Morgunblaðið - 22.06.1983, Side 18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983
49
fclk í
fréttum
Ungfrú Danmörk vill
verða kerfisfræðingur
+ Nú fyrir nokkru fundu Danir út hver er fallegasta
stúlkan þar í landi og sæmdu hana aö sjálfsögöu
titlinum Ungfrú Danmörk 1983. Inge Thomsen heit-
ir feguröardísin, 19 ára gömul, og er frá Árósum.
„Auðvitað er ég ánægö og ekki síst yfir pening-
unum, 25.000 krónunum (75.000 ísl. kr.), sem koma
sér sannarlega vel,“ sagöi Inge. „Ég hlakka til aö
fara í ferðirnar, sem fylgja titlinum, en ég ætla mér
ekki aö gerast Ijósmyndafyrirsæta eöa eitthvað
þess háttar. Ég lít á þetta sem kærkomið tækifæri
til að fjármagna frekara nám.“
Inge stundar nám í verslunarskóla og segist
stefna aö því aö mennta sig betur. „Ég vil veröa
minn eiginn herra í starfi og hafa meiri tekjur en
flestir karlar, helst sem kerfisfræöingur," segir
Inge. Hvað karlmennina snertir, þá finnst Inge sem
útlitiö skipti ekki mestu máli, heldur aö hægt sé aö
ræöa viö þá um heima og geima og að þeir hafi
eitthvert markmiö í lífinu.
Inge á sér ekki margar tómstundir enda leggur
hún hart aö sér viö námið og er einn af bestu
nemendunum í Verslunarskóla Árósa. Þegar tóm
gefst til kíkir hún þó í Shakespeare og sú kona,
sem hún metur meira en aörar, heitir Margaret
Thatcher.
Inge Thomsen, Ungfrú Danmörk 1983.
+ Þetta gæti hvergi gerst nema í Bandaríkjunum. Keppni í því hvaöa krakki er fljótastur aö skriöa.
Þaö var útvarpsstöö í Maryland, sem efndi til keppninnar og tóku þátt í henni 350 börn, sem ekki
höföu enn lært að ganga. Crystal litla Hudson, sem fer hér fremst, var alveg meö á nótunum, tók
strikiö beint í mark og sigraði meö yfirburðum. Aöeins örfáir keppendanna komust alla leiö,
langflestir skildu nefnilega ekkert í hvers vegna þeir ættu aö skríöa burtu frá mömmu eöa pabba.
COSPER
Og hér er matreiðslubókasafnið mitt.
+ Sirhan Sirhan, banamaöur Rob-
ert Kennedys, öldungadeildar-
þingmanns og bróður þeirra John
F. Kennedys heitins forseta og
Edward Kennedys, sést hér lýsa
því fyrir náöunganefnd, að kominn
sé tími til aö hann fái aö fara frjáls
ferða sinna. Sirhan var á sínum
tíma, áriö 1968, dæmdur til dauöa
en síöan var dóminum breytt í
ævilangt fangelsi.
Þjónusta fagmanna
pudhíi
Viðhalds- og viðgerðarvinna
á húsum. Múrviðgerðir,
þéttingar o.fl. Notum
aðeins þraut-
reynd Thoro
efni frá
Vönduð vinna.
Hringið og leitið
upplýsinga.
^&MÚRAFLhf.
Simt 36022
■i steinprýði M
Leitið til þeirra sem
ráða yfir verkkunn-
áttu og reynslu —
leitið til fagmanna.
ALLTAFÁ FIMMTUDÖGUM
BROSTU!
Vik i iskomm tur ofskellih lótri