Morgunblaðið - 02.02.1983, Síða 31

Morgunblaðið - 02.02.1983, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983 63 Vinsælustu login ENGLAND: 1 (2) Down under/ MEN AT WORK 2 (1) You can’t hurry love/ PHIL COLLINS 3 (4) Electric avenue/ EDDY GRANT 4 (3) The story of the blues/ WAH! 5 (-) The sign of the times/ THE BELLE STARS 6 (8) Steppin’ out/ JOEJACKSON 7 (7) Heartache avenue/ THE MAISONETTES 8 (8) Gloria/ LAURA BRANIGAN 9 (5) Orville’s song/ KEITH HARRIS & ORVILLE 10 (-) Tooshy/ KAJAGOOGOO BANDARÍKIN: 1 (1) Down under/ MEN AT WORK 2 (2) Maneater/ HALL & OATES 3 (8) Baby, come to me/ PATTI AUSTIN 4 (7) Africa/TOTO 5 (5) Sexual healing/ MARVIN GAYE 6 (4) Mickey/TONI BASIL 7 (6) Dirty laundry/ DON HENLEY 8 (3) The girl is mine/ MICHAEL JACKSON & PAUL McCARTNEY 9 (12)Theotherguy/ LITTLE RIVER BAND 10 (11) You can’t hurry love/PHIL COLLINS Vinsælustu plöturnar BRETLAND: 1 (2) Business as usual/ MEN AT WORK 2 (1) Raiders of the pop charts/ÝMSIR 3 (3) Heilo, I must be going/PHIL COLLINS 4 (7) Feline/ STRANGLERS 5 (10) Richard Clayder- man/RICHARD CLAYDERMAN 6 (4) Collection/ JOHN LENNON 7 (6) Heartbreaker/ DIONNE WARWICK 8 (5) The art of falling apart/SOFT CELL 9 (-) Cachardaya/ INCANTATION 10 (8) Greatest hits/OLIVIA NEWTON-JOHN BANDARÍKIN: 1 (1) Business af usual/ MEN AT WORK 2 (2) Ðuilt for speed/ STRAY CATS 3 (3) H20/ HALL & OATES 4 (4) Get nervous/ PAT BENATAR 5 (8) Thriller/ MICHAEL JACKSON 6 (6) Coda/LED ZEPPELIN 7 (9) Combat rock/CLASH 8 (-) The distance/ BOB SEGER & THE SILVER BULLET BAND 9 (10) Long after dark/ TOM PETTY & THE HEARTBREAKERS 10 (-) Hello, I must be going/PHIL COLLINS Um þaulsætin lög á vinsældalistum Þaö er alltaf jafn fróðlegt að renna yfir vinsældalistana, hvort heldur í Englandi eöa í Bandaríkj- unum. Breskí listinn er þó alla jafna skemmtilegri fyrir þá sök, að á honum eru miklu meirí hrær- ingar. Sú breiðskifa, sem er þaul- sætnust á toppnum í Bretlandi þessa dagana er „Rio" meö Duran Duran. Hún er nú í 11.sæti og hef- ur verið á „topp 30“-listanum í heilar 36 vikur. „Complete Mad- ness" með Madness hefur setið í 25 vikur á þessum sama lista og er nú i 17. sæti. „The lexicon of love“ meö ABC hefur veriö í 22 vikur á listanum og situr nú í 21. sæti og þá má og nefna „Friends“ meö Shalamar, sem er nú í 9. sæti og hefur veriö í 21 viku á listanum. Eðlilega er miklu meiri hreyfing á listanum yfir einstök lög. Fæst þeirra ná að vera meira en 10 vikur á „topp 40“-listanum. Þó eru nokk- ur svo þaulsætin aö þessu sinni. „Living on the ceiling" meö Blancmange hefur veriö þarna í 12 vikur og er nú á hraöri niöurleið í 37. sæti. „Young guns“ með Wham! er H.vikuna á listanum, nú í 29. sæti og einnig á hraöri leiö niður. “Save your love“ meö Renee og Renato hefur einnig veriö 11 vikur á listanum og er á hraöri niöurleiö. Er nú í 13. sæti, en var í 3. Gæti þó bætt um betur hjá Blancmange meö smá þrautsegju. Tvö lög hafa