Morgunblaðið - 11.02.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1983
55
Mynt
Ragnar Borg
Margir peningar fornaldar eru
listasmíöi, en auövitaö leiö ekki á
löngu, aö fariö væri aö falsa
mynt. i erlendum verölistum
koma stundum peningar, sem
eru meö silfurhúö, og er þess þá
getið. Silfriö í myntinni stóö fyrir
verömæti peningsins. Þaö var
því freistandi aö slá mynt úr
bronsi og silfurhúöa svo, og láta
sem ekta silfurpeningur væri.
Þetta var stundum gjört til forna
af opinberum aöilum og leiddi
alltaf til vandræöa, veröbólgu og
vantrúar á peninga. Já sagan er
víst búin aö marg, marg endur-
taka sig síöan. Menn voru til
forna einnig á veröi gegn fölsuö-
um peningum. Margir peningar
hafa fundist, sem hafa veriö
stungnir meö hníf, eöa sneitt hef-
ir verið úr þeim.
Þaö er auövitaö matsatriöi
hvers myntsafnara, hvernig hann
metur svona mynt. Fyrir suma er
þaö gæöamerki, og hefir auk
þess sögulegt gildi. Á sumum
peningum er aö finna merki, svo
sem hring eöa önnur tákn.
Þekktur stimpill er akkeriö sem
Selusida-ættin notaöi, en hún
ríkti á Sýrlandi til forna. Þetta
akkeri er aö finna einnig á mynt
annarra þjóöa, en sú mynt gekk
þá einnig í sýrlenska ríkinu og
var akkeriö viöurkenning hins
opinbera á því aö hana mætti
nota í Sýrlandi.
Eins og fram hefur komiö áöur
hér í þessum greinaflokki, var
þaö Alexander mikli sem fyrstur
lét slá mynd af sér á mynt. Hann
var þó dulbúinn sem guöinn
Herkúles. Einn af herforingjum
Alexanders tók viö stjórn
Egyptalands aö honum látnum.
Sá hét Ptolemeios. Hann lét
fyrstur manna slá mynd af sér á
mynt. Ptolemeios-ættin var svo
viö völd á Egyptalandi í tæp 300
ár. Siöasti stjórnandi Egypta-
lands af Ptolemeios-ættinni var
Kleópatra, ástkona Sesars og
Antoniusar.
Þaó var mikilvægt fyrir kon-
unga, keisara og herforingja aö
fá mynd af sér á mynt. Peningar
gengu manna á milli og fluttust
víöa í ystu myrkur víölendra ríkja,
og voru þannig besta auglýsing,
sem fékkst í þann tíma.
ÚR MYNTSÖGU FORNALDAR
Yfirstimplaðir
peningar
Akkerið á myndinni, undir fálk-
anum, lengst til vinstri á mynt-
inni er merki Selusidanna. Pen-
ingurinn var sleginn í Aradus (
Föníkíu árió 3101.Kr.
Kleópatra sjöunda var aölaö-
andi er hún var ung. Myntin er
slegin árió 59 f.Kr. og er hún þá
tvítug.
Mynd af Sesari frá árinu 44 f.Kr.
en þá haföi hann heimild sen-
atsins í Róm til aö setja mynd af
sór á mynt rómverska lýöveld-
isins.
Þessi shekel-peningur, sleginn í
Fönikíu árið 34 f.Kr. ber mynd
Antóníusar og Kleópötru. Pen-
ingurinn er sleginn í tilefni af
missætti hans og Oktavíanusar.
Myndin er af Ptolemeiosi fyrsta, asttfööur Kleópötru sjöundu.
Hann var hinn fyrsti, og hún síöasti, stjórnandi ríkis á Egyptalandi
á árunum 323—283 en hún árin 51—30 f.Kr. Hann var fyrsti maö-
urinn, sem setti mynd sína á mynt, ódulbúinn. Ptolemeios-ættín
ríkti þannig á Egyptalandi frá 323—30 f.Kr.
Frímerkjauppboð 26. þ.m.
Eftir tíu mánaöa hlé ætlar Félag
frímerkjasafnara aö halda frí-
merkjauppboö. Verður þaö sem
oftast áöur haldiö í ráöstefnusal
Hótels Loftleiöa. Uppboösdagur
veröur laugardagurinn 26. febrúar,
og hefst uppboöiö kl. 13.30.
