Morgunblaðið - 22.05.1983, Page 18

Morgunblaðið - 22.05.1983, Page 18
66 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983 3E A DRömNSfllfil , UMSJÓN: ■ Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir Gunnar Haukur Ingimundarson Séra Ólafur Jóhannsson „Ég trúi á Heilagan anda“ Þannig hefst þriðja grein hinnar postullegu trúarjátn- ingar. í henni er játuð trú á þrí- einan Guð — föður skapara, son frelsara og Heilagan anda. f því felst óútskýranlegur leyndar- dómur. Guð er einn — einn vilji, ein hugsun. En hann er þrjár persónur, sem standa hver um sig fyrir sínu og gegna ákveðnu hlutverki í hjálpræðissögunni. T.d. verður okkur að vera ljóst, að Guðs sonur dó á krossi og reis upp — ekki Guð faðir eða Heilagur andi. Heilagan anda er ekki unnt að afmarka eða klófesta. Hann er persóna að skilningi krist- innar kirkju, en ekki ótilgreind stærð eða ópersónulegur kraft- ur. Við sjáum hann aldrei, en áhrif hans blasa við í kringum okkur, eins og er t.d. um ýmsa loftstrauma í veðurfræðinni. Áhrif Heilags anda sjást í starfi kristinnar kirkju. Það er verk Heilags anda að menn trúa á Jesúm Krist og lifa í samfélagi við hann. Það er verk Heilags anda að menn varðveitast í Kristi og bera honum vitni. Þannig miðar allt verk Heilags anda að því að gera Krist veg- samlegan fyrir mönnum. Heilagur andi starfar ekki nema í tengslum við orð Guðs. Þá er átt við hið ritaða orð (Biblíuna), hið talaða orð (pré- dikun og vitnisburð í orði) og sakramentin (táknrænar at- hafnir tengdar orði Guðs á sér- stakan hátt). Hann kemur til leiðar endurfæðingu í skírninni, miðlar fyrirgefningu syndanna í kvöldmáltíðarsakramentinu, lýkur hinu ritaða og boðaða orði upp fyrir okkur til skilnings og endurnýjunar og kemur til mannsins endurlausninni sem byggir á hjálpræðisverki Krists. I GT er vissulega talað um Heilagan anda, m.a. á fyrstu blaðsíðu Biblíunnar. Auk þess sem talað er um hann í sköpun- arsögunni má nefna, að sérstak- ir fulltrúar Guðs meðal þjóðar hans höfðu Heilagan anda, svo sem dómarar og spámenn GT. í NT er Heilagur andi nefnd- ur í Lúk. 1 — áður en Jesús Kristur fæddist. Þegar kross- festingin nálgast, lofar Jesús lærisveinum sínum nálægð Heilags anda. Á hvítasunnudag, stuttu eftir upprisu og upp- stigningu Krists, kom Heilagur andi yfir lærisveinana á nýjan hátt, skv. Post. 2. Þar með er hann í fyrsta sinni gefinn öllum lýð Guðs — ekki einungis fáein- um sérstökum leiðtogum. Eftir það er Heilagur andi í kristinni kirkju. Án hans getur hún ekki starfað. Hinn fyrsti hvítasunnudagur verður ekki endurtekinn. Heil- agur andi tilheyrir kristinni kirkju, og hver kristinn maður á því Heilagan anda. Hann er gefinn af náð Guðs — án tilverknaðar okkar manna eða endurgjalds. Við getum ekki sært fram Heilagan anda og heldur ekki náð valdi yfir hon- um. Hvert skírt barn á Heilag- an anda — gefinn af Guði. En við getum komið í veg fyrir að hann hafi áhrif á líf okkar, hafnað því að hann vinni þar verk sitt og geri okkur læri- sveina Krists. Á hvítasunnu er spurningin til okkar því ekki, hvort við get- um útskýrt Heilagan anda, eða lýst honum á rökrænan hátt. Heldur: Trúi ég á Heilagan anda og játa því, að hann vinni verk Guðs í lífi mínu? Heilagur andi og við Gleðilega hátíð, góðu lesendur. Við, tilskrifendur ykkar, ákváð- um að skrifa á hvítasunnu