Morgunblaðið - 05.06.1983, Qupperneq 1
Stórviðburður á
Laugardalsvelli
Stuttgart leikur gegn Víkingi og Stjörnuliði
Allir á Völlinn!
Slórviðburður verður á
knattspyrnusviðinu í þessari
viku þegar vestur-þýzka liðið
Stuttgart kemur hingað í boði
Víkings og leikur hér tvo leiki á
Laugardalsvelli. Fyrri leikurinn
verður gegn Víkingi fimmtu-
dagskvöldið 9. júní kl. 20 og
seinni leikurinn verður laugar-
daginn 11. júni kl. 14 gegn
stjörnuliði. Heimsóknin er í til-
efni af 75 ára afmæli knatt-
spymufélagsins Víkings.
í liði Stuttgart er valinn mað-
ur í hverju rúmi enda varð liðið
i 3. sæti i einni sterkustu knatt-
spyrnudeild í heimi, þýzku
bundesligunni. Fyrstan skal
frægan telja Ásgeir Sigurvins-
son, sem leikur nú á íslandi eftir
tveggja ára hlé. Aðrir frægir
leikmenn eru bræðurnir Bernd
og Karl-Heinz Förster, báðir
landsliðsmenn, Allgöwer, einn
markhæsti leikmaðurinn í
þýzku knattspyrnunni og Didier
Six, franski landsliðsmaðurinn.
Tvær knattspyrnustjörnur,
portúgalski leikmaðurinn Eus-
ebio og „Víkingurinn“ Lárus
Guðmundsson munu leika með
Víkingi gegn Stuttgart.
I stjörnuliðinu eru sannkall-
aðar stórstjörnur. Eusebio mun
leika í liðinu og aðrir frægir
menn eru Hollendingurinn Arie
Haan, sem unnið hefur til fleiri
verðlauna en nokkur annar, fé-
lagi hans Piet Schrijvers, lands-
liðsmarkmaður Hollands og ný-
bakaður bikar- og deildarmeist-
ari og leikmaður ársins í Holl-
andi, og Gary Rowell, marka-
skorarinn mikli frá Sunderland.
Landsliðsmaðurinn Henrotoy
frá Belgíu mun leika með
stjörnuliðinu og brezku bak-
verðirnir Hamilton frá Sunder-
land og Anglais frá West Brom-
wich Albion.
Nokkrar íslenzkar stjörnur
munu leika með stjörnuliðinu,
Lárus Guðmundsson, Sævar
Jónsson, Jóhannes Eðvaldsson
og hugsanlega Pétur Pétursson.
Dómari í fyrri leiknum verður
Óli Olsen og línuverðir Baldur
Scheving og Sveinn Sveinsson.
Seinni leikinn dæmir Grétar
Norðfjörð og Iínuverðir eru
Friðgeir Hallgrímsson og Eyj-
ólfur Ólafsson.
Enginn knattspyrnuáhuga-
maður getur látið leiki Stuttgart
fram hjá sér fara. ALLIR Á
VÖLLINN!
Asgeir Sigurvinsson:
„Ég hlakka mikið
til að spila aftur
á íslandi44
Stuttgart hefur skoraö flest
mörk í þýzku deildinni í vetur
„Ég hlakka mjög mikið til að
spila heima á íslandi, það eru ná-
kvæmlega tvö ár síðan ég spilaði
síðast á Laugardalsvellinum, í
landsleik gegn Tékkum vorið
1981,“ sagði Asgeir Sigurvinsson er
hann var spurður um komandi leiki
Víkings og stjörnuliðsins gegn
Stuttgart.
„Það kom eins og himnasending
fyrir okkur strákana í Stuttgartlið-
inu að fá boðið frá Víkingi, það átti
að fara í langa og stranga keppnis-
ferð til Bandaríkjanna en allir vildu
miklu frekar fara til fslands og spila
þar tvo leiki. Ég heyri það á strák-
unum að þeir eru spenntir fyrir ís-
landsferðinniý sagði Ásgeir.
