Morgunblaðið - 20.02.1983, Page 21
Sinfóiiíu-
tónleikar
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Mozart. Sinfónía nr. 25.
Saint-Saens. La Muse et le
Poéte.
Brahms. Konsert fyrir fiðlu og
celló.
Einleikarar:
Guðný Guðmundsdóttir
og Nina Flyer.
Stjórnandi:
Jean-Pierre Jacquillat.
Tuttugasta og fimmta sin-
fónían, eftir Mozart, er ein af
örfáum fyrstu sinfóníum hans,
sem leiknar eru á tónleikum í
dag. Verkið er gáskafullt en þó
með alvarlegri blæ en mörg
verk hans frá þessum árum.
Andante- og Menuett-kaflinn
voru of hraðir en aftur á móti
var síðasti kaflinn, sem ber yf-
irskriftina Allegro, of hægur.
Eitt af því sem skapar jafn-
vægi í tónverkum á þesum
tíma er endurtekning þátta-
hluta. Með því að fella burt
endurtekningar raskast jafn-
vægið milli þáttanna. Sem
dæmi mætti nefna ef felldar
yrðu burt endurtekningar í
Menúett-þættinum, hversu
undarlegt form hans yrði þá.
Þó það liggi ekki eins í augum
uppi verður sónötuformið hálf
halaklippt án endurtekninga
og verkið í heild of stutt en
tímasparnaður óverulegur. La
Muse et le Poéte, eftir Saint-
Saéns er leikandi létt tónverk
og var vel leikið af Guðnýju og
Ninu Flyer. Það sem betur
mátti gera var að tempra und-
irleik hljómsveitarinnar, sér-
staklega þar sem undirleikur-
inn var ekki meira en liggjandi
hljómnótur, sem nokkuð oft
voru svo áberandi, rétt eins
þær væru aðalatriðið í tón-
smíðinni. Þetta heyrnarleysi á
jafnvægi getur skemmt fyrir
einleikurum og kæft aðalatrið-
in í tónsmíðinni. Þetta var
nokkuð áberandi í tvíleiks-
konsertinum eftir Brahms,
sem auðvitað má að nokkru
kenna þykkum rithætti hans.
Brahms var oft skammaður
fyrir að vera gamaldags og að
semja tvíleikskonsert, sem
hvílir að formi til á „conserto
grosso" en er rómantískur í rit-
hætti, þótti það ekki góð
blanda og því var frumflutn-
ingur þessa listaverks „fíasko".
Þegar tíska og hugmynda-
fræði áranna fyrir aldamótin
1900 gamlaðist sjálf og fölnaði
með nýjum tíma, gleymdust
ávirðingar Brahms gamla og
verk hans risu upp og óháð
tíma og tískuannmörkum voru
gæði þeirra metin að verðleik-
um. Nú er .t.d. tvíleikskonsert-
inn meðal vinsælustu konsert-
verka nútímans. Guðný Guð-
mundsdóttir er góður fiðluleik-
ari og Nina Fiyer sömuleiðis
góður cellóleikari.
í þessari tónlist, sem og ann-
arri rómantískri tónlist, verð-
ur að gera meira en að leika
verkið í gegn. Þarna eru marg-
vísleg blæbrigði, sem beinlínis
verður að hlúa að, rétt eins
þegar rækta skal blóm, því lag-
ferlið verður merkingarlaust ef
það er ekki undirbyggt með
sterkri tilfinningu fyrir blæ.
Fyrir undirritaðan var verkið
ekki gætt þeim ástríðum sem
rómantískir listamenn 19. ald-
arinnar voru tendraðir af og að
því slepptu, ekki heldur fallega
leikið. Á köflum mátti þó
merkja spennu og í hæga kafl-
anum áferðarfallegan samleik.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983
Prófkjör Sjálfstceðismanna í Reykjaneskjördcemi,
26. og 27. febrúar n.k.
Tryggjum Salome
þingsœti áfram.
Tökum þátt íprófkjörinu
— þitt atkvœði getur ráðið úrslitum.
Upplýsingar í símum 66149 og 67149-
Verðum með aðstöðu í J. C. salnum í Þverholti,
frá mánudeginum 21. febrúar.
Opið frá kl. 17—22.
Lítið inn — hafið samband.
Stuðningsmenn
Salome Þorkelsdóttur
alpingismanns.
Aðeins
og eftirstöðvar
á 9-12 mán.
) Þú eignast SHARP VHS
VIDEOTÆKI
> Þú verður þinn eigin myndastjóri
) Velur hvaða mynd þú horfir á
— og hvenær
) Þarft ekki að láta þér leiðast
einhæft sjónvarpsefni
> Hoppaðu á þetta tilboð —
það gefst ekki betra.
HLJOMBÆR
HLJOM*HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
SHARRVHS
VIDEOTÆKI
OTSÖLUSTAÐIR: Portið. Akranesi — KF Borgf. Borgarnesi — Stáibúöin. Seyöisfirði — Skógar, Egilsstöðum — Djúpiö. Djúpavogi —
Verls Inga, Hellissandi — Patróna, Patreksfirði — Sería, Isafirði — Hornbær, Hornafirði — KF. Rang Hvolsvelli — MM. Selfossi —
Sig Pálmason. Hvammstanga — Alfhóll. Siglufirði — Cesar. Akureyri — Eyjabær, Vestmannaeyjum — Rafeindavirkinn, Grindavík — Fafaval. Keflavík
Radíóver. Húsavík — Paloma, Vopnafirði — Ennco. Neskaupsstað —
Verð fra kr. 31.160.-
Metsölublaó á hvetjum degi!