Morgunblaðið - 22.05.1983, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 22.05.1983, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983 57 Karmelklaustríð í Hafnarfirði var upphaflega byggð áríð 1939 og stækkað á árunum 1962—1964. lagi og hlýtur að kosta talsverða sjálfsaf- neitun og umhugsun, enda er tekið mið af því í uppbyggingu Karmelreglunnar þar sem reynslu- og aðlögunartími er langur. Um þetta segir systir Miriam m.a.: „Reynslutími nunnuefna er ýmist hálft eða heilt ár og eftir það klæðast þær ung- nunnubúningi í eitt ár. Síðan vinna þær klausturheitið og eftir þrjú ár þar í frá vinna þær ævilangt heit. Aðlögunartíminn er því allt að fimm ár, enda er talið að eftir þann tíma viti þær hvað þær eru að gera.“ Af þessu má íjóst vera að sá einstakling- ur, sem velur sér það hlutskipi að gerast Karmelíti, verður að vera gefin rík og ein- læg trúarsannfæring og traustur persónu- leiki, til að standast klausturlífið, sem kostar miklar persónulegar fórnir. Karmelsystur hafa því valið sér hlutskipti sitt af innri köllun og einlægri löngun, til að þjóna Guði og tilbiðja, en ekki vegna flótta frá ábyrgð veraldlegs lífs eða erfiðri lífsreynslu. Þær hafa sjálfar valið þessa leið, án innri eða ytri þvingunar. Flestar systurnar í Jófríðarstaða- klaustri gerðust ekki nunnur fyrr en um eða eftir þrítugt, að loknu námi eða störf- um úti í samfélaginu. Og þær hafa auðvit- að ólíkan bakgrunn eins og gerist og geng- ur. Til gamans má geta þess, að systir ólöf, sem er elst þeirra systra, er há- menntuð í norrænum fræðum og hlaut doktorsnafnbót fyrir merka bók sína um Njálu. Hún stundaði m.a. nám við Háskóla íslands árið 1929 og ferðaðist þá mikið um landið á hestum, en þá hafði hún nýlokið ritgerð sinni, „Litteraire Motieven In De Njála", og hafði þar af leiðandi mikinn áhuga á íslenskum söguslóðum og íslensku máli. Hún var skjalavörður í Rotterdam áður en hún tók þá ákvörðun að gerast nunna, en þá ákvörðun tók hún eftir að hafa lesið öll rit heilagrar Theresu, sem áður er getið. Þetta var árið 1953 og vegna fyrri kynna sinna af tslandi og islenskum bókmenntum, ákvað hún að ganga í klaustur Karmelíta á íslandi. ísland kvatt med söknuði Jófríðarstaðaklaustur í Hafnarfirði er látlaust að öllum búnaði, vistlegt og hlý- legt eins og viðmót systranna. Þær búa þar við fábrotna og einfalda lífsháttu enda fel- ur klausturheitið, sem þær hafa gefið, í sér loforð um ævilanga fátækt, einlífi og hlýðni. Þær reyna að haga hinni verald- legu umsýslan á þann veg að hún verði sem minnst til að trufla hin æðri andlegu störf, rósemi hugans og einbeitingu. Rekstur klaustursins hafa þær með hönd- um í sameiningu, en yfirumsjón með hon- um hefur príorinnan, sem kosin er til þriggja ára í senn. Dagurinn er þaulskipulagður og hefst með fótaferð fyrir klukkan sex á morgn- Systurnar átta í Jófríðarstaða- klaustri, f.v.: Systir Elía sem kom 1946, systir Katrín kom 1956, príor- innan systir Miriam kom 1946, systir Veronica sem kom fyrst 1939 og hef- ur verið í klaustrinu frá upphafi, systir Agnes kom 1949 og systir Magdalena sem kom 1947. Fremst til vinstri er systir Ólöf, sem er elst þeirra klaustursystra og hámenntuð í norrænum fræðum en hún gekk í klaustrið árið 1953. Við hlið hennar er systir Theresa sem kom árið 1962. ana. Því næst er hringt til bænastundar og að henni lokinni koma nunnurnar saman í kórnum og hugsa um Guð í klukkustund. Á milli klukkan 7.30 og 8.00 er tekið til og hreinsað og því næst er messa þar sem kaþólskur prestur þjónar fyrir altari. Fyrirbænir, söngur og ritningalestur eru fjórum sinnum á dag, hálftíma í senn og flutt í bænahúsi systranna, kórnum, með reglulegu millibili. Einnig er tveimur klukkustundum á dag varið til hugleiðslu og þagnarstunda. Milli kórbæna og þagn- arstunda er unnið að ýmsum tilfallandi Þrátt fyrir fábrotna og einfalda lífs- háttu hefur tækni nútímans ekki alveg farið fram hjá þeim klaustursystrum. Hér situr systir Veronica í stóllyftu, sem er sú fyrsta sem komið var upp hér á landi. störfum svo sem ræstingu, handavinnu og fleiru, auk þess sem matast er, lesið í ritn- ingunni og spjallað saman. í hálftíma dag hvern leggja þær systur stund á sjálfsnám í íslensku og nota þær gjarnan þann tíma til að Iesa íslensk blöð og þannig geta þær fylgst með því sem efst er á baugi í þjóðlíf- inu. Milli klukkan 20 og 21 er frítími og ráða systurnar þá tíma sínum, hver í sínu herbergi. Starfsdeginum lýkur svo klukk- an 21 með sálmi og bænahaldi og síðan er gengið til náða. Þannig hefur þetta gengið fyrir sig dag fram af degi síðan klaustrið var stofnsett, með örfáum undantekning- um að vísu. En nú er séð fyrir endann á þessu daglega lífsmynstri systranna í Jófríðarstaðaklaustri því þær eru senn á förum til heimalands síns, Hollands. Systurnar kveðja ísland með söknuði þótt þær taki þessari skipan mála af því æðruleysi sem þeim er eiginlegt. „Við þessu er ekkert að gera,“ segir systir Miri- am. „Við erum of fáar og sumar okkar orðnar of lasburða til að halda starfinu áfram. Ég hef skrifað til fjölmargra Karmelklaustra og reynt að fá hingað fleiri systur til starfa ril að starfsemin hér gæti haldið áfram, en það hefur ekki borið árangur. Við munum yfirgefa landið og þjóðina með söknuði því hér hefur okkur liðið vei og það hefur engan skugga borið á samskipti okkar við fólkið í landinu. Hjörtu okkar munu alltaf vera á íslandi eða eins og ein okkar orðaði það: Þegar við komum aftur heim til Hollands verðum við hjartalausar ... “ Og með þessum orðum kveðjum við Karmelsystur í Jófríðarstaða- klaustri með þakklæti fyrir það fórnfúsa starf sem þær hafa unnið hér á landi á undanförnum áratugum. — Sv.G.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.