Morgunblaðið - 12.08.1983, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 1983
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 1983
17
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 230 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 18 kr. eintakið.
Riðar Alþjóðaskák-
sambandið til falls?
Friðrik Ólafsson, fyrrverandi
forseti FIDE, Alþjóðaskák-
sambandsins, segir m.a. í viðtali
við Morgunblaðið: „Það er ljóst
að deilur innan FIDE hafa nú
magnazt um allan helming og
FIDE riðar til falls ef svo heldur
fram sem horfir." Hann segir
ennfremur að báðir aðilar hafi
sýnt óbilgirni og „virðist mér ein-
sýnt að eitthvað meira liggi að
baki þessum deilum nú en af yfir-
borðinu verður séð.“
Hinn kunni landflótta skák-
snillingur, Viktor Korchnoi, segir
og í viðtali við Morgunblaðið:
„Það er ávallt hryggilegt þegar
stjórnmál eru tekin fram yfir
skáklistina. Mér er kunnugt um
að Garri Kasparov vildi eindregið
tefla við mig — sérstaklega hér í
Bandaríkjunum — en sovézkir
skákmenn eru einskis spurðir og
verða að lúta duttlungum sov-
ézkra stjórnvalda." Korchnoi seg-
ir málið snúast um valdabaráttu
innan FIDE, hvort Sovétmenn
eigi að fá að ráðskast með Al-
þjóðaskáksambandið eða ekki.
Hann segir deiluna um staðarval
fyrir skákeinvígin yfirvarp. Sov-
ézk stjórnvöld vilji fyrst og
fremst að heimsmeistaratitillinn
verði áfram í höndum Anatoly
Karpovs, sem þeir beri fyllsta
traust til og séu „reiðubúnir til að
fórna Kasparov til þess að
tryggja gæðingi sínum titilinn".
„Pasadena er aðeins yfirvarp,"
segir Korchnoi, „Rússar hafa
fórnað Kasparov."
Þá er athyglisvert að Korchnoi
lætur að því liggja að bandaríski
skáksnillingurinn Fischer hafi
verið þvingaður til að draga sig í
hlé með kröfuhörku Sovétmanna
um formsatriði. Með ákvörðun
sinni nú reyni þeir enn að „greiða
bandarísku skáklífi þungt högg“,
en ráðgert einvígi í Pasadena hafi
verið líklegt til að glæða skák-
áhuga í Bandaríkjunum, sem far-
ið hafi dvínandi frá því Fischer
hætti að tefla.
Skáklistin, þessi skemmtilega
hugaríþrótt, sem tengt hefur
þjóðir heimsins innan Alþjóða-
skáksambandsins, er því miður
að verða einhvers konar hornreka
í refskák heimsstjórnmála. Sov-
étmenn hafa vissulega lagt lofs-
verða rækt við skákina um lang-
an aldur og átt marga af fremstu
skáksnillingum heims. En skák-
listin sýnist vera þeim, eins og
fleiri fjölþjóðlegir farvegir, tæki
til annarlegra áhrifa á alþjóða-
vettvangi og leið til að auglýsa
þjóðfélagsform, sem um margt
þolir ekki samanburð við ein-
staklingsbundin þegnréttindi,
lýðræði og þingræði Vesturlanda.
Örlög skáksnillingsins Viktors
Korchnoi og fjölda annarra lista-,
mennta- og íþróttamanna, sem
flúið hafa Sovétríkin og önnur
hliðstæð þjóðfélög, eru talandi
dæmi um það helsi, sem þetta
samfélagsform er þeim sem við
þurfa að búa. Það gerir það eng-
inn að gamni sína að yfirgefa
ættland sitt, vini og vandamenn;
það er eitthvað meira en lítið sem
knýr fólk til slíkra hluta, ekki sízt
einstaklinga úr forréttindahóp-
um þessara ríkja.
En það er kominn tími til að
setja Sovétríkin á jafnstöðubekk í
samskiptum þjóða, hvort heldur
er í skáksamskiptum eða öðrum
tengslum ríkja heims. Það er
komið mál að linni yfirgangi
þeirra á samskiptavettvangi
þjóða heims.
Flugvallar-
gjaldið falli
niður
Rétt spor var stigið þegar sér-
stakur skattur á ferðagjald-
eyri var felldur niður. Tvöfalt
gengi á engan rétt á sér. Það felur
í sér mismunun milli þegna þjóð-
félagsins. Það samrýmdist naum-
ast því ferðafrelsi, sem við viljum
gjarnan tryggja. Það á fá ef
nokkur fordæmi hjá þjóðum
V-Evrópu og N-Ameríku. Flug-
vallargjaldið hefði hinsvegar átt
að fylgja með í niðurfellingu
ferðaskattsins.