Þar sem frímerkjauppboö hafa
veriö fá á liönu ári, má búast viö,
aö safnarar fjölmenni á þetta upp-
boö, enda má vafalaust gera þar
góð kaup, enda þótt mér sýnist
efniö æriö sundurleitt viö stuttlega
athugun á uppboðsskránni og
gæöin misjöfn. En þaö er fleira
matur en flesk, segir gamalt orö-
tak.
Á þessu uppboöi eru 458 númer
eöa boö, og mest er efniö íslenzkt
í einhverri mynd. Ekki er mikið um
gömul frímerki. Má vera, aö
mönnum sé ekkert keppikefli aö
iáta þá hluti á uppboö hérlendis,
þar sem markaöur viröist stundum
betri á stórum uppboðum erlendis.
Þó þarf ekki alltaf aö vera svo í
reynd. Eitt er þaö, sem mér finnst
svolítiö eftirtektarvert viö þetta
uppboö, og þaö er, hversu mikið
er boðið upp af óstimpluöum fri-
merkjum límlausum. Ég hef fylgzt
meö flestum uppboöum hérlendis
um langt skeiö og þótzt taka eftir,
aö safnarar séu ófúsir aö bjóöa i
límlaus merki. Vitaskuld geta þau
veriö í mjög góöu ásigkomulagi aö
ööru leyti og myndefniö ætti svo
sem aö vera meira atriöi en límiö á
bakhliö. Svo virðist nú samt ekki
vera í augum margra safnara.
Skildingamerki eru einungis tvö
á þessu uppboði og ekki heldur
stórt úrval af auramerkjum og þau
flest algeng. Af þvi leiöir líka, aö
verölistaverö er ekki mjög hátt.
Helzt fer aö lifna yfir uppboösefni
meö Kristjáni IX., en af þeirri út-
gáfu er fjórblokkasett, óstimplaö,
en meö hengslaförum. Þá er heil
sería af Tveggja kóngamerkjum
Frímerki
Jón Aöalsteinn Jónsson
meö óskertu límu frá 1907 og önn-
ur sería af seinni útgáfu í sama
ástandi. Trúlega fást einhverjir til
aö bjóöa vel í þau merki.
Þá er nokkuö af frímerkjum með
mynd Jóns Sigurössonar og Friö-
riks konungs VIII. og svo allmikiö
af merkjum með mynd Kristjáns X.
Flest af þessu er óstimplaö. Þó er
þarna sería af stimpluöum merkj-
um meö mynd Friðriks VIII. frá
1912. Ekki er unnt aö rekja hér
nákvæmlega þaö, sem upp er
boöið, enda geta menn kynnt sér
þaö i sjálfri skránni, sem fæst i
frímerkjaverzlunum og eins hjá fé-
laginu.
Segja má, aö úrvaliö sé einna
mest frá lýðveldistímanum eftir
1944 og töluvert af óstimpluöum
frímerkjum í heilum örkum og þá
meö ýmsum afbrigöum. Hér ættu
því þeir, sem hafa einskorðað
söfnun íslenzkra frímerkja viö
þennan tíma, aö geta gert góö
kaup.
Á þessu uppboöi veröa nokkur
spjaldbréf og bréfspjöld boöin
upp, en fæst þeirra eru mjög
sjaldgæf. Verð sumra er samt
nokkuð hátt, einkum stimplaöra
bréfa.
Söfnun stimpla er enn vinsæl,
og hér veröa boönir upp um 50
stimplar af ýmsum geröum. Þar
ber langmest á númera- eöa tölu-
stimplum, en kórónustimplar og
upprunastimplar eru fáir. Þar sem
Facit-listinn sænski skráir einn
verö íslenzkra stimpla, er veröiö í
sænskum krónum. Aö ööru leyti er
verð þaö, sem upp er gefiö viö
hvert númer, eftir íslenzkum frí-
merkjum 1983.
Þjónustufrímerki eru allmörg á
uppboóinu, en ekki sérlega áhuga-
verö samkv. lýsingu. Þarna er 4 sk.
merki frá 1873 og metið í lista á
2000 kr. Eftir mynd aö dæma er
þaö eftirstimplað, og þaö rýrir vita-
skuld merkiö verulega.
Söfnun bréfa meö frímerkjum á
er oröin anzi útbreidd, enda er
nokkuö um slíka hluti á uppboö-
inu. Eins er dálítiö af fyrstadags-
umslögum. Veröur fróðlegt aö sjá,
hvernig þessu efni reiöir af.
