Morgunblaðið - 02.02.1983, Síða 16

Morgunblaðið - 02.02.1983, Síða 16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983 48 ista tók við völdum, hefði á ólögmætan hátt kastað eign sinni á stóran hluta umhverfis hallar- innar í Tatoi. Eftir að hann komst til valda árið 1864 keypti Georg fyrsti kon- ungur, sem fæddur var í Dan- mörku, landsvæðið til einkaaf- nota af Soutsou-fjölskyldunni. Það landsvæði var hins vegar að- eins fimmti hluti þess, sem kon- ungsfjölskyldan telur sig eiga í dag. Landbúnaðarráðherrann telur, að með tíð og tíma hafi kon- ungsfjölskyldan fært landsvæðið umhverfis höllina smám saman út með ýmsum aðferðum, sem hljóti að teljast vafasamar frá lagalegum sjónarhóli séð. Það er nú hlutverk nefndarinnar á veg- um landbúnaðarráðuneytisins að draga staðreyndirnar fram í dagsljósið til þess að hægt sé að framkvæma eignaupptöku á landareigninni. Grísk lög leyfa aftur á móti ekki eignaupptöku ríkisins á einkaeignum. Ekkert bendir til þess, að stjórn landsins hafi í hyggju að breyta lögum á þessu sviði. Höllin í Tatoi er stærsta eign konungsfjölskyldunnar og var að- alaðsetur hennar. Hún hefur staðið auð frá því konungshjónin flýðu úr landi eftir misheppnaða byltingartilraun gegn herfor- ingjastjórninni 1967. Fulltrúi Konstantins í Grikklandi, Stavri- dis fyrrum aðmíráll, hefur um- sjón með eigum konungsfjöl- skyldunnar. Hann hefur upplýst, að ekki hafi verið hreyft við neinu í Tatoi-höllinni. Til merkis um það megi enn sjá jólakort á skrifborði Anne-Marie, sem hún var að skrifa á þann 13. desember 1967, þegar fjölskyldan varð að flýja land með klukkustundar fyrirvara til að bjarga lífi og lim- um. Stavridis segir, að hann hafi þá skipun frá Konstantin að neita blaðamönnum um aðgang að höll- inni, þar sem hann óskar ekki eft- ir að myndir verði teknar innan- dyra. Það fer ekki leynt, að höllin þarfnast endurbóta eftir að hafa staðið umhirðulaus í 15 ár. Konstantín í fullum skrúða, sem konungur Grikk- lands. Anne-Marie með börnum þeirra þremur. Frá vinstri: Nicholas, Paul og dóttirin Alexia. Stjórn sósíalista í Grikklandi tekur af skarið: Eignir fyrrum konungsfjöl- skyldu gerðar upptækar Hin fjórtán mánaða gamla ríkisstjórn sósíalista í Grikklandi hefur nú tekið ákvörðun, sem engin fyrri ríkisstjórna hefur þorað að taka. Sett hefur verið á laggirn- ar nefnd, sem hefur þann starfa að athuga hvernig eignum fyrrver- andi konungsfjöldskyldu landsins er háttað með tilliti til væntan- legrar eignaupptöku ríkisins. Um er að ræða ýmsar hallir í hinum og þessum landshlutum í eigu konungsfjölskyldunnar fyrrverandi. Þessar eignir hafa staðið einar og yfirgefnar um 15 ára skeið, eða allt frá því Konstanin og Anne-Marie voru neydd til að flýja land. Ennfrem- ur er um að ræða konungshöllina í Aþenu, sem nú gegnir hlutverki forsetahallar. Karamanlis, for- seti, býr þó ekki í höllinni, en hef- ur þar ýmsar skrifstofur er tengj- ast embættinu og notar höllina fyrir móttökur erlendra gesta. Konungsfjölskyldan á einnig hallir á eynni Korfu, í Saloniki, Þessalíu og Ipirus og auk þeirra um 20 glæsileg íbúðarhús og íburðarmikil sumarhús á hinum ýmsu eyjum og öðrum stöðum víðs vegar um landið. Sú eign konungsfjölskyldunn- ar, sem gríska ríkið hefur á hinn bóginn mestan augastað á, er höllin í Tatoi, þrjátíu kílómetra norður af Aþenu. Höllin er stað- sett á stórri jörð í einkar fallegu 30 hallir og íburðar- mikil hús, 30 bflar, 27 lystisnekkjur, ____ 17.500 antik-bækur, 12.000 málverk og 200 helgimyndir frá Byzanz-tímabilinu er aðeins hluti eignanna umhverfi. Það er hugmynd stjórnarinnar að yfirtaka eignina og breyta jörðinni í almennings- garð. Sú staðreynd, að Aþena hef- ur yfir að ráða minna af „græn- um svæðum" en allar aðrar höf- uðborgir Evrópu, á sinn þátt í að auka þrýstinginn á stjórnvöld. Nefnd innan gríska landbún- aðrráðuneytisins hefur fengið það verkefni að kanna eignarrétt- inn á landsvæðunum umhverfis hinar ýmsu eignir konungsfjöl- skyldunnar. Landbúnaðarráð- herrann, Moskou Gikonoglou, upplýsti á fréttamannafundi, að Glúcksburg-fjölskyldan, en svo nefnist konungsfjölskyldan í Grikklandi eftir að stjórn sósíal-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.