Morgunblaðið - 01.06.1983, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1983
K"”ES ÞROTTUR
Gudmundur Erlingsson Ottó Hreinsson Kristján Jónsson
markvöróur bakvörður bakvörður
Jóhann Hreiðarsson Ársæll Kristjánsson Júlíus Júlíusson
miðvörður miðvörður tengiliður
bakvörður framlínumaður framlínumaður
Leifur Harðarson Lárentínus Ágústsson Ólafur Ólafsson
bakvörður markvörður markvörður
Sigurkarl Aðalsteinsson Örn Óskarsson Jónas Hjartarson
framlínumaður varnarmaður framlínumaður
Bjarni Harðarson Sigurður Hallvarðsson Baldur Hannesson
framlínumaður framlínumaður framlínumaður
„Þetta verður erfitt
hjá okkur í sumar“
„SUMARIÐ leggst sæmilega vel í
mig, ég er að vísu hóflega bjart-
sýnn. Við höfum aðeins eitt stig eft-
ir fyrstu tvær umferðirnar en
nokkrir af okkar lykilmönnum hafa
átt við meiðsli að stríða, en eru nú
að ná sér aftur þannig að ég held að
þetta fari að smella saman hjá
okkur. Við höfum fengið nokkra
nýja menn frá því í fyrra og því tel
ég að okkur ætti að takast að ná
markmiði okkar en það er að halda
okkur í deildinni,“ sagði Þorvaldur
Þorvaldsson fyrirliði Þróttar í sam-
tali við Mbl.
Þorvaldur, sem er fæddur og
uppalinn Þróttari, sagði að sér
þætti byrjunin á þessu keppnis-
tímabili lofa góðu knattspyrnu-
lega séð.
„Knattspyrnan í sumar verður
betri en í fyrra, félögin eru mikið
með sama mannskapinn og ættu
því að ná betur saman, en mér
finnst þó að það mætti vera
meira um sóknarbolta, hann er
svo miklu skemmtilegri bæði að
spila og ekki síður að horfa á.
Við gerum okkur fulla grein
fyrir því að þetta verður erfitt
hjá okkur í sumar en við erum
með góða blöndu af ungum og
efnilegum strákum og svo gamal-
reyndum mönnum og með sam-
stilltu átaki ætti þetta að takast.“
Lokastaðan, hvernig verður
hún?
„Ef ég sleppi því að hugsa um
Þrótt þá verður Víkingur, Valur,
ÍA og Keflavík í toppbaráttunni.
fBV, KR og Breiðablik verða um
miðja deild en ÍBÍ og Þór eiga
erfitt uppdráttar í sumar.“
Þorvaldur Þorvaldsson.
„Markmiðið að halda
sér í 1. deildinni"
„Ég kann mjög vel við mig hér
hjá Þrótti, annars hefði ég varla
verið hér allan þennan tíma, en
þetta er þriðja árið mitt hjá Þrótti.
Sumarið leggst nokkuð vel í mig, en
þó tel ég líklegt að þetta verði tals-
vert ströggl hjá okkur eins og al-
gengt er hjá nýliðum í 1. deild.
Markmiðið hjá okkur er að halda
okkur í deildinni og ég held að
okkur takist það. Nokkrir „gamlir“
Þróttarar hafa komið til liðs við
okkur og auk þess Örn Óskarsson,
sem getur að vísu ekki leikið með
okkur fyrr en eftir u.j>.b. mánuð
vegna meiðsla,“ sagði Ásgeir þjálf-
ari.
Hvernig heldur þú að mótið
verði í sumar?
„Ég held að þetta mót verði
nokkuð skemmtilegt, a.m.k. hafa
verið skoruð mörg mörk það sem
Ásgeir Elíasson
af er og er það ekki það sem fólk
hefur gaman af að sjá? Annars er
alltaf matsatriði hvað er
skemmtileg knattspyrna, mér
finnst Valur, Víkingur og ÍA
spila skemmtilegan bolta og einn-
ig hefur Breiðablik gert það und-
anfarin ár og þeir halda því ef-
laust áfram. Þórsliðið hefur einn-
ig spilað nokkuð vel það sem af er
og ég held því að deildin verði
nokkuð spennandi. Liðin eru
nokkuð jöfn og allir geta unnið
alla og má því vænta óvæntra úr-
slita í nokkrum leikjum í sumar.“
Viltu spá einhverju um loka-
stöðuna?
„Nei, ég treysti mér ekki til að
setja neitt lið í eitthvert ákveðið
sæti, en Valur og Víkingur verða
allavega í toppbaráttunni. Um
annað vil ég ekki spá neinu.“
„Sum liðin eru með
miklar kýlingar“
„ÞETTA leggst ágætlega í mig en
þetta verður ekki létt hjá okkur en
með baráttunni ætti okkur að tak-
ast að halda okkur í deildinni,"
sagði Ómar Siggeirsson formaður
knattspyrnudeildar Þróttar.
„Liðin eru nokkuð ólík knatt-
spyrnulega séð. Sum liðin eru
með miklar kýlingar en önnur
bæði við og fleiri leikum létta og
skemmtilega knattspyrnu.
Til að hægt sé að leika góða
knattspyrnu þurfum við að fá
betri velli og það er fyrir neðan
allar hellur að leika í 1. deild á
malarvelli. Ég held að við séum
komnir eins langt og hægt er að
komast á þeim völlum sem við
höfum hér á landi. Ef við viljum
Ómar Siggeirsson
fá skemmtilegri knattspyrnu
verðum við að fá slétta og góða
grasvelli."
— Hvað með peningahliðina?
„Hún hefur ekki verið mikið
vandamál sl. tvö ár og við stefn-
um í að hafa það eins í ár. Ef rétt
er haldið á málum og peningun-
um ekki kastað í veisluhöld og
utanlandsferðir fyrir Pétur og
Pál þá er þetta ekki svo erfitt.
Þetta er að vísu óhemju dýrt bæði
peningalega og ekki síður hvað
varðar vinnuna sem menn leggja
á sig. Þetta er vinna í 24 tíma á
sólarhring."
— Vilt þú spá einhverju?
„lA, Víkingur og Valur verða á
toppnum en ég vil ekki spá um
röð annara liða.“