Morgunblaðið - 21.09.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 21.09.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1983 Marcús Túllíus Cíceró: Um ellina Bókmenntir Guðmundur Heiðar Frímannsson Hið íslenska bókmenntafélag, 1982, 108 bls. Aldur hver á sína gleði Ást á heima í ungu geði; aldur hver á sína gleði; yrkir Helgi Hálfdanarson í orðastað Shakespeare í Þrett- ándadagsnótt. Það má orða boð- skap Cícerós í bókinni um ellina sem út kom á síðasta ári með þess- um orðum. Tilgangurinn er að leiða fram ýmsa þá kosti sem ellin hefur umfram önnur æviskeið og andmæla útbreiddum hugmynd- um um ókosti sem ellinni fylgdu. Það er merkilegt að margt af því sem Cíceró hafði orð á fyrir tvö þúsund árum og kemur nú í ís- lenskum búningi skuli enn eiga við. Þessi litla bók hefur margt að flytja lesanda á okkar dögum. Þótt Cíceró hafi verið merkilegur rit- höfundur og stjórnmálamaður í Rómarborg á síðustu árum lýð- veldisins, þá er það ekki eina ástæða þess að menn ættu að lesa rit hans Um ellina. Þekkingu á klassískum höfund- um í Róm eða Aþenu er mjög ábótavant um þessar mundir. I menntaskólum landsins hefur kennsla í klassískum málum dreg- ist saman og hefðbundnar mála- deildir lagst sums staðar niður. I staðinn hafa komið nýmáladeildir. Við þessu er svo sem ekkert að segja. En þó er ekki einvörðungu hægt að skýra breytinguna með því að áhugann skorti hjá nem- endum. Skólum ber ákveðin skylda til að flytja menningararf- leifð til nemenda sinna. Þeir þurfa því að skapa áhuga. Þeir bera því sína ábyrgð á því hvernig klass- ískum fræðum er komið í landinu. Cíceró var fæddur árið 106 fyrir Krists burð í grennd við borgina Arpinum sem er u.þ.b. 100 km austur af Róm. Hann var veginn við Formíae við ströndina um 150 km sunnan Tíberósa, 7. desember árið 43 f.Kr. Á þeim 63 árum sem hann lifði afrekaði hann ýmislegt. Hann komst til æðstu metorða innan rómverska ríkisins. Hann varð kvestor árið 75 f.Kr., edíll ár- ið 69 f.Kr., dómstjóri árið 66 f.Kr. og ræðismaður 63 f.Kr. Ræð- ismannsembættið var æðsta emb- ætti í Rómarborg og voru á hverj- um tíma tveir ræðismenn eða konsúlar. Völdum þeirra voru sett takmörk heima fyrir í Rómarborg, en í hernaði utan borgarmúranna fóru þeir með óskoruð völd. Á þrí- tugasta og öðru ári fær Cíceró sæti í öldungaráðinu sem þá var orðin æðsta valdastofnun ríkisins. Cíceró var mesti mælskumaður í Rómarborg um sína daga. Á þeim tíma, eins og löngum síðan, hefur mælskulist og lögþekking verið nauðsynleg þeim sem hugði á frama í stjórnmálum. Mælskan mun hafa orðið Cíceró til meiri vegsauka en nokkuð annað. Hann flutti mál margra ríkra skjólstæð- inga í Róm og utan Rómar, „og það var ómetanlegt í þjóðfélagi þar sem gagnkvæm greiðasemi var undirstaða mannlegra sam- skipta í margfalt ríkara mæli en nú gerist", eins og segir í ágætum og fróðlegum formála bókarinnar eftir Eyjólf Kolbeins. Cíceró var árin 79—77 f.Kr. í Grikklandi og Litlu-Asíu við framhaldsnám í heimspeki og mælskulist og dvaldist þá meðal annars hálft ár í Aþenu. Helsta framlag Cícerós sem mennta- manns er yfirburðavald á latn- eskri tungu og hins vegar setti hann fram mörg meginatriði grískrar heimspeki á latínu og sameinaði rómverska menntahefð grískri heimspeki. Rit hans um þau efni voru um langan aldur helsta fróðleiksnáma mennta- manna