veriö í 10 vikur á listanum. Annaö er „Truly“ meö Lionel Richie, sem nú er í 39. sæti og á fleygiferð niöur eftir 27. sæti í síðustu viku. Þá er "The best of our lives“ með Modern Romance einnig á sinni 10. viku og eins og áðurnefnd lög, einnig á hraðferö niöur á viö. Nú í 14. sæti eftir 5. sætiö í síðustu viku. Count Basie krafinn um 9.500 dollara í bætur Við látum þessa nú bara fljóta með „for the fun of it“, eins og Bretar myndu oröa þaö. Dómstóll í Frakklandi komst aö því fyrir skemmstu, aö jassar- anum Count Basie bæri aö greiða 9.500 Bandaríkjadali í skaöabætur fyrir aö hafa svikiö samning um aö leika á bjórhátíö sumariö 1979. Samkvæmt samningnum átti Basie að koma fram 16. júlí á bjórhátíöinni í Maubeuge's í kjöl- far tónleika sinna á jasshátíöinni í Hardelot tveimur dögum áöur. Daginn áöur hringdi hann í stjórnendur bjórhátíöarinnar og kvaöst vera veikur og hann gæti ekki leikið. Kæran var byggö á þeim rök- um, aö Basie lék á tónleikum þann 16. júlí í Englandi og viku síöar í Antibes. David Bowie í hlutverki Baal, en fyrir það hlaut hann mikið lof. Innrás breskra á banda rísku vinsældalistana — auk frétta af filmstjörnunum Sting og Bowie og „endurlífgun“ Sex Pistols Óvenjumargir Bretar eru að slá í gegn í Bandaríkjunum um þess- ar mundir. Ef lítíð er á vinsælda- listann þar má sjá einar sex breskar hljómsveitir, sem ekki hafa sést þar áður. Þær eru Mus- ical Youth með lag sitt „Pass the dutchie", Culture Club með „Do you really want to hurt me“, ABC meö „The look of love“, Adam Ant með „Goody two shoes", Duran Duran með „Hungry like the wolf“ og Dexyá Midnight Runners með „Come on Eileen.“ Öll eru þessi lög á uppleið og gætu hæglega rennt sér upp á meðal tíu efstu laganna innan tíð- ar ef fram fer sem horfir. Boy George vinsæll Culture Club hefur þegar slegiö í gegn í mörgum löndum og ugg- laust á þrumugóöur söngur Boy George sinn þátt i því. Frammi- staöa hans í Skonrok(k)i um dag- inn var slík, aö menn hljóta aö hafa tekiö eftir. Lagiö „Do you really want to hurt me“ hefur þegar sleg- iö í gegn í Englandi, V-Þýskalandi og Ástralíu og situr i efsta sæti á listum tveggja síðarnefndu land- anna. Úr því farið er aö impra á öðrum þjóðum er ekki úr vegi aö geta þess, aö „Mickey“ meö Toni Basil situr á toppnum í Kanada, „You can’t hurry love“ meö Phil Collins er efst í Hollandi og Kim Larsen situr á toppnum í heimalandi sínu, Danmörku, meö lagiö „5 Eiffel". David Bowie í sviðsljósinu Fyrr í þesum mánuði var frá því skýrt á Járnsíöunni, aö David Bowie væri að vinna aö gerö nýrr- ar breiöskifu, sem væntanleg væri í byrjun næsta árs. Þar var auövit- aö veriö aö vitna til ársins í ár, en greinin átti aö birtast fyrir áramót, en taföist af óviöráöanlegum orsökum. Hugsanlegt er þó, aö Bowie dragi útgáfu plötunnar fram í apríl, en þá leggur hann af staö í sitt fyrsta tónleikaferöalag í fimm ár. Hefur hann þegar ákveöiö aö leika í Evrópu, Noröur-Ameríku