Morgunblaðið - 05.06.1983, Blaðsíða 15
15
hafa mætt 75 strákar á æfingar hjá
Víkingi í vor. Það gefur auga leið að
til þess að sinna öllum þessum
fjölda, þá þurfum við veri’lega að
herða okkur og ég þarf að fá með
mér annan þjálfara og vonandi
stendur það tU bóta“, sagði Magnús
Þorvaldsson, þjálfari 5. flokks í
stuttu spjalli.
„Það eru innan um margir mjög
góðir og efnilegir strákar. Ég hef
farið fram á það við stjórn knatt-
spyrnudeildar, að mér verði útveg-
uð aðstoð - að annar þjálfari verði
ráðinn til þess að þjálfa 5. flokk á-
samt mér. Ég get ekki sinnt öllum
þessum strákum, svo viðunandi
teljist.
Víkingur er ekki viðbúinn þess-
um gífurlega fjölda ungra stráka
sem streyma inn í félagið. Þetta á
ekki bara við í 5. flokki. Hið sama
gildir um 6. flokk og eftirspurn í
knattspyrnuskólann hefur aldrei
verið meiri og er þegar fullt á tvö
fyrstu námskeiðin.
Velgengi Víkings á vafalítið stór-
an þátt í þessari aðsókn. ___ Við
verðum því að herða okkur til þess
að geta sinnt strákunum. Strax og
ég tók við flokknum, þá lagði ég
ekki mikla áherzlu á að ná góðum
úrslitum í leikjum sumarsins. Þess í
stað hef ég lagt megináherslu á að
kenna þeim undirstöðu atriði
knattspyrnunnar, að strákarnir öðl-
ist góða tækni og gott vald yfir bolt-
anum og geti tekið vel á móti bolta.
Þetta skilar sér ekki strax í úrslitum,
en ætti að gera það síðar.
Okkur gekk ekki sérstaklega vel í
leikjum í Reykjavíkurmótinu. Unn-
um Fylki 4-0, Leikni 13-0, gerðum
jafntefli við Fram 1-1, en töpuðum
fyrir Val 1-2, ÍR 1-3, Þrótti 1-3 og
KR 1-3. En við höfum ekki stórar
áhyggjur af þessu - ef vel tekst til, þá
er framtíðin björt fyrir Víking. Það
er ljóst að strákar sem eru að alast
upp sækja mjög í að ganga í Víking.
Það er félaginu heiður - og jafn-
framt vandi“, sagði Magnús Þor-
valdsson, og hann gat þess að um
þriðjungur þeirra drengja sem
gengið hafa í Víking í 5. flokki séu
úr efra Breiðholti.
menn sitja eftir með sárt ennið.
í 6. flokki Víkings eru margir
efnilegir strákar. Þó við höfum ekki
unnið mót í fyrra, þá tel ég engu að
síður að Víkingur hafi verið með
heilsteyptasta liðið í 6. flokki í
Reykjavík. Við vorum ekki með
stóra stráka, en marga rosalega
tekníska. Ég hefði sjálfsagt getað
unnið einhver mót, með því að nota
þá stærri en ég valdi þá leið ekki. Tel
hitt vænlegra til árangurs þegar til
lengri tíma er litið.
Við æfum þrisvar í viku og strák-
arnir eru alls staðar að úr bænum.
Víkingur er ekki lengur hverfafélag
sem það var áður — það eru margir
strákar úr Breiðholtinu gengnir í
Víking og raunar alls staðar að úr
bænum, einnig austurhluta Kópa-
vogs.
Hitt er svo, að félagssvæðið er sí-
fellt vandamál — það aðstöðuleysi
sem við verðum að búa við. Ég vona
bara, að svæðið í Fossvogi verði til-
búið sem fyrst — ef Víkingur ætlar
að halda hlut sinum í Reykjavík, þá
verður félagið að fá betri aðstöðu.
Ef það ætti fyrir Víkingi að dala á
næstu árum, þá er hætt við að
strákar fari annað þar sem aðstaða
er betri“ sagði Sverrir Herbertsson.
Gæðafæða
bragðast
best!
ÞITT FÉLAG
62 86
Gott
er aö ei<za
á góöu vöL
Gangir þú í Bókaklúbb
Almenna bókafélagsins áttu
völ góöra bóka fjölbreytts efnis
á lágu verði. Þar er um ríkulegt
framboð að ræða, 80-100 titla
alls.
Verð þeirra er ekki síður
áhugavert kaupendum: frá
u.þ.b. kr. 50.- hver bók. Loks
eru svo hljómplötur og kassett-
uráfágu verði. Full klúbb-
, réttindi færð þú einfaldlega
HreQgbarin .ftöll t: með því að hringja og biðja um
innritun.
Inngöngugjöld eru engin
né heldur árgjöld.
Bókaklúbbur Almenna
bókafélagsins
Austurstræti 18 sími 25544