Morgunblaðið - 02.02.1983, Page 17

Morgunblaðið - 02.02.1983, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983 49 Konstantín meö eina helgimyndanna 200, sem er í cigu hans. Stavridis fyrrum aðmíráll, sem gætir landareignarinnar dag hvern, heldur því fram, að full alvara sé á bak við þá ákvörðun stjórnarinnar að yfirtaka eigur konungsfjölskyldunnar. Yfirvöld hafa þegar gert nokkur íbúðarhús fjöiskyldunnar upptæk undir því yfirskyni, að þau hafi verið byggð handa vinum og vandamönnum á þeim hluta landareignarinnar, sem fjölskyldan hafi eignað sér með ólögmætum hætti. Stavridis segir einnig, að þegar núverandi forseti Grikklands, Konstantin Karamanlis, hafi ver- ið í embætti forsætisráðherra, hafi komið tilboð frá stjórnvöld- um um að yfirtaka ýmsar aðrar eigur konungsfjölskyldunnar, sem nú eru í geymslu í Aþenu. Tilboðið hljóðaði upp á 150 milljónir danskra króna fyrir eig- ur fjölskyldunnar. A meðal þeirra má nefna 30 bifreiðir, 27 iystisnekkjur, 17.500 verðmætar bækur, sem nú teljast antik, 12.000 málverk og um 200 helgi- myndir frá Byzanz-tímabilinu, auk ótalmargs annars. Frá því konungshjónin fyrrverandi flýðu land hafa þau greitt um 600.000 danskar krónur árlega í eigna- skatt vegna Tatoi-hallarinnar einnar. í þjóðaratkvæðagreiðslu við fall herforingjastjórnarinnar fyrir átta árum greiddu um 60% atkvæði með því að landið yrði gert að lýðveldi. Ekkert bendir til þess að hlutirnir hafi breyst síð- an þá. Líkurnar eru því yfirgnæf- andi á að senn líði að því, að Konstantin og Anne-Marie missi allar eigur sínar í hendur gríska ríkisins. Bókavarðan í Reykjavík: Ný bókaskrá með meira en 700 titlum BOKAVARÐAN í Reykjavík, verslun með gamlar og nýlegar bækur, hefur sent frá sér sína 20. bóksöluskrá, þar sem getið er um nýkomn- ar bækur í verslunina. I frétt frá Bókavöröunni segir svo meðal annars um bóksöluskrána: „Að þessu sinni er efni skrár- innar: íslenzk fræði og norræn, héraða- og byggðasaga, ætt- fræði, þjóðsögur og þjóðleg fræði, saga og söguskýringar, lögfræði og réttarsaga, ævisög- ur, ljóð og kveðskapur, leikrit, skáldsögur, erlendar og íslenzk- ar, náttúrufræði, trúarbrögð og heimspeki og Blanda nýkominna rita. Af einstökum bókum, sem sjaldan eru á boðstólum, má t.d. nefna rit Halldórs Laxness, Kaþólsk viðhorf, sem höfundur- inn samdi sem svar við „árás- um“ Þórbergs Þórðarsonar í Bréfi til Láru á sínum tíma. Rit þetta hefur aldrei verið prentað aftur og er ekki væntanlegt næstu 50—60 árin a.m.k. Einnig má nefna jarðfræðirit og náttúrufræðibækur Þprvald- ar Thoroddsen: Lýsing íslands I-IV bindi, Landfræðisaga ís- lands I-IV bindi og Ferðabók Þorvaldar Thoroddsen I-IV bindi. Einnig rit dr. Bjarna Sæmundssonar: Fiskarnir, Fuglarnir og Spendýrin, undir- stöðurit, sem enn standa óskák- uð, þótt náttúrufræðingum hafi fjölgað um mörg hundruð síðan bækurnar voru samdar fyrir hálfri öld. í skránni er einnig að finna ýmsar fágætar ættfræðibækur, sem mjög sjaldan koma fram: Reykjahlíðarættin, Skútustaða- ættin, íslenzkar ártíðaskrár, Staðarbræður og Skarðssystur, Víkingslækjarættin, rit Steins Dofra og fleiri. Einnig fágætar frumútgáfur ljóðabóka, t.d. Nockur Liood mæle eftir hinn andrijka Guðs Mann Þorlaak Þorarens Son, prentuð á Hólum í Hjaltadal ár- ið 1780, Úr landsuðri eftir Jón prófessor Helgason, frumútgáf- an með kerskniskvæðum höf- undarins, Kyssti mig sól eftir Guðmund Böðvarsson og marga fleiri merkishöfunda. Alls eru í skránni á áttunda hundrað titla, en í Bókavörðunni eru til sölu ca. 15—25.000 titlar í öllum greinum fræða og vísinda, innlend og erlend rit.