Morgunblaðið - 21.09.1983, Blaðsíða 6
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1983
Af evrópumótinu í Roderath
Þeim Tómasi og Fjölni virtist ekki muna um þaö að skila 250 metrunum á 21,7 sekúndum keppnislaust eins og sést
á mvndinni. En þessi tími er aðeins sekúndubroti frá gildandi fslandsmeti.
Loft lævi blandið
fyrsta dag mótsins
íslendingar unnu EM-titil strax á fyrsta degi mótsins
Aðalsteinn og Baldur sigruðu með gltesibrag í gæðingaskeiði og fímmgangi,
en þessi mynd er tekin í úrslitum í fímmgangi.
komust í úrslit um sjötta til sjöunda sæti í báðum greinum og var þetta mikill
móralskur sigur fyrir Lárus sem þarna keppti í fyrsta skipti á Evrópumóti.
Hestar
Valdimar Kristinsson
NÚ að afstöðnu sjöunda Evr-
ópumóti íslandshestaeigenda
hugsa vafalaust margir af
þeim sem á mótinu voru til
baka og reyna að gera sér
grein fyrir hvaða þýðingu
þetta mót hefur fyrir okkur
Islendinga. En þótt margir
íslendingar hafi átt þess kost
að fylgjast með mótinu á
áhorfendabekkjunum í
Roderath þá eru þeir án efa
margfalt fleiri sem hafa orðið
að fylgjast með úr fjarlægð
og þá í gegnum fjölmiðla.
Það er stórkostleg upplifun
að vera á Evrópumóti og svo
maður tali nú ekki um þegar
vel gengur hjá okkar
mönnum eins og nú gerði. Er
því ekki nema sanngjarnt
fyrir þá sem ekki voru á mót-
inu að rekja örlítið nánar en
gert hefur verið gang mála
þá þrjá daga sem mótið stóð
yfir. Að sjálfsögðu er ekki
hægt að gera því góð skil í
einni grein en hér verður rið-
ið á vaðið með því að sagt
verður frá gangi mála á
fyrsta degi mótsins auk þess
sem hér birtast öll helstu úr-
slit mótsins.
Fyrirfram var vitað að við yrð-
um atkvæðamiklir í keppni á
fimmKangshestum en heldur var
þó útkoman betri en ráð var fyrir
gert. En það voru fjórgangshest-
arnir tveir sem komu svo
skemmtilega á óvart og knaparnir
á þeim, þau Olil Amble og Lárus
Sigmundsson. Heldur þótti vonlít-
ið að þeir kæmust í úrslit um
sjötta til tíunda sæti en raunin
varð önnur. Eftir þessa niðurstöðu
má ætla að við getum gert okkur
nokkra von um enn betri árangur
á næsta Evrópumóti því þrátt
fyrir að þeir Bjarmi og Bliki séu
góðir hestar þá er það ekkert
launungarmái að við eigum enn
betri fjórgangshesta hér heima
sem gætu náð lengra ef rétt er á
málum haldið. Er þá átt við ná-
kvæma markvissa þjálfun með
Evrópukeppni efst í huga.
Þjóðverjar og
íslendingar sterkastir
Ekki fór á það milli mála að
íslendingar og Þjóðverjar voru
eins og oft áður með sterkustu
sveitirnar. Þjóðverjar nær einráð-
ir í fjórgangi og tölti en íslend-
ingar með örugga forystu í fimm-
gangi og skeiðgreinunum. En
óneitanlega setti það leiðinlegan
svip á fimmganginn að Karl
Zingsheim, Þýskalandi, var
dæmdur úr leik eftir að hafa hlot-
ið flest stig í undankeppni í
fimmgangi og lent í fjórða sæti í
gæðingaskeiði. Var greinilegt að
þar var um að ræða verðugan
keppinaut fyrir íslendingana.
Ekki eru öll kurl komin til grafar í
þessu máli þar sem ekki er búið að
rannsaka blóðsýni það sem tekið
var úr hesti hans. En eins og áður
hefur komið fram var talið að
hestur Karls Zingsheim hafi verið
undir áhrifum lyfja sem óheimilt
er að nota fyrir keppni.
í herbúðum íslendinga ríkti
mikil spenna fyrir keppnina og
lengi vel eftir að keppnin hófst. En
eftir því sem lengra leið á keppn-
ina og ljóst var hvert stefndi fór
heldur að slakna á spennunni.
Loft var lævi blandið eftir að
Tómas Ragnarsson hafði lokið
keppni því hann reið prógrammið
á allt annan hátt en þeir sem á
undan voru. Allir höfðu farið mjög
gætilega og ekki teflt á tvær hætt-
ur og þar á meðal Aðalsteinn
Aðalsteinsson en hann var annar
inn í keppnina og þykir það ætíð
erfitt hlutskipti. En eftir að Tóm-
as lauk keppni biðu menn spenntir
eftir úrskurði dómara og var mað-
ur viss um að annaðhvort myndu
þeir dæma hann niður úr öllu
valdi eða þá á hinn veginn sem og
varð raunin. Eftir þennan dóm
sáu menn að íslendingarnir og
þeirra reiðlag áttu upp á pallborð-
ið hjá dómurunum. Þegar for-
keppni í fimmgangi lauk voru
fjórir íslendingar inni í úrslitum
og Gunnar Arnarson í sjötta sæti
ásamt tveimur öðrum. Heldur fór
að slakna á mönnum eftir þessi
góðu úrslit en næst var það fjór-
gangurinn.