Flugvallargjaldið var fyrst lagt
á 1975 og var þá liður í víðtækum
efnahagsráðstöfunum. Samtímis
var felldur niður söluskattur af
fargjöldum í innanlandsflugi.
Það var og tiltölulega lágt, þá á
var lagt. Þáttaskil urðu hinsveg-
ar þegar flugvallargjald, bæði í
innanlands- og millilandaflugi,
var hækkað verulega árið 1979. Á
þinginu 1981—1982 fékk þáver-
andi fjármálaráðherra því fram-
gengt að flugvallarskattur fylgdi
vísitölu byggingarkostnaðar. Þar
með var flugvallargjaldið nánast
lögbundið sem viðvarandi skatt-
ur.
Forystumenn ferðamála í land-
inu hafa lengi barizt fyrir niður-
fellingu þessa gjalds, sem reynzt
hefur mjög óheppilegt, valdið er-
lendum ferðamönnuni gremju,
bakað íslenzku starfsfólki flugfé-
laga óþægindi og hamlað gegn
eðlilegri þróun ferðamála. Það
bitnar og illa á fólki sem mikið
þarf að ferðast flugleiðis hér inn-
anlands, ekki sízt fólki í strjálbýli
fjærst Reykjavík. Skatturinn átti
upphaflega að renna til endur-
bóta á flugvöllum, en raunin hef-
ur orðið allt önnur hin síðari ár.
Allt ber því að sama brunni, að
þetta gjald eigi að fella niður.
Halldór Blöndal og Árni Gunn-
arsson fluttu frumvarp á síðasta
þingi um að svo yrði gert. Því
miður náði það ekki fram að
ganga. Kannski gengur betur nú.
D ÍSLEMWR* SAMV1NNUFÉLA6*
Ct mningur
band.ins á árinu 1983.
fþróttasambandi II . :öt{u og fimm-
t,,skr 75.000.00 - kronur sjöttu 8
1983 aB upphæS kr.
þúsund oo/loo-.
í. Frjálstþróttasambandiö
stjóri Sambandsins he[ur umsjon me5 framk
ar hálfu Sambandsins, en F.R.I. saai
...................
framkvæmd samningsms.
a „„ -erö tvö samhljóöa eintök og heldur hvor
Af samningi þessum er g
aöili sxnu eintaki.
Reykjavík. 8. október 1982
u f h. Samb. ísl. samvinnufélaga
F.h. Frjálsíþrottasambands
íslands
lsianas
—--------f Gunn
___rtitccnn
Júlíus Hafstein:
„íþróttahreyfingin á
arra kosta völ en að
SAMNINGUR sá sem stjórn Hand-
knattleikssambandsins gerði við
Samband íslenskra samvinnufélaga
var í raun ekkert annað en viðskipta-
samningur. Það er ekki rétt að kalla
þetta íþróttastyrk Sambandsins.
Þetta er viðskiptasamningur tveggja
aðila. Og mér er kunnugt um Jþað að
meðan ég var formaður HSI, fékk
SÍS mjög mikið fyrir sinn snúð, sagði
fyrrverandi formaður HSÍ, Júlíus
Hafstein við Mbl.
En ég vil taka það fram að ég tel
mjög eðlilegt að gera svona við-
skiptasamninga. íþróttahreyfingin í
dag á ekki annarra kosta völ en að
selja sig. Og þá með tilliti til þess
hvort hún hagnast á því eða ekki.
ekki ann-
selja sig“
Það er fínt orð að nota styrk yfir þá
peningaupphæð sem SfS lætur af
hendi rakna. Þetta er ekkert annað
en sala á vissum hlutum og SfS er að
kaupa vissa aðstöðu á íþróttamótum
og kappleikjum. Samningur sá sem
HSÍ gerði er mjög svipaður samningi
FRÍ, allavega í stórum dráttum,
sagði Júlíus.
Sveinn Björnsson:
„Stjórn ÍSÍ ekki kunnugt um inni-
hald samninga sérsambanda“
OKKUR í stjórn ÍSÍ er ekki kunnugt
um málefnalegt innihald þeirra sam-
ninga sem sérsamböndin gera. AA
sjálfsögðu er okkur kunnugt um þær
pcningaupphæðir sem sérsamböndin
fá en ekki hvað lagt er til grundvallar
í samningum þeim sem gerðir eru,
sagði forseti ÍSÍ, Sveinn Björnsson.
