Morgunblaðið - 22.06.1983, Side 14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JUNI 1983
45
Vel heppnaóir tónleikar Classix Nouveaux:
endur
Það verður að segjast eins og
er, að íslenskir poppunnendur
eiga það ekki skilið, aö menn ieggi
i sig mikla fyrirhöfn og fjárhags-
lega áhættu að flytja inn erlendar
hljómsveitir til landsins. Ekki var
að sjá að fólk kynni vel aö meta
það aö boðíö væri upp á tónleika
Classix Nouveaux í Hðllinni á
fimmtudag.
Ekki veit Járnsíöan upp á hár
hversu margir áhorfendur voru
saman komnir í Höllinni þetta
kvöld, en þeir hafa tæpast verið
fleiri en 1500 — sennilega þó
eitthvaö færri. Synd og skömm
þegar jafn ágæt sveit og Classix
Nouveaux á í hlut. í ofanálag reynd-
ust margir hafa falsað miöa og
flögguöu þeim viö innganginn.
Vissulega leitt til slíks aö vita því
eins og málum er háttaö getur það
auöveldlega hlaupiö á nokkrum
tugum miöa hvernig heildarútkom-
an er í slíkum dæmum. Þaö er ekki
von á öflugu framhaldi á hljóm-
sveitainnflutningi meö slíku áfram-
haldi. Veröi tónleikarnir meö Echo
and the Bunnymen annan laugar-
dag, 2. júlí, ekki betur sóttir en
þetta þarf ekki aö gera því skóna,
aö fleiri erlendar sveitir gisti landiö
í bráö.
Af tónleikunum sjálfum er þaö
annars aö segja, aö þeir voru um
flest vel heppnaðir. Bæöi Q4U og
iss! skiluöu sínu af prýöi og sér-
staklega var gaman aö heyra í issl,
sem er í mjög örri framför.
Skemmtileg sveit meö hinn óviö-
jafnanlega Einar Örn í fararbroddi.
Án hans væri ekki mikiö í flokkinn
variö, a.m.k. ekki fyrir augaö.
Classix Nouveaux komst mjög
vel frá sínu og ekki bar á ööru en
áhorfendur kynnu vel aö meta flutn-
inginn. Báru móttökurnar því vitni
og virtust menn vel meö á nótunum
í mörgum laganna. Solo er greini-
lega allt í öllu í hljómsveitinni og
sama má segja um hann og Einar
Örn og reyndar Ellý í Q4U, þótt
ólíku sé saman aö jafna, aö án
þessara persóna eru hljómsveitirn-
ar þrjár höfuðlaus her. „Sándiö“ í
Höllinni var ágætt, mun betra en oft
áöur, og Ijósin áhrifarík. Gott ís-
lenskt ljósa„show“.
Þaö má því meö sanni segja, aö
tónleikarnir heppnuöust vel þótt
biðin eftir Classix hafi verið dálítiö
löng. Hins vegar var fjöldi áhorf-
enda ekki í neinu samræmi viö til-
efniö og atburöinn sjálfan.
Lýöurinn tekur vel á móti fimmmenningunum í Classix Nouve-
aux á tónleikunum. Morgunblaöið/ RAX
„Mér finnst bara þægi-
legt að vera svona“
segir Sal Solo um að vera krúnurakaður á tímum litaðs hárs og fJölbreytilegrar hártísku
„Af hverju komum við til íslands? Ja, af
hverju ekki?“ svaraði Sal Solo, hinn skðll-
ótti höfuðpaur Classix Nouveaux, rólegur í
bragði, er einn íslensku blaöamannanna
lét sig loks hafa það að spyrja hann fyrstu
spurningarinnar.
Fram að því haföi blaöamannafundurinn
að Hótel Loftleiöum einna helst líkst fugla-
bjargi (ef é annaö borð er hægt að nota
slíka samlíkingu) og allir virtust uppteknir
við aö tala um allt é milli himíns og jarðar,
án jjess þó að um samræöur á milli
hljómsveitarínnar og blaðamannanna væri
að ræða.