„Eins og staðan er núna, koma
allir leikmenn Stuttgart til íslands
nema Niedermayer, hann gekkst
undir uppskurð á hné. Nú þegar
tveir leikir eru í deildinni virðist sem
að Stuttgart ætli að ná takmarki
sínu að vinna þátttökurétt í Uefa-
keppninni næsta ár. Menn eru auð-
vitað mjög ánægðir með það, og
vona að næsta keppnistímabil verði
skemmtilegt og árangursríktí*
Stuttgart er sóknarlið
— Hvernig myndir þú lýsa Stutt-
gartliðinu?
„Þetta er mikið sóknarlið, sem
sést bezt á því að við höfum skorað
flest mörk allra liða í Bundesligunni
á þessu keppnistímabili. Hins er
það óvenjulegt, að flest mörkin eru
skoruð af miðjuleikmönnum, t.d.
er markakóngurinn Allgöwer tengi-
liður.
Við höfum góðan markvörð og
afar sterka vörn. Karl Heinz Förster
er leikmaður á heimsmælikvarða
og bróðir hans Bernd er einnig
mjög góður. Við hliðina á Karli
Heinz er Makan, einn bezti „li-
beró“ deildarinnar. Á miðjunni er
Allgöwer, geysilega markheppinn
leikmaður. Hann hefur leikið 6 eða
7 landsleiki fyrir Þýskaland en hef-
ur ekki gefið kost á sér í vetur vegna
ósættis við einvaldinn Derwald.
Auk mín og Allgöwer leika á miðj-
unni þeir Kempe og Olicher, sem
leikið hafa unglingalandsleiki og B-
landsleiki. í framlínunni hafa leikið
i vetur, Reichert, Kelch og Dieter
Six. Reichert hefur skorað mikið í
vetur, Six þekkja menn heima á ís-
landi frá HM á Spáni, þegar hann
lék með franska landsliðinu og
Kelch er þýskur Iandsliðsmaður, lék
sinn fyrsta leik heima á íslandi þeg-
ar Þjóðverjar unnu okkur 3:1 og
skoraði eitt mark í þeim leik. í
heildina litið tel ég Stuttgart gott lið
á Evrópumælikvarða"
— Hvernig hefur þér sjálfum lík-
að í Stuttgart?
„Mér hefur líkað mjög vel hér. Ég
var strax boðinn velkominn í hóp-
inn og andinn hér er mjög góður.
Hins vegar hefur þetta gengið upp
og ofan hjá mér í vetur. Eg átti lengi
vel við slæm meiðsli að stríða og
missti úr hluta af keppnistímabil-
inu. Um mitt mót náði ég mér vel á
strik, komst í fína æfingu og fékk
góða dóma en seinni hluta mótsins
hef ég aftur átt í meiðslum og er
ennþá ekki orðinn nógu góður þótt
framfarir hafi orðið nokkrar;*
— Nú hefur þú skorað minna í
vetur en oft áður, er einhver sérstök
skýring á þvi?
„Skýringin er fyrst og fremst sú,
að við Allgöwer leikum báðir
vinstra megin á vellinum. Hann
hefur verið í miklu stuði í vetur og
því sótt mikið fram á völlinn. Ég hef
séð um „varadekkningu“ fyrir hann
og fer aftur á völlinn á meðan.
Svona verður þetta á meðan All-
göwer verður í þessu markastuðiý
sagði Ásgeir að lokum.
Snilldartaktar
Eins og alþjóð er kunnugt hefur
Ásgeir Sigurvinsson verið þekktasti
og tvímælalaust bezti knattspyrnu-
maður okkar íslendinga um margra
ára skeið. Hann gerðist atvinnu-
maður með Standard Liege í Belgiu
1973 þegar hann var aðeins 18 ára
gamall og stóð sig frábærlega vel.
1981 lá leiðin til Bayern Munchen í
Þýskalandi og í fyrra var hann seld-
ur til Stuttgart fyrir stórfé. Meiðsli
hafa háð honum í vetur en þegar
hann var heill heilsu í vetur sýndi
hann snilldartakta og var talinn í
hópi beztu tengiliða í þýskri knatt-
spyrnu. Ásgeir er á uppleið aftur
eftir meiðsli og verður vonandi í
miklu stuði á Laugardalsvellinum
9. og 11. júní. Enginn knattspyrnu-
unnandi má sleppa þessum tveimur
stórleikjum.