— Það er alfarið í höndum stjórna
sérsambandanna að hvaða samning-
um þeir ganga. Þau eru alveg sjálf-
stæðir aðilar án afskipta stjórnar
ÍSÍ í þessum efnum. Mér er því alls
ekki kunnugt um hvað þessir samn-
ingar hljóða upp á, og vil ekki tjá
mig meira um málið að svo stöddu,
sagði Sveinn Björnsson, forseti ÍSÍ.
Frá afhendingu íþróttastyrks SIS fyrir 1983, sem fram fór f hófí 12. október í fyrrahaust. í aftari röð frá vinstri eru
Örn Eiðsson, formadur Frjálsíþróttasambands íslands, Erlendur Einarsson, forstjóri SÍS, og Júlíus Hafstein,
þáverandi formaður Handknattleikssambands íslands. Við borðið sitja (f.v.) Sveinn Björnsson, forseti íþróttasam-
bands íslands og Pálmi Gíslason, formaður Ungmennafélags íslands. Morgunbi*óió/Emiií>.
Samningur FRI
og Sambandsins
Hér fer á eftir samningur Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga og
Frjásíþróttasambandsins um íþrótta-
styrk SÍS 1983 ásamt áætlun um
samstarf FRÍ og SÍS á árinu 1983.
Frjálsíþróttasambandið er handhafí
hluta íþróttastyrks SÍS 1983, hlaut
þriðjung styrksupphæðarinnar, en
Handknattleikssambandið hlaut tvo
þriðju styrksins, og mun samningur
SÍS og HSÍ vera svipaður:
Samningur um íþróttastyrk
Sambandsins 1983
Samband íslenskra samvinnufé- •
laga og Frjálsíþróttasamband ís-
lands gera með sér svofelldan
samning um íþróttastyrk Sam-
bandsins á árinu 1983.
1. Samband íslenskra samvinnu-
félaga veitir Frjálsíþrótta-
sambandi íslands íþróttastyrk
sinn á árinu 1983 að upphæð kr.
75.000.00 — krónur sjötíu og
fimm þúsund 00/100 —.
2. Frjálsíþróttasambandið notar
þetta fé eins og því er unnt til
kaupa á þjónustu og vörum hjá
Sambandinu, kaupfélögunum
og samstarfsfyrirtækjum þess-
ara aðila.
3. Frjálsíþróttasambandið heimil-
ar Sambandinu að nota starf-
semi og aðstöðu FRÍ og umsvif
frjásíþróttalandsliðanna, bæði
heima og erlendis, til auglýs-
inga og fræðslu um samvinnu-
hreyfinguna á hvern þann hátt
sem Sambandið óskar og eðli-
legt getur talist. Er þá miðað
við þann hátt sem almennt
tíðkast og fellur að gildandi
lögum og reglum íþróttahreyf-
ingarinnar um auglýsingar
íþróttamanna.
4. Frjálsíþróttasambandið skai
svo sem kostur er vekja athygli
á þessari styrkveitingu Sam-
bandsins hjá fjölmiðlum og á
meðal frjálsíþróttafólks, ann-
ars íþóttafólks og almennings.
5. í tengslum við blaðamanna-
fund, sem Sambandið boðar til
um veitingu styrksins, skal FRÍ
sjá til þess, eftir öllum þeim
leiðum sem sambandinu eru til-
tækar, að styrkveitingin veki
þá athygli í fjölmiðlum sem
verðugt er og viðgengist hefur
um styrkveitingar til menning-
armála.
6. Fulltrúi frá Sambandinu skal
eiga kost á því að sitja alla
fréttamannafundi FRÍ á árinu
og skýra þar frá þætti sam-
vinnuhreyfingarinnar í sam-
bandi við næstu viðburði hverju
sinni. Frjálsíþóttasambandið
býður fulltrúa frá Sambandinu
að sitja ársþing FRÍ sem gestur
þess.
7. Um auglýsingar og fræðslu um
samvinnuhreyfinguna, sam-
kvæmt samningi þessum, vísast
að öðru leyti til áætlunar sem
gerð hefur verið og fulltrúar
FRÍ hafa kynnt sér og fallist á.
8. íþróttastyrkurinn greiðist út
með jöfnum greiðslum allt árið
eftir nánara samkomulagi. Við
hverja greiðslu gerir frjáls-
íþóttasambandið Sambandinu
grein fyrir umsvifum FRÍ
næstu 4 mánuði.
