Morgunblaðið - 02.02.1983, Side 22

Morgunblaðið - 02.02.1983, Side 22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983 54 Toyota Camry, Sedan. Camry, nýr „fjölskyldu- meðlimura hjá Toyota Framdrifinn — Ný tiltölulega eyðslugrönn vél Bflar Sighvatur Blöndahl TOVOTA-verksmiöjurnar japönsku kynntu í lok síóasta árs nýjan „fjöl- skyldumeðlim", en sá nefnist Toyota ('amry. llm er að ræða meöalstóran, tiltölulega ríkulega búinn, framdrif- inn fjölskyldubíl. Toyota leggur mikla áherzlu á, að hin nýja vél, sem hönnuð hefur verið i bílinn sé kraftmikil og jafnframt mjög eyðslu- grönn. Fyrstu bílarnir eru þegar komnir hingað til lands. ÍITLIT Camry er boðinn í tveimur út- færslum, annars vegar „Sedan“ og hins vegar vegar „Liftback". Línur bílsins eru frekar skarpar. Hann er niðurbyggður að framan með hækkandi línu aftur úr og því straumlínulaga. Bíllinn samsvarar sér nokkuð vel, sérstaklega finnst mér útlitið á „Liftback" bílnum vera vel heppnað. Camry er fjög- urra dyra í „Sedan" útfærslu og fimm dyra í “Liftback". Aðalljósin að framan eru frekar látlaus, en stefnuljósunum er komið smekk- lega fyrir í stuðaranum. Afturljós- in eru frekar stór og koma vel út. RÝMI — SÆTI Eins og áður sagði er bíllinn ým- ist fjögurra eða fimm dyra og eru dyrnar frekar stórar, þannig að þægilegt er að ganga um bílinn, hvort heldur er að framan eða aft- an. Tiltölulega gott rými er frammi í bílnum fyrir ökumann og farþega. A það við um loftrými, sem er óvenjulega gott af japönsk- um bíla að vera, fótarými og hliðarrými. Reyndar má segja þessa sömu sögu hvað varðar rými aftur í, nema hvað fótarými mætti vera heldur meira. Mjög vel fer um tvo farþega, en farið er að þrengja að þeim þriðja. Lögð hefur verið áherzla á gott farangursrými, enda er það tæplega 380 lítrar. Mat á sætum er alltaf erfitt. Persónulega finnast mér framsæt- in í Camry mjög þægileg, en hlið- ar- og bakstuðningur þeirra er góður. Sætin eru klædd látlausu tauáklæði. Sætin eru með hefð- bundnum stillimöguleikum, þ.e. hægt er að færa þau fram og aftur, auk þess að breyta stillingu baks- ins. Hvað aftursætið varðar er það í hefðbundnum stíl, en til þæginda er hægt að fella út armpúða milli tveggja farþega. MÆLABORÐ Mælaborðið í Camry eru tiltölu- lega einfalt ásýndum, en eigi að síður stílhreint. í því er hraðamæl- ir með ferðamæli, snúningshraða- mælir og eru þeir báðir stórir, þannig að vel sézt á þá. Til hliðar við hraðamælinn eru síðan sér- kennilegur benzínmælir. Vinstra meginn við snúningshraðamælinn er síðan lítil kvartzklukka. í borð- inu er síðan að finna hin ýmsu að- vörunarljós, eins og varðandi olíu- T0Y0TA Gerð: Toyota Camry Framleiðandi: Toyota Motor Co. Innflytjandi: Toyota-umboðið Verö: Frá 272.000 Afgreiöslufreetur: Til á lager Þyngd: 1.045—1.085 kg Lengd: 4.415 mm Breidd: 1.690 mm Hæð: 1.395 mm Hjólhaf: 2.600 mm Veghæö: 160 mm Vél: 4 strokka, 1.832 sm3, 90 OIN-hestöfl Skiptíng: 5 gíra beinskiptur/ 4ra gíra sjálfskiptur Bremsur: Diskabremsur að framan, skálar að aftan Fjöðrun: Sjálfstæö f jöðrun að aftan og framan Bensíntankur: 55 litrar Eyðsla: 5,9—9,2 lítrar/100 km, eftir aðstæðum Hjólbarðar: 165SR13 þrýsting, kælikerfið, ljósin og fleira. Stjórntæki miðstöðvarinnar eru hægra megin við stýrið, tiltölu- lega nálægt, reyndar óvenjulega nálægt, þannig að handhægt er að ná til þeirra. Ljósarofinn er vinstra meginn í stýrinu og þurrkurofinn hægra meginn, en þurrkurnar eru tveggja hraða, auk letingja. Flautan er í tveimur örm- um í stýrinu. VÉL — SKIPTING Ný vél hefur verið hönnuð í Camry, en sú er 4 strokka, 1.832 rúmsentimetra, 90 DIN hestafla. Framleiðandinn segir vélina vera kraftmeiri og eyðslugrennri, en eldri vélar. I því sambandi er nefnt, að eyösla bílsins, sé ekið á jöfnum 90 km hraða á klukku- stund, sé aöeins 5,9 lítrar á 100 km. A 120 km jöfnum hraða á klukku- stund sé hún 7,9 lítrar á 100 km og loks í bæjarumferðinni sé eyðslan 9,2 lítrar á 100 km. Hægt er að velja Camry fimm gíra beinskipt- an, eða 4ra gíra sjálfskiptan. AKSTURSEIGINLEIKAR Lítið er hægt að fjölyrða um aksturseiginleika bílsins, en ef marka má skrif evrópskra bíla- blaða eru þeir góðir. Er bíllinn sagður tiltölulega stífur og svara vel. Hann leggist lítið niður á hornin í kröppum beygjum. Um upptak og vinnslu bílsins virðast menn nokkuð sammála. Hann sé með ágætis upptak og góða vinnslu. JL Camry Liftback. l Farangursrými 380 lítra. LANDSMÁLAFÉLAGIÐ VÖRÐUR Samningurinn um Keldnaland Landsmálafélagiö Vöröur heldur almennan fund um borgarmál miövikudaginn 2. febrúar ’83 kl. 20.30 í Valhöll við Háaleitisbraut. Davíö Oddsson, borgarstjóri, og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaöur skipulagsnefndar borgarinnar, útskýra og ræöa nýgeröa samninga um Keldnalandiö. Allir velkomnir. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.