Morgunblaðið - 23.09.1983, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1983
Mál Hallgróns Inga fyrir Hæstarétti:
Krafist hið minnsta
12 ára fangelsis
RÍKISSAKSOKNARI, Þórður
Björnsson, hefur krafist fyrir Hæsta-
rétti refsingar eigi undir 12 ára fang-
elsi yfir Hallgrími Inga Hallgríms-
syni fyrir að hafa gerst sekur um
tilraun til manndráps, stórfellda lík-
amsárás og tilraun til nauðgunar
þegar hann réðst á 15 ára gamla
stúlku og misþyrmdi á hrottalegan
hátt í skúr við Þverholt í Reykjavík í
desember 1981.
Hallgrímur Ingi var dæmdur í
10 ára fangelsi í Sakadómi Reykja
víkur.
Ráðist á mann
fyrir utan Borgina
RÁÐIST var á 33 ára gamlan mann
fyrir utan Hótel Borg aðfaranótt
sunnudagsins og var hvað eftir ann-
að sparkað í andlit hans. Lögreglan
var kvödd á vettvang á fjórða tíman-
um og þegar hana bar að garði, hafði
hópur fólks safnast um illa útleikinn
mann, sem lá f götunni.
Atvik eru þau, að maðurinn
hugðist stilla til friðar meðal
manná sem áttu í átökum og
skipti engum togum að maðurinn
var felldur og hvað eftir annað
sparkað í andlit hans. Maðurinn
vankaðist og var fluttur í slysa-
deild. Hann var illa útleikinn í
andliti og var óttast að hann hefði
kinnbeinsbrotnað. Hann var hafð-
ur í slysadeild um nóttina en við
myndatökur kom í ljós, að hann
hafði ekki brotnað.
Árásarmaðurinn er ófundinn og
biður lögreglan í Reykjavík þá
sem geta gefið upplýsingar um
hann, vinsamlega að gefa sig
fram.
„Hvað er að gerast“
AÐ GEFNU tilefni skal þeim
lesendum Morgunblaðsins,
sem hug hafa á að koma
fréttatilkynningum inn í
dálkinn „Hvað er að gerast
um helgina" í föstudagsblaði,
bent á að fréttatilkynning-
unum verður að skila í síð-
asta lagi kl. 10.00 á fimmtu-
dagsmorgnum. Einnig er
hægt að skila þeim inn á
miðvikudögum.
Þrír liósmanna Mezzoforte á hljómleikum f London I sumar. I kvöld eru hljómleikar í Miinchen og alla næstu
viku í helstu borgum Þýskalands.
Mezzoforte í V-Þýskalandi
— ný plata á markað hér í dag
HUÓMSVEITIN Mezzoforte hefur í kvöld hljómleikaferð um V-Þýska-
land með hljómleikum í Miinchen. Næstu átta daga mun hljómsveitin
leika í öðrum helstu borgum Þýskalands en um mánaðamótin snýr
hljómsveitin aftur til Englands, þar sem hún hefur haft bækistöðvar síðan
í maí, og verður þá lokið við gerð nýrrar hljómplötu. Sú plata mun koma
á markað á íslandi í nóvember en í Bretlandi og e.t.v. víðar eftir
áramótin, að sögn Steinars Berg ísleifssonar, framkvæmdastjóra Mezzo-
forte.
Steinar sagði að um miðjan
október myndi Mezzoforte halda
fimm hljómleika í Hollandi og
fara þaðan til Danmerkur, Nor-
egs og Svíþjóðar, og halda þar
sjö hljómleika. í nóvemberbyrj-
un kæmi hljómsveitin fram i
sjónvarpsþætti í Bretlandi og
léki að auki á New Haven-jazz-
hátíðinni — næst á undan Dizzy
Gillespie, sem væri lokaatriðið
þar um kvöldið. Daginn eftir, 6.
nóvember, myndi hljómsveitin
koma fram við verðlaunaafhend-
ingu British Jazz Funk Awards í
London, sem væri þýðingarmikið
atriði. Ef til vill kæmi út tveggja
laga plata með hljómsveitinni í
Englandi um mánaðamótin
október-nóvember en það væri
óráðið enn. Síðustu viku nóv-
ember mun svo Mezzoforte leika
sem aðalnúmer I jazzklúbbi
Ronnie Scott í London. Ýmislegt
fleira væri í deiglunni. Liðsmenn
hljómsveitarinnar eru væntan-
legir heim í jólafrí en allsendis
er óvíst hvort verður af því að
hljómsveitin komi fram hér við
það tækifæri.
Steinar sagði að í dag kæmi út
ný plata með Mezzoforte á ís-
landi og væri það hljómleika-
plata, sem hefði verið hljóðrituð
á tónleikum sveitarinnar í Dom-
inion Theatre í London fyrr á
þessu ári. Sú plata mun ekki
koma út erlendis.
Afinælishátíð
Hljóma
BRCAID
WaVT
ÞEGAR Engilbert söng um Bláu augun.
ÞEGAR Hljómar troöfylltu Háskólabíó.
ÞEGAR slagsmálin brutust út í Sandgerði.
ÞEGAR Hljómar þurftu lögreglufylgd á Laugavatn.
ÞEGAR Rúnar gekk á boröum og fór í heljarstökk í Glaumbæ.
ÞEGAR frúrnar sögöu aö Hljómar væru lúsugir.
annað kvöld, laugardagskvöld
kl. 19, stundvíslega.
Allir gömlu félagar Hljóma veröa
heiöursgestir kvöldsins, þeir Erling-
ur Björnsson, Karl Hermannsson,
Eggert Kristinsson og Einar Júlíus-
son en auk þeirra veröa á sviðinu
aö sjálfsögöu þeir Gunnar, Rúnar
og Engibert ásamt 15 toppsöngv-
urum þessa tímabils.
Allar gömlu góöu minn-
ingarnar verða rifjaðar
upp allt frá Krossinum í
Glaumbæ.
Þaö er 12 manna
hljómsveit Gunnars
Þórðarsonar sem leikur
undir á einhverjum
mestu tónleikum sem
sviðsettir hafa veriö
hérlendis.
Breiðholts-
blóm
i þá gömlu góöu daga þá var ekkert kreditkort
aö hafa en nú tökum viö hiö vinsæla EUROCARD
til daglegra nota
Boröapantanir í síma 77500 í dag. Pantið miða strax og takiö þátt í
Hljómakvöldi þar sem allir aödáendur Hljóma hljóma nú saman.
Aögangseyrir kr. 300.