu röð og att kappi við þá bræður Ómar og Jón Ragnarssyni um sigurinn í ófáum röllum. Fyrir Ljómarallið sl. sumar hóf hann samstarf við Birgi Viðar og keypti hlut í sérsmíðuð- um RS Escort er var í eigu Birgis. Birgir sjálfur hóf ekki að keppa fyrr en á sl. ári, ók hann fyrst í Tommarallinu ásamt Hafsteini Aðalsteinssyni og sigraði og bætti **■ jr - < •»'«111111., m. m - Escort RS Hafsteins og Birgis verður búinn 240 hestafla vél og veitir ekki af, því aksturshraði í röllum í Englandi eru mun meiri en hérlendis. Ljósmyndir Mbl. (>unnlaugur R. England er toppur- __ '_111. •_•_ inn í rallheiminum síðan öðrum sigri við í Húsavík- urrallinu. I Ljómarallinu óku þeir Hafsteinn Hauksson og Birgir Viðar síðan saman í fyrsta skipti og sigruðu. í síðasta ralli sl. árs, Varta- rallinu, sýndu þeir félagar snilld- artakta og óku örugglega til sig- urs. Sýndu þeir frábært samstarf og Hafsteinn blómstraði í öku- mannssætinu. Eftir þetta rall huguðu þeir af alvöru að reyna fyrir sér í keppni í Englandi, héldu þeir utan og fylgdust með RAC- rallinu, sem er liður í heimsmeist- arakeppninni. Náðu þeir síðan samningum við tvö fyrirtæki er- lendis um auglýsingar á bílnum og hafa nú nýverið gengið frá sam- komulagi við atvinnurallöku- manninn Malcolm Wilson um að- stöðu á verkstæði hans. Malcolm er atvinnurallökumaður hjá Ford-verksmiðjunum í Englandi. Rekur hann eigið bílaverkstæði. Munu Hafsteinn og Birgir fá alla aðstöðu þar, en jafnframt því mun Wiison leiðbeina Hafsteini eins og framast er unnt í akstrinum, en aðstoðarökumaður Wilsons mun hjálpa Birgi Viðari að komast inn í hlutina hans megin í bílnum. Telja má að Malcolm Wilson sé besti tengiliður fyrir þá félaga til að koma þeim á framfæri á hæstu stöðum innan Ford í Englandi, ef að líkum lætur. En snúum okkur að spjallinu við þá Hafstein og Birgi Viðar. Hvaða röll eru það, sem þið komið (il með að taka þátt í á þessu ári? „Við munum taka þátt í öllum röllum hér heima, ef þess er nokk- ur kostur. I Bretlandi ökum við fyrst í Mintx-rallinu þann 24.-26. febrúar nk., síðan ætlum við að keppa í litlu klúbbralli í Skotlandi. Welska rallið er næst, frá 4.-6. maí. Rúmlega mánuði seinna, 11.—14. júní, keppum við í Skoska rallinu. Eftir þetta keppum við eingöngu hér heima um sumarið, en förum síðan til Englands í nóv- ember og ökum í RAC-rallinu. Fjögur þessara ralla eru á alþjóð- legum mælikvarða og RAC-rallið er liður í heimsmeistarakeppni rallökumanna og bílaframleið- enda. Hin röllin þrjú eru liður í Bretlandseyjakeppninni í rall- akstri, sem er víðfræg um allan heim,“ sagði Birgir. Því má bæta við að röllin eru frá 400 km upp í rúmlega 2.000 km löng. RAC-rallið dregur að yfir 5 milljón áhorfend- ur á sérleiðir á hverju ári og færri keppendur komast að en vilja. Telst það vera best skipulagða og dýrasta keppni sem haldin er í rallakstri. Hver er ástæðan fyrir utanför ykkar? Hafsteinn varð fyrir svörum: „Aðallega að sjá hvar við stöndum gagnvart bestu rallökumönnum heims. Að vera innan um toppöku- menn erlendis í alvörukeppni hef- ur verið okkur lokuð bók til þessa." Ef vel gengur hvað tekur þá við hjá ykkur? „Já,“ sagði Birgir, „þetta ár verður geysilega erfitt, við tökum þátt í 11 röllum á árinu, þ.e. með röllunum hér heima. Það er harla erfitt að segja nokkuð ákveðið um framhaldið ... en horfurnar eru bjartar." Hvað kallið þið góðan árangur? „Okkur finnst ekkert sérstakur árangur að lenda neðar en í 20. sæti í t.d. Skoska rallinu. í RAC- rallinu myndi maður setja markið lægra, en þó væri erfitt að sætta sig við að vera neðar en í 35. sæti. „Dýrast að ná ekki árangri“ Er ekki alltof dýrt aö keppa í RAC-rallinu, sem er 2.000 km langt og þátttökugjaldið eitt hátt í 20.000 krónur? Enn varð Hafsteinn fyrir svör- um: „Peningurinn þarf ekki að vera svo mikill. Það er eiginlega dýrast að spara og ná þá kannski ekki árangri af þeim sökum. Ef þú ert að standa í þessu á annað