Morgunblaðið - 11.02.1983, Síða 10
50
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1983
HVAD ER AD GERAST URIHELGINA?
LEIKHUS
Þjóðleíkhúsið:
Síðasta sýning
íslenska
dansflokksins
Danssmiðjan, sýning íslenska
dansflokksins, verður á fjölunum
nú í kvöld í allra síöasta sklpti. Allt
íslenskir ballettar og höfundar eru
Ingibjörg Björnsdóttir, Nanna
Olafsdóttir og meölimir dans-
flokksins. Tónlist er eftir Leif Þór-
arinsson, Gunnar Reyni Sveinsson,
Þóri Baldursson o.fl.
Lína langsokkur nýtur óhemju
vinsælda og veróa 3 sýningar á
leikritinu um hana nú um helgina til
aö anna eftirspurn. Á laugardag kl.
12.00 á hádegi (ath. óvenjulegan
sýningartíma) og er uppselt á þá
sýningu. Og á sunnudag veröa
tvær sýningar; kl. 14.00 og kl.
18.00.
Jómfrú Ragnheiður eftir Guó-
mund Kamban verður sýnd á laug-
ardagskvöld. Þessi nýja leikgerð
Bríetar Héöinsdóttur á Skálholti
hefur vakiö mikla athygli.
Tvíleikur eftir Tom Kempinski,
verölaunaleikritiö sem náö hefur
vinsældum víöa um heim, er á
dagskrá á Litla sviöinu á sunnu-
dagskvöld kl. 20.30 og eru þá aö-
eins tvær sýningar eftir á þessu
verki.
Súkkulaöi handa Silju eftir Nínu
Björk Árnadóttur veröur næst sýnt
á Litla sviöinu á þriöjudagskvöld,
en uppselt hefur veriö á allar sýn-
ingarnar til þessa.
Iðunn:
Níunda sýning á
Skjaldhömrum
Leikfélagiö löunn í Hrafnagils-
hreppi sýnir um þessar mundir
leikrit Jónasar Árnasonar,
Skjaldhamrar, undir leikstjórn
Gests E. Jónassonar. Á sunnudag-
inn kl. 20.30 verður 9. sýning leik-
ritsins í Laugabergi.
Revíuleikhúsið:
Karlinn í
kassanum gerir
þaö gott
Revíuleikhúsiö í Hafnarbíói sýnir
enn á ný gamanleikinn Karlinn í
kassanum vegna mikillar aösókn-
ar. Sýningar verða á sunnudaginn
kl. 21 (ath. breyttan sýningartíma)
og þriójudaginn kl. 20.30.
Miðasala er á milli kl. 17 og 19
og frá 17 sýningardagana.
Leikbrúðuland:
Þrjár þjóðsögur
teknar upp
aö nýju
Sýningar Leikbrúöulands á
Þremur þjóðsögum hefjast aö
nýju sunnudaginn nk. kl. 15, og
eru sem fyrr aö Fríkirkjuvegi 11.
Sýndar eru þjóösögurnar Gípa,
Umskiptingurinn og Púkablístran.
Sýningin er fyrir alla fjölskyld-
una og hefst sala aögöngumiöa kl.
13 á sunnudaginn, en svaraö er í
síma Æskulýösráös.
Leikfélag Akureyrar:
Þrjár sýningar á
Bréfberanum frá
Arles um helg-
ina
Um helgina veröa 3., 4. og 5.
sýning Leikfélags Akureyrar é
Bréfberanum fré Arles eftir Ernst
Bruun. Leikritiö fjallar um bréf-
berann Joseph Roulin, sem bjó í
Arles í Suöur-Frakklandi í lok
síðustu aldar, og vinéttu hans og
listmélarans Vincent van Gogh.
Van Gogh bjó í Arles síðustu tvö
æviér sín og geröi þar mörg sinna
bestu verka.
Þaö er Úlfur Hjörvar sem hefur
þýtt leikritiö, en leikstjórn annast
Haukur Gunnarsson og Svein
Lund-Roland er hönnuöur leik-
myndar. Sýningar helgarinnar
veröa í kvöld, annaö kvöld og
sunnudagskvöld og hefjast allar kl.
20.30.
Leikfélag Reykjavíkur:
Fjögur leikrit um
helgina
í kvöld (föstudagskvöld) er
franski gamanleikurinn Forseta-
heimsóknin eftir Rego og Brune-
au sýndur hjé Leikfélagi Reykja-
víkur. Þórarinn Eldjérn hefur þýtt
Leikarar í Leikfélagi Vestmannaeyja ( hlutverkum sínum í Er á meðan er.
Gestaleikur í Kópavogsleikhúsi:
Er á meðan er í uppfærslu
Leikfélags Vestmannaeyja
í KVÖLD kl. 20.30 og á morgun kl.
16 verður sýnt á fjölum Kópavogs-
leikhússins verk þeirra félaga
Kaufman og Hart, Er á meðan er.
Flytjendur eru 20 manna hópur úr
Leikfélagi Vestmannaeyja. Er á
meðan er er léttur gamanleikur
sem gerist á krepputímum í New
York.