Erlent efni er ekki mikiö, og veit
ég enga skýringu á því, hvers
vegna menn eru svo tregir til aö
losa sig viö umframefni eöa tvítök
á uppboöum. Markaöur ætti aó
vera þó nokkur, því að margir
safna erlendum merkjum samhliöa
islenzkum.
Hér verður látiö staðar numiö.
Ég bendi mönnum á, aö uppboð
þetta er einkum ætlaö félags-
mönnum, en þeir mega vitaskuld
taka meö sér áhugasama gesti.
Uppboösefniö veröur til sýnis í fé-
lagsheimli F.F. aö Amtmannastíg 2
laugardaginn 19. þ.m. kl. 14—16
og svo á uppboðsstaö 26. febrúar
kl. 11 — 13.
Ábending til
frímerkjasafnara
Ég vil vekja athygli safnara og
annarra á því, aö smáörk sú, sem
út var gefin 7. okt. sl. i sambandi
viö samnorrænu frímerkjasýning-
una NORDIA 1984, veröur ekki til
sölu á pósthúsum landsins eftir
marzlok. Það, sem þá veröur óselt
af upplaginu, veröur eyöilagt. Eru
þess vegna aö veröa síöustu for-
vöö fyrir þá, sem hafa ekki þegar
tryggt sér eintök af örkinni, aö
gera þaö. Þar sem þetta er fyrsta
örkin af þremur, sem út eiga aö
koma í sambandi viö sýninguna,
veröur hún vafalaust eftirsótt, þeg-
ar fram líða stundir.
Leitiö ekki langt yfir skammt
Húsavík í vetrarfríið
s
HVÍLD — MEGRUN
— LÍKAMSRÆKT
— ÚTIVERA
ÞARFTU AÐ MISSA NOKKUR
AUKAKÍLÓ?
ÞARFNASTU HVÍLDAR?
VILTU LOSNA FRÁ AMSTRI
HVERSDAGSINS?
VIÐ HOFUM LAUSNINA
Sérhæft starfsfólk svo sem læknir, íþróttakennarar, sjúkraþjálfi, leiösögumenn
og lipurt hótelstarfsfólk mun sjá til þess aö þér líði sem best.
Dagskrá: Dagskrá: ÁRDEGI: SÍDDEGI:
Kl. 08.00 Vakiö gegnum hátalarakerfi húss- Kl. 13.00 Hvíld.
ins meö léttri tónlist og líkams- Kl. 14 00 Gönguferö meö
teygjum. fararsljóra.
Kl. 08.15 Borið á herbergi heitt sitrónuvatn. Kl 15.00 Létt miödagskaffi.
drukkið meðan klæðst er (íþrótta- Kl. 15.30 Nudd.
galli). Kl. 17.00 Frjáls tími.
Kl. 08.30 Morgunleikfimi í sal, mál og vog. Kl. 19.00 Kvöldveröur.
Kl. 09.30 Morgunveröur.
Kl. 10.30 Sund — guta — heitur pottur. KVÖLD:
Kl. 11.00 Frjáls timi. Kl. 20.30. Kvöldvaka.
Kl. 12.00 Hádegisveröur Stutt ganga fyrir svefn
Verð pr. mann á viku:
Kr. 5.980 í 2m m/baði.
Kr. 6.480 í 1m m/baði.
Innifalið í þessu verði er:
Gisting, allar máltíöir, læknisskoðun, sund, gufa, heitur pottur, leik-
fimi, nudd, gönguferöir með fararstjórn, fræðileg erindi, flug og
transfer flugvöllur — hótel — flugvöllur.
Ath. Hámarksfjöldi í hópi er 20 manns. Askilinn er réttur til breytinga
á ofangreindu verði.
1. vika 06/02
2. vika 13/02
3. vika 06/03
4. vika 27/03
5. vika 03/04
6. vika 10/04
13/02 ’83
20/02 '83
13/03 ’83
03/04 '83
10/04 '83
17/04 ’83
Söluaðilar:
Hótel Húsavík,
Feröaskrifstofa ríkisins,
Ferðaskrifstofan Úrval,
Ferðaskrifstofan Útsýn,
og ferðaskrifstofur víða
um land.
Vertu
velkominn
Húsavik
Sími 96-41220