Morgunblaðið - 05.06.1983, Blaðsíða 4
4
Jean Paul Colonval, þjálfari
Víkings, og Ogmundur
Kristinsson, markvörður
liðsins og fyrirliði, leika sér
með knöttinn á Garðaflöt
við Hæðargarð.
Hvalreki að
fá lið eins
og Stuttgart
í heimsókn
— segir Jean Paul Colonval þjálfari Víkings.
Hann telur Arnór, Lárus og Asgeir hafa verið í
hópi sterkustu leikmannanna í belgísku
knattspyrnunni
Skömmu áður en keppnistíma-
bilið hófst hérlendis í vor kom Bel-
gíumaðurinn Jean Paul Colonval til
starfa hjá Víkingi. Hann er 43 ára
að aldri, margreyndur sem leik-
maður með félögum í Belgíu, þar á
meðal hjá Standard Liege, og eitt
áríð varð hann markakóngur í bel-
gísku 1. deildinni. Er hann hætti
sjálfur að keppa hóf hann að þjálfa
og sem slíkur hefur hann náð góð-
um árangri. Auk þessa hefur hann
verið með þætti f útvarpi og sjón-
varpi í Belgíu og skrifað fasta þætti
í blöð og tímarit. Hann gjörþekkir
þvi til knattspyrnunnar á megin-
landi Evrópu og í stuttu spjalli var
hann beðinn að segja álit sitt á þeim
íslenzku leikmönnum, sem leika
eða hafa leikið í Belgíu.
„í heildina er óhætt að segja, að
íslenskir knattspyrnumenn hafa
frábært orð á sér í Belgíu og sömu
sögu er að segja frá V-Þýzkalandi“
sagði Jean Paul Colonval. „Asgeir
lék frábærlega með Standard Liege
og fólk dáðist að honum, ekki að-
eins sem leikmanni, heldur einnig
sem persónu. Hann kom kornung-
ur til Belgíu, kunni ekki málið og
þekkti engan. Hann lét það þó ekki
á sig fá og var fljótur að aðlagast
hinum framandi aðstæðum, sem
segir bezt hve heilsteyptur hann er.
Hann hugsaði um vinnu sína og
framtíð, hann hafði metnað sem til
þarf og lét ekki undir þeim rnikla
þrýstingi, sem óneitanlega fylgir þvi
að vera I sviðsljósinu hjá frægu
félagi.
Ég tel bæði Ásgeir Sigurvinsson
og Arnór Guðjohnsen hafa verið í
hópi 11 beztu leikmannanna í bel-
gisku knattspyrnunni. Þjálfari
Lokeren er einn bezti vinur minn og
hann hefur alltaf sagt, að Arnór
væri frábær leikmaður. Honum
svipar á margan hátt til Ásgeirs Sig-
urvinssonar. Salan á Arnóri til
Anderlecht sýnir vel hve Arnór er
Sækjum
ferðahópa
til Reykjavíkur
Aöur fyrr buðum við
stórliðum á hestbak
og unnum svo!
Hestaleigan
Laxnes
Mosfellsveit
Sími 66179
Kæf a r nosann
Loftræ stina
í qrasi ð
Erum rr beö og eyöa mi Sandur moldinc hana frí Einnig 1 fyllingai í ýmsur íeö sand í garöa til aö osa. þurrkar \ og gerir skari. fyrirliggjandi refni og möl n stæröum
SAND- OG MALARSALA ^ ww L SÆVARHOFDA 13 - StMI: 81833 4