í leikritinu koma við sögu
rússneskar stórhertogaynjur,
fordrukknar leikkonur, Wall-
street greifi, konfektframleið-
andi, „danserinnur" og þeldökkt
þjónustufólk. Þar að auki einn
maður sem verður að teljast
„normal", en það er Afi. í frétta-
tilkynningu frá Leikfélagi Vest-
mannaeyja segir að þó svo að
leikurinn gerist fyrir einum 50
árum eigi hann vissulega erindi
inn í streituþrungið nútíma
þjóðfélag. Hið sérkennilega fólk
sem kemur við sögu í verkinu
lætur nefnilega enga streitu ná
tökum á sér, það lifir fyrir
augnablikið og tekur á öllum
málum af slíkri alúð að nánast
allir hlutir verða sjálfsagðir.
En umfram allt er leikritið
gamanleikur, segja þeir hjá
Leikfélagi Vestmannaeyja, sem
kemur vel heim og saman við
kjörorð leikfélagsins: Hláturinn
lengir lífið — við lengjum hlát-
urinn.
þennan lauflétta gamanleik, sem
vekur óspart kétínu éhorfenda.
Annaó kvöld er Skilnaður eftir
Kjartan Ragnarsson sýndur í leik-
stjórn höfundar en leikmynd
Steinþórs Sigurössonar, sem er
nýstárleg aö því leyti aö leikiö er í
salnum en áhorfendur sitja um-
hverfis. Leikritiö hefur vakiö umtal
og athygli fyrir hráa og vægðar-
lausa mynd úr nútímalífi okkar.
í Austurbæjarbíói veröur miö-
nætursýning á Hassinu hennar
mömmu eftir Dario Fo, sem sýnt
hefur veriö fyrir fullu húsi þar frá
því snemma í haust. Verkiö fjallar
eins og nafniö bendir til um fíkni-
efni og neyslu þeirra og aö sjálf-
sögöu á gamansaman hátt eins og
höfundar er von og vísa.
Á sunnudagskvöldiö er sýning á
Sölku Völku eftlr Halldór Laxness
í leikgerö Stefáns Baldurssonar og
Þorsteins Gunnarssonar.
Nemendaleikhúsið:
Sjúk æska á
sviðinu í
Lindarbæ
Nemendaleikhúsið hefur nú
nýlega tekiö til sýningar leikritiö
Sjúk æska eftir Ferdinand
Bruckner undir leikstjórn Hilde
Helgason.
Leikritið gerist í Vín á árunum
eftir fyrri heimsstyrjöld og sýnir
ungt fólk á þessum upplausnartím-
um í þjóöfólaginu. Leikritiö er sýnt
í Lindarbæ.
KVIKMYNDIR
MÍR-salurinn:
Verðlauna-
myndin
Seigla sýnd á
sunnudaginn
Fræg sovésk verölaunakvik-
mynd, „Seigla“, veröur sýnd í
MIR-salnum, Lindargötu 48, nk.
sunnudag, 13. febrúar, kl. 16.
Leikstjóri er Larisa Shepitko, en
meö aöalhlutverkin fara Boris
Plotnikov, Vladimir Gostukhin og
Anatolí Solonitsin.
Sagan sem myndin byggir á
gerist aö baki vígstöövanna í
Hvíta-Rússlandi veturinn 1942.
Hópur skærulióa og fjölskyldur
þeirra leita skjóls í skógi, úrvinda
af þreytu, vosbúö og matarskorti
og tveir úr hópnum eru sendir af
staö til fæðuöflunar.
Aðgangur aö MlR-salnum er
ókeypis og öllum heimill.
Lögberg, Háskóli
íslands:
Spönsk
kvikmyndasýn-
ing í kvöld
í kvöld verður sýnd é vegum
spánska sendiréösins og
spönskudeildar Héskóla íslands
kvikmyndin Tristana (1969) sem
bryggð er é samnefndri skéld-
sögu eftir B. Pérez Galdós. Leik-
stjóri er Luis Bunuel, en myndin
gerist í Madrid og Toledo.
Don Lope Garrido (Fernando
Rey), fjöllyndur kvennamaöur, fífl-
ar stjúpdóttur sína Tristönu (Cath-
erine Deneuve), sem vinafólk hans
hefur trúaö honum fyrir. Hann neit-
ar síöan aö kvænast henni og gerir
hana aö ástmey sinni. Og svo
framvegis.
Bunuel hefur sagt um þessa
mynd sína: „Hverju skiptir hver
söguþráöurinn er? í næstu mynd
minni veröur umfjöllunarefniö þaö
sama og fyrr, ástarhvötin og trúin
eins og alltaf. Tristana var ekki
annaö en átylla, sem geröi mér
fært aö lýsa ýmsum hliöum hins
spánska þjóölífs."
Luis Bunuel var nýlega heiöraö-
ur í Pompidou-menningarmiöstöö-
inni í París. Hinn 83 ára gamli
meistari skipar enn sess með allra
fremstu kvikmyndaleikstjórum
heims.
Sýningin verður í Lögbergi,
stofu 103, kl. 19.30.
TONLIST
Kammermúsík-
klúbburinn:
Tónleikar í
Neskirkju
Kammermúsíkklúbburinn heldur
sína þriðju tónleika á starfsárinu
1982—83 í Neskirkju sunnudaginn
nk. kl. 20.30. Á efnisskrá eru verk
eftir Haydn, Mendelssohn og
Dvorák. Flytjendur eru Philip Jenk-
ins, Guöný Guömundsdóttir, Mark
Reedman og Nina Flyer.
íslenska óperan:
Styrktartónleikar
Á sunnudaginn kl. 17.00 veröa
tónleikar í Gamla bíói á vegum ís-