Morgunblaðið - 22.06.1983, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 22.06.1983, Qupperneq 12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983 43 Frá sýningu á „Stundarfriði" (Keine Leit — Keine Zeit) í Borgarleikhúsinu í Braunschweig í Þýskalandi ábyrgðartilfinningu. Með sjón- varpinu hefur bernskan horfið. Bðrnin deila heimi hinna full- orðnu — en kynnast honum ekki smátt og smátt gegnum bækur sem krefjast hugsunar heldur með myndum sem höfða beint til til- finninganna ... Börnin fara fyrr en áður að hegða sér sem fullorðin væru en eru í rauninni lengur börn í sálinni. Vandamálið við leikrit Guðmundar er að hann leggur ekkert fram til þessarar umræðu, hvorki tilfinningalega né heimspekilega eins og Postman gerir. Hann dregur upp mynd af ríkjandi ástandi á heimili þar sem fjölmiðlarnir hafa völdin — lætur sér nægja að stílfæra staðreyndir sem við þekkjum. Verkið er löng lýsing á þessu „trippaða" ástandi en af því að það er aðeins ytra borðið sem lýst er — með persón- unum sem eru bara týpur — verð- ur það hvorki virkjandi né hættu- legt þegar til lengdar lætur, en í bestu atriðunum þó nokkuð bros- legt. Gagnrýnandinn er hrifnastur af unglingunum, eða systkinunum í sýningunni og telur þau sýna af- burðavel þær „egótrippuðu týpur", sem lýst sé í bók Neil Postmans. Að lokum: „Ég er hræddur um að Stundarfriður verði ein neyslu- varan enn.“ Svenska dagbladet, 8. mai 1983. íslenskt á sænsku. Verðbólgan hefur áhrif bæði á peningana og siðgæðið. Það er um að gera að eyða peningunum áður en þeir eru orðnir verðlausir. Þeim mun hraðar sem krónan fellur því meira kaupir maður, en sá sem kaupir bara til að festa fé hugsar skammt. Og sá sem hugsar skammt hugsar bara um sjálfan sig og augnabliksþarfir sínar. Þar með er fyrirbrigðið orðið siðfræði- legt. Á litla sviði Dramatens er nú verið að sýna spéspegil frá Islandi. Að hann er íslenskur á sér tvær góðar og gildar ástæður; í fyrsta lagi er verðbólgan yfir meðallagi í Evrópu og íslendingar þekkja því bakhliðina á neysluþjóðfélaginu manna best, í öðru lagi er ísland minnst þekkta og mest spennandi leikhúsland álfunnar ... (Guð- mundur Steinsson) skrifar mjög hægt, prófar hvort tónninn sé ekta, byrjar upp á nýtt ... og hon- um heppnast það sem hann ætlar sér ... Persónurnar eru mann- gerðir sem maður rekst á í dag- lega lífinu, án þess að þurfa að ganga mörg skref frá leikhúsinu. Expressen, 8. maí 1983. Frábært leikrit. Gagnrýnandi segir að það lýsi nútímalífi mjög vel og dragi fram raunveruleg vandamál þess: „sam- bandsleysi, klofningu, tilfinn- ingakulda, skort á manneskjulegu næmi og kalda hagræðingu. En sýningin er ekki prédikandi. Hún dregur fram, máir út, gerir upp- reisn, sem er gleymd á næsta augnabliki, meðan persónurnar verða smám saman fölari, hrædd- ari, grárri. Aðferð bæði höfundar og leikstjóra er að „brjóta upp“ hætta þegar hæst stendur. Það sem raunverulega gerist milli persónanna er sjaldan sagt bein- um orðum. Það seytlar út gegn um víravirki af hávaða, hreyfingum og ópum ..." Ennfremur segir gagnrýnandinn að sýningin lýsi því betur en langar fræðigreinar hversu mjög líf okkar stjórnist af tæknivæðingunni. Persónurnar séu næst því að mynda fjölskyldu- heild þegar þær setjast saman fyrir framan sjónvarpið. Aftonbladet, 8. maí 1983. Stofuakademíunni breytt f jök- ul. Gagnrýnandinn er mjög hrifinn af verkinu, finnst það vel byggt og hrollvekjandi. Það lýsi fjölskyldu- lífi sem sé hreinasta helvíti „sem á íslensku heiti Niflheimur". Sumsé gaddfreðið. Hann dáist einnig að leikstjórninni og finnst leikstjór- inn skilgreina (filtera) afar vel þá skelfingu sem okkar daglega líf vekur innra með einstaklingnum. Þetta er undirstrikað með sviðs- mynd og ljósum. Gegnumlýsanlegt gólfið verður æ ógreinilegra eftir því sem líður á sýninguna og eins fer með sófann, hann breytist, er fyrst rósóttur, síðan einlitur og loks er áklæðið tekið af. Elektrón- ísk ljósin gefa til kynna einhverja veröld innan dyra þar sem sólskin er óþekkt ... Arbetarbladet, 11. maí 1983. Vægðarlaus saga. í lokin segir gagnrýnandinn „Já, þetta er saga, vægðarlaus saga í anda ísiendingasagnanna en frá- sögnin hefur flug án þess að þar votti nokkuð fyrir væmni.“ Stúdentaleikhúsid Dagskrá meö verkum Jökuls Jakobssonar fimmtudag 23. kl. 20.30. Allra síðasta sinn. „Samúel Beckett“ (Fjórir einþáttungar) Frumsýnt laugardag kl. 20.30. Veitingasala. Félagsstofnun stúdenta v/Hringbraut. Sími 19455. Mál eraá æyna KAFFIKORN- Þegar búið er að opna kaffipokann er best ad geyma hann í lokuðu íláti. Þá hefur súrefni ekki áhrif á kaffið og bragðið og styrkleikinn helst lengur. Geymið kaffibaukinn ávallt á köldum og þurrum stað. Ólafur Kr. Guðmundsson c/o Trévirki hf. „Allir fagmenn hljóta að þekkja Thorsmans boltana og vita um þeirra festigetu, enda er Thorsmans nafnið gæðamerki sem allir geta treyst." Ef óskaö er eftir sýnishornum af ofanskráöu efni frá Thorsmans þá góðfúslega fyllið út þennan miða. Sýnishornin eru send án endurgjalds. Nafn: Heimilisfang: JOHAN RÖNNING HF „ÍStíSSt Staður:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.