Góð útkoma
í fjórgangi
í raun og veru vissu íslendingar
ekkert hvar þeir stóðu í fjór-
gangnum, menn voru hræddir um
eitthvert afhroð en sumir ólu von í
brjósti þótt ekki væri haft hátt
um það. Olil fór á undan Lárusi í
hringinn og var hún reyndar mjög
framarlega í röð inn í keppni. Sýn-
ing hennar tókst framúrskarandi
vel og man undirritaður ekki eftir
I grein
Aðalsteinn yfirburða-
sigurvegari í
gæðingaskeiði
Og nú var farið að verða gaman
að vera íslendingur því næst á
dagskrá var gæðingaskeið. Allur
skrekkur var rokinn út í veður og
vind þegar hér var komið sögu og
þeir Aðalsteinn, Reynir, Tómas,
Eyjólfur og Gunnar hvergi smeyk-
ir. Aðalsteinn og Baldur sigruðu
með miklum yfirburðum og var
það skoðun manna að sjaldan eða
aldrei hafi sést eins vel útfærðir
sprettir í gæðingaskeiði og hjá
Aðalsteini og Baldri á þessari
stundu. Skipting af tölti á stökk
frábær, niðurtaka á skeið af
stökki fullkomlega hnökralaus,
hundrað metra skeiðsprettur af
fullri snerpu og fallegu skeiðlagi
og fimmtíu metra niðurhæging
hreint ótrúlega góð.
Næstur Aðalsteini kom svo
Reynir á Sprota sem einnig tókst
mjög vel upp. í þriðja sæti varð
Austurríkismaðurinn Johannes
Pucher á Bjarka frá Stokkseyri.
Eyjólfur varð í fjórða sæti og
Gunnar í áttunda. Fjölnir var
eitthvað erfiður hjá Tómasi þann-
ig að þeir urðu nokkuð aftarlega á
merinni. Eftir þennan fyrsta dag
mótsins voru íslendingar ánægðir
með sinn hlut, annað var ekki
hægt, svo að segja allt gekk upp og
jafnvel meir en það. En kálið var
ekki sopið þótt í ausuna væri kom-
ið, eftir var forkeppni í tölti og
síðan úrslit í tölti, fimmgangi og
fjórgangi á sunnudag.
En áður en lengra er haldið er
ekki úr vegi að birta hér heildar-
Eyjólfur ísólfsson á Krák náði bestum árangri íslendinganna í tölti, varð þar
I sjötta til sjöunda sæti. Auk þess varð hann í öðru sæti í keppni um
sigurvegara mótsins á fímmgangshesti.
Aðstaðan í Roderath var ein sú besta sem boðið hefur verið upp á frá upphafí
Evrópumóta. Inn í hringvellinum sést Ijós ferningur þar sem hlýðnikeppnin
fór fram. Vinstra megin sjást sölutjöldin þar sem seldur var bjór, matur og
ýmislegt fleira. Þar fyrir ofan má svo sjá skeiðbrautina.
að hafa séð Blika jafn góðan og
einmitt á þessari stundu. 45,90
stig var niðurstaðan hjá dómurúm
en í raun sagði það ekki mikið á
þessari stundu, því vitað var að
margir góðir keppendur ættu eftir
að spreyta sig í hringnum. Þegar
kom að Lárusi, voru línur heldur
farnar að skýrast og miklar líkur
á að Olil kæmist í úrslit um sjötta
til tíunda sæti. Þá spurði maður
sjálfan sig hvort ekki væri hugs-
anlegt að Lárusi tækist líka vel
upp. Og dæmið gekk upp hjá Lár-
usi og lenti hann í tíunda til ell-
efta sæti og þar með í úrslitum
ásamt Olil.
úrslit í öllum greinum mótsins.
Eru hér taldir upp fimm efstu í
öllum greinum. í tölti, fimmgangi
og fjórgangi eru birt stig úr for-
keppni en eins og sjá má urðu
nokkrar breytingar á röð í úrslit-
um.
Orslit urðu sem hér segir:
TÖLT:
1. Hans Georg Gundlach, Þýskalandi,
á Skolla frá Þýskalandi, 102 stig.
2. Andreas Trappe, Þýskalandi, á Þór
frá Sporz f Sviss, 104 stig.
3. Daniela Stein, Þýskalandi, á Seif frá
Kirkjubæ, 86 stig.
4. Joris van Grinsven, Hollandi, á
Rauðdreka frá Hollandi, 89 stig.