Morgunblaðið - 05.06.1983, Síða 13
13
laust besti þjálfari sem ég hef haft.
— Hver var fyrsti leikurinn þinn
með Víkingi?
— Sú stóra stund rann upp seint
í íslandsmótinu norður á Akureyri,
er við mættum KA. Ég fékk óska-
byrjun, skoraði fljótlega í leiknum
og það hjálpaði mér mikið. Við
unnum þennan leik og ég var fasta-
maður í liðinu út sumarið. Eftir-
minnilegasti leikurinn þetta sumar
var tvímælalaust leikurinn við KR,
síðasti leikur mótsins. Ég hugsaði
um það eitt að vinna fyrir Víking,
tilfinningar komu þarna ekkert
inní. Við urðum að vinna og það
tókst. Mér tókst að skora fyrra
markið og leggja upp það seinna í
2:0 sigri Víkings. Það var mikil
gleði hjá mér eftir leikinn, að verða
loks íslandsmeistari.
Jafnasta liðið
í fyrra
— Þú hefur verið ákveðinn í að
halda áfram með Víkingi árið eftir?
— Já, alveg hundrað prósent á-
kveðinn. Ég var hrifinn af knatt-
spyrnunni sem Víkingur lék og
mjög ánægður með Youri þjálfara.
Okkur tókst að halda titlinum og
það er mjög erfitt. Ég tel að við höf-
um unnið mótið á því að tefla fram
heilsteyptasta og jafnasta liðinu og
það slapp í mótinu án verulegra
meiðsla
— Nú skoraðir þú ekki mikið af
mörkum í fyrra, hefur þú verið
gagnrýndur fyrir það?
— Nei, enda er ég þannig spilari
að ég kem mikið aftur og reyni að
skapa færi fyrir aðra, t.d. miðju-
mennina. Einnig reyndi ég að skapa
tækifæri fyrir hina miðherjana,
Lárus og síðan Heimi. Þeir eru
svipaðir spilarar að mínu mati,
báðir gegnumbrotsmenn.
— Nú hefur þú farið í nokkrar
keppnisferðir með Víkingi. Hver er
eftirminnilegust?
— Keppnisferðin til Rússlands
var mjög eftirminnileg, það var lífs-
reynsla að fara þangað. En ferðin til
Spánar í fyrra var enn eftirminni-
legri og leikur okkar við Real Soci-
dad í Evrópukeppninni er stærsta
stundin í lífi mínu sem knattspyrnu-
manns. Víkingsliðið lék af mikilli
skynsemi í þessum leik og baráttan
var ótrúleg. Við gátum borið höf-
uðið hátt þrátt fyrir 3:2 tap og ekki
spillti það fyrir ánægjunni hjá mér
að mér skyldi takast að skora annað
markið. Spánverjarnir sögðu við
okkur eftir leikinn að engu
spænsku félagi hefði tekist að skora
mark á þessum velli gegn Real í heilt
ár á undan þessum leik. Real var að
mínu mati mjög sterkt lið, enda
komst það í 4-liða úrslitin og tapaði
þar naumlega fyrir Hamburger. Ef
við hefðum gert okkur grein fyrir
því strax í leiknum gegn Real hér
heima að við ættum möguleika
hefði við átt að geta náð jafntefli
eða jafnvel unnið ef heppnin hefði
verið með okkur.
Mörg skemmtileg
verkefni
í sumar
— Að lokum Sverrir, hvernig líst
þér á sumarið?
— í sumar eru ný viðhorf. Vand-
ræði með þjálfara sköpuðu óvissu
og núverandi þjálfari kom því seint.
