Morgunblaðið - 22.06.1983, Blaðsíða 10
innan félagasamtaka eða utan.
Hver hópur vinnur að þeim
verkefnum sem hann kýs, enda
geri hann það i eigin nafni.
Æskilegt er að hver hópur
kenni sig við þann jarðveg er
hann sprettur úr t.d. félag eða
heimabyggð. Aðild einstaklinga
að hreyfingunni er einnig heim-
il.
2. í Reykjavík starfar Miðstöð
hreyfingarinnar. í henni eru
fyrst um sinn þær konur sem
starfað hafa í þeim friðarhópi
kvenna, sem stofnaður var 1982
í Reykjavík.
1) Verkefni Miðstöðvar er fyrst
og fremst að vera hvetjandi og
samtengjandi aðili allra kvenna
á íslandi sem vilja stuðla að af-
vopnun og friði í heiminum.
Það geri Miðstöð m.a. með út-
gáfu fréttabréfs þar sem miðiað
sé upplýsingum um friðarstarf
á breiðum vettvangi bæði inn-
anlands og erlendis, vígbúnað,
afvopnun og annað er hún telur
mikilvægt eða friðarhópar og
einstaklingar æskja.
Önnur verkefni Miðstöðvar
gætu verið fundir eða aðrar að-
gerðir er samkomulag verður
um.
2) Miðstöð setur sér starfsregl-
ur og skiptir með sér verkum.
Hún getur ákveðið að fækka í
sínum hóp frá því sem nú er
verði um það samkomulag allra
aðila.
3) Allar ákvarðanir Miðstöðvar
skulu samþykktar með atkvæð-
um % meðlima hennar.
3. Allir aðilar hreyfingarinnar,
hópar eða einstaklingar eru i
tengslum við Miðstöð og fá send
fréttabréf, fundarboð o.þ.h.
gegn gjaldi sem Miðstöð ákveð-
ur.
4. Að ári liðnu skal Miðstöð skipu-
ieggja og boða til landsfundar
Friðarhreyfingar íslenskra
kvenna.
5. Miðstöð skal fara þess á leit við
eigendur Hallveigarstaða, að
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983
41
þar verði póstfang hreyfingar-
innar og önnur lágmarksað-
staða. Gjald komi fyrir hana ef
óskað er.
Við getum haft áhrif
Haldnir voru 24 fundir í frið-
arhópnum á þessum tíu og hálfa
mánuði auk fjölmargra í undir-
nefndum. Allt hefur sinn tíma.
Mest var fundað í kringum frið-
arávarpið í ágúst, undirbúning
stofnfundar og skipuiag hreyf-
ingarinnar sem var mikið mál og
vandasamt.
í þverpólitísku samstarfi þarf
að leita málamiðlunar og leggja
áherslu á það sem sameinar en
víkja ágreiningsmálum til hliðar.
Við erum fullgildir þegnar á vett-
vangi þjóðanna. Við eigum aðild
að alþjóðasamstarfi eins og Sam-
einuðu þjóðunum og Norðurlanda-
ráði. Við getum haft áhrif. Og
friðarhreyfing kvenna á að miðla
þekkingu og skapa umræður. Tal-
að hefur verið um að safna undir-
skriftum allra íslenskra kvenna
undir friðarávarp og senda Sam-
einuðu þjóðunum.
Eyfirskar konur komust vel að
orði í bréfi til friðarhópsins: „ís-
lenskar konur mega ekki sitja
þegjandi hjá þegar framtíð
mannkyns er í slíkri tortím-
ingarhættu, heldur taka sér stöðu
við hlið allra þeirra sem berjast
fyrir friði hvar sem er í heimin-
um.“ Höfum í huga þessi orð og
ennfremur það sem Maj-Britt
Theorin sagði í ræðu sinni og skal
verða lokaorð þessarar greinar:
„Ef ekki næst samstaða fjölda
fólks sem er virkt, mótmælir, tek-
ur sjálft afstöðu, skrifar bréf og
tillögur til flokkanna og kvenna-
samtaka, bregst við ríkisstjórnum
og þingmönnum, þá er engin
ástæða til að breyta neinu. Þá get-
ur allt haldið áfram í sama farinu.