Greiðslur eru þó háðar því að
við samning þennan verði stað-
ið. Greiðslur styrksins eru í
höndum auglýsingastjóra Sam-
bandsins og framkvæmdastjóra
fjármáladeildar.
9. Auglýsingastjóri Sambandsins
hefur umsjón með framkvæmd
þessa samnings af hálfu Sam-
bandsins, en FRÍ skal tilnefna
mann af sinni hálfu til sam-
starfs við Sambandið um fram-
kvæmd samningsins.
Af samningi þessum eru gerð
tvö samhljóða eintök og heldur
hvor aðili sínu eintaki.
Reykjavík, 8. október 1982.
F.h. Samb.'ísl. samvinnufé-
laga, Gunnsteinn Karlsson.
F.h. Frjáisíþróttasambands
íslands, Örn Eiðsson.
Áætlun um samstarf FRÍ og
Sambandsins á árinu 1983
1. Auglýsingar á Laugardalsvelli í
Laugardalshöll og Baldurshaga,
svo og á víðavangshlaupum FRI.
a) Vöruauglýsingar á Laugar-
dalsvelli (frjálsíþróttavellin-
um) sem verði uppi allt
sumarið.
b) Vöruauglýsingar í sambandi
við innanhússmót, bæði í
Laugardalshöll og í Baldurs-
haga.
c) Vöruauglýsingar við rásmark
og endamark víðavangs-
hlaupa FRÍ.
d) Happdrættismiðar með auglýs-
ingu verði afhentir áhorf-
endum við inng. Vinningar
síðan afhentir í mótsiok.
e) Samvinnufáninn eða merki
Sambandsins verði á Laug-
ardalsvelli eftir nánara
samkomulagi.
f) Hreyfanlegar auglýsingar, sem
komið verði fyrir á Laugar-
dalsvelli á tilteknum mót-
um.
2. Auglýsingar á keppnisnúmerum
og búningum keppenda
a) Auglýsingar verða á keppn-
isnúmerum allra móta FRÍ
hérlendis, en þau eru mörg á
hverju ári.
b) Landsliðsbúningar verða
merktir Sambandinu eins og
lög og reglugerðir heimila
hverju sinni.
3. Aörar auglýsingar
a) Auglýsingar um að FRÍ sé
handhafi íþróttastyrks Sam-
bandsins 1983.
— Prentað á umslög og
bréfsefni FRÍ.
— Á umslög og bréfsefni
Sambandsins.
— Fellt inn í auglýsingar
Sambandsins.
— Keypt auglýsing á Laug-
ardalsvellinum.
b) Sameiginlegar auglýsingar
með FRl fyrir stórmót.
(Blöð, sjónvarp, götuauglýs-
ingar o.fl. þ.h.)
c) Auglýsa í leikskrám og bækl-
ingum, sem FRÍ gefur út.
d) Eiga samvinnu við þekkta
frjálsíþóttamenn um vöru-
auglýsingar samvinnuhreyf-
ingarinnar eins og lög og
reglur íþróttahreyfingarinn-
ar leyfa.
4. Boðsmiðar
Boðsmiðar að ákveðnum leikjum
verði prentaðir og sérstökum
hópum verði boðið á frjáls-
íþróttamót t.d.:
— ákv. hópi samvinnustarfs-
manna
— viðskiptavinum ákveðinna
samvinnuverslana (miðar af-
hentir í verslunum við inn-
kaup).
5. Heiðursgestir
Forystumenn samvinnuhreyf-
ingarinnar verði heiðursgestir
FRÍ á ákveðnum stórmótum
hérlendis og erlendis.
6. Fræðslustarf
a) Fræðslu- og kynningarbækl-
ingum um samvinnuhreyf-
inguna verði dreift í möpp-
um þátttakenda á námskeið-
um FRl og einnig á ársþingi
þess og stærri fundum.
b) Samvinnuauglýsingar (ekki
vöruauglýsingar) verði
keyptar í fræðslubækling
FRI.
7. Blaðamannafundir
Fulltrúi frá Sambandinu eigi kost
á því að sitja alla blaðamanna-
fundi FRÍ og skýra þar frá
þætti samvinnuhreyfingarinn-
ar í sambandi við mót og önnur
mál, sem þar er fjallað um
hverju sinni.
