Morgunblaðið - 22.05.1983, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.05.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983 67 Örtröd við grillið. Yfirgrillari var örlygur Þorkelsson. Garður: Fjölmenni á fjöl- skylduhátíð að Gufuskálum Garói, 15. maí. MILLI 200 og 300 manns sóttu fjöl- skylduhátíð að Gufuskálum sl. laug- ardag, en þeir eru skammt austan við þorpið. Það var nýstofnað For- eldra- og kennarafélag Gerðaskóla sem stóð fyrir hátíðinni í tilefni af skólaslitum í skólanum fyrir skömmu. Hafði hátíðin verið vel undirbúin fyrir hálfum mánuði síðan en þá fóru 15 manns út af Gufuskál- um, hreinsuðu svæðið og settu upp snyrtiaðstöðu og bálköst. Hátíðin hófst með skrúðgöngu frá skólanum kl. 13.30 og var gengið fylktu liði út á mótssvæðið. Skemmtunin hófst síðan með leikjum. Var farið í boðhlaup, reiptog og hlaupið í skarðið svo eitthvað sé nefnt. Þá var sett upp heljarmikið grill og grillaðar pyls- ur í stórum stíl. Kom hver fjöl- skylda með fyrir sig, pylsur og til- heyrandi. í lokin var svo kveikt í bálkestinum og tekið lagið. Júlíus Baldvinsson formaður Foreldra- og kennarafélags Gerðaskóla sagði, að skemmtunin hefði tekist vonum framar og það væri von félagsins að þetta gæti orðið árlegur viðburður. Aðstaða að Gufuskálum væri mjög góð og ef veðurguðirnir væru mannfólk- inu hliðhollir væri hvergi betra að koma saman. f lokin var kveiktur vardeldur og tekið lagið þar sem hver söng með sinu Arnór Góðir gestir heimsækja Borgarfjörð eystri Borgarfiröi-eyHtri, 8. maí. SUNNUDAGINN 1. maí komu ná- grannar okkar Seyðfirðingar hingað og sýndu leikritið Gullna hliðið, eftir Davið Stefánsson. Að vísu höfðu þeir boðað komu sína tvívegis áður, en í bæði skiptin gripu máttarvöldin í taumana og sendu okkur svo mögnuð hret, að vegurinn um Vatns- skarð lokaðist, svo að úr leikferðinni gat ekki orðið. En svo tókst þriðja tilraun með ágætum og leikur Seyðfirðinganna varð þeim til mikils sóma og okkur heimamönnum hin mesta skemmtan. Leikendur voru um 30 að tölu og má þar fyrst og fremst nefna Emil Emilsson, sem lék Jón, Ólafíu Stefánsdóttur, sem lék kerlingu Jóns, Gunnþórunni Gunnþórsdótt- ur, sem lék Vilborgu og Hermann Guðmundsson, sem lék óvininn og verð ég að segja það, að hann var óhugnanlega líkur þeirri mynd sem ég hef gert mér af þeim háa herra. Leikstjóri var Auður Jónsdóttir úr Kópavogi, sem í mörg undan- farin ár hefur bæði leikið og leikstýrt og dómur minn, sem leikmanns, er sá að í þessu leikriti hafi henni farist leikstjórn mjög vel úr hendi. Á þessu ári eru nú liðin 100 ár frá því að leikstarfsemi hófst á Seyðisfirði og langar mig því að vitna í leikskrá félagsins, en þar segir m.a.: „Það má segja að nokk- uð sé í fang færst hjá litlu leikfé- lagi að ætla sér að setja Gullna hliðið á svið, en tilefnið er ærið, þar sem með því skal minnst, að 100 ár eru liðin frá því að leik- starfsemi hófst á Seyðisfirði, en það var 14. jan. 1883, er sýndir voru sjónleikirnir „Sigríður Eyjafjarðarsól” eftir Ara Jónsson og „Brandur" eftir Sigurð Péturs- son, í því húsi sem við í dag köllum Gamla skóla. Þann vetur voru svo tvær uppfærslur til viðbótar og verður ekki annað sagt, en að leik- starfsemi hafi jafnan verið við lýði á Seyðisfirði síðan ..." Við óskum Seyðfirðingum til hamingju með afmælið og frammistöðuna. Að lokum má svo ekki gleyma unga manninum sem las Prologus afbragðsvel. Annars er fátt að frétta héðan úr Borgarfirði. Langur og leiðin- legur vetur, snjóasamur og kaldur, liðinn samkvæmt almanaki, en sumars lítið vart enn sem komið er. Um páskaleytið gerði hér norð- anhríð og snjókomu og síðan hafa veður verið köld, enda þótt einn og einn hlýr dagur hafi komið. Snjór er hér niður í flæðarmál og fannir til fjalla óvenjumiklar. Héðan hafa nú róið fjórir línubátar og fiskað mjög lítið, en vinna haldist sæmileg í frystihúsinu, aðallega vegna flutnings á togarafiski frá Reyðarfirði, þegar bílfært hefur verið yfir Vatnsskarð. Hrognkelsaveiði hefur alveg brugðist. En vinir okkar farfuglarnir láta ekki á sér standa, þótt kalt næði. Hér á mörkum hins byggilega heims hafa nú vitjað okkar þrest- ir, kríur, lóur og maríuerlur. Lík- lega hugsa þessir sumargestir líkt og bjartsýni Borgfirðingurinn, sem brosti aðeins, þegar aðrir fár- uðust yfir ótíð og harðindum og sagði: „Einhverntíma kemur vor“. Sverrir EIR- PfPUR einangraöar meö plasthúð. Þær eru sérlega með- færilegar og henta vel til notkunar viö margs konar aðstæður, t.d. á sjúkrahúsum. Pípurnar fást í rúll- um, 10-22 mm sverar. Auk þess höfum við óein- angraðar, afglóðaðar eirpípur, 8-10 mm í rúllum og óeinangraðar eirpípur 10-15 mm í stöngum. - Aukin hagkvæmni - minni kostnaður - auðveld vinnsla. SINDRAi rÆ .STÁLHF Borgartúni 31 sími 27222 JÖFUR HF Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600 Amerískur og um það þarf ekki fleiri orð. 6 manna lúxus bíll Fullt verð kr. 506.030,* Sérstakur afsláttur af árg. 1982 96.540,- m. «j 409.490,- Litir: silfurgrár - dökkgrænn sanseraður - drapplitur - dökkblár Framdrif - Vél 2200cc - Sjálfskipting - Aflstýri - Aflhemlar - Hituð afturrúða - Electronisk kveikja Deluxe innrétting - Digital klukka - Fjarstýrður hliöarspegill - Litað gler É

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.