í Evrópu um gríska heim- speki. Það hefur verið ienska að telja Cíceró ekki sérlega merki- legan heimspeking. Sé hann bor- inn saman við Grikkina stenst hann þeim engan veginn snúning. En hann er snjall rithöfundur, skýr og læsilegur sem er mjög mikilvægt. Um ellina er samræða eins og heimspekiritin grísku. Cató hinn eldri er aðalpersóna samtalsins og Cíceró leggur honum í munn skoð- anir sínar um ellina. Cató byrjar samræðuna á að rifja upp ævi ým- issa merkra Rómverja. Niðurstað- an er í sem fæstum orðum þessi: „Iðkun fræða og dyggða er vissu- lega haldkvæmast vopna í baráttu við ellina; ef slíkt hefur verið rækt á öllum aldursskeiðum verður uppskeran dýrlegur ávöxtur að lokinni langri og farsælli starfs- ævi, ekki eingöngu vegna þess að slíkt líferni endist oss til æviloka — enda þótt það skipti meginmáli — heldur og vegna þess að ekkert er dýrlegra en vitundin um að vel var lifað og minningin um að hafa látið gott af sér leiða í lífinu." (Bls. 44.) Þetta er ágæt lífsspeki og ekk- ert fjarri sanni. En ég verð að játa það að mér hefur þótt það merki- legt um Platón og Aristóteles og einnig Cíceró að þeir trúa því að iðkun heimspeki sé æðst allrar mannlegrar starfsemi. Ég hef þá sterklega grunaða um að vera ekki óvilhallir dómarar í því máli. Cató nefnir fjórar ástæður þess að menn telji ellina ömurlega. „Þá fyrsta að ellin svipti menn starfshæfni, í öðru lagi að hún veikli líkamann, hina þriðju að hún ræni oss næstum öllum lysti- semdum, og fjórðu að hún sé fyrir- boði dauðans." (Bls. 47—48.) Meg- inmál samræðunnar fer í að hrekja þessar ástæður og sýna fram á það að ellin sé unaðsleg- asta æviskeiðið hafi ævinni verið skynsamlega varið. Þessi bók er öll hinn vandað- asta. Hún er brotin öðruvísi inn í kápuna en venjan hefur verið með Lærdómsrit Bókmenntafélagsins og sýnist mér það til bóta. Þýðing- in er í alla staði hin vandaðasta en hana gerði Kjartan Ragnars. Inn- gang og skýringar ritaði Eyjólfur Kolbeins og ætti hvort tveggja að auðvelda lesendum skilning. Þessi bók hefur það einkenni sem er að- al góðra bóka: Hún batnar því oftar sem hún er lesin. 37 Ungmennafélag íslands: Fjölsótt Sambands- þing í Stapa SAMBANDSÞING Ungmennafélags íslands, hið 33. í röðinni, var haldið í Félagsheimilinu Stapa í Njarðvík dagana 10. og 11. september sl. Þingið sátu rúmlega 100 fulltrúar og gestir. Formaður UMFÍ, Pálmi Gíslason, setti þingið með yfirlits- ræðu um störf síðustu tveggja ára. í ræðu Pálma og skýrslu stjórnar kom fram að starfsemin er í örum vexti og eru nú yfir 200 ungmennafélög starfandi í landinu með um 26 þús- und félaga. Fjölmörg mál voru lögð fyrir þingið, sem starfshópar fjölluðu um og lögðu síðan fam til af- greiðslu síðari dag þingsins. Má þar nefna ýmis mál varðandi næsta landsmót, erlend samskipti, fjármál, skipulags- og útbreiðslu- mál, málefni Skinfaxa og félags- málaskólans, tillaga um friðar- mál, um Þrastaskóg og margt fleira. UMFÍ varð 75 ára á síðasta ári og settu þau tímamót á ýmsan hátt svip sinn á starfið, m.a. var efnt til herferðarinnar „Eflum ís- lenskt", og í framhaldi af því var UMFÍ þátttakandi í nýafstaðinni iðnsýningu. Var og afmælisins minnst með ýmiss konar útgáfu- og kynningarstarfi og innan skamms verður saga UMFÍ gefin út. Fréttatilkvnnino

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.