„Við höfum fariö mjög víöa um heiminn
og reyndar gert tilraunir til aö koma hingaö
fyrr. Þær mistókust einhverra hluta vegna.
Stutt er síöan viö vorum í Póllandi og héöan
förum viö til Finnlands. Einn okkar, Jimi
Sumen, er finnskur. Á meðal annarra landa,
sem hljómsveitir leggja sig yfirleitt ekki
niöur viö aö heimsækja en viö höfum samt
gert, má nefna israel, Ungverjaland, Thai-
land og Indland. Okkur langar til Sov-
étríkjanna, en hefur enn ekki gefist tækifæri
til slíks feröalags," sagöi Solo, sem haföi
nær eingöngu orö fyrir þeim félögum. Þaö
kom reyndar ekkert á óvart. Hinir virtust
næsta innihaldslitlir, ef Mik Sweeney er und-
anskilinn.
Meira metiö
„Staðreyndin er sú, aö fólk í áöurnefndum
löndum kann miklu meira aö meta þaö, aö
viö komum til aö spila fyrir þaö en t.d. al-
menningur í Bretlandi. Fólk heima er svo
vant því aö geta gengiö að tónleikum frægra
hljómsveita allan ársins hring, aö þaö gerir
sér hreinlega ekki grein fyrir hvers kyns for-
réttindi þaö í rauninni hefur. Þaö segir sem
svo: „Iss, viö sjáum þá bara þegar þeir
koma næst.“
Viö finnum þaö svo vel í fjarlægari lönd-
um, aö fólk metur þaö sem viö erum aö gera
fyrir það og þeir áhangendur, sem viö vinn-
um á okkar band þar, eru tryggir aödáend-
ur. Auk þess er miklu skemmtilegra fyrir
hljómsveitina aö feröast til fjarlægra landa
og reyna aö ná til fólks sem e.t.v. hefur ekki
heyrt í okkur áöur. Fólk t.d. í Indlandi hefur
ekki efni á aö kaupa plöturnar okkar, en þaö
haföi þaö nú samt einhvern veginn af aö
komast á tónleika meö okkur. Hérna er
dæmiö iíka mjög sérstakt á allt annan hátt
þó. Viö vitum, aö um leiö og viö fáum 2.300
manns á tónleika okkar erum viö meö eitt
prósent þjóöarinnar fyrir framan okkur. Þaö
er meira en viö fáum nokkurs staöar á tón-
leika í heiminum."
— Hvernig veröur næsta plata ykkar?
„Hún veröur allt ööruvísi en hinar tvær.
Hún mun heita „Forever In A Day“ og vænt-
anlega koma út í september eöa október.
Hún veröur verulega ólík fyrri plötunum
okkar og lögin veröa miklu meira í dans-
lagastíl, þ.e. þaö veröur auöveldara aö
dansa viö þessa nýju tónlist okkar. Viö höf-
um látiö fönkiö alveg eiga sig þótt þaö hafi
átt nokkrum vinsældum aö fagna í Bretlandi
því viö teljum okkur einfaldlega ekki vera í
stakk búna til þess aö leika þá tónlist, viö
þekkjum hana ekki nægilega vel. Þaö er
miklu betra aö halda síg viö tónlist sem viö
þekkjum."
Aö þroskast...
— Voruö þiö þá ekki ánægöir meö La
Verité?
„Viö vorum vissulega ánægöir meö
hana,... á sínum tíma. Þaö gerist hins veg-
ar alltaf aö menn eru ekki eins sáttir viö
hlutina þegar lengra líöur frá gerö þeirra.