um guðfræðilegan skilning á heilög- um anda og svo um heilagan anda í starfi. Og nú þegar komið er að því blasa við margir mögu- leikar. Því heilagur andi er að störfum mitt á meðal okkar. Það er áreiðanlegt. Þess vegna bund- um við á okkur betri skóna og gengum út í veðurblíðuna til að spyrja kirkjufólk um kynni sín af heilögum anda. En hverju hefðuð þið svarað, ef við eða ein- hverjir aðrir, hefðum spurt ykk- ur á förnum vegi? Okkur þótti gagnlegt að beina þeim spurn- ingum til sjálfra okkar hvað heilagur andi starfaði í okkar eigin lífi. En nú spyrjum við aðra — og sendum ykkur svörin í von um að þau blessi ykkur. ★ Heilagur andi gefur kirkjunni líf. Ef lærisveinar hefðu ekki fengið heilagan anda hefði ekk- ert gerzt. Þeir hefðu aldrei sigr- azt á hræðslunni og þorað að fara út og segja frá upprisu Jesú. Það er alveg eins hérna í kirkj- unni minni og í mínu eigin hjarta. Allt, sem gerist hér til blessunar er verk heilags anda. ★ Heilagur andi breytti lífi mínu. Ég sá ekki að ég þyrfti að trúa því að Jesús er Kristur, frelsari minn. Það er kraftaverk að það skyldi ljúkast upp fyrir mér og ég fara að taka þátt í kirkjustarfi, lesa Biblíuna, biðja og segja öðrum frá Jesú. ★ Við höfum bænastundir í fé- laginu okkar, syngjum, lesum stutt vers úr Biblíunni eða höf- um þau yfir eftir minni. Við biðjum og segjum hverju öðru frá því hvernig heilagur andi hefur blessað okkur. Þetta eru ómetanlegar stundir og trúin á Jesú gefur öllu lífi mínu dýpt og festu. ★ Mér finnst ég læra betur og betur að tala við heilagan anda. Ég tala við hann hvar sem er og hvenær sem er. Ég ráðfæri mig við hann þegar ég er heima eða úti að ganga, spjalla við hann, hlusta eftir svari. Það hefur kennt mér svo margt. Kennt mér að elska sjálfa mig á réttari máta og fara betur með mig. Við það hef ég orðið miklu sáttari við aðra og gengið betur að meta þá og skilja. Þessar stundir hafa líka kennt mér að meta guðs- þjónustu meira og sækjast eftir þeim. ★ Já, ég tala tungum. Ég veit að margir skilja það ekki. En þegar ég er heima og bið og Guð gefur mér heilagan anda svo ég tala tungum þá blessar það sjálfan mig ósegjanlega. Guð hefur líka gefið mér svör við spurningum mínum á þessum stundum. ★ Nei, ég tala ekki tungum sjálf. En ég er mjög hlynnt náðar- gjafahreyfingunni í kirkjunni. Eg held að við þurfum á henni að halda, hún á engan veginn að verða allsráðandi en hún á að haldast innan Þjóðkirkjunnar og lífga hana. Við megum ekki neita því að tungutalið er náð- argjöf, sem Biblían talar um. ★ Það væri óeðlilegt ef engir í kirkjunni töluðu tungum og ættu lækningagáfu. Náðargáfurnar eru svo margar og það er rúm fyrir þær allar og þær eiga allar að vera til í kirkjunni. Ég er þakklátur fyrir að einhverjir eiga þessar náðargáfur. Og ég er þakklátur fyrir aðrar náðargáf- ur t.d. stjórnvizku og leiðtoga- hæfni eða verksvit og listsköpun. Þakklátastur er ég auðvitað fyrir náðargáfu kærleikans og þá náð að trúa því að Jesús er Kristur, hinn krossfesti og upp- risni frelsari. Andi Guðs, andi Krists Hvítasunna Jóh. 14.15—21 Er hvítasunnan fæðingarstund kirkjunnar? Er úthelling andans á hvítasunnudag einstakur atburður í kirkjusögunni eða eigum við sífellt að biðja um úthellingu andans með táknum og tungutali? Hvernig var í rauninni það tungutal, sem sagt er frá í