Morgunblaðið - 11.02.1983, Síða 3

Morgunblaðið - 11.02.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1983 43 Úr Rípurkirkju í Skagafiröi er þessi kirkjumynd úr tré, sem er frá 1777, er þetta mynd af síöustu kvöldmáltíö- inni. Höfundur er ókunnur. Ætlunin er ad hreinsa mynd' ina, sem sót og önnur óhreinindi hafa sett sín merki á. léreft en myndir úr pappír er yfir- leitt hægt aö gera viö.“ Margt óunnið á sviði viðgerða á kirkjulist Á Islandi er mikiö af verömæt- um kirkjulegum munum víöa um land, sem eru í vanhiröu en hér hefur aldrei veriö starfandi fólk, sem kunnaö hefur aö gera viö altaristöflur eöa málaöar helgi- myndir úr tré. Þaö er því margt óunniö á því sviöi. Viö spuröum Rikhard nánar út t viögeröir á þessum hlutum. „Viöa erlendis hefur þvi miöur oft veriö málað yfir myndirnar meö nýtískulegum litum, en þess ekki gætt aö láta upprunalegt litaval halda sér. Hér á landi hefur ekki veriö hróflaö viö kirkjulegum lista- verkum og því enginn skaöi skeöur hvaö þetta varöar," segir Rikhard og bætir svo viö: „Skemmdir á kirkjulist, sem máluð er á tré verö- ur vegna hita og rakasveiflna en þá hreyfist tréö og losnar um máln- inguna og svo dettur hún af meö tímanum. Þá þarf líka aö hreinsa þessar myndir.“ Þarf sá sem gerir viö málverk aö hafa listræna hæfileika? „Þaö hjálpar mikið til, en viö- komandi þarf ekki aö vera málari, en hann má alls ekki vera litblind- ur“ Að fylla upp í göt og rifur með pappírsmassa Þjóöskjalasafniö er eina stofn- unin hér á landi sem hefur viögerð- arstofu fyrir bækur og handrit. Hver eru helstu verkefnin í sam- bandi viö bóka- og handritavið- geröir, sem gera má ráö fyrir aö komi á borö til þeirra? Hilmar veröur fyrir svörum: „Verstu skemmdirnar á bókum og handritum má oft rekja til slæmra geymsluskilyröa eins og meö myndirnar. Helstu verkefnin eru hreinsun á pappír, þvottur og afsýring á pappír, sem er æskileg upp á framtíöarendingu. Þá er gert við skemmdir á blööum meö því aö fylla upp í göt og rifur meö pappírsmassa. Þetta sama gildir um gömul og illa farin kort úr pappír. Önnur verkefni eru þau, aö gera viö gamalt bókband eöa setja bókina í sitt upprunalega band, en þaö er of mikifv gert af því aö henda gömlu bándi og setja bók- ina í nýtt band.“ Nota efni sem hægt er að fjarlægja án mikillar fyrirhafnar Svo viö snúum okkur aö mál- verkinu aftur, hvernig fer rannsókn á skemmdu málverki fram? „Áöur en viðgerö er hafin á myndinni fer fram ítarleg rannsókn á verkinu og ástandi þess, þar kemur efnafræöin og listasagan viö sögu, því þaö kann aö vera nauösynlegt aö tímasetja verk til aö gera sér betur grein fyrir lita- meöferö þess og hvaö er aö. Hægt er aö taka röntgenmynd af verkinu til þess aö sjá uppbyggingu þess og ástand. Viö slíkar myndatökur getur ýmislegt skemmtilegt og óvænt komiö í Ijós eins og önnur mynd undir þeirri sem veriö er aö athuga. Þá er röntgenmyndatækn- in mikiö notuö tii aö ganga úr skugga um hvort verkið er falsaö eöa upprunalegt. Röntgentæki eru afar dýr og munum viö ekki hafa bolmagn til aö festa kaup á slíku tæki, en viö ætlum aö reyna aö komast í kynni viö listelskan lækni, sem ef til vill gæti veitt okkur aö- gang aö þessu tæki, ef á þarf aö haldal Ein er sú regla, sem viö vinnum eftir viö viögeröirnar og hún er sú, aö nota efni, sem hægt er aö fjar- lægja án mikillar fyrirhafnar og efni, sem eru svipaös eölis og frumverkiö.” Mikilvægt að hita- og rakastig sé rétt Ef viö ræöum svolítiö um fyrir- byggjandi aögeröir, hvernig getur fólk varðveitt myndir sínar sem best? „Mikilvægt er aö hita- og raka- stig sé rétt þar sem myndirnar eru geymdar. Æskilegasta hitastigiö er 18°C og rakastigiö 50—55% og gildir þetta líka um bækur. Þá er nauösynlegt aö verja hlutina fyrir