Morgunblaðið - 11.02.1983, Side 23

Morgunblaðið - 11.02.1983, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1983 63 Björnínn er að vakna Hjörtur Jónsson skrifar: „Velvakandi. Nú fer fram skoðanakönnun um kjördæmamálið í Reykjavík og í Reykjaneskjördæmi. Atkvæða- gögn hafa verið borin í öll hús og berast nú óðum útfyllt til Sam- taka áhugamanna um fullan kosn- ingarétt. Um langt árabil hafa menn rætt sín á milli um hinn einstaka ójöfn- uð, sem í því felst, að svipta menn að mestu kosningarétti ef þeir búa í höfuðborginni eða á Reykjanesi, en svo sem kunnugt er, af allmikl- um skrifum um þetta mál, þá hafa þeir, sem í þessum kjördæmum búa, allt að því fimm sinnum minni atkvæðisrétt, en ibúar sumra annarra kjördæma. Þetta er ótrúlegt en satt. En svo ótrúlegt sem þetta er, er hitt enn ótrúlegra að allmargir fulltrúar þjóðarinnar, sem sitja á Alþingi, mæla þessu bót, og vilja sem minnstu breyta. Þó ættu alþing- ismenn manna best að skilja, að atkvæðisrétturinn er hornsteinn lýðræðisþjóðfélags, undirstaða, sem aldrei má hrófla við. f áratugi hefur þetta misrétti viðgengist, og sótt í sama horfið, þó að einhver lagfæring hafi fengist, þegar mönnum ofbauð óréttlætið. Nú ræða menn um endurskoðun á stjórnarskrá, og leiðréttingu á þessu fádæma misrétti. Ennþá eru þótt mörgum finnist að slíka endurskoðun ætti að fela öðrum mönnum? Það liggur mikið á að breyta kostningalögum þannig, að allir fái jafnan atkvæðisrétt. Sú breyt- ing verður gerð. Það er einungis spurning um það, hve lengi er hægt að bolast. Það eru engin haldbær rök til gegn þessu, en vafalaus þjóðfélagshætta samfara óbreyttu ástandi. Ef miðað er við atkvæðamagn og þann landshluta sem best er alþingismenn ekki tilbúnir að stíga skrefið til fulls, ennþá hika þeir við að gera menn jafna fyrir lögunum, ennþá vilja þeir mis- muna fólki eftir því hvar það hef- ur búsetu. Nú vilja þessir sömu menn lækka kjöraldur í 18 ár. Kannski er vit í því, en meira liggur á að láta fullorðið fólk fá atkvæðisrétt, jafnvel þó að það búi í Reykjavík. Því er t.d. gamalt fólk ekki látið hafa svo sem eins og fimmfaldan atkvæðisrétt? Er það ekki nákvæmlega í samræmi við þá stefnu, sem fylgt er, og virðist eiga að fylgja áfram? Þingmennirnir og flokkarnir eru orðnir svo fastir í þessu rang- láta kerfi, að þeir virðast enga yf- irsýn hafa lengur. Sömu menn sitja svo við að „endurbæta" okkar stjórnarskrá. Er nokkur furða settur með þingmenn eins og Al- þingi er nú skipað, þá ætti Reykja- vík að hafa sem næst þrisvar sinn- um fleiri þingmenn og Reykja- neskjördæmi fjórum sinnum fleiri þingmenn en þessi kjördæmi hafa nú. „Fyrr má nú rota en dauðrota" þó að Alþingishúsið standi við Austurvöll, en ekki á Suðureyri eða á Hvammstanga. Hvað segja svo þingmenn Reykjavíkur um þetta? Eru þeir ekki aldeilis hamslausir að berjast fyrir rétti borgarinnar? Eru ekki myndir af þeim í öllum blöðum, þar sem þeir skrifa og rökstyðja sanngirniskröfur umbjóðenda sinna um atkvæðisrétt og fleira? Þó að þeir séu ekki fleiri þing- mennirnir í Reykjavík, þá má ýmsu til leiðar koma ef hugur fylgir máli. Spyrji maður Reykvíkinga hverjir séu þingmenn þeirra, þá getur enginn í fljótu bragði nefnt fleiri en