8. Nýjar hugmyndir
Stöðugt verði leitað að nýjum
hugmyndum að nýtingu styrks-
ins meðan á samstarfi stendur
og möguleikum á framkvæmd
þeirra hugmynda.
Mosfellssveit:
Aurskriða
féll á tún
„ÞAÐ AÐ aurskriða skyldi falla
niður úr Mosfellinu hérna megin
kom mér mjög á óvart. Ég varð einn-
ig mjög hissa á hversu mikið féli úr
fjallinu," sagði Olafur Ingimundar-
son, bóndi á Hrísbrú í Mosfellssveit,
en á þriðjudaginn um kl. 15.30 féll
aurskriða úr Mosfelli og þvert yfír
túnið hjá Olafí.
Ólafur sagði að það hefði ekki
komið fyrir áður sér vitanlega að
það hefði fallið skriða úr Mosfelli
þeim megin sem bær hans er við
fjallið. Hann sagði að þar sem
skriðan hefði verið breiðust hefði
hún verið um 50 metrar og hún
hefði tekið með sér tvær girð-
ingar. Kvað hann það mildi að
ekkert annað hefði orðið fyrir
skriðunni. „Það skemmir náttúru-
lega fyrir að fá svona aurskriðu á
túnið hjá sér,“ sagði Ólafur enn-
fremur, „því hún klýfur túnið
þannig að það verður erfiðara að
vinna það á eftir. Þetta er einnig
það mikið magn að það yrði dýrt
að fjarlægja það af túninu. Þetta
grær þó upp með tímanum en það
er svo mikið grjót í skriðunni að
það verður sennilega seint hægt
að nota þetta svo vel sé,“ sagði
Ólafur Ingimundarson að Iokum.
Eins og sjá má á myndinni féll
skriðan alliangt inn á túnið og á leið
sinni reif hún niður tvær giröingar.
Fremst á myndinni má sjá Ólaf Ingi-
mundarson, bónda á Hrísbrú, og
son hans Andrés.
Feginn, hafí verið um
misskilning að ræða
— segir Ólafur G. Einarsson
„ÉG VÆRI feginn ef um misskilning
hefði verið að ræða,“ sagði Ólafur G.
Einarsson, formaður þingflokks
sjálfstæðismanna, í samtali við Morg-
unblaðið í gær. Hann var inntur álits
á þeim ummælum Halldórs Ás-
grímssonar, sjávarútvegsráðherra, í
Morgunblaðinu á þriðjudag, að það
væri misskilningur hjá Ólafí, að skoð-
anir væru skiptar innan ríkisstjórnar-
innar um ráðstöfun gengismunar.
Ólafur sagði að ef rétt væri, að
um misskilning hefði verið að
ræða, þá sýndist sér að ekki væri
hætta á ferðum fyrir saltfiskfram-
leiðendur. „Ég ítreka þó að ummæli
mín í Morgunblaðinu síðastliðinn
laugardag voru byggð á samtali við
Sverri Hermannsson. Sjálfur sit ég
ekki ríkisstjórnarfundi þannig að
ég veit ekkert frekar um það sem
þar fer fram.“
Margeir vann í síðustu umferð
MARGEIR Pétursson hafnaði í 4.—8.
sæti á alþjóðlega skákmótinu í Gaus-
dal sem iauk í gær. Margeir sigraði
Finnann Yrjola í 9. og síðustu umferð
og hlaut 6 vinninga, ásamt ungverska
stórmeistaranum Rilek, Piu Cramling,
Svíþjóð, Bator sem er landflótta Pól-
verji búsettur í Svíþjóð og Welin frá
Svíþjóð.
Bandaríkjamaðurinn Kudrin sigr-
aði á mótinu, hlaut 7 vinninga.
Landi hans Tisdall og Plaskett,
Englandi, urðu í 2.-3. sæti með 6Vfe
vinning.
Hilmar Karlsson gerði jafntefli
við Hollendinginn Wassemann í síð-
ustu umferð og hlaut 3V4 vinning.
Árni Þ. Árnason gerði jafntefli við
Schubert frá Austurríki og hlaut 3
vinninga.
Hreppstjóri
í 44 ár
Horgareyrum, 11. á(0>st.
ÞANN 10. þessa mánaðar lét
Lárus Ág. Gíslason hrepp-
stjóri á Miðhúsum í Rangár-
vallasýslu af störfum eftir 44
ára hreppstjórn. Lárus mun
hafa gegnt hreppstjórastörf-
um í Hvolhreppi lengst allra
manna svo vitað sé.
Markús