Morgunblaðið - 22.05.1983, Síða 3

Morgunblaðið - 22.05.1983, Síða 3
H r ossa rækta rf é lag Hrunamanna Hrossaræktarfélag Hrunamanna: 70 ára af- mælisrit ÚT EK komið 70 ára afmælisrit Hrossaræktarfélags Hrunamanna, 72 síður í stóru broti, prýtt fjölda gamalla og nýrra mynda úr sögu fé- lagsins og hrossaræktar í Hruna- mannahreppi. í ritnefnd voru þeir Þorgeir Sveinsson, Óskar Indriða- son, Jón Sigurðsson, Stefán Jóns- son, og Sigurður Sigmundsson. Stjórn Hrossaræktarfélagsins skipa aftur þeir Jón Hermannsson for- maður, Valgeir Jónsson og Helgi Jónsson. Af efni afrnælisritsins má nefna yfirlitsgrein um hrossarækt Hrunamanna í 70 ár eftir Jón Hermannsson. Ræðu Óskars Indr- iðasonar á 70 ára afmæli félags- ins, þar sem í ítarlegu máli er rak- in saga þess. Enn er rakin saga félagsins í grein Jóns Sigurðsson- ar í Skollagróf, og Þorkell Bjarna- son, hrossaræktarráðunautur, rit- ar um hrossarækt. Þá er birt yfir- lit yfir sýninga- og keppnishross Hrunamanna á fjórðungs- og landsmótum 1950 til 1982, grein er um reiðhesta þeirra Efra-Lang- holtsbræðra, viðtal er við Gunnar Bjarnason fyrrum hrossaræktar- ráðunaut, fjallað er um Berghyls- kynið og margt fleira efni er í rit- inu. Ritið er sett og prentað í Prent- tækni. Hlaut lög- mæta kosn- ingu í Hrísey TALIÐ hefur verið í prestskosning- um í Hrísey. Séra Sigurður Arn- grímsson, settur prestur í Hrísey, hlaut lögmæta kosningu. Á kjörskrá voru 383, atkvæði greiddu 232. Séra Sigurður hlaut 140 at- kvæði, 88 seðlar voru auðir eða ógildir. Námsárangur góður í Stykkishólmi Stykkishólmi, 14. maí. í DAG var grunnskólanum í Stykk- ishólmi sagt upp við hátíðlega athöfn í Félagsheimili Stykkishólms. Litla lúðrasveitin lék við skólaslit undir stjórn I)aða Einarssonar. Nemendur á þessum vetri voru 265 í 15 bekkjardeildum. Námsár- angur var góður og kom það fram í ræðu skólastjóra, Lúðvigs Hall- dórssonar. Heilsufar var lakara en undan- farin ár, flensan geisaði og ýma forföll urðu vegna lasleika. Mörg verðlaun voru veitt við skólaslit, bæði frá einstaklingum, félögum og skólanum sjálfum. Nýbygging skólans er nú komin undir þak og er verið að ganga frá risi. KréttariUrj MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983 51

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.