borð, er betra að leggja allt í sölurnar til að ná árangri, annars eru þér allar dyr lokaðar." „Við erum ekki að fara út að keppa til þess eins að ljúka keppni," sagði Birgir. En er þetta samt sem áður ekki mikil fjárhagsleg áhætta? „Það er í rauninni ekki fyrir- sjáanlegt ennþá, þetta ætti að geta staðið í járnum, allavega er útlitið síður en svo dökkt," sagði Birgir. Hafsteinn bætti við: „Aðal- atriðið er að byrja og svo hefst þetta einhvern veginn," og nú brosti Hafsteinn út í annað ... „Við höfum þegar náð í tvo stóra auglýsendur í Englandi, sem eru tölvuspilaframleiðendur og heita Taitel og Eurocoin. Hér heima að- stoða okkur Esso, Hafskip, Band- ag og Flugleiðir eða Arnarflug í sambandi við flugferðir út,“ sagði Birgir. Hjálpar Ford á íslandi ykkur á einhvern hátt? „Já, þeir styðja við bakið á okkur. Þórir Jónsson forstjóri hef- ur verið okkur mikill hvati til þátttöku erlendis. Hann er virki- legur áhugamaður um rallakstur," sgöðu þeir Hafsteinn og Birgir. Fáið þið hjálp frá Ford í Eng- landi? „Nei, ekki beina að svo stöddu, en að vísu verðum við með aðstoð frá atvinnurallökumanni Ford, Malcolm Wilson. Hann mun ljá okkur húsnæði undir bílinn með öllum tækjabúnaði endurgjalds- laust. Bjarni Sigurgarðarsson við- gerðarmaður okkar mun vinna á verkstæði Wilsons við undirbún- ing á bíl okkar og jafnframt því gæti hann hugsanlega komist í vinnu þar, seinna meir. Fyrir Mintex mun annar Islendingur, Þórhallur Kristjánsson, vinna við undirbúning á bílnum með Bjarma. Einn auglýsenda okkar úti hefur leigt hús fyrir okkur í 6 mánuði," sagði Birgir. „í sjálfum röllunum mun viðgerðalið Mal- colm Wilsons hjálpa okkur við við- gerðir, en Wilson mun keppa á Escort RS 1700 Turbo frá og með Skoska rallinu." „Gætum allt eins kökukeyrt bílinn á fyrstu sérleið“ Hvað svo ef þið lendið í óhappi? „Við sleppum út úr þessu eins ódýrt og hugsast getur. Síðan get- ur alltaf eitthvað óvænt gerst, og þá getum við líklega strikað fram- haldið út. Við gætum allt eins kökukeyrt bílinn á fyrstu leið,“ sagði Hafsteinn hugsi. Hvers vegna völduð þið Bretland fyrir áform ykkar? „Bretland er toppurinn í rall- heiminum í dag,“ svaraði Haf- steinn, „einnig liggur beinast við að keppa í heimalandi bílsins vegna varahluta og annars." Nú hafa breskir ökumenn ekki verið í allra fremstu röð í heims- meistarakeppninni, heldur frekar skandinavískir ökumenn? Já, það er svo einkennilegt. England er toppurinn í rallheim- inum, en Breta vantar sjálfa af- burðaökumenn," sagði Hafsteinn. „Þeir eiga nokkra frambærilega ökumenn, en ekki miðað við hve margir stunda þessa íþrótt," bætti Birgir við. Er af þessum sökum meiri mögu- leiki að þið vekjið athygli? „Nei, varla. I röllum þeim, er við keppum, verða allir bestu öku- menn heims frá ýmsum þjóðlönd- um,“ svaraði Birgir að bragði. „Það kemuPlíka til með að skipta máli hvar í rásröðinni við lendum. Ef við verðum aftarlega þurfum við að aka í förum annarra bíla og þá verður erfitt að aka vel,“ sagði Hafsteinn „Líklegur meðalhraði 10—120 km í Mintex“ Fyrst við erum farnir að tala um aksturinn, hvernig verður Escort ykkar búinn í vélarsalnum? „Vélin verður 240 hestöfl af gerðinni Ford BDA. Við ætlum að hafa sömu vél bæði heima og er- lendis. Það þýðir ekki að skipta um vélar milli ralla, eins og við höfðum hugsað okkur. Það er betra að venjast einni og sömu vél með sama krafti," sögðu þeir Birg- ir og Hafsteinn. Þess má geta að vélin sem Haf- Hér geysast Hafsteinn og Birgir um ímyndaðar sérleiðir Englands, en þeir eru ætíð gamansamir þegar viðtöl fara fram. Myndin er tekin í líkamsrækt Apollo, þar sem þeir kappar þjálfa sig upp fyrir erfiða keppni á erlendri grund. „Aila dreymir nú um að ná einhverjum og Birgir og vafalaust eiga þeir eftir þessari mynd sjást. frama", segja þeir kappar Hafstcinn að bæta við verðlaunagripi þá er á Ljosm. Matz

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.