Hann starfar öðru vísi en Youri og
við höfum ekki kynnst honum
nema lítillega. En hann hefur hug-
myndir, sem mér líst vel á. Það verð-
ur alltaf erfiðara og erfiðara að
verja titilinn en það ætti að geta
tekist. Það verður við mörg
skemmtileg verkefni í sumar. Stutt-
gartleikurinn verður eflaust
skemmtilegur, enda liðið á heims-
mælikvarða. í haust tekur svo Ev-
rópukeppnin við. Draumurinn er
að dragast á móti liði frá Kýpur eða
Möltu og eiga möguleika á að kom-
ast í 2. umferð. Ef ekki, þá Liver-
pool, það væri happdrættisvinn-
ingur að fá það lið.
mjög efnilegir strákar sem eiga eftir
að gera það gott fyrir Víking. Þá er
ég ánægður hve margir góðir leik-
menn hafa komið upp úr 4. flokki
frá Bjarna Gunnarssyni — leik-
menn eins og Stefán Pálsson, Ólaf-
ur Ólafsson og Elmar Gislason.
Allt framtíðarleikmenní'
Hvernig hefur þú byggt upp
æfingarnar?
„Við höfum æft frá í marz —
byrjuðum þá að hlaupa úti. Notuð-
um þessa leiðinlegu mánuði til þess
að hlaupa. Þegar hægt var að nota
bolta, þá byggði ég æfingar að
sjálfsögðu mest í kringum knött.
Ég hef að hluta notað æfingar frá
Youri Sedov — sérstaklega bolta-
æfingamar, sem eru mjög góðarí*
Nú lékst þú um árabil í Þrótti.
Hvernig hefur þér líkað dvölin hjá
Víkingi?
„Mér hefur likað mjög vel — ég
fór til Víkings til þess að reyna fyrir
mér annars staðar og þá sérstaklega
til þess að kynnast æfingum hjá
Youri Sedov. Ég hef áhuga á að
mennta mig meira í þjálfun. En það
verð ég að segja að aðstaðan hefur
valdið mér nokkrum vonbrigðum
— og hún er félaginu fjötur um fót.
En menn gera eins vel og þeir geta
— meira er ekki hægt að fara fram
á“
Knattspyrnuskóli
Víkings 1983
Enn á ný verður hinn geysivinsælí knattspyrnuskóli Vikings starf-
ræktur í sumar. Hvert námskeið stendur í tvær vikur og skiptist í tvo
hópa, annar hópurinn er frá 10-12, en hinn frá 1-3. í hverjum hóp verða
20 drengir og stúlkur, og verður þeim svo skipt í smærri hópa á æfing-
um.
Námskeiðin verða sem hér segir:
1. námskeið 30. maí til 10. júní
2. námskeið 13. júni til 24 júní
3. námskeið 27. júní til 8 júli
4. námskeið 11. júlí til 22. júlí
5. námskeið 25. júlí til 5 ágúst
6. námskeið 8.ágúst til 19 ágúst
Leiðbeinandi verður Stefán Konráðsson iþróttakennari sem kenndi
við skólann í fyrra með góðum árangri. Jean Paul Colonval þjálfari
meistaraflokks mun gefa góð ráð.
Á námskeiðunum er farið í grunnatriði knattspyrnunnar, tækni og
skilning og farið í knattþrautir. Til aðstoðar við kennslu er notað mynd-
band. Á hverju námskeiði verður keppt við aðra knattspyrnuskóla.
Verð á hverju námskeiði er kr. 400.-, og greiðist við innritun i félags-
heimili Víkings við Hæðargarð.
Knattspyrnudeild Víkings.
> BUSHMAN
Sagir, sem ætlað er aö endast!
jn ■'
V .• • •>>
m
** _____
V-t ... Vc,*t .
Allar EIA BUSHMAN sagir eru framleiddar úr kaldhertu sænsl
Sagarblöðin hljóta sérstaka meöferó, þannig að þau ryóga ekk
Handföngin eru sérhönnuð svo aö besta og þægilegasta handt
MiÓaö við gæði, eru EIA BUSHMANj^gir ódýraf.
Veldu EIA BUSHMAN — viljirðu góða sög.
Söluumboð um land allt h