Postulasögunni? Um allt þetta hugsum við og tölum. Við verðum ekki öll sammála og verðum að þola hvert öðru og sjálfum okkur að vera ósammála. Öll verðum við samt að vera eitt í trúnni á Krist fyrir hjálp heilags anda. Heilagur andi, sem talað er um í Gamla testamentinu, Nýja testamentinu og á öllum öldum kirkjunnar, líka á okkar öld, er alltaf hinn sami. Hann er andinn, sem sannfærir um að Kristur einn sé frelsari heimsins og frelsari okkar. Hann er andi Guðs, andi Krists. Hann er ekki ónefnanlegur, hann er ekki okkar innri kraftur, eða guð, eins og við kjósum að hugsa okkur hann. Hann lagar sig ekki eftir hugmyndum. Hann er heilagur, ofar okkar skilningi, samt er hann hjá okkur, í hjörtum okkar, ef við opnum þau fyrir honum. Hann kallar okkur til að trúa á Jesúm, gefur okkur trúna og hvetur okkur, huggar okkur og leiðir okkur í þeirri trú dag eftir dag. Guð gefi okkur gleðilega hátíð Heilags anda í kirkju okkar, söfnuði okkar, á heimilum okkar og í hjörtum okkar. Biblíulestur vikuna 22.-28, maí Sunnud. 22. maí: Jóh. 14:23—31. a) íhugaðu, hvemig Jesús tengir ord sitt og nærveru Guds í v.23. b) V.26 segir okkur, hvert hlutverk Heilags anda er. Hvert er þad? Mánud. 23. maí: Jóh. 3:16—21. a) V. 16—18: íhugaðu afgerandi þýðingu trúarinnar á Jesúm, skv. orðum hans. b) V.19—21: Sjá Jóh. 1:1—13. Forðumst við uppgjör við Guð, eða viljum við leyfa Kristi að gefa okkur sátt við Guð í fyrirgefningu syndanna? Þridjud. 24. maí: I. Þessalónikubr. 1:1—10. a) V.lt: Útvalning Guðs er í Kristi, útvalning öllum til hjálp- ræðis. b) V.6: Sjá tengsl orðsins og Heilags anda. Og áhrif þess á líf þessaru manna. c) V.9: Þjónum við sönnum Guði, eða einhverjum (óeiginleg- um) skurðgoðum? Miðvikud. 25 maí: I. bess. 2:1—12. a) V.lg FM. þessa vers á við um alla kristna menn — ölleigum við að vitna um Drottin okkar ogfrelsara. b) V.12: Kappkostum við að breyta eins og samboðið er Guði, eða er okkur sama? Fimmtud. 26. maí: 1. Þess. 2:13—20. a) V.13: Tökum við í reynd á móti orði Guðs sem Guðs orði — með öllum þeim áhrifum, sem því hlýtur aðfylgja? b) V.11,—16: Ihugum, að á margan hátt er unnt að framgang kristninnar. Föstud. 27. maí: 1. Þess. 3:1—13. a) V.5: Allir kristnir menn þurfa að vera á varðbergi! b) V.12—13: Má Drottinn einnig gefa okkur þennan kœrleika sinn og gera okkur heilög frammi fyrir sér, eða stöndum við í gegn því? Laugard. 23. maí: I. Þess. 4:1—12. a) V.3: F.hl. þessa vers á við um okkur einnig. Hvemig má þetta verða? b) V.3—8: Þessar áminningar eigum við einnig að taka til okkar. að hindra Sannleikans andi, lát sannleikans Ijós þitt oss skina, send oss í myrkrunum himnesku geislana þína; sannleikans $61, sjálfs Guðs að hátignarstól lát þú oss leiðina sýna. Kœrleikans andi, hér kom með þinn sólaryl blíða, kveik þú upp eld þann, er hjartnanna frost megi þíða. Breið yfir byggð brœðralag, vinskap og tryggð. Lát það vorn lífsferil prýða. Friðarins andi, áfriðarins brautir oss leiddu, friða þú hjörtun og sundrunga stormunum eyddu, fær oss þinn frið, föður vom himneskan við, heimför til hans loks oss greiddu. Heilagur and.i, þér heilagt bygg musteri’ á jörðu, heilagan söfnuð og flekklausan kristnina gjörðu. Heilagra hnoss hlotnast um síðir lát oss Drottins með heilagra hjörðu. Valdimar Bríem

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.