fjóra; flestir stranda fyrr. Ætli það vefðist fyrir dreifbýlis- mönnum að nefna þingmennina sína? Kannski ættu þessir bjánar, sem búa á höfuðborgarsvæðinu engan atkvæðisrétt að hafa. Svo sem fyrr segir, þá hafa menn hingað til rætt innbyrðis um þennan órétt. Þolinmæði þess- ara manna er nú þrotin. Samtök hafa verið stofnuð til þess að rétta hlut kjósenda. Þéttbýlis-björninn við Faxaflóa hefur sofið nokkuð lengi. Það hefur verið gengið full- langt í því að nota sér þetta and- varaleysi. En þetta er stórt dýr. Kannski fer það nú að rumska. Kjósendur í Reykjavík og Reykjaneskjördæmi geta haft mikil áhrif í þeirri réttlætisbar- áttu, sem nú er hafin, og hér hefur verið drepið á, með því að taka fullan þátt í skoðanakönnun þeirri sem nú stendur yfir. Undirritaður kjósandi i næstu alþingiskosningum hvetur stjórn- völd til ettirlarandi aðgerða i stjórnarskrármálinu: 1 Þingmönnum verði □ tjölgað □ fækkað □ hvorki tjölgað né fækkað 2. Atkvæðavægi eftir búsetu verði □ jafnað að fullu □ jafnað að hluta □ látiðóbreytt 3. Ef jafna á atkvæðavægiö, verði það gert með því að 0 breyta þingmannafjölda núverandi kjördæma 0 skipta landinu í jafnfjölmenn einmenningskjördæmi 0 gera landið að einu kjördæmi O ______________________________________________ Hvað hefur orðið af fuglunum? Ó.I., Keflavík, skrifar: „Velvakandi góður. Nú síðan ellin tók völdin hjá mér, hefur það verið mín aðal- ánægja á vetrum að gefa smá- fuglunum korn eða brauðmola og horfa á þá kroppa þetta upp í sig^ En nú síðan um áramót hefur ekki einn einasti sést; það er eins og þeir séu horfnir með öllu. Hvað hefur eiginlega orðið af þeim? Ef maður gefur þeim alltaf á sama stað getur það haldist fram á sumar. Með bestu kveðju." ¥ * 'V > V » ^ ' > k * v» v -f X** <*r * > \ K -■V GÆTUM TUNGUNNAR Heyrst hefur: Stúlkan varð ekki var við neitt óvenju- legt. Rétt væri: Stúlkan varð ekki vör við neitt óvenjulegt. Utsala Karlmannaföt frá kr. 1.175,00, terylenebuxur frá kr. 200,00, flauelsbuxur frá kr. 255,00, flauelsbuxur kvenna kr. 265,00, gallabuxur karlmanna frá kr. 245,00, gallabuxur kvensniö kr. 235,00, frakkar kr. 475,00, úlpur frá kr. 350,00, trimmgallar kr. 310,00, peysur frá kr. 95,00 o.m.fl. ódýrt. Andrés herradeild, Skólavöröustíg 22, sími 18250. GERMANÍA auglýsir FASCHING — KARNEVAL í dag, föstudag, kl. 20.30 í Félagsheimilinu Seltjarnarnesi. Amsterdam Páskar, vorþeyr og menning í alda- gömlum höfuðstað lista í Hollandi. Takið ykkur viku hvíld og njótið lífsins á lúxushóteli. Brott- för 29. mars. íff Fer&askrifstofan arandi Vesturgötu 4. Sími17445. ALLTAF A LAUGARDÖGUM Hnignun og fall á Sund- bakka Síðasta greinin í greinaflokknum um Viöey segir frá starfsemi Kára-félagsins og erfiðleikunum sem að lokum gengu af Viðeyjarstööinni dauðri. Samband mæöra og dætra einkennir myndir kvenna Kristín Jóhannesdóttir skrifar um konur, sem í vaxandi mæli láta fil sín taka sem kvikmyndahöf- undar. Karlsonur vinnur konungsríki Siguröur Sigurmundsson skrifar um Jón Trausta og skáldsögur hans. Liösafnaður meö góöu og illu Ásgeir Jakobsson heldur áfram að rekja sögu og valdabaráttu Þóröar Kakala. Vönduð og menningarleg helgarlesning

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.