Morgunblaðið - 05.06.1983, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 05.06.1983, Blaðsíða 9
Ögmundur fyrirliði fékk ósk sína uppfyllta í fyrra — varð aðalmarkvörður Víkings eftir margra ára bið ÖGMUNDUR Kristinsson fékk ósk sína uppfyllta í fyrra, að vera fastamaður í markinu hjá Víkingi. Hann var varamaður hjá félaginu 1971-74 en gekk síðan í önnur félög og spilaði með þeim. Jafnframt beið hann eftir tækifærinu, að koma aftur í Víking og það kom í fyrravor, þegar Diðrik Ólafsson hætti í markinu. Ögmundur kom aftur í Víking og hefur síðan verið markmaður númer eitt og skilað þeirri stöðu með rnikilli prýði. Ögmundur átti heima við gamla Sogaveginn, þar sem nú er Háaleit- isbraut, en 11-12 ára flytur hann í Smáíbúðahverfið og gengur að sjálfsögðu í hverfisfélagið, Víking. „Þjálfarar mínir fyrstu árin voru Kort Sævar Ásgeirsson og Berg- steinn Pálsson. Minn flokkur var ekki sterkur, við unnum engin mót og enginn úr flokknum héfur hald- ið áfram nema ég. Þegar ég var á síðasta árinu í 2. flokki var sterkur árangur á fyrra ári, Stebbi Hall- dórs, Gunnar Örn, Óli Jóns og fleiri kosti og galla. Ég var óheppinn að lenda hjá lélegu félagi. Okkur gekk vel fyrsta árið sem ég var úti og allt var sett á að komast upp í 1. deild í Belgíu. En herzlumuninn vantaði og fjárhagsörðugleikar ollu því að selja varð leikmenn og þjálfari var ráðinn úr röðum leikmanna. Það hallaði einnig undan fæti hjá mér — ég var óheppinn að því leyti, að eiga í stöðugum meiðslum og vistin í Belgíu varð heldur döpur. Ég frétti að Royale Union hefði fallið alla leið niður í 4. deild — slíkt var hrunið hjá félaginu. En þetta var dýrmæt reynsla — sem ég undir engum kringumstæðum vildi prófa á nýjan leik. Atvinnumennska er ekki bara dans á rósum" — Hvaða möguleika telur þú, að Víkingur hafi á að verja íslands- meistaratitilinn? „Við höfum ekki byrjað íslands- mótið of vel — en þrátt fyrir það þá tel ég möguleika okkar allgóða. Ef við náum að leika jafna leiki, détt- um ekki niður á plan meðal- mennskunnar, þá eigum við vissu- lega möguleika. En það verður erf- itt, jafnvel þó ég telji Víking hafa betra liði á að skipa en í fyrra. Leik- menn eins og Aðalsteinn Aðal- steinsson, Heimir Karlsson, Jó- hann Þorvarðarson og Ómar Torfa- son verða allir sterkari í sumar, að ég tel. En spurningin er í raun hvernig önnur lið leika í sumar, hvort þau hafa tekið meiri framför- um en við“ og þá loksins vann ég mót með Vík- ingi,“ segir ögmundur. Byrjaði seint í marki Eins og svo margir markmenn byrjaði Ögmundur ekki að leika þá stöðu strax. „Ég byrjaði ekki að leika í marki fyrr en á seinna ári í 3. flokki. Það vantaði mann í markið og Kort Sævar fékk mig til þess að fara í markið. Ég fann mig eins og skot í markinu og það hefur verið mín staða síðan. Árið 1971 var ég fyrst varamarkmaður í meistara- flokki og var það fram á árið 1974. Diðrik var upp á sitt bezta á þessum árum og var í landsliðinu og ég fékk því skiljanlega fáa leiki. Haustið 1974 stóð ég á krossgötum, ég sá að ekki gat ég endalaust setið á bekkn- um. Eg hafði um tvennt að velja, að fara í annað félag eða hreinlega hætta" — Og hvað varð fyrir valinu? „Ég ákvað að hætta. En sú á- kvörðun breyttist strax um vetur- inn. Ég var að læra prent í Guten- berg með Jóni Hermannssyni og Jón plataði mig og Birgi Einarsson úr Val til að byrja að æfa með Ár- manni, en hann var þjálfari þar. Það varð úr að ég spilaði með Ár- manni næstu þrjú árin. TVö árin, þegar Hólmbert Friðjónsson þjálf- aði okkur vorum við í 3. sæti í 2. deild og aðeins feti frá 1. deild. Árið 1978 ákvað ég að breyta til. Mig langaði mest í Víking en óttaðist að fara beint á bekkinn aftur svo að ég valdi Fylki, sem þá var að koma upp í 2. deild í fyrsta skipti. í Fylki var ég í fjögur ár og líkaði mjög vel. Okkur gekk ágætlega og hápunkt- urinn var þegar við unnum Reykja- víkurmótið 1981. Ég var samt alltaf í viðbragðsstöðu og beið eftir