Þá afhendum við öðrum ákvörðun-
arréttinn yfir tilveru okkar og
lífi.“
Hjálpaði
Vatikanið
stríðs-
glæpa-
mönnum
New York, 20. júní. AP.
BANDARÍSKA tímaritið Re-
form Judaism, sem gefið er út
af samtökum gyðinga í Banda-
ríkjunum, sagði svo frá í síð-
asta tölublaði, að Vatikanið
hefði aðstoðað stríðsglæpa-
menn í stórum stfl að laumast
frá Evrópu til Suður-Ameríku
og arabalanda eftir að síöari
heimsstyrjöldinni lauk.
Charles Allen ritar grein-
ina, þar sem þetta kemur
fram og hann vitnar í
skýrslu sem Vincent La
Vista, lögfræðingur 1 Róm-
arborg sendi til bandaríska
varnarmálaráðherrans í maí
1945. Plaggið var áður leyni-
skjal, en er nú opinbert. Þar
segir að sögn Allens, að 22
hjálparstofnanir hafi hjálp-
að nauðstöddum nasistum
frá Evrópu eftir „klaustur-
leiðum". „Glæpamennirnir
voru fluttir suður og vestur
um Austurríki til Norður-
Italíu og loks var þeim laum-
að úr landi frá Genúa, Nap-
ólí og Bari. Aðrir flýðu um
Spán og Portúgal. Vatikanið
var langstærsta stofnunin af
þessu tagi sem hjálpaði
ólöglega þýskum stríðs-
glæpamönnum,“ segir í
skýrslunni og grein Allens í
fyrrgreindu tímariti.
Snöggar hitabreytingar, snjór og ís í dag,
regn og þíöa á morgun eöa sterkt sólskin.
„PLAGAN POPULÁR" er framleitt til að standast
erfiöustu veöurskilyröi.
„PLAGAN POPULÁR" er meðfærilegt og
traust þak- og veggklæðningaefni úr galvaniser-
uðu stáli meö veðrunarþolinni GAULE ACRYL
húö.
ts >J BYGGINGAVÚRUVERSLUN
BYKO KÓPAVOGS
Cv S} TIMBURSALAN
SKEMMUVEGI 2 SÍMI:41000
CA3GO
Viö getum nú aftur boöiö léttbyggöa vörubíla frá Ford-verksmiðj-
unum í Bretlandi. Þessir bílar koma í staö hinnar vinsælu D-gerö-
ar.
Nýju gerðirnar heita Ford Cargo 1013 meö heildarburðarþol
10.000 kg og Ford Cargo 1215 meö heildarburöarþol 12.000 kg.
Bílarnir eru fáanlegir í 4 lengdum: 3075, 3600, 4250 og 4850 mm
hjólabil.
Eftirfarandi búnaður er í Cargo 1013:
6.2e Ford dieselvél, 128 din hö viö 2600 sn. 5 gíra gírkassi,
vökvastýri, aflhemlar, tvöfalt kerfi, vélhemill, 115 I olíugeymir.
Hjólbarðar 8,25x20 14 pr. vatnsskilja á olíuleiðslum, frostvarnar-
búnaöur fyrir hemla, styrktur rafgeymir og rafall, kaldstart, styrkt
miöstöö, samlímt gler í framrúöu, aukin einangrun í stýrishúsi,
snúningshraöamælir, „Custom“-stýrishús, sem innifelur m.a.
vandaðri klæöningu á hurðum, mælaborði, sætum og toppi.
Eftirfarandi búnaður er í Cargo 1215 framyfir Cargo 1013:
6.0 1 Turbo Ford diesel-vél, 150 din hö viö 2400 sn„ 6 gíra
gírkassi, 900x20 14 pr. hjólbarðar.
Til sýnis í dag og næstu daga.
Áætlað verð:
FORD CARGO 1013 kr. 811.000.-
FORD CARGO 1215 kr. 879.000,-
Vinsamlegast hafiö samband viö söludeild okkar
varöandi nánari upplýsingar.
SVEINN EGILSSON HF.,
Skeifan 17, s. 85100.
FORD
\