og Austurlöndum fjær. Bowie lætur ekki tónleikaferða- lagiö nægja. Hann mun einnig sjást á hvíta tjaldinu, þar sem frumsýndar veröa á árinu þrjár kvikmyndir meö honum. Sú fyrsta nefnist „Merry Christmas Mr. Lawrence" og gerist í japönskum stríösfangabúðum. Bowie leikur þar fanga, sem ekki lætur bugast andlega. Önnur myndin nefnist „Ziggy Stardust and the spiders from Mars“ og er byggö á gömlum kvikmyndum af hljómleikum Bowie frá því á „Ziggy Stardusf'-tímabil- inu. Þriöja myndin, sem um ræöir, heitir „Hunger“. Þar leikur Bowie aöalhlutverkiö á móti Catherine Denevue. „Hunger" er vampíru- mynd og leikur Bowie í henni 300 ára gamlan aöalsmann. Filmstjarnan Sting Sting, söngvari, bassaleikari og lagasmiöur The Police er einnig á kafi í kvikmyndaleik. Þær eru orönar ófáar myndirnar, sem hann hefur sést í. Næsta hlutverk hans Rimlarokkari með eigin sveit Rúnar Pétursson, rimla- rokkari, hefur nú stofnað sína eigin hljómsveit og ber hún nafnið Á þriðju hæð. Með hon- um eru þrír aðrir hljóðfæra- leikarar, allir fremur lítt þekkt- ir. Rúnar og félagar fara ekki af staö meö neinum byrjenda- brag. Hljómsveitin hefur þegar bókaö sig víöa um land til dansleikjahalds og hyggst halda í hljóöver í vikunni. mun veröa í kvikmynd eftir hinni klassísku vísindaskáldsögu, Dune. Lifi Sex Pistols í tilefni sýningar Fjalakattarins á „The great rock’n'roll swindle", þar sem meðlimir Sex Pistols leika aöalhlutverkin, er gaman aö geta þess, aö Malcolm McLaren, fyrrum umboðsmaöur þeirra, lét nýlega hafa þaö eftir sér, aö hann hefði áhuga á, að endurlífga hljómsveit- ina. Þegar Johnny Lydon, einn fyrr- um meölima sveitarinnar, frétti af þessum ummælum var hann lítt hrifinn. „Nú hefur asninn greinilega tapaö því litla viti, sem hann haföi. Þvílíkur fáviti. Hvaö ætlar hann sér eiginlega aö gera? Grafa Sid gamla Vicious upp úr djöfuls gröf- inni?" DP/-SSv. Orghestar með plötu „Þetta var tekið upp í október 1981, en kemur ekki út fyrr en nú,“ sagði Benóný Ægisson er hann leit við og heilsaði upp á Járnsíöuna í til- efni nýútgefinnar plötu Orghestanna, sem ber nafnið Konungar spaghettifrum- skógarins. „Ætli þaö séu ekki bara al- menn blankheit, sem komu í veg fyrir að platan kæmi fyrr,“ bætti hann svo viö. Plata þeirra Orghesta er fjögurra laga. Benóný á alla textana og þrjú laganna, en Gestur Guðnason á þaö fjóröa. Auk þeirra tveggja leika þeir Siguröur Hannesson á tromm- ur og Brynjólfur Stef^nsson á bassa á plötunni. Bakraddir voru i höndum (hálsum?) þeirra Gaua. Andreu, Báru, Lödda og Megasar. Þaö var Tony Cook, sem stýröi upptökunum á plötunni í Stemmu, en Orghestarnir sáu sjálfir um að hljóöblanda meö aðstoð Cook. Plötuumslagiö var hannað í sameiningu af Orghestunum, en yfirumsjón með því verki haföi Brynjólfur. Við sjáum Sting hér við raksturinn. Hugaanlaga ar hann að raka sig fyrir næstu mynd, hver veit?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.