“ Frá blaðamannafundinum sem forsvarsmenn Kaupþings hf. efndu til í tilefni af stofnsetningu félagsins. Morgunblaðiö/Emilía. Kaupþing h/f: Nýtt fyrirtæki á sviði fast- eignasölu, fjárvörslu, verð- bréfasölu og ráðgjafarþjónustu KAUPÞING hf. hóf starfsemi sína seinnipartinn í október síöastliðnum. Tilgangi félagsins er svo lýst í stofnsamningi: „Hvers kyns ráðgjafar- og rannsóknaþjónusta á sviði þjóöhagfræöi og rekstrarhagfræöi, tölvuráðgjöf og -þjónusta, markaðs- og söluráögjöf, fjárfestingaráðgjöf, verðbréfa- og hluta- bréfasala, eignamiðlun, fjárvarsla, fasteigna-, fyrirtækja-, flugvéla- og skipa- sala og hvers kyns þjónusta, sem tengist slíkum viðskiptum." Félagið hefur tekið í notkun tölvubúnað, sem meðal annars verður nýttur í sambandi við fast- eignasölu félagsins. Verða eignir og einkenni þeirra sem og óskir kaupenda tölvuskráðar og bornar saman, svo finna megi út hvað henti hverjum. Þá er hægt að láta tölvuna reikna út áhvilandi veð- skuldir og bera saman núvirði mismunandi tilboða. Kaupþing hf. hefur einnig með höndum verðbréfasölu. Reiknar það daglega út gengi ríkisskulda- bréfa. Þar að auki er tekið tillit til þess að bréfin bera mismunandi vexti í framtíðinni og veldur þetta tvennt því, að gengi þeirra er hærra þar en annars staðar að sögn forráðamanna fyrirtækisins. Félagið hefur einnig með hönd- um leigumiðlun atvinnuhúsnæðis, og annast alla samningagerð í því sambandi. Kaupþing hf. tekur að sér ávöxt- un fjár viðskiptavina sinna og er gerður um það sérstakur fjár- vörslusamningur, þar sem tekin er fram upphæð og ávöxtunarleið fjárins. Félagið tekur að sér að ákveða ávöxtunarleiðina ef við- skiptamenn óska. Fjárvarsla er ný þjónustugrein hér á landi að sögn forráðamanna félagsins. Ráðgjafarþjónusta verður rekin á vegum félagsins. Verður hún með því sniði að föstum starfs- mönnum verður haldið í lágmarki, en leitað verður út fyrir fyrirtæk- ið til sérfræðinga á sínum sviðum, í samræmi við þau verkefni sem fyrirtækið kann að fá. Félagið mun gangast fyrir nám- skeiðahaldi og fræðslufundum um áhugaverð atriði, sem tengjast starfsemi fyrirtækisins. Þegar hefur eitt slíkt verið haldið. Kaupþing hf. er til húsa í Húsi verslunarinnar í Kringlumýri. Stjórnarformaður félagsins er Baldur Guðlaugsson. Núverandi starfsmannafjöldi fyrirtækisins er sex. Flutningaskipið Barok, sem er annað tveggja skipa Hafskips sem siglir til Rotterdam í Hollandi. — Barok mun í mars næstkomandi bætast endanlega í flota Hafskips og fá þá nýtt nafn, íslenska áhöfn og sigla undir íslenskum fána, er árs kaupleigusamningur rennur út. Hafskip: Tengir Rotterdam-siglingarnar um- boðs- og flutningsfyrirtæki í Portúgal HAFSKIP HF. hefur nýlega gert samning við fyrirtækið Jervell & Knudsen í Óporto í Portúgal, um að það taki að sér umboðsstörf fyrir félagið og annist llutninga fyrir Hafskip milli Portúgal og Rotterdam í Hollandi. „Hafskip hf. er með vikulegar ferðir til Rotterdam, skipin Skaftá og Barok, sem eru á Norðursjáv- arleiðum, hafa þar viðkomu," sagði Páll Bragi Kristjónsson hjá llafskip er blaðamaður Morgunblaðsins ra-ddi við hann, „og á þennan hátt getum við boðið viðskiptavinum okkar upp á greiða og örugga flutninga áfram til Portúgal. — í raun jafngildir þetta því að við höfum bætt við nýrri áætlunarhöfn í Portúgal." Að sögn Páls Braga ew .Jervell & Knudsen afar sterkt fyrirtæki í Portúgal á sviði skipamiðlunar, flutningamiðlunar og alhliða flutn- ingaþjónustu, og hefur það skipulagt þéttriðið flutninganet um allt Port- úgal. „Nú verður fyrirtækið aðal- umboðsmaður Hafskips í landinu," sagði Páll Bragi, „og tengjumst við þar með hinu stóra kerfi þeirra eins og fjölmörg önnur skipafélög í Evr- ópu, ekki síst á Norðurlöndunum. Aðaleigand f.vrirtækisins er mjög vel kunnugur á Norðurlöndunum og er til dæmis íslenskur, sænskur og norskur konsúll, og h.vggjum við gott til samstarfsins við hann. Jervell & Knudsen bjóða hvort heldur sem er, flutninga landveg, sjóleið eða loftveg milii Portúgal og Rotterdam, og samstarfið þýðir mun meira öryggi í vörusendingum okkar til Portúgal, ekki síst þar sem reglulegar áætlun- arferðir íslenskra skipafélaga til Portúgal eru ekki fyrir hendi. Undanfarin ár og misseri hefur verið lögð mikil áhersla á að styrkja viðskiptatengslin milli íslands og Portúgal, og með þessu hefur Haf- skip lagt sitt lóð á þá vogarskál, inn- flytjendum og jafnvel enn frekar út- flytjendum til Portúgal til hags- bóta,“ sagði Páll Bragi að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.