útfjólubláum geislum sólarljóssins, því þeir valda gulnun á pappír. Til er Ijósfæliö gler, en þaö er afar dýrt í innkaupi. Þá má ekki hafa myndirnar fyrir ofan ofn eöa þar sem fólk getur rekiö sig í þær. Innrömmun og uppsetning myndanna skiptir höfuömáli og höfum viö ákveöiö aö taka aö okkur aö innramma ný verk, því viö leggjum áherslu á vandaðan frágang og notum sýrufrítt karton og lim. En viö höfum rekið okkur á aö þeim, sem starfa aö innrömmun eru oft mislagöar hendur. Einnig kemur þaö til greina aö gera viö gyllta gifsramma," segir Rikhard og sýnir okkur sýnishorn af gyllingu meö miöaldaaöferö, sem hann geröi meöan hann var í náminu. Munstur og litir eru frá Dómkirkjunni í Árós- um. Hvernig er meö kostnaö á jjeim viögeröum, sem viö höfum rætt um hér? „Þaö eru margir hræddir um, aö hér sé um dýra vinnu aö ræöa. Auövitaö getur hún orðið þaö, ef skemmdirnar eru þess eðlis. En þaö þarf ekki alltaf aö vera dýrast aö gera viö skemmd, sem lítur mjög illa út. Sá tækjabúnaöur, sem við höfum og efniskostnaður er dýr og þaö veröur fólk aö hafa í huga. Þaö veröur líka aö gera sér grein fyrir því, aö verið er aö bjarga verömætum, sem eiga aö varöveitast um ókomna tíö. Mynd eöa bók, sem er vel meö farin eyk- ur verögildi þessara hluta.“ Ráðgefandi hvað varðar sýningarhald Nú hafiö þiö hugsaö ykkur aö bjóöa upp á aöra þjónustu en viö- geröir, í hverju er hún fólgin? „Viö veröum meö ráögjafar- þjónustu hvaö varöar uppsetningu sýninga svo og varöveislu verka, hvort sem þaö er á söfnum eöa í heimahúsi. Einnig getum viö leiö- beint um flutning á iistaverkum, hvernig best er aö búa um þau þannig aö þau skemmist ekki á ferö sinni. Þá gefum viö fólki kost á aö tryggja bækur eöa listaverk meö- an þau eru i okkar vörslu.“ Enda þótt fyrirtækiö sé rétt aö fara af stað þá er samt ekki úr vegi aö spyrja um framtíöarhugmyndir ykkar í sambandi viö þaö? „Þaö stendur til aö fleiri komi til starfa meö okkur og er þaö ósk okkar og von, aö þetta geti orðið miöstöö viögeröa á listaverkum og fágætum hlutum. Aö lokum má geta þess, aö fyrirtækinu hefur veriö gefiö nafn og á þaö aö heita Morkinskinna. Morkinskinna er eitt af handritun- unum okkar og nafngiftin kemur af því, aö handritiö er mjög illa fariö. En Morkinskinna veröur Fagur- skinna þegar hún fer frá okkur og er þaö ætlunin aö svo veröi um öll þau skemmdu verk, sem frá okkur fara í framtíðinni.“ Hilmar er hér að losa teikningu efftir Jóhannes Kjarvai af kartoni, sem myndin var límd á. Kjarvalsmyndin er í eigu Listasafns íslands. Djúpslökun & spennulosun Lærðu hvernig djúpslökun getur hjálpað þér til að: • ná aðhliða vöðva- og taugaslökun • fyrirbyggja höfuðverki, vöðvabólgu o.fl. • yfirvinna kvíða, svefntruflanir og óöryggi • ná betri árangri í námi og starfi • bæta sjálfsímyndina og tjáningarhæfni Djúpslökunarkerfiö er taiiö meöal áhrifaríkustu aðferða til vööva- og taugaslökunar, en þaö byggir á tónlístarlækn- ingum, beitíngu ímyndunaraflsins, sjálfsefjun og öndun- artœkni. Fræðslumiðstöðin Miðgarður Bárugötu 11 býður upp á ítarlega kennslu í djúpslökunarkerfinu: Helgarnámskeið: 11.—13. feb., 18.—20. feb. og 25.—27. feb. Námsefni og tveir kvöldfundir fylgja með. Jafnframt vikulegir hóptímar í slökun. Einkatímar: Tvisvar í viku í átta vikur, klukkustund í senn. Jafnframt vikulegir hóptímar. Kennari: Guðmundur S. Jónasson. Skráning og upplýsingar í síma: 12980 milli kl. 10—18. /MÐG/4RÐUR v Saltkjöt “3 sprengidaginn Veljið sjálf sprengidagssaltkjötið úr saltkjöts- bökkunum okkar. OPIÐ TIL KL. 8 í KVÖLD OG TIL HÁDEGIS Á MORGUN ii förumarkaðurinnhf. Ármúla 1A. Sími 86111. Bladburöarfólk óskast! Úthverfi Hjallavegur Austurbær Freyjugata 28—49. Mftbib

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.