að Diðrik hætti, þá ætlaði ég að ganga aftur í Víking" Tækifærið kom 1982 — Og tækifærið kom svo eftir íslandsmótið 1981? „Já, eftir íslandsmótið 1981, þeg- ar Víkingur varð íslandsmeistari í fyrsta skipti í 57 ár, ákvað Diðrik að hætta. Um veturinn tilkynnti ég félagaskipti yfir í Víking. Það voru auðvitað mikil viðbrigði að koma yfir í Víking því þótt vel væri að málum staðið hjá Fylki var allt með öðrum brag hjá Víkingi, enda miklu stærra félag. Nú auðvitað voru viðbrigðin mikil að kynnast félaginu aftur eftir öll þessi ár, þar hafði orðið gjörbreyting, Víkingur orðinn stórveldi í íþróttum. Nú, það var mikil breyting að koma til þjálf- arans Youri Sedovs. Það opnaðist nýr heimur þegar maður kynntist honum hann er frábær þjálfari. Við Sigurjón Elíasson kepptum um markmannstöðuna og Youri vildi ekki gera upp á milli okkar fyrir fyrsta leikinn í Reykjavíkurmótinu og sagði að við ættum að gera það upp milli okkar tveggja. Við fórum út á völl, tókum steina í annan lóf- ann og völdum. Ég sá að Sigurjón kreppti annan meira en hinn og vann hlutkestið. Við unnum 1:0 og ég varði vítaspyrnu. Ég hélt stöð- unni og hef verið í markinu síðaní‘ — Varst þú nokkuð hræddur að koma úr 2. deild upp í 1. deild? „Nei, ég var ekkert hræddur og ég fann mig vel í markinu í fyrra- sumar. Ég vil meina að ég hafi verið þokkalega góður markmaður tvö síðustu árin með Fylki en ég var ekki í sviðsljósinu frekar en aðrir leikmenn 2. deildar. Ég var ekkert betri markvörður í fyrra en árið áð- ur hjá Fylki en ég var óþekktur markmaður og fékk því betri krítík en ella. Staðreyndin er sú að margir strákar í 2. deild geta vel spjarað sig í 1. deild“ Árangurinn í fyrra fór fram úr björtustu vonum — Gerðir þú þér miklar vonir í 1. deildinni með Víkingi? „Ég gerði mér ekki of háar hug- myndir, en innst inni vonaði ég auð- vitað að við héldum íslandsmeist- aratitlinum. Árangur sumarsins fór auðvitað fram úr mínum björtustu vonum, við urðum Reykjavíkur- meistarar, meistarar meistaranna og loks íslandsmeistarar. Það var rosaleg spenna í síðasta leiknum gegn Skagamönnum og ég man að síðustu 3-4 mínúturnar voru óskap- lega lengi að líða og við Stebbi Hall- dórs gerðum ekki annað en telja hvor öðrum trú um að við værum að verða meistarar. Það var ólýsan- legur fögnuður þegar leikurinn var flautaður af og við vorum meistar- arí‘ — Nú spiluðuð þið eftirminni- legan leik á Spáni gegn Real Soici- dad, var það ekki mikil upplifun? „Jú, ferðin til Spánar var há- punktur sumarsins. Samheldnin í hópnum var hreint ótrúleg, þarna voru menn komnir saman til þess að ljúka ákveðnu verkefni, þetta var lokapunkturinn á erfiðu en ár- angursríku sumri. Ég var auðvitað hissa hvernig leikurinn þróaðist og að tapa aðeins 2:3 gegn þessu sterka atvinnumannaliði, sjálfum Spánar- meisturunum, var auðvitað hreint ótrúlegt. Móttökurnar voru frábærar í alla staði, jafnvel smáatriðin voru þaul- hugsuð hjá Spánverjum. Ég get nefnt eitt atriði því til staðfestingar. Á æfingu daginn fyrir leikinn var óskaplegur hávaði í hátölurum beint fyrir aftan markið. Þetta fór mjög í taugarnar á mér og ég gat ekki einbeitt mér. Ég bað um að slökkt yrði á þessu en það fékkst ekki fram. Það var ekki fyrr en löngu seinna að ég fekk skýringu á þessu. Það var verið að líkja eftir hávaðanum frá áhorfendum og venja okkur við hann! — Hvernig lýst þér á sumarið? „Mér lýst ekkert illa á það. Við erum seinir í gang en ég hef þá trú að við blöndum okkur í toppbarátt- una með Akranesi og Val. Ég vona svo bara að við verðum heppnir í Evrópukeppninni, Liverpool er óskalið númer eitt, tvö og þrjú!‘ Shrtmps lcoiandtc Seafood Producl Coohed an| RÆKJUR k. A A A A KET: 2000 gr. Djúptrysl - Quick Irozsn asco jrsAz'án* L A A X 1 Saltfiskur Humar Rauðspretta Lúða Skelfiskur Harðfiskur Rækja Skötuselur Lax Ýsa Steinbítur Silungur Fæst í matvöruverslunum Sími 86722

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.