Morgunblaðið - 11.02.1983, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 11.02.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1983 61 Sími 78900 Gauragangur á ströndinni Létt og fjörug grínmynd um | hressa krakka sem skvetta al- deills úr klaufunum eftir prófin I í skólanum og stunda strand- lífið og skemmtanir á fullu. Hvaða krakkar kannast ekki | vió fjöriö á sólarströndunum. Aðalhlutverk: Kim Lankford, I James Daughton, Stephen | Oliver. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Meistarinn (Force of One) Meistarinn, er ný spennumynd I meö hinum frábæra Chuck I Norris. Hann kemur nú í hring- I inn og sýnir enn hvað í honum I býr. Norris fer á kostum í I þessari mynd. Aöaihlv.: Chuck I Norris, Jennifer O'Neill, Ron| O'Neal. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð börnum innan 14 ára. Fjórir vinir (Four Friends) Ný, frábær mynd, geró af snill- ingnum Arthur Penn en hann gerði myndirnar Litli Risinn og Bonnie og Clyde. Myndin ger- ist á sjöunda áratugnum og fjallar um fjóra vini sem kynn- ast í menntaskóla og veröa óaöskiljanlegir. Arthur Penn segir: Sjáiö til, svona var þetta i þá daga. Aöalhlutv.: Craig Wasson, Jodi Thelen, Micha- el Huddleston, Jim Metzler. Handrit: Steven Tesich. Leikstj.: Arthur Penn. Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05 og 11.10. Bönnuð börnum innan 12 ára. ★★★ Tíminn ★★★ Helgarpósturinn Litli lávarðurinn (Little Lord Fauntleroy) I Stóri meistarinn (Alec Guinn- ess) hittir litla meistarann (Ricky Schroder). Þetta er hreint frábær mynd fyrir alla fjölskylduna. Aöalhlv.. Alec Guinness, Ricky Schroder, I Eric Porter. Leikstj.: Jack Gold. Sýnd kl. 5. Flóttinn (Pursuit) J | Vv , _ Aöalhlutverk: Robert Duvall, Treat Wílliams, Kathryn Harr- | old. Sýnd kl. 7, 9 og 11. Hækkaö verð. Sýnd kl. 9. (12. sýningarmánuður) Allar með fsl. texta. | ■Myndbandaleiga í anddyri | QÍJT TEMPLARAHOLLIN 0U I Sími 20010 Félagsvistin kl. 9 Gömlu dansarnir kl. 10.30 Miöasala opnar kl. 8.30. Reynir Jónasson og félagar leika. SGT t Stuö og stemmning Gúttó gleöi Nú hitnar í kolunum Við leggjum úr höfn kl. 18.00. Matseöill kvöldsins: Rjómalöguö salatblaöasupa Heit frönsk laukterta meö osti Hákarl meö ákavíti Sorbet Dill og Fennekel gufusoöin smálúöa meö rækjusósu. Pönnusteiktar grísalundir meö rauövínssoönum eplum gljáö meö ostasósu. Léttsteikt kálfalifur meö hvítlauks- og steinseljusmjöri. Djúpsteiktar teosta krókettur meö rifsberjahlaupi. Mokkaís með mint súkkulaöisósu. A _ _jUglýsinga- síminn er 2 24 80 Eftir lendinguna Kvíkmyndír Sæbjörn Valdimarsson BÍÓHÖLLIN: FLÓTTINN (PURSUIT) Aöalhlutverk: Treat Williams, Robert Duvall, Kathryn Harrold, R.G. Armstrong, Ed Flanders, Paul Gleason. Kvikmyndataka: Harry Stradlin jr. Leikstjóri: Robert Spottiswoode. Menn reka enn örugglega minni til hins fífldjarfa flugræningja sem fleygöi sér útúr Boeing 727, hátt yfir skógivöxnum hlíöum Kletta- fjallanna með 200 þús. dali í far- angrinum. Þetta geröist í byrjun síöasta áratugs og ekkert hefur enn spurst til kauöa né pen- inganna. Siðan ekki söguna meir, fyrr en nokkrir Hollywood-spekúlantar fengu þá hugmynd aö spinna upp söguþráö um afdrif ræningjans, sem varö þjóösagnapersóna um tima i Vesturheimi. Gefst nú kost- ur á að líta árangurinn í Bíóhöll- inni. Flóttinn byrjar þægilega, mynd- in rennur framhjá manni fyrsta klukkutímann eöa svo. Fiugræn- inginn (Treat Williams), er geöug- asti náungi sem framkvæmir ránið af mikilli útsjónarsemi og án nokk- urra blóðsúthellinga, enda ýmsum hnútum kunnugur sem fyrrverandi hermaður í úrvalssveitum Banda- ríkjahers í Víet-Nam. Aö ráninu loknu fylgjumst viö síöan meö undankomu Williams sem leggur krók á leiö sina til aö sækja hjálp eiginkonunnar viö aö koma þýfinu í lóg. Eftir það breyt- ist myndin í eltingaleik, þar sem ötull tryggingastarfsmaður (Rob- ert Duvall) og gamall striösfélagi eru sífellt á hælum Williams. Líkt og fyrr segir lofar Flóttinn góðu og er prýöisgóö afþreying — lengst af. Bestu kaflana er aö finna í fyrrihlutanum meðan veriö er aö forma þessa þjóösagnaper- sónu og í upphafi eltingaleiksins. Hér getur aö líta einhver bestu „stunt“-atriöi sem sést hafa, t.d. er bátsferöin niöur straumhart fljótiö glæfralega vel gerö, slá jafnvel út hliöstæö atriöi i Deliverance, og er þá mikiö sagt. Eins er kvik- myndataka Stradlings hröö, ná- kvæm og vönduö og tónlist Wayl- on Jennings og fleiri góöra manna lífgar uppá myndina. Umtalsverð vandamál komu upp viö gerö Flóttans, leikstjórar og fleiri bakhjarlar myndarinnar fengu pokann sinn. Slíkar manna- breytingar setja löngum mark sitt á myndir og fer Flóttinn ekki varhluta af því. Þegar á líöur miss- ir myndin nokkuö flugið, veröur langdregin og endurtekningagjörn og kveöur þá viö allt annan tón en í hressum fyrri hlutanum. Þetta veröur aö skrifa aö miklu leyti á reikning hins endanlega leikstjóra, Spottiswoode, og endasleppt handrit. Treat Williams er einn af efni- legustu leikurunum vestra (bíöiö þangaö til þiö sjáiö hann í Prince of the City i Austurbæjarbíói fljót- lega), hér stendur hann rétt sóma- samlega fyrir sínu og má hið sama segja um Duvall, þann ágætisleik- ara, sem hefur úr litlu aö moöa. Kathryn Harrold er hin föngu- legasta. Klipping er allgóö í átaka- atriðunum en gjarnan heföi mátt nýta skærin betur. Þegar upp er staöiö er betur farið en heima setiö; þrátt fyrir aö Flóttinn sé endaslepp þá lyfta frábær „stunt“-atriöin uppspunan- um yfir meðallagiö. _L/esió af meginþorra þjóðarinnar daglega!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.