Breytingar veröa á stíl og hugarfari og sú
hætta ríkir alltaf aö menn sætti sig ekki viö
eldri afkvæmi sin.“
— Þú segir aö þriöja platan veröi öðru-
vísi. Hefur Classix Nouveaux þroskast mikiö
sem hljómsveit?
„Þaö segir sig alveg sjálft, aö hljómsveit,
sem náö hefur aö gefa út þrjár breiöskífur,
hlýtur aö hafa náö vissum þroska. Ég er hins
vegar þeirrar skoöunar, aö aöallagiö á
tveggja laga plötunni af væntanlegri
breiöskífu okkar sé besta lag, sem Classix
Nouveaux hefur látiö frá sér fara.“
Aö þessu svari loknu kom dálítiö vand-
ræöaleg þögn. Enginn sagöi neitt, tveir
blaöamannanna heyröu ekkert, þar sem
þeir sátu meö Walkman-tæki klesst yfir eyr-
un og voru að hlusta á umrætt lag, og hinir
góndu í gaupnir sér eöa á aöra ámóta til-
gangslausa staöi. Loks ræskti einhver sig og
spuröi.
Krúnurakaður
— Af hverju ertu krúnurakaöur, hefur
þetta eitthvaö aö gera meö „image“ hljóm-
sveitarinnar?
„Ef þér finnst hann undarlegur núna þá
heföiröu átt aö sjá hann fyrir nokkrum árum.
Þá var hann sko FURÐULEGUR.” Mik
Sweeney haföi skyndilega vaknað til lífsins
eftir aö hafa rabbaö viö hina hæröu félaga
sína í flokknum um skeiö.
„Af hverju er ég svona? Þaö er nú þaö,“
sagöi Solo og velti vöngum. „Mér finnst
bara þægilegt aö vera svona. Á sínum tima,
þegar pönkiö ætlaöi allt aö drepa, tók ég
upp annan klæöaburö og hárgreiöslu (!) en
gengur og gerist. Þessu hef ég viöhaldiö
siðan Þetta var svona þegar viö stofnuöum
Classix Nouveaux og sé þetta oröiö aö ein-
hverju leyti einkenni á hljómsveitinni þá er
þaö bara hluti af þróuninni. Ég man, aö á
þeim tíma sem ég var aö krúnuraka mig
fyrst voru hljómsveitir á borö viö Japan og
Ultravox komnar á legg, en enginn haföi
áhuga.
Annars er popp-tónlist þannig, aö hún er
best þegar hún er framkvæmd um leið og
hún kemur upp í hugann. Ef allt er fyrirfram
ákveöiö er ekkert gaman aö hlutunum. Þess
vegna reynum viö alltaf aö „impróvísera“ á
tónleikum okkar. Á tónleikum reynum viö
alltaf aö gera sem mest fyrir áheyrendur.
Þeir eru nú einu sinni komnir til þess aö
hlusta og horfa á okkur, því þá aö bregöast
vonum þeirra?
Á flöskur
Einhver kom meö þá ágætu spurningu
hvort Sal Solo heföi nokkra skýringu á því af
hverju Englendingar væru alltaf svo langt á
undan i poppinu, sem raun bæri vitni.
„Ef viö Englendingar vissum þaö værum
viö áreiðanlega löngu búnir aö tappa þeirri
þekkingu á flöskur og selja úr landi," sagöi
hann og hló. „Nei, annars, ég veit ekki skýr-
inguna á þessu. Þetta hefur alltaf veriö
svona, Bandaríkjamenn apa flest eftir
okkur. Tískubylgjur koma upp meö nokkuö
regulegu millibili og þær eiga nær allar sín
upptök í Bretlandi. Þaö var t.d. ekki fyrr en
tiltölulega nýlega, aö Bandaríkjamenn sættu
sig viö Classix Nouveaux. Viö fórum þangaö
fyrir tveimur árum, en þaö var of snemmt.
Þeir voru ekki reiöubúnir til aö taka á móti
okkur og öfugt.’
— SSv.