Morgunblaðið - 05.06.1983, Side 5
5
mikils metinn í Belgíu. Að mínu
mati er Lárus Guðmundsson í hópi
10 beztu „strikera" í Belgíu, en
meiðsli hafa háð honum nokkuð.
Sævar Jónsson stendur sig vel með
Cercle Brugge. Ég vil einnig nefna
Guðgeir Leifsson, sem ég þjálfaði
hjá Charleroi. Undir minni stjórn
lék hann frábærlega með liðinu, en
hann lenti síðan í andstöðu við
þjálfarann og fékk ekki það sem
hann átti skilið út úr dvöl sinni hjá
félaginu. í heildina hafa íslenzku
strákarnir staðið sig mjög vel, verið
íslenzkri knattspyrnu til mikils
sóma og vakið athygli á landinu
ykkar.
Um heimsókn Stuttgart-Iiðsins
til Víkings vil ég segja það, að fyrir
íslenzka knattspyrnu, bæði leik-
menn og áhorfendur, er slík heim-
sókn hvalreki. Stuttgart leikur
knattspyrnu eins og hún gerist bezt
og af leik liðsins má mikið læra“
sagði Jean Paul Colonval.
Eins og áður sagði kom Colonval
til starfa hjá Víkingi skömmu áður
en keppnistímabilið hófst. „Ég
kom því miður þremur vikum of
seint til íslands og við urðum fyrir
vikið á eftir í undirbúningi fyrir ís-
landsmótið. Ég vona þó að þetta
smelli saman hjá okkur og lið Vik-
ings náði að standa sig vel í íslands-
mótinu“ sagði Colonval.
Eins og áður sagði á Víkings-
þjálfarinn litríkan feril að baki sem
leikmaður. Þau ár verða þó ekki
rakinn hér, aðeins sögð litil saga af
því hvernig það atvikaðist, að Jean
Paul Colonval ákvað að helga
knattspyrnunni krafta sína.
„Sem strákur æfði ég knatt-
spyrnu, en vegna aðstæðna heima-
fyrir hætti ég æfingum aðeins 12
ára gamall" segir Jean Paul Colon-
val. „Ég var síðan orðinn 18 ára er
ég sá fyrrum félaga mína í félaginu
White Star í leik. Þar var meðal
leikmanna strákur, sem ég hafði
aldrei trúað að gæti orðið knatt-.
spyrnumaður. Ég hugsaði með mér,
að fyrst þessi strákur kæmist í lið
gæti ég orðið í fremstu röð. Ég hóf
æfingar af krafti daginn eftir og
veðjaði við vin minn um, að ég yrði
kominn í lið hjá White Star nokkr-
um vikum síðar eða fyrir 1. nóvem-
ber. Ég tapaði þessu veðmáli að
vísu, þar sem ég lék minn fyrsta leik
1. nóvember, en ekki fyrir þann
dag. Með White Star lék ég síðan
frá 1958-1964 og síðan með Tilleur
í Liege og með liðinu varð ég
markakóngur í Belgíu keppnistíma-
bilið 1964-1965. Síðan Iá leiðin til
Standard Liege og fleiri félaga áður
en ég gerðist þjálfari. Ég hef sótt
þjálfaranámskeið í Belgíu og Eng-
landi og þjálfað víða. Annað slagið
fær maður þó nóg af knattspyrn-
unni og til að hvíla mig helgaði ég
öðrum störfum krafta mína síðasta
vetur. Ég var þó ráðgjafi hjá Metz í
1. deildinni í Frakklandi síðastlið-
inn vetur, en hafði lokið störfum
mínum þar er þeir Guðgeir Leifsson
og Gunnar örn Kristjánsson höfðu
samband við mig fyrir hönd Vik-
ings. Ég var kominn hingað nokkr-
um dögum síðar og lizt vel á það
sem ég hef séð, sagði VikingsþjálL
arinn Jean Paul Colonval að lok-
um.
NÝSMÍÐI — VIÐGERÐIR
Önnumst allar viögeröir á fiskiskipum, stál- og trévinna. Vió lengjum
skip af öllum stæröum, smíöum og setjum niöur allskonar yfirbygg-
ingar, einangraóar, klæddar og innréttaðar aö vild. Setjum nióur
vélar og tæki. Leitió upplýsinga og tilboða. Löng reynsla — vönduó
vinna. %
Skipasmíöastöö
Box 209 — 222 Hafnarfirði
Símar 50520 — 52015.
\