Morgunblaðið - 05.06.1983, Side 7

Morgunblaðið - 05.06.1983, Side 7
7 4. flokkur: „Setjum stefnuna á að komast í úrslitakeppni“ segir Bjarni Gunnarsson, þjálfari „Mér líst þokkalega á sumarið hvað 4. flokk viðkemur. Við stefnum á að komast í úrslita- keppni 4. flokks“, sagði Bjarni Gunnarsson þjálfari 4. flokks í stuttu spjalli. Strákarnir hans byrjuðu ekki vel í Reykjvíkurmót- inu en í þremur síðustu leikjum hafa þeir náð að spila vel - unnu Fram 4-0, Val 3-2 og töpuðu fyrir KR 1-2. KR hefur á að skipa geysi- sterku liði í 4. flokki, i raun yfir- burðaliði og minnsti sigur KR fyr- ir leikinn gegn Víking var 4-0 gegn Þrótti í Reykjavíkurmótinu. „Það hafa verið um 25 strákar á æfingum hjá mér og þar á meðal eru margir efnilegir - en þrír alveg sérstök efni. Leikmenn sem eiga eftir að verða geysisterkir - ef þeir halda sig vel að knattspyrnunni. Þeir eru Björn Einarsson, Arnar Arnarsson og Lúðvík Bragason. Ég vænti mikils af þeim í framtíð- inni - en ekki má skilja orð mín svo, að fleiri góðir leikmenn séu ekki í Víkingi. Þvert á móti - við höfum sterkan kjarna og efnilega leikmenn, þó þessir beri nokkuð af‘. — Hvernig hefur þú byggt upp æfingar? „Ég hef lagt megináherzlu á boltaæfingar - ég hef verið með margar æfingar, sem Youri Sedov, fyrri þjálfari Víkings, lagði upp fyrir yngri flokka félagsins. Reyni að hafa æfingar stuttar, en hnit- miðaðar. Ég finn mikinn mun á strákunum eftir að við tókum upp æfingaprógram Youri. Við höfum verið með þrjá stráka á móti ein- um á litlum ferningi, eða 5 á móti 3. Þar hafa strákarnir orðið að vera á mikilli hreyfingu, og ýmist orðið að gefa viðstöðulaust eða eftir eina eða tvær snertingar. Strákunum finnst gaman að þessum æfingum - og það tel ég ákaflega mikils virði. Að æfingar verði léttar, að létt sé yfir strákun- um og þeir hafi gaman af því sem þeir eru að gera - sé svo, þá er mik- ið unnið“, sagði Bjarni Gunnars- son. Til almannaheflla i yorutiu ar Á 40 ára afmælinu sendum viö öllum viðskiptavinum okkar árnaðaróskir. Jafnframt levfum við okkurað vona að félagið hafi náð því markmiði sínu að auka öryggi þeirra, og milda þau áföll sem sumir hafa orðið fyrir. Við vitum að vöxtur og viðgangur tryggingafélags er m.a. háður góðri afspurn - viðhorfum og umsögnum þeirra sem hafa orðið fyrir tjóni og sækja síðan bætur í hendur tr/ggingarélags síns. Starfsemi okkar hefur aukistjafntog þéttá undanfömum 40árum. Nú eru starfsmenninmir 55 og sjálfstæðar skrifstofur á Akureyri, Akranesi, Selfossi og í Hafnafirði. Aðalskrifstofan er í hinum nýju og rúmgóðu húsakynnum í Síðumúla 59. Umboðsmenn eru um allt land. Starfsemi okkar spannar öll svið trygginga - smá og stór. Á seinni árum höfum við annast stærri verkefni en nokkru sinni fyrr - tryggingar fyrir íslenska verktaka íorku- og stóriðjuframkvæmdum. Um leið og við þökkum viðskiptin á liðnum árum viljum við nota tækifærið til að minna enn á nauðsyn fyrirhyggju ... ...þaðtryggirenginn eftírá.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.